Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1990, Síða 43
Grand Hotel í Taipei svipar til
kínversks hofs og skreytilist í
sundlaug og innan dyra í sam-
ræmi.
Jafnvel við venjulegt söluborð hjá götusaia eru ávextir útskornir.
beinshnöttum situr Búddha og
togar í jarðartaugina. Og konung-
ur steinanna - jadisinn - verður
að rótarávexti með ótal engi-
sprettum, sem flytja konungi
blessun „kynorkunnar“. Allt er
þetta svo fíngert að nota verður
stækkunargler til að greina
blúndulíkan útskurð. í fornri og
nýrri kínverskri málaralist er
„maður og landslag" dulúðugt
viðfangsefni sem auðvelt er að
sökkva sér ofan í. Heimsóknin er
ógleymanlegt ævintýri, en því
miður útilokað að skoða allt. Á
jarðhæð eru búðir með vandaðan
listvarning.
Flogið yfir „Sannleiksfjall“
og „Mánaheim“
í 32 stiga hita geng ég að minn-
isvarða um taiwanska hermenn.
Kostulegt að sjá sérþjálfaða varð-
menn eins og myndastyttur, sem
breytast i „hreyfanlegar trébrúð:
ur“ við varðmannaskipti! I
morgunskini er flogið til Kaohs-
iung, helstu iðnaðar- og hafnar-
borgar Taiwan. Landslagið minnir
á kínverskt málverk. Fljót liðast
eins og drekar eftir mjúkum, ávöl-
um línum; hinn frægi kínverski
„skýjasjór" niðri í dölum; glampar
á hvít musteri á fjailatoppum.
Örnefni fjalla vitna um kínverskan
uppruna: Mánaheimur, Langlífi,
Sannleiksfjall og fleiri.
Veltir hundruðum milljarða
Bandaríkjadala
Kaohsiung er ein best búna og
með stærri hafnarborgum heims.
Og önnur stærsta gámahöfnin,
enda er taiwanska gámafyrirtæk-
ið „Evergreen" hið stærsta sinnar
tegundar. Hér er fyrirtækið China
Steel sem teygir arma sína um
alla heimsbyggðina - veltir líka
hundruðum milljarða Banda-
ríkjadala - með 7.155 manns í
vinnu, en ijölda undirverktaka.
Allt er hér til fyrirmyndar -
í Taiwan er mennt máttur - og gaman að sjá hvað krakkarnir eru áhugasamir í efnafræðitíma.
ára kínverskrar menningar. Stór-
brotin umgjörð og fögur staðsetn-
ing við hæfi. Það er Hollywood-
ævintýri líkast hvernig hinir
650.000 ómetanlegu listmunir
komust yfir sundið frá megin-
landinu (án þess að 1 tebolli brotn-
aði!) - á stöðugum flótta undan
hersveitum Japana, undan komm-
únistastjórnum - faldir inni í hell-
um, ferjaðir yfir stórfljót - en
björguðust alltaf á síðustu stundu
undan eldsvoða og sprengjuárás-
um! - Og forn list keppti við
flóttafólk um bátsrými yfir sundið
til Taiwan - bjargað undan
kommúnistastjórn sem ekkert var
heilagt.
Gjafir alþýðufólks
til keisaranna
Og ég geng innan um ótrúlega
handiðn. - Kannski heil mann-
sævi lögð í einn listmun, sem al-
þýðumaður gaf síðan keisara
sínum. „Gleði konungs" er örsmár
fílabeinsturn á 9 hæðum og
Búddha á hverri hæð með örsmá-
ar fílabeinsbjöllur. - Innst í 9 fíla-
réttur er þar fyrir borð borinn.
Konfúsíus og kommúnismi eru
ósættanleg öfl.“ Og ég geng aftur
út á stræti Taipei - annað þéttbýl-
asta land í heimi (Bangladesh er
þéttbýlast og fátækast). - Hvílíkt
efnahagslegt stói-virki á þessari
iðandi „mauraþúfu". - Og hvílík
blessun í heimspekikenningum -
að hver og einn - í öllum þessum
fjölda skuli eiga sinn tilverurétt!
Hið ævintýralega Þjóð-
minjasafn Kínverja
Glæsileg safnbygging, grafin
inn í hlíð norður af Taipei - eins
og sprengjuvarið hernaðarmann-
virki, geymir „hjarta og sál“ 5.000
Við hliðið inn í Taroko-gljúfrið sem er verndaður þjóðgarður.
Taiwan er í þriggja flugtíma fjarlægð frá Bangkok. TUNGU-
MÁL: mandarín-kínverska og taiwanska (mállýska). TRÚ
ARBRÖGÐ: búddismi og taoismi eru ráðandi. ÍBÚAR: um 20
miiljónir, þar af um 325 þúsund frumbyggjar. HELSTU HÓTEL
í TAIPEI: Lai Lai Sheraton, Grand Hotel, Grand Hyatt (opnaði
í september). Howard Plaza. Ferðaskrifstofa í Taiwan sendir
ferðamenn til íslands. í sumar komu nokkrir og von á mikilli
aukningu næsta sumar. China Airlines, flugfélag Taiwan, flýgur
5 sinnum í viku til Amsterdam á nýjum breiðþotum. Beint flug
með tveimur millilendingum, sem tengist vel flugi Flugleiða, að-
eins tveggja tíma bið. China Airlines flýgur núna norðurleiðina
vegna ástandsins við Persaflóa. Upplýsingar í bókunardeild Flug-
Ieiða og hjá China Airlines Stadhouderskade 6, Amsterdam. Sími:
(20) 126754. F.ax: 181001.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. DESEMBER 1990 43