Vísir - 18.12.1975, Síða 12
12
0 ' '
1---------------------------------------------------------------------------------------—
Fimmtudagur 18. desember 1975. VISIR
Umsjón: Kjartan L. Pálssor
AHORFENDURNIR GETA
RAÐIÐ URSLITUNUM!
„Við getum ekki sagt að við sé-
um öfur.dsveröir, en við erum
samt staðráðnir í aö berjast til
siðasta blóðdropa ef svo má að
orði komast”, sögðu þeir félagar,
Axel Axelsson og Björgvin Björg-
vinsson, þegar við spjölluðum við
þá á siðustu æfingu landsliðsins i
gær fyrir leikinn við Júgóslaviu i
handknattleik i kvöld.
„Danmerkurferðin var mjög
erfið en við fengum þar dýrmæta
reynslu sem við vonumst til að
komi okkur að gagni i leiknum.
Þar vorum við að æfa upp ákveð-
in leikkerfi sem við erum nú að ná
tökum á — spurningin er bara sú
hvernig til tekst i kvöld”, sögðu
þeir félagar.
Segja má að aldrei fyrr þurfi is-
lenskir handknattleiksmenn jafn-
mikið á hvatningu áhorfenda að
halda og i kvöld. Hver man ekki
eftir landsleiknum fræga hér um
árið, þegar islenska handknatt-
leikslandsliðið og áhorfendur
unnu landslið Frakklands hér
28:15 1973 og með þeim úrslitum
tryggði islenska liðið sér réttinn
Frakkar voru flengdir
Sovétmenn flengdu frakka i
handboltalandsleik i Nantes i
Frakklandi 31:16, eftir að þeir
böfðu náð yfirburðastöðu i hálf-
leik 15:4.
Leikurinn var liður i undan-
keppni ólympiuleikanna og eru
austurrikismenn þriöja liðið i
riðlinum, öll liðin hafa nú leikið
tvo leiki, sovétmenn unnu
Austurriki 36:13 og frakkar
unnu Austurriki 23:22.
Staðan i riðlinum er þessi:
Sovétrikin 2 2 0 0 67:29 4
Frakkland 2 0 0 2 39:53 2
Austurriki 2 0 0 2 35:59 0
Enginn einn leikmaður skar
sig úr i sovéska liðinu i gær-
kvöldi og skoruðu niu leikmenn
mörk iiösins. Lagutin var mark-
hæstur með 6 mörk, en sá frægi
Maximov skoraði 4 mörk.
Eins og kunnugt er sækja
sovétmenn okkur heim i byrjun
janúar og leika hér tvo lands-
leiki og vrður örugglega gaman
að fylgjast með þessu frábæra
landsliði sem af mörgum er
besta i heiminum i dag. BB
til að komast i lokakeppni HM.
Vonandi tekst landsliðinu jafn vel
upp i kvöld og i leiknum gegn
frökkum 4. des. fyrir liðlega
tveim árum — jafnvel þótt and-
stæðingarnir séu sterkari nú en
þeir voru þá — ætti piltunum að
takast að velgja júgóslövunum
undir uggum — fái þeir góðan
stuðning áhirfendanna — það
hefur allt að segja.
Viðar Simonarson hefur nú
endanlega valið liðið sem leikur i
kvöld og verður þannig:
Markverðir: ólafur Benedikts-
son og Guðjón Erlendsson. Aðrir
leikmenn: Ólafur H. Jónsson,
Axel Axelsson, Gunnar Einars-
son, ólafur Einarsson, Páll
Björgvinsson, Björgvin Björg-
vinsson, Jón Karlsson, Stefán
Gunnarsson, Sigurbergur Sig-
steinsson og Arni Indriðason.
-BB
Jimmy lét ekki sjó sig!
Jimmy Rogers mætti ekki á æf-
ingu i gærkvöldi hjá 1. deildar-
liðinu I körfuknattleik, sem á aö
rnæta bandariska liðinu
Kose-Hulman í Laugardalshöll-
inni á sunnudaginn.
Hann og Curtis Carter áttu báð-
ir að mæta á þessa æfingu, enda
báðir i úrvalinu, en aðeins Carter
lét sjá sig. Þegar hringt var i
Rogers i gærkvöldi og itrekað við
hann að mæta, sagöist hann
meiddur, en lofaði að koma þrátt
fyrir það — en lét samt ekki sjá
sig.
Menn vildu halda þvi fram að
hann væri miður sin eftir slags-
málin við Carter i leik Armanns
og KR á þriðjudagskvöldið og
væri það ástæðan fyrir þvi að
hann hcfði ekki mætt.
Mikið hefur verið rætt um þessi
slagsmál meöal iþróttaunnenda
hér á landi, og er almennt talið að
þau eigi eftir að draga dilk á eftir
sér fyrir Carter. Ilómarar leiks-
ins hafa kært málið til Aganefnd-
ar KKÍ, og er búist við að Carter
fái tvo eða þrjá leiki i keppnis-
bann, og jafnvel að Rogers fái
svipaðan dóm, þó að liann hafi
ekki náð að slá „Trukkinn”. t
einu blaöanna i morgun er þvi
meira að segja haldiö fram, að
svo gcti farið, að„Trukknum”
verði visað úr islenskum körfu-
knattleik fyrir framkomu sina i
þessum sögulega leik.
Einn iþróttaunnandi — sem sá
ekki leikinn — hélt þvi fram við
okkur i gær, að svertingjarnir
hafi sett þessi slagsmál á svið og
verið búnir að ákveða fyrir leik-
inn að gera einhvern umtalsverð-
an hasar til að auglýsa sig og
körfu knattleiksiþróttina hér á
landi.
Ekki erum við alveg á sama
máli — höggin sem þarna voru
gefin voru ekki nein „auglýsinga-
högg”. Báðir voru miður sín er
við töluðum við þá á cftir, og
sögðu að þetta hafi verið gert i
augnabliks æsingi.
Carter var sýnilega búinn að ná
sér á æfingunni i gær, og sagðist
vera tilbúinn I „slaginn” á móti
löndum sinum á sunnudaginn.
Vonandi verður Rogers þá einnig
búinn að jafna sig á „meiðslun-
um” og getur orðið gaman að sjá
þá saman i þeim leik.
Rose-Hulman er á leið i
keppnisferð um Evrópu og verður
fyrsti leikur liðsins i þeirri ferð
hér. Þetta er m jög gott lið — varð
i öðru sæti 'i körfuknattleiks-
keppni t ækniskóla í Bandarikj-
unum á siðasta ári. Sigraði liðið
þá i 12af 16 siðustu leikjum shium
i keppninni og hafnaði í öðru sæti
eins og fyrr segir.
í islenska liðinu á sunnudaginn
verða, auk bandarikjamannanna
Curtis Carter og Jimmy Rogers,
þessir menn:
Kolbeinn Pálsson, KR
Jón Sigurðsson, Armanni
Kolbeinn Kristinsson, tR
Kristinn Jörundsson, ÍR
Gunnar Þorvarðss., UMFN
Stefán Bjarkason, UMFN
Torfi Magnússon, Val
Bjarni Jóhannsson, KR
Kári Marisson, UMFN
Björn Magnússon, Armanni.
Strákarnir í liðinu X /Hvað
geta tekið það þannig.'l / þejr
þú sért i einhverju
.sérstöku uppáhaldi
meö þaðl
hafa sitt
hef mittl
\
Hann hefur
skorað 25
mörk í leik
tslenskum handknattleiksunnendum gefsi
kostur á að sjá einn besta handknattleiks
mann i heiminum á fjölum Laugardalshall
arinnar i kvöld, þegar landslið tslands of
Júgóslaviu mætast þar i undankeppn
Ólympiuieikanna.
Hann heitir Hrvoje Horvat og er skothark;
hans og hittni sögð með ólikindum. Núna ný
lega setti Horvat t.d. nýtt markamet i 1
deildarkeppninni i Júgóslaviu i einum leik —
þegar hann skoraði 25 mörk, i 32 tilraunum
Eldra metið átti hann sjálfur, 20 mörk.
mundir og sögðu leikmenn Luxemborgar eft
ir leikinn I Júgóslaviu — að þeir hefðu aldre
séð annað eins. En við skulum vona að Hor
vat hafi hægt um sig i kvöld og islcnsku leik
mönnunum takist að gera hann óvirkan.
Finnarnir
slegnir út
Finnska körfuboltaliðið NMKY sigrað
belgiska liðið Maes Pils i Evrópukeppn
meistaraliða i Turku i Finnlandi i gærkvöld
87:81 eftir að staðan i hálfleik hafði verið jöfi
— 43:43.
Þetta dugði finnunum samt ekki til að kom
ast áfram i keppninni, þvi að þeir töpuði
fyrri leiknum i Belgiu stórt — 124:75 og belg
arnir halda þvi áfram á betri stigatöli
205:162. —BB
Dankersen
fékk FIF
Dankersen, liðiðsem þeir Axel Axelsson oj
Óiafur H. Jónsson leika með i Vestur-Þýska
landi, dróst gegn dönsku bikarmeisturunun
FIF frá Kaupmannahöfn i Evrópukeppn
bikarhafa i handknattleik — þegar dregið vai
i átta liða úrslitum Evrópukeppninnar i Bas
el i Sviss i gærkvöldi.
Eftirtalin lið drógust þá saman:
(EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA)
Borac Bauja Luka (Júgóslaviu)
— Balonmano Calpisa (Spáni).
KFUM Fredericia (Danmörku)
— VS Sparta (Finnlandi).
Slask Wroclax (Póllandi)
— Gummerabach (V-Þýskalandi).
Fredensborg (Noregi) — Sportis Sofi:
(Búlgariu).
(EVRÓPUKEPPNI BIKARIIAFA)
Universite Paris (Frakklandi)
— Bern (Sviss).
FIF (Danmörku)
— Dankersen (V-Þýzkalandi).
Progres Seraing (Belgiu)
— Oppsal (Noregi).
Amsterdam (Hollandi)
— Balonmano Granollers (Spáni).
Fyrri umferðina á að leika á timabilinu fr;
2. til 8. janúar og þá siðari 16. til 22. janúar
—BB
, :ri