Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 102
96 Dr. Valtýr og embættisgjöldin.
Doktorinn hefur nú ekki treist sjer til að vefengja
eitt einasta atriði í þessum reikningi mínuin, enda
var það ervitt firir hann, því að fjárlög þau, sem jeg
fór eftir, eru við höndina, og má með þeim sína og
sanna, að jeg fór með rjett mál, enda vísa jeg við
livern lið reikningsins til þeirrar greinar fjárlaganna,
sem jeg ler eftir.
Enn til þess að varpa riki í augu almennings
slær doktorinn því fram, að það sje svo mikill vandi
að vinsa embættisgjöldin úr fjárlögum Dana, að jeg
sje elcki fær um það, og jafnvel hann sjálfur, doktor-
inn, sje eklci maður til þess!! Þetta er, eins og flest
annað hjá doktornum, fjarslæða og ósannindi. Til
þess að gera slíkan útdrátt úr fjárlögum Dana þarf
ekki nema það tvent, að kunna að lesa og lcunna
að leggja saman tölur. Embættisgjöldin koma alveg
eins greinilega fram í fjárlögum Dana og athugasemd-
unum við þau, eins og í fjárlögum vorum með til-
heirandi athugasemdum. Munurinn er að eins sá,
að fjárlög Dana eru lengri enn vor, og verður því út-
reikningur gjaldanna lengri, enn als ekki erfiðari að
öðru leiti, enn samskonar reikningur hjá oss. Að-
ferðin er nákvæmlega hin sama.
Doktorinn er hróðugur ifir því, að hann haíi
fundið annan »ofui'lítið traustari grundvöll« lil að
higgja sínar tölur á. Jeg á nú hágt með að skilja,
að unt sje að finna annan traustari grundvöll um
ársgjöld Dana úr ríkissjóði enn sjálf fjárlög þeirra.
Enn heirum, hvað doktorinn segir! Hann kveðst
hafa gert skriflega íirirspurn um embættisgjöld Dana
til Hagfræðisskrifstofu ríkisins, »og liún sendi svo«,
segir liann, »einn af skrifstofustjórum sínum á minn
fund [! menn skildu halda, að doktorinn væri kóng-
urinn sjálfur!] Lil að sldra málið firir mjer«. »Hann
kvað skrifstofuna ekki liafa reiknað þetta út sjerstak-