Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1990, Blaðsíða 46
heldur stakkur. Hitinn var 18-20
stig yfir daginn; við frostmark
fyrst á morgnana, en sólin er
fljót að hita upp.
Drekkið aðeins soðið vatn eða
gosdrykki — engan klaka. Hafið
magatöflur meðferðis og tann-
krem (aðeins everest-tannkrem
fáanlegt án flúors). Látið bólu-
setja ykkur með fyrirvara.
Hárþvotturinn í þorpinu
Við vorum vakin í svefnpokun-
um með tebolla. Síðan kom
morgunbaðið — þvottafat og
sápa. Hárþvottur var erfiður úr
þvottafati og fyrsta daginn tók
ég mér stöðu við einn þorps-
brunninn og hóf að þvo hár mitt.
Þetta reyndist meiriháttar „leik-
sýning“. Öll þorpsbörnin hópuð-
ust að til að fylgjast með hár-
þvotti hvítu konunnar. Kvöldin
voru yndisleg. Þá voru eldaðar
þríréttaðar máltíðir yfir hlóðum
— jafnvel hlóðabakaðar kökur
skreyttar með jólarós. Eitt kvöld-
ið kom dansflokkur úr nálægu
þorpi og spurði hvort við vildum
sýningu, sem kostaði nokkrar
rúpíur. Leiksvið var reist og
dansinn dunaði.
Fjallabörn og „pennabyssur“
Á kvöldin komu þorpsbörnin
og sungu og dönsuðu fyrir okk-
ur. Þau eru svo falleg og lífsglöð.
Eiga samt svo miklu minna en
íslensk börn, engin leikföng en
„skoppa gjörðum" eins og gert
var hér áður. „Give me pen,“
segja þau. Og úr pennanum búa
þau til byssu, skjóta úr „penna-
byssunni“ eða veiða síli í ánni
með „pennafærinu". Leiðsögu-
fólkið bað okkur um að spilla
þeim ekki með gjöfum. Það væri
líka skelfilegt i ef ferðamenn
spilltu þessu einlæga, lífsglaða
fólki. Fjallabörnin eru miklu
kurteisari en jafnaldrar þeirra
niðri á sléttu, sem eru vanari
ferðamönnum og því ágengari.
Við gáfum krökkunum nokkra
íslands- og Grænlandsbæklinga
og þau glöddust svo innilega að
það var eins og við hefðum gefíð
þeim stórgjafír. Ég hef aldrei
haj't eins áhugasama áhorfendur
á íslandskynningu.
Um frumskóg á fílsbaki
eða árfleytingar
Frumskógur sléttunnar er nú
Chitwan-þjóðgarður til að
vernda villta dýraríkið. Við vor-
um sett fjögur saman uppi á
hverjum fíl, sem léttstígir og
hægfara báru okkur um skóginn.
Uppi á fílsbaki, sáum við vel
yfír íjölbreytt dýraríkið. Þarna
voru hirtir, apar, tígrisdýr,
krókódílar og óteljandi litskrúð-
ugir fuglar. Fílarnir trömpuðu í
gegnum hátt sef eða „fílagras".
Við fórum líka á gúmmíbátum
eftir árflúðum Trisuli-ár, sem tók
okkur allan daginn, aðeins stutt
matarhlé. Við rennblotnuðum,
skemmtum okkur stórkostlega
og útsýnið á árbökkunum var
eins og óraunveruleg frumskóg-
arkvikmynd. Við þjóðgarðinn er
nýrisin frábær aðstaða fyrir
ferðamenn, með góðri sundlaug
og veitingahúsum. Ferðin til
Nepal er mér ógleymanleg,“ seg-
ir Kristín. „Mér finnst ég ennþá
heyra yndislega kveðju þeirra
bergmála í fjöllunum „namaste,
namaste“.“
Oddný Sv. Björgvins
Stærð lands: 140.797 km-. íbúa-
fjöldi: 16 milljónir. Höfuðborg:
Katmandu (um 197.000). Gjald-
miðiil: rúbía jafnvirði um 14 kr.
Besti ferðatími: frá október fram
í apríl. Tungumál: Nepalska,
tíbeska. Bólusetning: Fyrir kóleru,
taugaveiki, stífkrampa, mænu-
veiki, lifrarbólgu og malaríu.
Tveggja vikna Nepalferð: 190 þús-
und kr. innifalið: flug, gisting í
tveggja manna herbergi, fullt fæði.
Nánari. upplýsingar: Ferðaskrif-
stofa Guðmundar Jónassonar.
Jólasveinninn býr í jólasveinaríkinu í Finnlandi og æðir yfir snjó-
breiðurnar í hreindýrasleða með ferðamenn.
Hnattferð-
irí sókn
- eða „pílagrímsferðir“ íslenskra ungmenna
HVERS vegna að kynna svo framandi áfangastaði eins og
Taiwan eða Nepal? Er ekki nær að kynna nálægari áfanga-
staði? Þeir sem þetta segja skynja ekki mikiivægi víðrar heims-
sýnar. Fólk þorir kannski ekki til fjarlægari landa — sér ljón
víða á vegi. Og vissuiega eru ferðálög dýr. En athugið að far-
miði umhverfis hnöttinn er hlutfallslega hagstæðari en stutt
ferðalag! Það þarf kjark eins og peningagetu til að heimsækja
framandi slóðir — fordómaleysi til að vilja selja sig inn i gjör-
ólík lífsviðhorf. Hnattferðir eru í mikilli sókn, einkum hjá fá-
tæku námsfólki — þó það hljómi ótrúlega.
Tveir smávaxnir virða fyrir sér
Ahveijum degi leggur
ungmenni af stað frá
Norðurlöndum í ferða
lag umhverfis hnöttinn. Og und-
irrituð veit um nokkra unga Is-
lendinga á ferð, áður en þeir
setjast niður í fasta vinnu eftir
skólanám — eru kannski núna
hinum megin á hnettinum. Mörg
þeirra taka þá vinnu sem gefst
í ferðinni. Hjá þeim gildir sú
gullvæga regla, að hafa sem
mestan tíma og eyða sem
minnstum peningum. Að sumu
leyti má jafna þessum ferðum
saman við „pílagrímsferðir". ís-
land er ríkara, þegar þetta unga
fólk snýr aftur — vonandi með
aukinn skilnlng á lífskjörum,
aukið umburðarlyndi í trúarleg-
um efnum og síðast en ekki síst
endurmat á hvað er eftirsóknar-
verðast í lífinu — eða í lífsgæða-
kapphlaupinu.
Mikilvægi ferðalaga
Leiðtogar heims hafa viður-
kennt mikilvægi ferðalaga. Jó-
hannes Páll II páfi sagði, að
hvert vináttusamband sem tekst
milli ólíkra þjóðerna á-ferðalög-
um sé framlag til friðar í heimin-
um. Reagan og Gorbatsjov gáfu
út sameiginlega yfirlýsingu eftir
. Genfarfundinn: „Það ríkir ekki
nægur skilningur milli þjóða okk-
ar, þess vegna skulum við stuðla
að auknum ferðalögum milli
landanna." Hvert sem ferðinni
er heitið berum við íslenska
lífssýn innra með okkur og Ís-'
lendingurinn í okkur styrkist
með aukinni víðsýni.
Hvert er ferðinni heitið?
Austurlönd eru ofarlega á
óskalistanum, Tæland, Tahiti,
Indónesía og ekki síst sólríka
eyjan Bali, sem Norðurlandabúar
líkja gjarnan við sjálfa paradís.
Kyrrahafseyjarnar, Tahiti, Fiji
og Hawaii eru vinsælar til dvalar
áður en stefnt er heimleiðis um
Bandaríkin eða Kanada. Talað
er um suðlæga hnattferð, sem
liggur um Suður-Ameríku — eða
norðlæga hnattferð um Kanada.
Franskir og þýskir ferðamenn
hópast til Nepal í ljallgöngur og
þeir sameina gjarnan ferðalag
um Indland eða Tibet. í Afríku
í hótellaug í nágreiini við pýramídana í Egyptalandi.
undur indverskra hofa.
eru óskalöndin Kenýa og
Egyptaland.
Hnattferðir SAS
Hér á landi selur flugfélagið
SAS mikið í hnattferðir í sam-
vinnu við ástralska flugfélagið
Quantas. Saman geta flugfélögin
tvö boðið upp á tiltölulega hag-
stæð fargjöld, en verðið hækkar
umtalsvert ef 3. flugfélagið kem-
ur inn í myndina. „Hnattferðir
okkar eru einkum í tengslum við
íjölskylduheimsóknir til Ástr-
alíu,“ segja þær hjá SAS, „og
þá er ódýrara að kaupa hnatt-
miða en stakan miða til Ástralíu.
Ódýrasti hnattmiðinn er um 135
þúsund kr. í svonefnda „mini-
hnattferð“. Þá þarf allt að vera
fastbókað; má aðeins bi-eyta einu
sinni; áfangastaðir mega vera
4; lágmarksdvöl 14 dagar; hám-
arksdvöl 9 mánuðir. Fjölbreyttari
hnattferð er um 230 þúsund og
þá má bæta við töluverðu af
áfangastöðum fyrir um 5 þúsund
krónur á stað.“
Upplýsingarit eru fáanleg fyr-
ir væntanlega hnattfarþega um
pantanareglur í flugi, vegabréfs-
áritanir, dagleg útgjöld, hvernig
best er að undirbúa sig og nauð-
synlegar ábendingar um breyt-
ingar í áfangastöðum og ferða-
möguleika í hveiju landi. Athug-
ið hjá ferðaskrifstofum og flug-
félögum. Bókin „The Round The
World Air Guide“ er fáanleg hér
í bókabúðum.
Oddný Sv.Björgvins
í heimsókn til andfætlinganna, hvora
leiö
sem er!