Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 46
40
Um þjóðíundinn 1851.
veiti lionum fulla uppreisn, og það því fremur, sem
brjeíið sje undirskrifað af mörgum embættismönnum,
sem honum lúta.
Hvað þeir frekara muni gjöra, er mjer enn 6-
kunnugt um, en það virðist svo sem þeir ætli sjer
að dvelja enn nokkra stund í Reykjavík, til þess eins-
lega að taka ráð sín saman.
Verði það ofan á, að þeir haldi áfram veru sinni
hjer, mun jeg skipa embættismönnum þeim, sem mjer
lúta og ekki eiga heima i Reykjavík, að fara þegar
í stað heim til embættis þeirra, og ímynda jeg nijer,
að líka skipun muni amtmaður Melsteð og biskupinn
gefa þeim embættismönnum, sem þeim lúta. Um leið
og jeg sökum naumleika tímans verð að enda þessa
hráðabirgðarskýrslu mína, skal jeg leyfa mjer að geta
þess, að eptir svo sem 8 daga vona jeg að geta
sent með skipinu »Saga« aðalslcýrslu mína ásamt
danskri þýðingu af öllum gjörðum fundarins, og auk
þess verð jeg að drepa á það, að jeg sje mjer engan
veginn fært að halda hjer uppi nauðsyiilegri reglu,
eins og á stendur, ef jeg verð sviptur allri máttugri
(fysisk) aðstoð, og álít jeg því alveg nauðsynlegt að
halda hjer eptir liinum litla flokki af dátum, sem
hingað var sendur undir forustu undirforingja Relfl-
ings. Af því skipið er nú á förum, verð jeg að enda
þessa skýrslu mína.
íslands Stiptamtshúsi 10. ág. 1851.
J. D. Trampe.
Yðar Excellence
herra Geheimekonferensráð v. Tillisch.
Innanríkisráðgjafi R. af Elefanten
Sk. af Dhr. Dbr. pp.