Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 61
55
Um þjóðfundinn 1851.
Reykjavík, sem hefir sjerstaka bæjarstjórn, og
þeir kaupstaðir, sem síðar kynnu að ná þeirri stærð,
að þeir ættu að verða sjálfs síns ráðandi, ættu ekki
að lúta sýslunefndinni. Sýslunefndin ætti innan vissra
takmarka að ráða úrslitum í þessum málum sýslunnar:
fátækramálefnum, vegamálum, skólamálum m. m.
Yrði þessu þannig komið fyrir, þá mundi það gjöra
stjórn og skipulag málefna landsins að mun auðveldari;
mundi að auki flýta mjög fyrir afgreiðslu málanna,
og verða til þess, að meiri samkvæmni yrði á úr-
slitum málanna í hjeruðum landsins.
Jeg skal ennfremur taka það fram, að ef að-
hyllzt verður uppástunga mín, þá verður að mínu
áliti óþarft að liafa íslenzka stjórnardeild í Kaup-
mannahöfn, því að málefni þau, er þá mundu verða
send Lil stjórnarráðsins, yrðu svo örfá, að það sjálf-
sagt yrði heppilegra að senda hlutaðeigandi ráðgjafa
þau beina leið. I’eir 5 ofannefndu embættismenn, sem
jeg eins og áður ávikið hefi borið mig saman við um
málið, hafa beðið mig um að henda á, að sú aðferð,
sem beitt liefir verið nú á síðustu tímum í nefndri
stjórnardeild, iiafi hal't mjög skaðleg álirif á hugsun-
arhátt manna hjer á íslandi, bæði almennt og á ein-
stöku emhættismenn, því það sem annars gæti verið
skáðlaust, er eins og nú á stendur opt mjög skað-
legt, það, að hver og einn fær vitneskju um allt það,
sem lagt er til hjeðan af landi1 Þetta skilja þeir
menn eðlilega ekki alllaf rjettilega, sem ekki eru vel
heima í málunum, og alleiðingin af þessu er sú, að
brjef hingað til landsins, þar sem ýmsum er skýrt
frá málunum, vekur opt óánægju með þá embættis-
menn, sem sent hafa tillögurnar, einmitt af því rangur
skilningur er lagður í þær. Það verður því vissulega
‘) Hjer heíir Ochlg. Stephensen skrifað við: Petta er alveg áslæðu-
laus getsök.