Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 125
Fiskirannsóknir 1905.
119
er eg skoðaði, voru sviliiskar. Eftir stærð og ástandi
æxlunarfæranna að dæma, var nú sildin komin nærri
gotum. Því miður varð eg nú að hætta athugunum,
af því eg varð að fara burlu (með »Thor«) 7. júli.
1904 skoðaði eg nokkrar síldir úr 60 tn., er veidd-
ust á skipinu »Ágúst« c. 10. maí, í Jökuldjúpi, það
var stór hafsíld í leitara lagi, en svo að segja lirogna
og sviljalaus (útgotin?). Seinna sá eg 2 síldir, veiddar
á sama stað 5. júní, 35—36 cm. langar, með meir
en hálfþroskúðum sviljum (9,5—11 cm.), svo sá eg
aftur 2, veiddar á sama stað 25. júní, önnur 33 cm.
með mjög þroskuðum, 16 cm. hrognum; liin 29 cm.
með 14 cm. sviljum, allþroskuðum.
1905 skoðaði eg fyrSt nokkrar síldir, er Norð-
maður hafði veitt í reknet í Kolluál c. 8. maí, það
var mögur stórsíld, 33—35 cm. löng, með hálfþrosk-
uðum æxlunarfærum. SA’o'skoðaði eg 10 síldir úr
80 tn. al' síld, er veidd var á »Leslie« í Kolluál
(Breiðaíirði) kringum 20. maí. Það var stór haf-
síld, 35—38 cm. löng. 4 voru með útgotnum, 10—
15 cm. löngum hrognum. 4 með 10—12 cm. löng-
um, útgoinum, og 2 með 14—18 cm., nærri þroskuð-
um eða fullþroskuðum, ógotnum sviljum.
Seinna skoðaði eg 11 síklir (úr 50 tn.) veiddar
á »Kristjáni« 27. júni i Faxaflóa djúpt. 3 voru hrygn-
ur, 1 33 cm. löng, með 14 cm. hálfþroskuðum
hrognum, hinar 36 cm. langar með 19 og 20 cm.
hrognum, er voru fullþroskuð og i annari byrjuð að
losna. 8 voru 34—36 cm. langir svilfiskar, svilin 15
—19,5 cm., fullþroskuð og ógotin. í maga flestra
var ekkert, eða lilið eitl af krabbaflóm.
Loks skoðaði eg 6 síldir, veiddar á sama skipi í
Jökuldjúpi 3.—4. júlí, 4 voru hrygnur; 2 af þeim
voru 36 og 37 cm. langar, með 20 cm. löngum hrogn-
um, er voru bijrjuð að losna; ein 34 cm. með 16