Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1990, Side 48
/f. 3*
ans er í Annapolis. Yfir vetrar-
mánuðina sækja margir í verslan-
ir við höfnina og notalegu hafn-
arkrárnar. Fáið göngukort og
upplýsingar hjá: Greater Annap-
olis Chamber of Commerce í síma:
268-7676.
Hvernig er mannlífið?
í litla strandbænum St. Michels
er friðsælt andrúmsloft og hótelið
Harbout' Inn er notalegur hvíldar-
staður. Þar er frægt sjóminjasafn
við Chesapeake-flóann. Á leið nið-
ur á strönd er mikið af verk-
smiðjubúðum sem allir geta geng-
ið inn í og fengið margt á hálf-
virði. Bandaríkjamenn gera flest
stórt og margir eiga hér sumarhús
og snekkju eða seglskútu. Allt
sýnist svo fullkomið á yfirborðinu
að ég fer að forvitnast um
mannlífið við breska leiðsögu-
manninn okkar.
„Bandaríkjamenn eru mjög lok-
aðir í sínum eigin heimi - í félaga-
samtökum eða kirkjudeildum -
leita inn á við,“ segir hann. Að
undanteknum stærstu dagblöðun-
um eru engin dagblöð með fréttir
frá Evrópu, aðeins heimafréttir.
Þess vegna eru Bandaríkjamenn
mjög barnalegir í samanburði við
Evrópubúa sem alltaf fá góða
heimsmynd úr sínum fjölmiðlum.
Steinstyttur og listaverk eru víða fyrir framan opinberar byggingar í Washington.
\A
Frá Balti-
more eru
stuttar
dagsferðir
til áhuga-
verðra
staða.
PENNSYLVANIA
-í
MARYLAND
\;\ . i
\ 1A I
Baltimore
a
m
Annapolis
ff
WASHINGTON D.C. S j
ff I
CD C
;>
\t
r
í I x ,
\WCo \ r-( ’ \ j W\r-. x
/1°,^
V I R G I N I A
0
tSr
mm
_
Bandarísku geimferðasöfnin eru ævintýraleg.
Ég myndi ekki vilja ganga hér í
skóla, ef ég væri barn! Um 60%
barna hætta skólagöngu eftir
skyldunám, sem er mjög alvar-
legt. Nú vantar betri kennara og
meira af menntuðu fólki. Þeir
hljóta að leita eftir menntuðu fólki
frá Austur-Evrópu.“
Og ungi svarti leigubílstjórinn
spurði: „Eru éiturlyfjavandamál á
íslandi? Ég hef svo miklar áhyggj-
ur að fólkið mitt sé að eyða sjálfu
sér í eiturlyfjum, heift og van-
þekkingu. Hvað getum við gert?
Það er svo mikil freisting fyrir
krakkana að selja eiturlyf - auð-
velt að fá 3.000 dali á dag fyrir
söluna (168 þúsund ísl. kr.)! Állir
skólafélagar mínir hafa komið
nálægt eiturlyijum, prófað þau
eða selt. Svarta kynstofninum
hérna er haldið niðri. í skólanum
lærum við að hvíti maðurinn hafi
komið til Afríku og bjargað svarta
manninum sem lifði þar. eins og
dýr. Okkur er ekki kennt að
mannlíf hafi kviknað í Afríku, að
fyrstu mennirnir hafi verið svartir.
Ég hef aldrei komið til Evrópu,
þori ekki þangað. Ef ég færi til
Evrópu með hulið andlit, þá
myndu allir halda að ég væri ensk-
ur, ég er með enskt nafn. En ég
hef ekki hugmynd um ættarnafn
fjölskyldu minnar, frá hvaða hluta
Áfríku forfeður mínir komu. Við
svarta fólkið í Bandaríkjunum
erum alltaf að leita uppruna okk-
ar. Hugsaðu þér hvernig farið var
með okkur fyrir fáeinum árum
og hvernig farið er með okkur
ennþá. Um daginn fóru 2 vinir
mínir eftir auglýsingu og vildu
kaupa sér notaðan bíl. An þess
að vita það, fóru þeir inn á bann-
svæði fyrir svart fólk og lögreglan
tók þá og barði með kylfum og
skaut þá! Hvernig heldur þú að
okkur líði?“
Og þessi greindarlegi piltur
sagði margt fleira, sem sýnir að
langt er í jafnrétti á milli kyn-
stofna í nýja heiminum. Og ég
sannfærðist um að Bandaríkin eru
enn nýr heimur, að bandarískur
hugsunarháttur er mjög ólíkur
okkar,. þó að aldrei megi alhæfa
neitt, því Bandaríkjamenn eru í
raun mörg sameinuð þjóðarbrot,
og aðdáunarvert hvað þeir geta
þó lifað í friði saman. Forvitnileg-
ur, verndaður heimur fyrir ferða-
menn, en Öruggara að kafa ekki.
langt ofan í mannlífið.
Oddný Sv. Björgvins
The Baltimore Office of Pro-
motion & Tourism, 3.4 Market
Place/Suite 310, Maryland
21202. Sími: (301)752-8632.
Flugleiðir eru með viðskiptas-
ambönd við USAir sem
tiyggja íslenskum farþegum
hagstæð fargjöld frá Balti-
more til yfir 250 áfangastaða
innan Bandaríkjanna. Flug-
floti USAir er 430 þotur af
nýjustu gerð.
Bretland fagnar 500 ára
minningu Hinriks VIII
- einn frægasti og hræðilegasti konungur Breta, sem
leiddi nokkrar af sex eiginkonum sínum á höggstokk-
inn - þegar hann vildi losna við þær!
Á næsta ári er mikið um
dýrðir hjá Bretum vegna 500
ára afmælis Hinriks VIII. Þeg-
ar er búið að opna sýningu um
þennan frægasta konung
Tudortímans í Hampton-höll. I
júlí siglir konungssnekkjan úr
kvikmyndinni „A Man for all
Seasons" (maður allra tíma)
eftir ánni Thames. Á Green-
wich-hátíðinni (31. maí til 16.
júní) verða dansleikir í 15. aldar
hlöðu, tónleikar í Tudor-stíl og
kvikmyndasýningar um ævifer-
il konungs, sem var og er fræg-
ur að endemum í heimssögunni.
Þessi ógnvekjandi konungur
Breta fæddist 28. júní 1491 í
Greenwich-hverfi í London. Og
margir hafa eflaust séð skeggjað,
feitt nautnaandlit hans á ótal
málverkum, sem margir lista-
menn hafa spreytt sig við. Tower
of London, sem flestir ferðamenn
í London skoða, var í miklu uppá-
haldi hjá Hinrik. Þangað sendi
hann jafnt vini sína sem og eigin-
konur — eða alla sem voru í vegi
fyrir honum. '„Hálshöggvið, háls-
höggvið,“ var tíðum boðskapur
Hinrik VIII í konungsskrúða, með sitt fræga yfirvaraskegg.
Margar breskar hallir og kastalar tengjast konungstíð Hinriks.
Þar verður Tudor-konungsins minnst með ýmsum uppákomum
næsta sumar.
hans. En hann er líka frægur fyr-
ir að slíta sambandi við páfann í
Róm og stofna sjálfstæða kirkju-
deild í Englandi.
Margar breskar hallir og kast-
alar tengjast Hinrik. Hampton
Court í Suðvestur-London var eft-
irlætisaðsetur hans — höll sem
var sögð „líkari paradís en jarð-
neskum bústað!" Ein eiginkvenna
Hinriks, Anne Boleyn, ólst upp í
Hever-kastala — þegar búið var
að hálshöggva hana, gaf Hinrik
4. konu sinni, Anne frá Cleves,
kastalann. í Portsmouth-höfn má
skoða „Mary Rose“, fiaggskipið í
breska herflotanum, sem Frakkar
skutu niður í jómfrúrferðinni fyrir
framan nefið á Hinrik — án þess
að Bretum tækist að hleypa af
einu skoti! (Einhveijir hausar hafa
fengið að fljúga þá!) „Mary Rose“
var lyft af hafsbotni 1982 ásamt
13.000 skipsmunum, sem alla má
skoða í skipasafninu í Ports-
mouth.
í gömlu höllinni við Hatfield
House norður af London verða
haldnir tónleikar og skemmtanir
4 kvöld í viku frá apríl fram í
desember. Yfirlitssýningin í
Hampton-höll verður opin til 14.
apríl. Þar verður rn.a. til sýnis hin
fræga Holbein-mynd, ásamt öðr-
um myndum og listmunum úr
konunglega listmunasafninu. Að-
gangseyrir fyrir fullorðna er rúm-
ar 400 kr. - helmingsverð fyrir
börn. Sýningin er til húsa í Hamp-
ton Court-höll, Hampton Court,
East Molesey, Surrey. Sími:
081-977 8441.
O.Sv.B.
48