Andvari - 01.01.1906, Qupperneq 52
46
Um þjóðfundinn 1851.
beiddi mig fyrst um viðtal þetta einum eða tveimur
dögum eptir að byrjað var á prentun álitsins, og
með því að það var þá orðað eins og það nú ligg-
ur fyrir, gat jeg ekki annað en látið þeim nefndar-
mönnum í ljósi, sem jeg talaði við, þeim Jóni Sig-
urðssyni og sýslumanni Briem, að nefndarálitið væri
ólöglegt bæði að innihaldi og formi, og að það
þyrl'ti því að gjörbreyta því, ef málið ætti að ná
fram að ganga. Þetla vildi meiri hluti nefndarinnar
eigi fallast á, en Ijet prenta álit sitt óbreytt.
Eins og áður ávikið var hinn ákveðni fund-
artími útrunninn, áður en málið gæti komið til um-
ræðu á fundinum, og þá er fundurinn fyrir munn for-
seta hafði síðd. hinn 7. spurt mig um, hvort búast mætti
við framlengingu, svaraði jeg í lokaræðu binn 9. þ. m.,
að fundurinn liefði liaí't nægan tíma lil þess að Ijúka
staríi sínu, og að hann mælti kenna sjálfum sjer um,
að ]>að hefði eigi heppnazt. Hann hefði, eins og sjá
má af fundargjörðunum, varið óhæíilega löngum
tíma til þess að semja sjer þingsköp, þó að fundur-
inn hefði haft fyrir sjer þingsköp alþingis, og fyr en
þau væru lil lykta leidd, hefði eigi verið byrjað á
þeim málum, sem lögð hefðu verið fyrir fundinn, og
það þó að þau hefðu verið lögð fyrir fundinn nokkr-
um dögum áður. Fundurinn hefði auk þess samið
sjer þau fundarsköp, sem hjer á þessum stað hefðu
tafið mjög framgang málanna, einkum sökum þess,
að nefndarálit, breytingartillögur og atkvæðaskrár átti
að prenta, áður en þau yrðu lögð fyrir fundinn; því
að það er auðsætt, að sú eina prentsmiðja, sem hjer
er, og það i fremur smáum stíl, getur ekki á jafn-
stuttum tíma lokið prentun og hægt er í Kaupmanna-
böfn. Fundurinn hefði þar að auki ekki notað þá
krapta, sem hann hafði yflr að ráða, þar sem hann,
þó fundarmenn væru 43 að tölu, hafði nálega ein-