Morgunblaðið - 16.03.1985, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MARZ 1985
Við sáum bara
hengiflugið nálgast
— segir Júlíus Sigurjónsson, sem ásamt þremur öörum
var í bfl, sem rann fram af veginum í Óshlíð
BoUmgarvík, 11 marz.
BIFRREIÐ fór úUf Óshlíóarvegi síddegis i sunnudag og rann 30 metra
niAur snarbratu hliðina og stöðvaðist um 11,5 metra fri 6 til 7 metra hiu
þverhníptu hengiflugi. í bílnum voru 3 menn auk ökumannsins, Júlíusar
Sigurjónssonar, en honum sagðist svo fri þessari lífsreynslu:
(Við höfðum farið fjórir sam- fyrir að hann rynni lengra.
an fyrr um daginn inn á ísafjörö
til að taka þátt í bridgemóti og
vorum á leið til Bolungarvíkur
aftur.
Það hafði eitthvað rignt um
daginn og hálkubloti myndast á
veginum. Við vorum rétt komnir
á óshlíðarveginn þegar bfllinn
rann skyndilega til í hjólförun-
um og það skipti engum togum
að hann fór að snúast. Ég réð
ekki við að rétta hann af, en
hann stöðvaðist nánast á brún-
inni með framendann útaf. Ég
hélt að hann færi ekki lengra, en
augnabliki síðar fór hann að síga
rólega fram af og rann svo niður
snarbratta hlíðina.
Ég hafði engan tima til að
verða hræddur, en stóð á brems-
unni sem fastast í þeirri von að
hjólin græfust niður i aurinn i
hlíðinni. Við sáum bara hengi-
flugið nálgast, en sem betur fer
stöðvaðist bílinn svona einum og
hálfum metra frá brúninni. Það
var ekkert fum á okkur, við kom-
um okkur saman um að fara með
varúð út úr bílum því okkur
fannst lítið þurfa til að hann
rynni áfram.
Eftir að við vorum komnir út
úr bílnum hlóðum við steinum
fyrir hjólin til að koma í veg
Nokkrir félagar úr karlakór
Bolungarvíkur, sem voru á leið á
ísafjörð, voru þá komnir á vett-
vang en þeir höfðu veitt athygli
hjölförum útaf veginum. Fór
einn þeirra félaga með okkur til
Bolungarvíkur.“
Aðspurður um hvernig honum
hefði liðið eftir á, er tími gafst
til íhugunar um atburðinn, sagði
Júlíus.
„Það er svo margt tilviljunar-
kennt í þessu. Billinn fer rólega
fram af á heppilegum stað, ef
svo má segja. Hefði hann farið 1
til 2 metrum utar eða innar
hefði hann ekki farið niður öðru-
vísi en að velta og það er engin
spurning, að ef frost hefði verið I
jörðu og jafnvel ísilagt, eins og
oft er um þenna árstíma, hefðum
við farið viðstöðulaust niður I
fjöru. Ég þori ekki að hugsa þá
hugsun til enda,“ sagði Júlíus að
lokum.
Þess má geta að bifreiðin sem
er af gerðinni Rover 3500
skemmdist ekkert í þessari svað-
ilför. Það sá ekki einu sinni á
pústkerfi btlsins.
Gunnar
Síðustu myndirnar eru af Júlíusi Sigurjónssyni við bifreiðina.
L Ú X (I S
Á LÁGU VERÐI
Enn eru eftir nokkrar 4ra—5 herb.
íbúöir og nokkrar 3ja, 4ra og 5 herb.
íbúðir meö risi í fjölbýlishúsum þeim
viö Skógarás sem viö höfum auglýst
undanfarna laugardaga. íbúöirnar eru
á föstu veröi og skilast í nóv.—jan.
nk. í eftirfarandi ástandi:
• Húsið fullbúið að utan.
• Sameign hillfrágengin, án teppa.
• Með gleri og opnanlegum fögum.
• Með aöalhurð og svalahurö.
• Með hita-, vatns- og skolplögnum og ofnum.
• Með vólslípuðum gólfum.
• Með loftum tilbúnum undir málningarvinnu.
• Með grófjaf naðri lóð.
Tólf bílskúrar eru meö húsinu.
Möguleiki er aö festa sér skúr.
VERÐ:
3ja herb. m. risi. Stærö 79,3+61,67 fm.
kr. 1.745 þús.
5 herb. m. risi. Stærö 110,48+72,31 fm.
Kr. 2.175 þús.
DÆMI UM GREIÐSLUKJÖR:
3ja herb. m. risi 1.745 þús.
Húsn.málastj. 2—3 m. -i- 770 þús.
Viö undirr. kaups. + 300 þús.
Eftirstöövar greiöist á 14 mánuöum 675 þús.
Kr. 48.214 á mánuöi
3ja herb. m. risi 1.745 þús.
Húsn.málastj. 5 m, + 900 þús.
Viö undirr. kaups. sa. + 300 þús.
Eftirst. á 14. mán. 540 þús.
Kr. 38.928 á mánuöi
VIÐ ERUM SVEIGJANLEGIR í KJÖRUM
Möguleiki er aö taka góöa íbúö uppí stærstu
íbúöirnar. Einnig er möguleiki aö greiöa hluta
af eftirstöövum meö skuldabréfi.
OPIÐ í DAG M
ÞINttlIOLT
— FASTEIGNASALAN —
BANKASTRÆTI S'29455