Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1990, Síða 3
Kirkjan Sagrada Família í Barcelona.
Innsettu myndirnar af turminuni sýna,
að þeir minna sumir á dropasteina úr
hellum eða önnur furðuverk úr ríki
náttúrunnar.
STYR UMKIRKJULIST
í SAGRADA FAMÍLIA
irkjan Sagrada Família í Barcelona er án
efa ein sérstæðasta bygging í Evrópu. Hún
er verk katalónska arkitektsins Antoni
Gaudí, sem teiknaði hana á seinniparti
síðustu aldar í Art Nouveau-stíl. Sá stíll
helgast af því að reynt er að forðast beinar
línur, en þeim mun meiri áherzla á allskon-
ar ornament, svo heildin minnir meira á sum
furðuverk úr ríki náttúrunnar en hús. Það
var byijað að byggja kirkjuna 1882 og þeg-
ar Gaudí lézt árið 1926, var henni ekki lok-
ið; enn var eftir að reisa turna, sem áttu
að teygja sig hærra til himins en á nok-
kurri annarri kirkju í Evrópu. Gaudi var
rólegur þótt honum auðnaðist ekki að ljúka
verkinu og sagði: „Viðskiptavinur minn er
ekkert að flýta sér“. Sem ferðamannase-
gull hefur kirkja Gaudís verið betri en ekki
neitt; 700 þúsund ferðamenn kom í hana
árlega og margir taka undir með frægðar-
mönnum byggingarlistarinnar svo sem
Walter Grophius og Le Corbusier, sem báð-
ir vegsömuðu kirkjuna, þó hún væri eins
fjarri módernismanum og hægt er að kom-
Hluti hinnar umdeildu myndraðar Subirachs á forhlið Sagrada Família
Verkin þykja stinga óþægilega í stúf við byggingarstíl Gaudis.
ast. Tveir meðal frægustu listamanna Katal-
óníu, málararnir Joan Miro og Antoni Tapi-
es, hafa beitt sér ásamt mörgum fleirum á
móti því, að ráðist verði í að klára turnana,
__.n Gaudí auðnaðist ekki að ljúka. Einn
spænskur arkitekt sagði, að það væri eins
og fara nú að klastra handleggjum á Venus
frá Milo. En kaþólikkar í Barcelona hafa
stefnt að því að ljúka verkinu og hafa virkj-
að fjármagn frá katalónskum þjóðernissinn-
um, japönskum stórfyrirtækjum og amerísk-
um ferðamönnum.
En styrinn stendur ekki aðeins um þetta.
Gaudí hafði gert ráð fyrir listaverkum innan
í hvelfingu á forhliðinni og raunar hafði
hann sjálfur gert skissur að útliti þeirra.
Nú var ákveðið að hrinda málinu í fram-
kvæmd, m.a. vegna þess að Olympíuleikar
verða í Barcelona sumarið 1992 og von á
meiri mannfjölda en nokkru sinni fyrr.
Kirkjuyfirvöld efndu ekki til samkeppni, en
réðu þekktasta myndhöggvara í Katalóníu,
Josep María Subirachs, til verksins. Hann
er 56 ára módernisti og harðlínu-stílfæring-
ar hans eru alger andstaða við ljóðræna
mýkt Gaudís. Verkið er stórt: 100 steinfígúr-
ur, sem eiga að sýna píslargöngu Krists.
Það fer í taugarnar á kaþólikkum, að Sub-
irachs sýnir Krist nakinn og einnig það, að
hauskúpa er við fætur hans.
í júlí sl. sumar birtu 200 menningarvitar
í Barcelona, rithöfundar, myndlistarmenn,
arkitektar og kvikmyndahöfundar, mót-
mælaskjal, þar sem skúlptúrum Subirachs
var mó'tmælt og þeir nefndir „hnoð“ og
„flatneskja". Sjálfur svaraði myndhöggvar-
inn fyrir sig með því að kalla þá „snobbara,
mafíu kolleganna, sem geta ekki tekið því,
að þeir voru ekki ráðnir til verksins." Það
þykir þó ögn broslegt, að sjálfur hafði Sub-
irachs skrifað undir mótmælaskjal árið 1965
gegn því að yfirhöfuð yrði gert nokkuð
meira við Sagrada Família. Hann kveðst
hafa skipt um skoðun, þegar verkbeiðninni
fylgdi, að hann mætti hafa fullkomið frelsi
um útfærslu á verki sínu.
GS.
HANNES PÉTURSSON
Grettisskyrta
Við klifum hátindinn þráða
í heiðbirtu, skyggndumst um:
Dalir og múlar vatnsbláir
í vestur langt og í norður. . .
Og þar, ekki dagleið undan
hafði Draugabaninn forðum
breitt á morgunhlíð
bæjarfjalls til þerris
skyrtuna sína, skærgula.
Ég starði bernskum augum
á hinn stóra flekk sem eftir sat.
Undrunaraugum starði ég
á hinn stóra, ljósa flekk
unz hann breyttist í gímald
sem gjósa tók skammdegismyrkri!
Og sauðamannsglyrnu hvítri
var höggvið í kalt enni mér
sauðamannsglyrnu hvítri
var höggvið í allt, sem fyrir varð.
'
Goðmögn. Hluti úr mynd eftir Jón Engilberts.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. DESEMBER 1990 3