Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 78
72
Vegir og llutningar.
sje að leggja dýrari veginn eða ekki; það verður þá
opl undir því komið, hvort menn búast við að ó-
dýrari flutningar geti haft töluverðan óbeinan hagn-
að í för með sjer.
Jeg vona nú að mönnum sje það ljóst, að hall-
inn á akvegum er svo þýðingarmikill fyrir notagildi
veganna, að það er alveg óforsvaranlegt að láta það
vera svo að segja undir tilviljun komið, þegar um
miklar og kostnaðarsamar vegagjörðir er að ræða,
live mikill mesti Iialli á veginum eða meðalhalli á
löngum köílum vegarins verður. Það verður að velja
vegarstefnu og vegarstæði fyrirfram, þ. e. áður en
farið er að leggja veginn, þannig að hallinn geti orð-
ið hæíilegur; auðvitað verðuraðtaka lleira til greina
en hallann, og inun jeg drepa á sumt af því síðar.
Áður en farið er lengra út í það hvernig vegirn-
ir eiga að vera til þess að koma að notum, skal jeg
nú reyna að gjöra grein fyrir hve mikinn beinan
sparnað í ílutningskostnaði góðir alcvegir geta geíið,
móts við lestavegi. Samanburðurinn getur ekki orð-
ið nákvæmur eða algildur, því að kaupgjald, hesta-
hald o. s. frv. er svo mismunandi á ýmsum stöðum,
en jeg mun halda mjer við meðalverð, sem fer all-
nærri því, er víða á sjer stað.
Kaupgjald, að meðtöldum fæðiskostnaði, fyrir
einn mann reikna jeg 3 ltr. á dag; það er að vísu
hærra um sláttinn víðasl hvar nú orðið, en aptur
heldur lægra að vorinu og haustinu, en á þeim árs-
tíðum er flutt fullt svo mikið sem um hásumarið.
Dagkaup fyrir einn hesl gjöri jeg 1 kr., þegar
hesturinn er brúkaður allan daginn, allt að 10 tím-
um. I5etta mun þykja fullhátt sumstaðar, en i sum-
um sveitum er það áreiðanlega ol' lágt. Til sanian-
burðar skal jeg geta þess, að vagnhestar, sem brúk-
aðir eru við vegagjörð landsjóðs, eru leigðir fyrir 45