Morgunblaðið - 09.05.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1978 5
ÍTff?*
Tónlistardag-
ar á Akureyri:
Iþróttaskemm-
Námskeið
fyrir
gæóingadómara
Landsamband Hestamannafélaga hefur ákveöiö
aö halda dómaranámskeiö fyrir þá gæöingadóm-
ara er áöur hafa lokiö prófi í þeirri grein. Gert
er ráö fyrir aö hér veröi eingöngu um aö ræöa
upprifjun fyrir þá sem hafa dómararéttindi og
hefst náskeiöiö í félagsheimili Fáks laugardaginn
13. maí kl. 10.00 f.h. Námskeiðiö stendur í tvo
daga og þátttöku ber aö tilkynna í síma 30178
og veröa þar veittar nánari upplýsingar.
Stjórn Landsambands Hestamannafélaga.
unni breytt í tónleikasal r
UNNIÐ er af fullum krafti að
undirbúningi fyrir Tónlistardaga
á Akureyri, sem haldnir verða um
helgina. íþróttaskemmunni er
breytt í tónleikasal og þar verða
lögð teppi, veggir klæddir og
pallur gerður fyrir hljómsveit,
auk þess sem komið verður fyrir
skermum til þess að bæta hljóm-
burð hússins. Æft er af kappi hjá
Passíukórnum og Lúðrasveitinni
og einnig eru hafnar æfingar hjá
stóra kórnum sem tekur þátt í
flutningi eins verkanna á blás-
aratónleikunum, segir í frétt frá
stjórn Tónlistardaga á Akureyri.
Að þessu sinni verða á Tónlist-
ardögum þrennir stórtónleikar í
íþróttaskemmunni á Akureyri og
er dagskráin eftirfarandi:
Föstudagi Sinfóníutónleikar,
þar sem Sinfóníuhljómsveit Is-
lands leikur undir stjórn Páls P.
Pálssonar, en einleikari á lágfiðlu
verður Unnur Sveinbjarnardóttir.
Á efnisskrá verða verk eftir
Richard Wagner, Béla Bartok og
Ottorino Respighi.
Laugardagi Blásaratónleikar,
þar sem Lúðrasveit Akureyrar
leikur ásamt blásurum úr Sin-
fóníuhljómsveitinni og u.þ.b. 160
manna kór undir stjórn Roars
Kvam. Einleikarar verða Sigurður
I. Snorrason og Ole Christian
Hansen. Á efnisskrá verða verk
eftir Mendelsohn, Reed og Van
Lijnschooten og Berlioz. Þessir
tónleikar eru að því leyti sérstæðir
að öll verkin á efnisskránni verða
hér flutt í fyrsta sinn á íslandi.
Auk þess kemur fram í lokaverk-
inu, Sorgar- og sigursinfóníu
Berlioz, kór þar sem félagar úr
öllum kórum á Akureyri sameina
krafta sína. Mun það verða stærsti
kór norðan heiða, hátt á annað
hundrað manns.
Sunnudaguri Passíukórinn á
Akureyri syngur ásamt kammer-
sveit félaga úr Sinfóníuhljómsveit-
inni. Einsöngvarar verða Ólöf K.
Harðardóttir, Ruth Magnússon,
Jón Þorsteinsson og Halldór Vil-
helmsson en stjórnandi verður
Roar Kvam. Á efnisskránni verða
verk eftir Bach og Mozart.
Leiðrétting
ÞAÐ skal tekið fram, vegna
fréttar frá aðalfundi Skógræktar-
félags Reykjavíkur, að gróðursetn-
ing trjáplantna í Elliðaárhólmum,
sem hófst vorið 1951 í tilefni af 30
ára afmæli Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, hefur alla tíð verið á
vegum Rafmagnsveitunnar, en
plöntur fengnar úr gróðrarstöð
Skógræktarfélags Reykjavíkur í
Fossvogi.
Hafin er sala aðgöngumiða.
Seldir eru miðar á einstaka
hljómleika og einnig áskriftarmið-
ar með nokkrum afslætti en þeir
gilda á þrenna tónleika. Verð miða
á hverja tónleika er 1500 krónur
fyrir fullorðna, 1000 krónur fyrir
börn. Áskriftarmiðar kosta 3500
fyrir fullorðna og 2000 fyrir börn
og skólafólk.
1 EF ÞAÐ ER FRÉTT- W NÆMTÞÁERÞAÐÍ £ MORGUNBLAÐINU
f
; úrvalið
marfatnaðinum
hvitasunnuhelgina
■** J
‘f-íff"'*' ; ■ ■éd
'ffZy 1 - ■'
'Jí <
■
l 1'
I TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
WKARNABÆR
Laugaveg 20 Laugaveg 66 Austurstræti 22 Glæsibæ Si mi 28155