Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1990, Page 19
F yrsti augnlæknir
á íslandi
Aöndverðu þessu ári voru hundrað ár liðin síðan
Björn Ólafsson, læknir frá Ási í Skagafirði,
kom til starfa á íslandi eftir sérfræðinám í
augnlækningum í Kaupmannahöfn. Er hann
fyrsti íslenski læknirinn, sem leggur stund á
Talið er að BJÖRN
ÓLAFSSON hafi fyrstur
lækna á Norðurlöndum
framkvæmt húðflutning
af einum líkamsparti á
annan. Hann græddi húð,
bæði á augnalok og víðar
á andlit, og getur því
einnig talist frumherji í
lýtalækningum.
Eftir GUÐMUND
BJÖRNSSON
sérgrcin.
Aður en Björn tók til starfa var vart um
aðra augnlæknisþjónustu að ræða hér á landi
en þá, sem hinir fáu héraðslæknar gátu
veitt, en sú þjónusta var mjög takmörkuð,
enda var þá engin kennsla í augnsjúkdómum
í Læknaskólanum.
í skýrslum sínum til landlæknis á síðustu
öld greina þeir frá bólgu í slímhimnu augans
og hvarmabólgu. Þessir kvillar voru þá mjög
algengir hér á landi. Héraðslæknarnir minn-
ast ekki á alvarlega sjúkdóma í augum, sem
orsaka skerðingu á sjón, svo sem gláku eða
ský á augasteini.
Dr. Jón Hjaltalín, landlæknir, gerði fyrst-
ur íslenskra lækna meiriháttar skurðaðgerð-
ir á augum. Vitað er um þijár augnaðgerðir
sem hann gerði á árunum 1859-1896. Minnst
er á nokkra augnsjúklinga í Sjúkrahúsi
■Reykjavíkur (1866-1903) en engar augnað-
gerðir voru gerðar þar.
Björn Ólafsson var Skagfírðingur í báðar
ættir, fæddur að Ási á Hegranesi 11. apríl
1862. Faðir hans, Ólafur Sigurðsson, tók
mikinn þátt í framfaramálum sveitar sinnar
og var alþingismaður um tíma. Móðir Björns
var Sigurlaug Gunnarsdóttir frá Skíðastöð-
um í Laxárdal. Björn stundaði nám í Lærða-
skólanum og tók stúdentspróf vorið 1884.
Næsta haust hóf hann nám í Læknaskólan-
um í Reykjavík, en þetta sama haust fluttist
skólinn í hið nýbyggða Sjúkrahús Reykjavík-
ur í Þingholtum (Þingholtsstr. 25). Björn
lauk prófi í forspjallsvísindum við Prestaskól-
ann vorið 1885. Mátti enginn ljúka fullnaðar-
prófi frá Læknaskólanum, nema hann hefði
lokið slíku prófi áður. Á þeim tíma sem Björn
var í Læknaskólanum veitti Schierbeck land-
læknir skólanum forstöðu en samkennarar
hans voru dr. Jónas Jónassen héraðslæknir
og Tómas Hallgrímsson, sem var fastakenn-
ari við skólann. Ytri aðbúnaður Læknaskól-
ans í Þingholtum og sjúkrahússins var í
mesta máta frumstæður og var skurðstofa
sjúkrahússins í annarri kennslustofu skólans
og var þar hvorki vatns- né skólpveita. Björn
lauk kandidatsprófi 1888 með hárri fyrstu
Jóhanna
Matthías-
dóttir,
Kjörseyri.
Myndin er
tekin 1907.
Jóhanna
liafði aidrei
séð börnin
sín þar til
Björn gerði
á lienni
augnað-
gerð, svo
hún fékk
sjónina á
báðum aug-
um og hélt
henni til
dauðadags.
Björn Ólafsson, fyrsti augnlæknir landsins og jafnframt fyrsti lýtalæknirinn.
einkunn.
Að embættisprófi loknu sigldi Björn til
Hafnar og starfaði tilskilinn tíma á fæðingar-
stofnun og var síðan við nám í augnlækning-
um til ársloka 1889. Vann hann á klínikinni
hjá dr. Edm. Hansen-Grut, sem var prófess-
or í augnsjúkdómafræði við Hafnarháskóla.
Hafði Hansen-Grut numið hjá augnlæknum
í Þýskalandi og Frakklandi, sem lögðu
grunninn að vísindalegum augnlækningum.
Heimildir eru fyrir því að Hansen-Grut hafi
talið Björn meðal sinna bestu lærisveina.
Er Björn kom heim frá framhaldsnámi 1890,
þjónaði hann Rangárvallahéraði í nokkra
mánuði, en var settur frá 1. sept. aukalækn-
ir í þriðja aukalæknishéraði, er náði yfír
Skipaskaga og fjóra syðstu hreppa Borgar-
fjarðarsýslu. Sat hann á Akranesi. Samtíma
heimildir segja, að á Akranesi hafi brátt
orðið mikil aðsókn a,ð hinum nýja héraðs-
lækni og einkum farið mikið orð af augn-
lækningum hans og leitaði fólk til hans hvað-
anæva af landinu. Eitt af fyrstu lækninga-
afrekum Björns átti mikinn þátt í því að
hann varð fljótt landsþekktur. Sumarið 1891
leitað Jóhanna Matthíasdóttir, kona Finns á
Kjörseyri, til Björns. Var hún þá 46 ára að
aldri. Innan við þrítugt var hún orðin það
sjóndöpur, að hún þekkti ekki fólk og hafði
hún ekki séð börn sín, er hér var kornið sögu.
Hafði hún farið til Kaupmannahafnar
nokkrum árum áður (1877), en læknar þar
töldu ekki tímabært að gera á henni aðgerð.
Gerði Björn á henni dreraðgerð (tók auga-
stein, sem var orðinn ógagnsær) á báðum
augum og fékk hún góða sjón með viðeig-
andi gleraugum, sem Björn útvegaði henni
og sá hún til að Iesa og sauma. Hélt hún
sjóninni til dauðadags, en hún dó í hárri
elli. Þessa fyrstu dreraðgerð sem vitað er
um að Björn framkvæmdi gerir hann í svo-
nefndu Krosshúsi á Akraúesi, en hann var
þar til heimilis hjá Guðmundi kaupmanni
Ottesen.
Aðeins ein ársskýrsla úr Akranessauka-
læknisumdæmi hefur varðveist frá Birni
Ólafssyni. Markar þessi skýrsla tímamót í
sögu læknisfræðinnar hér á landi. Það er í
fyrsta skipti að héraðslæknir sendir frá sér
jafn greinargóða skýrslu, er ber vitni um
meiri kunnáttu í læknisfræði en almennt
gerist meðal lækna hérlendis á þessu tíma-
bili, auk þess sem nýr sjúkdómaflokkur sér
dagsins ljós. Svo heppilega vill til að einka-
sjúkraskrár Björns Ólafssonar hafa varðveist
að undanskildum tveimur fyrstu starfsárum
hans. Ná þær yfir tímabilið frá 24. júlí 1892
til 12. október 1909. Hefðu sjúkraskrár þess-
ar ekki varðveist og komið í leitirnar væri
lítið vitað um læknisstörf Björns nema þau,
sem í munnmælum eru geymd.
í nóvember árið 1970 fékk höfundur þess-
arar greinar sjúkradagbækur Björns óvænt
í hendur. Höfðu bækurnar þá nýlega fundist
í skjalasafni Reykjavíkurborgar að Korpúlfs-
stöðum, er verið var að kanna verðmæti„er
björguðust úr bruna, er varð í safninu nokkr-
um árum áður. Dagbækur eða sjúklinga-
skrárnar geyma mikinn fróðleik um augn-
sjúkdóma hér á landi á fyrrnefndu tímabili.
Eru þær frábærlega vel unnar og bera höf-
undi þeirra glöggt vitni um vandvirkni og
kunnáttu. Hvað augnlækningar snertir kem-
ur Björn í ónumið land. Hann verður fyrstur
til að greina þá augnsjúkdóma, sem hér
voru tíðastir, leggur grundvöllinn að blindu-
vörnum hér á landi með glákulækningum
sínum og er fyrstur lækna að framkvæma
augnskurði í stórum stíl og mæla gleraugu
eftir kúnstarinnar reglum.
Verður nú helstu augnsjúkdómum um
síðustu aldamót gerð nokkur skil og er ein-
göngu stuðst við sjúkradagbækur Björns,
enda ekki um aðrar heimildir að ræða. Lang
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. DESEMBER 1990 19