Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1990, Page 47
Hvað er að sja
íBaltimore?
Á stökkpalli til allra átta í Bandaríkjunum, í klukku-
tíma fjarlægð frá Washington - en 5 klukkutíma fjar-
lægð frá Keflavík
Á hafnarsvæðinu í Baltimore þar sem allt tengist sjónuin má una
sér daglangt.
Skóglendi og vatnasvæði Maryland-fylkis blasa við úr lofti. Og
lendingin er nyúk í nýrri Boeing-þotu Flugleiða. Margir ferða-
menn fara um Baltimore-flugvöll frá Evrópu inn á bandaríska
höfuðborgarsvæðið. Á venjulegum degi fara hér um yfir 27 þús-
und farþegar og 650 flugvélar - enda taka Baltimore og Washing- i
ton við yfir 34 milljónum ferðamanna árlega. - Að hverju eru
allar þessar milljónir að leita?
Við göngum í gegnum þægilega
nýtískuflugstöð. Baltimore-flug-
völlur stefnir að því að verða aðal-
flughlið höfuðborgarsvæðisins inn
í 21. öldina og verður að standast
allar gæðakröfur. Héðan liggja
lestarlínur og þjóðveganet, en
Baltimore og Washington hafa
vaxið hratt saman og teljast nú
4. stærsti borgarkjarni Banda-
ríkjanna.
Hvílík landgæði og
auðugt forðabúr!
Baltimore sýnist svo ný, en er
samt einn elsti innflytjendabær í
Bandaríkjunum. Fyrstu íbúar
komu hingað 1661. (Kemur mér
alltaf jafnmikið á óvart hvað stutt
er síðan fólk settist hér að.) Hvílík
landgæði hafa blasað við fyrstu
innflytjendum! Skógivaxin fjöll.
Gjöful gróðurmold. Fiskisælir
firðir og flóar. Maryland er lýst
sem smækkaðri mynd af Amer-
íku. „Já, þeir komu hingað og
fengu allt upp í hendumar: land-
svæði og merkurdýr; gjöfult
forðabúr frá náttúrunnar hendi;
og þeir gleyptu það 'græðgislega
í sig,“ segir glaðlegur Breti sem
leiðbeinir okkur um Maryland.
„Aumingja fólkið sem lætur ríki-
dæmi Ameríku heilla sig núna -
lendir í fátækrahverfum og finnur
hvað erfítt er að vinna sig upp í
Ameríku. Þeir sem komu fyrstir
gína yfír öllu!“
Höfnin er ferða-
mannaparadis
í sólarhita má gleyma sér við
höfnina í Baltimore. - Hér gengur
allt út á að njóta lífsins. Yfírfljót-
andi matur og vín í veitingahúsum
og vínbörum. Bátaleiga: með fót-
stignum bátum, seglskútum,
hraðbátum og skemmtisnekkjum
- hvort sem þú vilt sjá glerhallir
og framúrstefnubyggingar við
höfnina frá sjó eða sigla út úr
höfninni og skoða hvíta kletta og
sandstrendur við Chesapeake-fló-
ann, komast í veiði eða njóta
matar og drykkjar á kvöldsigl-
ingu. Skutlubátar ganga út í
McHenry-virkið frá 1776, sem er
nú minjasafn.
Og ef sólin er þjakandi þá er
að skella sér í afþreyingu innan-
dyra: Horfa yfir Baltimore frá 27.
hæð en skoða jafnframt nútíð,
þátíð og framtíð í safni innflytj-
endabæjarins; sjávardýrasafnið
með lífríki regnskóga og neðan-
sjávar þar sem yfir 5.000 tegund-
ir synda á milli hæða og elta þig
jafnvel að útidyrum!, eða ganga
á vit himingeims og stjarna í
Maryland-vísindasafninu, eða
stíga um borð í freigátuna Const-
ellation frá 1797, sem hefur verið
lagt endanlega við hafnarbakkann
fyrir ferðamenn að skoða. I stuttu
máli: Baltimore-hafnarhverfið er
þægilegt, ekki of stórt í sniðum
og býður upp á fjölbreytta afþrey-
ingu í glæsilegum safnbygging
um. Amerísk söfn eru með þeim
bestu í heimi.
Fyrir kaupglaða eru. „Harb-
orplace & The Gallery", 2 glerhalt-
ir fullar af búðum og veitingahús-
um; eða verslunargatan Charles-
stræti, aðalgata Baltimore upp frá
höfninni og milli bæjarhluta.
Litla Ítalía og ameríska
nægtabúrið
ítalir komu hingað fyrst og
kenndu innflytjendum að borða
„spaghetti"! Og að sjálfsögðu er
hér lítil Ítalía, bæjarhluti þar sem
hvert ítalska veitingahúsið tekur
við af öðru. í elsta hluta Balti-
more, Fells Point, leynist elsta
leikhús Bandaríkjanna, Vagab-
ond-leikhúsið, inn á milli húsaraða
frá 18. öld, m.a. frægtJfyrir að
morðingi Abrahams Lincolns lék
þar oft. í Fells Point eru sögð ein
bestu fiskveitingahús í Banda-
ríkjunum.
„Þú verður aldrei svangur í
Maryland,“ segja Bandaríkja-
menn, orð að sönnu á Lexington-
markaði, en varla er hægt að
hugsa sér meiri „paradís sæl-
kera“. í Maryland tengist allt
sjónum og Lexington hefur tengst
sögu Baltimore í 200 ár sem fjör-
ugur fiskmarkaður. Óvíða sést
annað eins úrval af nýjum fiski
og kjöti. En hér mætir manni líka
ilmur af fersku grænmeti og
ávöxtum, hnetum og sælgæti.
„Rénndu bara á lyktina í Lexing-
ton,“ segja þeir.
Frá nægtabúri Baltimore, Lexington-markaði, „og ég gæti ekki komið meiru niður ... jæja, kannski
einum í viðbót!
Að horfast í augu við fiska í sjávardýrasafninu.
Ein fullkomnasta lækna-
stofnun í heimi
Og hér má líka heimsækja eitt
fullkomnasta sjúkrahús og elsta
lækna- og hjúkrunarskóla (101
árs) í Bandaríkjunum. Lækna-
stofnun Johns Hopkins er eins og
borg í borginni, byggingar og
háskólagarðar ná yfir 44 ekrur.
Gestir fá aðgöngumiða inn í aðal-
byggingu, sem líkist ekki venju-
legum spítala - miklu frekar eins
og að ganga inn í yfirmáta hrein-
legan og vistlegan almenning. Hér
voru fyrstu gúmmíhanskarnir
teknir í notkun. Yfir 10.000
manns vinna hér, m.a. við mikil-
vægar vísindarannsóknir í læknis-
fræði, nýjasta að fjarlægja heila-
sellur úr sjúklingum sem þjást af
ellihrumleika.
Dagsferðir til Washington
og Annapolis
Rúmlega 50 km skotferð er á
milli Washington og Baltimore
eftir vegi 1-95, en fullt eins þægi-
legt að taka lestina, sem fer marg-
ar ferðir daglega frá Pennsyl-
vaníu-stöð til Union-stöðvar í mið-
Að eignast nýja vini í dýragarðinum.
borg Washington á tæpum
klukkutíma. Nýlega er búið að
endurnýja Union-stöðvarbygging-
una, sem er ein fallegasta braut-
arstöð sem hugsast getur og
geymir eina aðalverslunar- og
veitingahúsamiðstöð Washington.
Union er í norðausturenda „Mall“,
miðborgarsvæðis Washington, og
þaðan er best að hefja skoðunar-
ferð um borgina. Hoppa bara upp
í lestina sem stoppar víða í mið-
bænum. Smithsonian-kastali og
nálæg söfn geyma verðmætustu
listmuni Bandaríkjanna, Hvíta
húsið, Washington-minnisvarð-
inn, Þinghúshæðin er það sem
hver ferðamaður verður að sjá í
Washington, og boðið er upp á
leiðsögn á öllum stöðum. Hafið
samband við Tourist Information
Center í síma: (202) 789-700.0.
Um 45 mínútna akstur er til
Annapolis, höfuðborgar Mary-
land-fylkis við Chesapeake-fló-
ann. I Annapolis-höfn er stærsti
seglbátaflotinn á austurströndinni
og siglingafólk hópast þangað á
sumrin. Best er að skoða bæinn
fótgangandi, en þessi fallegi hafn-
arbær geymir margar sögulegar
minjar. Háskóli bandaríska flot-
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. DESEMBER 1990 47