Morgunblaðið - 09.05.1978, Side 48
AUGLÝSINGASIMINN ER:
22480
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHorgxutblabib
ÞRIÐJUDAjGUR 9. MAÍ 1978
Ljósm. Mbl. Friðþjófur
Við þinglausnir á laugardag. Geir Ilallgrímsson forsætisráðherra kveður Ingólf Jónsson, sem
lætur nú af þingstörfum eftir 36 ára setu á þingi þar af nær 15 ár í ráðherrastóli.
Sjá grein á hlaðsíðu 27 í hlaðinu í dag
,;VIÐ VONUMST til þess að
Islendingar hætti hvalveiðum
sjálfviljugir næstu 10 árin «g taki
forystu í þessum málum í heimin-
um. Ef þeir gera það ekki komum
-------□
----------------------------□
við á íslandsmið þegar hvalvertíð
hefst á skipi okkar Rainbow
Warrior og reynum eftir mætti
að hindra hvalveiðar íslendinga í
sumar." sögðu þeir Alan Thornt-
AJan Thornton t.v. og Remi Parmenter.
on og Remi Parmenter fulltrúar
Greenpeace samtakanna í gær. er
þoir kynntu málefni samtakanna.
Þeir félagar sögðu, að áður en
Rainbow Warrior héldi á Islands-
mið, kæmi skipið við í 9 borgum
og bæjum í 7 löndum Evrópu, þar
sem málstaður samtakanna yrði
kynntur. Á skipinu yrði 22 manna
áhöfn, allt áhugamenn, en stór
hluti vanir sjómenn með öll
réttindi. Þeir kváðu að kostnaður
við mótmælaaðgerðirnar væri
áætlaður 50 þús. sterlingspund eða
milli 23 og 24 millj. ísl. kr.
Thornton og Parmenter virtust
leggja mesta áherzlu á að friða
langreyðina og sögðu þeir að
veiðar íslendinga undanfarin ár og
þá sérstaklega í fyrra sýndu að
stofninn væri á miklu undanhaldi.
Þá kváðu þeir að hin mikla
loðnuveiði setti stofninn í mikla
hættu, þar sem langreyður lifði
mikið á loðnu.
Jón Jónsson forstjóri Hafrann-
sóknastofnunarinnar og Þórður
Framhald á bls 28.
Suðurnesjamenn ræða við forsætisráðherra:
„Við sitjum ekki
lengi með verk-
fallsheimildina’ ’
— segir Karl Steinar Guðnason í Keflavík
„VERKALÝSFÉLÖGIN hér á
Suðurnesjum og vinnuvejtendur
fóru fram á fund með forsætisráð-
herra og fleiri ráðherrum og
Mótmælin kosta Greenpeace 24 milljónir kr.:
Rainbow Warrior kem-
ur við í 9 borgum áður
en skipið f er til Islands
Grásleppu-
bátur kærð-
ur fyrir veið-
ar án leyfis
LANDHELGISGÆZLAN hefur
kært vélbátinn Auðbjörgu HU 6
frá Skagaströnd fyrir að stunda
grásleppuveiöar án teyfis. Var
mál skipstjórans tekið fyrir hjá
sýslumanninum á Blönduósi í
gær.
Auðbjörg er 23 tonna bátur.
Var sótt um grásleppuveiðileyfi
fyrir bátinn í vor en sjávarút-
vegsráðuneytið synjaöi um leyf-
ið, bar sem ekki eru veitt leyfi
stærri bátum en 12 tonna.
Samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæzlunnar fengu útgerðar-
aðilar bátsins síðar leyfi fyrir lítinn
plastbát, sem þeir áttu. Þegar
veiðarnar hófust bárust kvartanir
til sjávarútvegsráðuneytisins um
að eigendur Auðbjörgar notuðu
bátinn við veiðarnar. Var málið
kannað og kom varöskip að
Auðbjörgu að veiðum og var
málið þá kært.
verður sá fundur væntanlcga á
miðvikudag.smorgun." sagði Karl
Stcinar Guðnason formaður
Vcrkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
„Við erum með ákveðnar tillög-
ur varðandi okkar svæði,“ sagði
Karl Steinar, „um stöðu atvinnu-
mála hér og hvernig leysa megi
þessa kjaradeilu. Við munum ekki
sitja lengi með þá verkfallsheimild
sem við höfum fengið ef ekkert
verður að gert og við erum ekki
aðeins með fiskinn á okkar svæði
heldur einnig flugið og það mun
því hrikta í ýmsu ef til aðgerða
þarf að koma af okkar hálfu.“
Embætti ríkis-
sáttasemjara
verður aug-
lýst bráðlega
„IIIÐ NÝJA embætti ríkissátta-
semjara verður auglýst mjög
bráðlega." sagði Gunnar Thorodd-
sen félagsmálaráðherra í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi, en
ný lög um sáttastörf í vinnudeilum
ganga í gildi 1. júní n.k. Lögin
bjóða að embætti sáttasemjara
ríkisins verði fullt starf í stað þess
að vera hliðar- eða aukastarf eins
og verið hefur.
Leitað að heitu vatni í Reykjavík:
Borað niður á
3.500-3.800 m
„NÚ ER verið að hefja borun á
tveimur holum fyrir hitaveituna,
þar sem ætlunin er að fara mun
dýpra en áður og reyna að kanna
hvort vatnslög eru undir því svæði,
sem dýpst hefur verið borað í
hingað til,“ sagði Birgir ísleifur
7 5 íbúðir fyrir aldraða
í notkun í næstu viku
94 íbúðir til viðbótar í haust og um áramót
í NÆSTU viku verða teknar í
notkun 75 íbúðir fyrir aldraða í
fjölbýlishúsi við Furugerði. Verð-
ur flutt í þessar íbúðir 17., 18. og
19. maí n.k. Þá er stefnt að því,
að framkva'mdum við dvalar-
heimili fyrir aldraða í Lönguhlíð
verði lokið í haust og íhúðir þar
teknar í notkun þá og ennfremur
er gert ráð fyrir, að íhúðir í
dvalarheimili fyrir aldraða við
Dalhraut verði teknar í notkun
fyrir eða um áramót. Við Löngu-
hlíð og Dalbraut verða samtals 94
fbúðir.
Á síðustu 5 árum hefur verið
varið um 1700 milljónum króna til
byggingar 194 íbúða fyrir aldraða
og er þá reíknað með þeim íbúðum,
sem nú eru á lokastigi fram-
kvæmda. Ennfremur er í þessari
upphæð kostnaður við hjúkrunar-
heimili fyrir 25 langlegusjúklinga
í Hafnarbúðum. Fyrir voru 30
íbúðir aldraðra í Austurbrún 6 og
60 íbúðir að Norðurbrún 1.
Byggingarframkvæmdir þessar í
þágu aldraðra eru í samræmi við
samþykkt borgarstjórnar Reykja-
víkur um að 7,5% af álögðum
útsvörum í Reykjavík skuli varið
til nýrra íbúða, dvalarheimila og
hjúkrunarheimila í þágu aldraðra.
Á árinu 1974 var gerð áætlun um
byggingu leiguhúsnæðis fyrir aldr-
aða en samkvæmt henni er stefnt
að því að byggja á 10 ára tímabili
350 hentugar eins og tveggja
herbergja íbúðir fyrir aldraða.
Ellilífeyrisþegar í Reykjavík eru
nú um 8000 talsins eða um 10%
borgarbúa. Á árinu 1986 er talið,
að fjöldi þeirra verði kominn í
rúmlega 11000 og hlutfall þeirra af
heildinni hærra en nú.
Gunnarsson borgarstjóri á hverfa-
fundi í Breiðholti á sunnudag.
„Ætlunin er að fara allt niður á
3.500— 3.800 metra dýpi og vita,
hvort þar leynast vatnsæðar, sem
nýta má fyrir hitaveituna. Þetta
vcrður mjög spennandi fram-
kvæmd og mikil eftirvænting að
sjá, hver árangur þessara borana
verður."
Borgarstjóri sagði að þessar tvær
holur yrðu boraðar við Sjómanna-
skólann, á gamla Framvellinum, og
neðan við Suðurlandsbraut fyrir
neðan Hótel Esju. Dýpsta hola
hitaveitu Reykjavíkur nú er 2.300
metrar.
Aðrar helztu framkvæmdir hita-
veitunnar í ár sagði borgarstjóri
vera að ljúka borunum og virkjun-
um í Mosfellssveit. Ný dælustöð í
Reykjahlíð vverður tekin í notkun
og fjórar holur verða virkjaðar í
sumar. Enn er eftir að bora þrjár,
fjórar holur í Mosfellsdal og verður
því lokið í haust eða á næsta ári. Ný
dreifikerfi eru nú aðallega lögð í
Breiðholti og Árbæjarhverfi og lítils
háttar í nágrannabæjunum á nokkr-
um stöðum. Ennfremur verður nú
lögð hitaveita á Grandagarð og í
Örfirisey og þar afgreitt vatn til
þvotta í skipum. Nú er verið að
byggja Reykjaæð; frá Elliðaám að
geymunum í Öskjuhlíð, og kannaðir
verða möguleikar á frekari varma-
öflun innan borgarlandsins.