Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 126
120
Fískirannsóknir 1905.
cm., ekki þroskuðum hrognum og ein 28 cm., með
11 cm. löngum hrognum. 2 voru svilíiskar, önnur
37 cm. löng, svil 20 cm. nærri þroskuð, hin 34 cm.
svil 15,5 cm„ ekki þroskuð.
6. júlí varð eg að fara burtu með »Thor« og gat
því ekki haldið þessum athugunum lengur áfram.
Á ferðum mínum kringum landið hefi eg stund-
um haft tækifæri til að athuga síld með tilliti til
hrygningar og hefi eg getið þess að nokkru leyti í
ferðaskýrslum mínum; eg verð að laka það upp aílur
liér, er mestu varðar í þessu sambandi og bæta
nokkru við.
Sumarið 1900 skoðaði eg 4 síldir, er veiddar
liöfðu verið fyrstu dagana í júlí við Blönduós. Þær
voru 23—25 cm. langar, eða miðlungs síld, ekki sér-
lega feit og vottaði að eins fyrir hrognum í einni. —
í Böggvesstaðasandi í Eyjafirði skoðaði eg innan í
hafsíld, sem veidd var kringum 23. jvdí 1900. Hún
ver mjög feit (sumarsíld), en æxlunarfæri lítt þroskuð
(útgotin, eða aldrei gotið).
Sumarið 1904 skoðaði eg nokkrar stórar liaf-
síldir, er veiddar voru á Skjálfanda laust fyrir 20.
júlí. Æxlunarfærin voru mjög smá (útgotin).
í sumar er leið skoðaði eg liafsíld (sumarsíld),
er veidd var í snyrpinót (möskvavídd x/2”) á »Thor«,
á utanverðum Skagafirði 8. ágúst. Hún var 34—37
cm. á lengd. Hrygnurnar voru útgotnar, en svilfisk-
arnir sumir með allstórum (ekki útgotnum) sviljum.
Sumarið 1898 skoðaði eg síld á nokkrum stöð-
um á Austfjörðum. Hún var á ýmissi stærð og feit,
en með engum eða lítt þroskuðum æxlunarfærum.
í viðhót við þctta vil eg geta þess, að 23. ágúst
1904 veiddust á »Thor« 12 síldir á »pilk« úr stórri
síldartorfu á Reykjarfirði á Ströndum. »Þær voru 30—
40 cm. Iangar, yfirleitt mjög fallegar og feitar, en með