Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1990, Síða 31
Hér fer Kjarval á kostum við opnun sýningar. Honum á hægri hönd er Sigurgeir Sigurðsson biskup og á milli þeirra sést Sigurður, sonur biskupsins. En sá sem
stendur Kjarval á vinstri hönd og sýnist einnig í þann veginn að bregða á leik, er stórvinur Kjarvals, Guðbrandur Magnússon í Áfenginu. Sá sem heldur á húfunni
sinni er Stefán forstjóri Sjóvá en aðra hefur ekki tekizt að bera kennsl á.
Það er óræður svipur á Kjarval þessa stundina. Hann hefur sett upp einn af
sínum fínustu höttum og hefur líklega brugðið á leik eins og hann gerði oft,
þegar fleiri en einn eða tveir voru í kringum hann. Sennilega beinist athygli
hans að lögregluþjóninum, sem heldur embættislegum virðuleik hvað sem á dyn-
ur. Á bak við spígsporar Ragnar í Smára og á orðastað við tvo unga menn á
uppleið; þá Guðmund H. Garðarsson (dökkklæddur) og Braga Hannesson, síðar
bankastjóra.
Myndin er tekin 1959 í sambandi við kosningar.
Tveir sem settu svip á bæinn, þó ólíkir væru á velli: Hér heilsar
Helgi Hjörvar útvarpsmaður uppá listamanninn á sýningu og hér
hefur Kjarval sett upp hatt með niðurslútandi börðum eins og hann
notaði oft.
í vinnustofunni við Sigtún málaði Kjarval síðustu myndir sínar. Þar stóð dívaninn hans innan um málaradótið (lengst til
hægri). Hér er Kjarval á tali við vin sinn, Sigurð Benediktsson, uppboðshaldara.
Þrek og hreysti Jóhannesar Kjarval
voru með eindæmum, svo hann gat stað-
ið við að mála matarlaus heilu dagana.
Ekkert þrek er samt. svo óbilandi að
EIIi kerling vinni ekki á því um síðir.
Hér sést, að listamaðurinn er byrjaður
að fara halloka í þeirri glímu. Það sást
þó ekki í myndum hans. Að öllum líkind-
um náði Kjarval hátindi listar sinnar á
efri árum sínum.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. DESEMBER 1990 31