Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1960, Qupperneq 28
664
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Það kunni ég auðvitað utanbókaí,
og þegar ég hafði sagt honum að
við værum eitthundrað og sextiu
þúsund, þá hló hann og spurði
mig hvort við kölluðum okkur
þjóð. Það er nú svona--------.
Áramót
Upp rann svo gamlársdagur
1944. — Árið er liðið í aldanna
skaut og aldrei það kemur til
baka. — Hefðum við verið heima,
þá mundum við hafa búið okkur
undir kvöldið og gestakomu. Hug-
urinn ber okkur austur um land
og austur um haf til kunningj
anna heima. Það er eins og Matt-
hías segir að það sem varðar
mestu eru siðir og tungan, en ekki
vatn og grjót. Það kom einhver
klökkvi í hálsinn. Kannski kemur
hann á öllum áramótum? Veður
var fagurt, sléttan grösug en þui,
og fjöllin blá úti við sjóndeildar-
hringinn. Jarðir virðast hér stór-
ar, langt á milli bæja og fjöldi
nautpenings og sums staðar hestar
á beit. Við þutum á spretti vestur
Texas, og í ljóma kvöldroðans
komum við til Santa Rosa, bæar
sem stendur á bökkum árinnar
Pecos. En þegar Ameríkanar í
bíómyndum sínum vilja lýsa hinu
verulega vilta vestri, þá er það
fyrir vestan Pecos. Santa Rosa ei
upp á hásléttu sem þarna er að
byrja í um fjögur þúsund feta
hæð. Við komum þama nokkuð
snemma, hefðum getað bætt við
okkur nokkrum mílum. En sökum
þess að vegakortið sýndi langar
leiðir milli þorpa, ákváðum við
að fara ekki lengra að sinni. Við
áttum þarna fábreytt gamlars-
kvöld. Við gátum ekki fengið svo
mikið sem létt vín til að skála í
fyrir kunningjunum heima og
heiman. Við höfðum þó lofað vin-
unum í Rochester að minnast
þeirra við veigar okkar þetta
kvöld. Við urðum því að geyma
gleðskapinn til næsta dags.
1. janúar 1945 rann upp heiður
og bjartur. Dálítið frost hafði ver
ið um nóttina, enda var hæðin
þarna töluverð eins og að fram-
an segir. Vegurinn var beinn og
lá heldur upp á við móti fjöllum.
Landslag og gróður var sífellt að
breytast. Tré miðvesturríkjanna
sáust hvergi. En gisinn cypress-
viður klæddi hæðir en kaktus á
milli. Þarna hurfu á stóru svæði
öll bændabýli, en vegurinn var
alltaf steyptur og góður. Hér og
þar voru smáþorp og námu-
vinnsla við þau. í þorpum þess-
um bjuggu Indíánar í mjög frum-
stæðum leirkofum. Vegurinn lá
stöðugt upp í móti brekkunni og
að lokum vorum við komin það
hátt að snjór var við veginn og
sums staðar hálka á veginum. Eg
vissi ekki hvað lengi þessu mundi
fara fram og mundi því hafa orð-
ið kvíðinn, ef stöðug umferð af
bílum hefði ekki verið um veg-
inn. Um hádegið fór að hallaund-
an fæti og klukkan tvö sáum við
af fjallinu fagra sléttu, á hverri
var snotur borg, sem heitir Albu-
querque. Þar var gott að hvílast
og borða góðan mat. Seinna um
daginn á leið okkar vestur hin
hálfgerðu öræfi sá ég að benzínið
fór að minnka ískyggilega á bíln-
um og staðnæmdist því við benzin-
stöð, en enginn var við á stöðinni.
Hreyfillinn þagnaði um leið, og
af einhverjum ástæðum veittist
mér örðugt að fá bílinn í gang,
svo að mér varð hálf illa við.
Ef fór á fleiri staði og alls stað-
ar endurtók sig sama sagan. Menn
voru engir við og bíllinn drap á
sér og reyndist stöðugt erfiðari og
erfiðari í gang. Eg fór að verða
kvíðinn og góð ráð gátu orðið dýi.
En einmitt þegar ég var alveg að
verða benzínlaus, fann ég að lok-
um opna benzínstöð. Viðfeldinn
afgreiðslumaður, hverjum ég tjáð’
vandræði mín, sagði mér að ben-
zínstöðvarnar sem hefðu verið
lokaðar, væru stöðvar Indíána, og
þar sem í dag væri 1. janúar
hefðu Indíánarnir tekið sér fri til
þess að hvíla sig eftir áramóta-
gleðina. Og þegar ég sagði honum
frá erfiðleikunum, sem ég hefði
með bílinn minn, þá sagðist hann
kannast vel við kvillann. Maður-
inn sagði, að staðurinn sem við
værum í héti Toreu og væri i
7200 feta hæð, og að blöndungur-
inn í bílnum mínum væri ekki
tempraður rétt fyrir þessa hæð.
— Hann spurði mig einnig að þvi
hvort lungun í mér yrðu ekkeri
vör við hæðina, t. d. hvort ég
fyndi ekki sting undir herðablöð-
unum. Og þegar hann hafði þetta
mælt, þá fann ég til stings undir
vinstra herðablaðinu. Svo hann
hafði lög að mæla. Hann lofaði
mér því að hann mundi hjálpa
mér af stað um leið og hann he^ð5
lokið við að fylla á bílinn, og
hann ráðlagði mér að halda sið-
an áfram hiklaust þar til við
kæmum til næsta bæar, sem
Gallup heitir, enda sagði hann
að það mundi heldur halla undan
þangað, því bærinn væri aðeins
í 6500 feta hæð. Það er nú meira
en tvisvar sinnum hærra en Esj
an. Þarna í Gallup gistum við
á því fínasta hóteli sem við höf-
um nokkru sinni gist. Þar var
.allt fullt af myndum af frægum
mönnum og voru á þeim flestum
eiginhandar áletranir og kveðjur.
Þarna bar mest á leikaramyndum.
Á þessu hóteli drukkum við skál
kunningjanna. Mér varð ekki gott
af hanastélinu. Eg fékk bara auk-
inn sting undir herðablöðin. Hæð-
in sem við vorum í mátti ekki
meiri vera.