Morgunblaðið - 09.05.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1978
3
Frá hverfafundi borgarstjóra í Breiðholti s.I. sunnudag. en húsfyllir var og mikill
áhugi fundargesta.
Hverfafundir borgarstjóra:
Á 3. hundrad ábend-
ingar og fyrirspurnir
„Mjög ánægður með þátttöku borgarbúa,,> seg-
ir Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri
MORGUNBLAÐIÐ hafði
samband við Birgi ísleif
Gunnarsson borgarstjóra
í gærkvöldi og leitaði
umsagnar hans á hverfa-
fundunum sem hann hef-
ur staðið fyrir að undan-
förnu víðs vegar um borg-
ina.
„Ég er búinn að halda 6
hverfafundi í borginni á
rúmri viku og er mjög
ánægður með þátttöku
borgarbúa í fundunum.
Þeir hafa verið vel sóttir
og það hefur frekar verið
stígandi í fundarsókn.
Fyrir mig sem borgar-
stjóra eru slíkir fundir
mjög gagnlegir. Beint sam-
band sem fæst við borgar-
búa á slíkum fundum er
mjög æskilegt og gagnlegt
fyrir mann í mínu starfi.
Þarna koma fram marg-
víslegar athugasemdir og
fyrirspurnir sem gagnlegt
er að fá þannig beint frá
borgarbúum.
Á 3. hundrað fyrirspurn-
ir og ábendingar komu
fram á þessum fundum.
Efni fyrirspurnanna er
mjög mikið um nánasta
umhverfi fólks, hvað sé að
gerast í framkvæmdum í
einstökum hverfum, hvers
sé að vænta í framtíðinni
og einnig ef eitthvað hefur
farið úrskeiðis. Minna er
spurt um almenn atriði í
borgarmálunum, en hins
vegar má segja að maður
reyni að gera því skil í
framsöguræðu.
Fundirnir sýna tvímæla-
laust áhuga fólks á sínu
umhverfi og borginni al-
mennt og ég vil þakka
fundargestum góða fund-
arsókn og áhuga sem fram
hefur komið á fundunum."
14 tonna fódursíló
fauk 2ja km leið
og náðist óskemmt
Kiðafelli 6. maí 1978
SÁ ATBURÐUR varð í rok-
inu á föstudag sl., að 14
tonna fóðursíló, sem ekki
hafði verið komið á sinn
stað, en bundið niður með
köðlum, hófst á loft þaðan,
sem það var að húsabaki að
Morastöðum í Kjós og stöðv-
aðist ekki fyrr en eftir um 2
km loftferð neðan þjóðvegar
norðan Kiðafells.
Nágrannar hinum megin í daln-
um, sem sáu er þetta gerðist, gerðu
aðvart og óku á þann stað er búast
mátti við að það kæmi niður.
Hafði sílóið lent í skurði í landi
Kiðafells og gátu menn haldið því
þar til hjálp barst og var það síðan
njörvað niður. Sílóið virtist
óskemmt sem er nánast lán, því
verðmæti þess mun vera hátt í 1
milljón króna. Óstætt veður var
hér í þessum tíma frá kl. 6—7.30
og varð að bera grjót í bílana, sem
verið var á, því þeir fuku út á
veginn og munaði ekki miklu, að
þeir f.vkju út af.
Atburður þessi mun hafa gerst
um svipað leyti og bílarnir fuku
við Akrafjall. — Hjalti.
Börkur NK
með 1150 tn
af kolmunna
SÆMILEG kolmunnaveiði hefur
verið á Færeyjarmiðum síðustu
daga, og hafa sum kolmunnaskip-
anna fengiö góðan afla par. Börkur
frá Neskaupstað lagði af stað
áleiðis heim í fyrrakvöld með 1150
lestir af kolmunna og Morgunblað-
inu er kunnugt um að Bjarni
Ólafsson frá Akranesi var pá langt
kominn meö að fylla sig.
Víkingur AK sem einnig er á
kolmunnaveiðum hefur landað einu
sinni hér heima og er nú á leið á
miðin aftur. Þá má reikna með að
Narfi komi bráðlega á miðin og eins
Sigurður RE, sem verið hefur í
vélaskiptum í Svíþjóð. Sigurður á að
fara í reynslusiglingu í dag og ef allt
gengur vel, heldur skipið á kol-
munnamiðin við Færeyjar í kvöld
frá Gautaborg.
U tank j ör staðarat-
kvæðagreiðslan er
að smáglæðast eft-
ir dræma byrjun
Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla móti 39 allan daginn á sama tíma
vegna borgarstjórnarkosninga í siðast.
Reykjavík 28. maí n.k. er nú að Jónas Gústafsson sagði ennfrem-
smáglæðast eftir mjög dræma ur aö mjög slæmt væri hversu fólk
byrjun, að sögn Jónasar Gústafs- kæmi yfirleitt seint til aó kjósa.
sonar yfirborgardómara. í dag Þannig væri það síðustu dagana
hafði alls 151 kjósandi greitt fyrir kosningar aö fólk þyrfti aö
atkvæði, en á sama tíma viö standa í löngum biöröðum í staö
síðustu kosningar höfðu alls 228 þess aö nú er fólk afgreitt án
greitt atkvæði. í gærdag fram tii nokkurrar fyrirstööu. Vió síðustu
klukkan 18 greiddu 57 atkvæði á Framhald á bls. 28.
Með Ferðamiðstöðmni
Ferðir til Benidorm sumarið 1978
13. maí biölisti 14. ágúst nokkur sæti laus 18. sept. nokkur sæti laus
29. maí biðlisti 21. ágúst laus sæti 25. sept. örfá sæti laus
19. júní biðlisti 28. ágúst laus sæti 5. júní
10. júlí biðlisti 4. sept. laus sæti 26. júní
31. júlí örfá sæti laus 11. sept. laus sæti 17. júlí
7. ágúst laus sæti
Ferðamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9 Reykjavík. Símar: 11255 — 12940
HELSTU
VÖRUSÝNINGAR
Á NÆSTUNNI
INTERSTOFF:
Frankfurt 28. 5. — 31. 5.
Vefnaðarvörur.
IWC:
Frankfurt 4. 6. — 11. 6.
Sýning á áhöldum og
tækjum fyrir þvottahús og
hreinsanir.
UMBOÐSMENN ÚTl Á LANDI:
KEFLAVÍK Krístinn Danivalsson s. 1864
GRINDAVÍK Bogi Hallgrímsson s. 8119
AKRANES Margrét Sigurjónsd. s. 2076
BORGARNES Þóra Björgvinsd. s. 7485
STYKKISH. Sigfús Sigurðsson s. 8136
RIF Markús Þórðarson s. 6675
ÍSAFJ. Árni Sigurðsson s. 3100
BOLUNGARV.
AKUREYRI
HÚSAVÍK
VESTM.EY
SELFOSS
GJÖGUR
SIGLUF.
Sverrir Matthíasson s. 7389
Ferðamiðstöðin Aey s. 19970
Ásmundur Bjarnason s. 41258
Friöfinnur Finnbogas. s. 1450
Sigríður Hermannsd. s. 1962
Jóhanna Thorarensen s. 4398
Árni Þórðarson s. 71320
INTERPACK 78:
Dussel'dorf 8. 6.—14. 6
6.
Umbúðir og pökkunar-
vélar.