Morgunblaðið - 16.05.2000, Side 88
’S££,
heim að dyrum
www.postur.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 6691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
ur hafnar
* beiðni
Bandarfkin
Hæstirétt-
15 Islendingar búa í Enschede - sumir sluppu naumlega úr sprengingunum
KRISTJÁN Ragnarsson, stjórnar-
formaður íslandsbanka, hlaut flest
atkvæði, 15%, við kjör til bankaráðs
Íslandsbanka-FBA hf. á fyrsta hlut-
hafafundi bankans í gær. Alls buðu
átta sig fram í sjö manna bankaráð
bankans. Orri Vigfússon náði ekki
Eimskips
HÆSTIRÉTTUR Bandaríkjanna
vísaði í gær frá ósk Eimskips um að
rétturinn fjallaði um ágreining sem
uppi hefur verið um flutninga fyrir
varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. Þar
með er lokið dómsmálameðferð í
Bandaríkjunum sem staðið hefur í
um tvö ár.
Eimskip og Van Ommeren, sem
sinntu flutningum fyrir vamarliðið,
höfðuðu mál fyrir bandarískum dóm-
stóli vegna þeirrar ákvörðunai- flutn-
ingadeildar bandaríska hersins að
semja við Transatlantic Lines og
Atlantsskip um flutningana, en fé-
lögin eru í eigu sömu aðila og m.a.
þess vegna töldu kærendur að samn-
ingamir fælu í sér brot á sjóflutn-
ingasamningi íslands og Bandaríkj-
anna frá árinu 1986. Eimskip vann
málið fyrir undirrétti, en TLL og
Atlantsskip áfrýjuðu málinu og unnu
málið í áfrýjunarrétti. Eimskip
ákvað að láta á það reyna hvort málið
fengist tekið fyrir hjá Hæstarétti
Bandaríkjanna, en rétturinn hafnaði
^^^beiðninni í gær. Ekki er venja að
'^^•Hæstiréttur rökstyðji niðurstöðu
sína um hvers vegna hann hafnar því
að taka mál fyrir.
Þórður Sverrisson, framkvæmda-
stjóri flutningasviðs Eimskips, sagði
í gær að þessi niðurstaða kæmi ekki
á óvart. Eimskip hefði allan tímann
gert sér ljóst að frekar litlar líkm-
væra á að Hæstiréttur tæki málið til
meðferðar. Rétturinn fengi árlega
4.000-5.000 beiðnir um upptöku
máls, en hann tæki aðeins 90-100
mál til meðferðar á ári.
I frétt frá Eimskipi segir: „Þessi
niðurstaða mun ekki hafa áhrif á
þjónustu Eimskips sem sinnir reglu-
legum áætlunarsiglingum milli Is-
lands og Bandaríkjanna. Eimskip
"■^gerir ráð fyrir að flutningar fyrir
varnarliðið verði boðnir út að nýju á
næsta ári eins og gert er ráð fyrir í
nýsamþykktum lögum frá Alþingi og
mun Eimskip taka þátt í því útboði
samkvæmt þeim lögum og reglum
sem um þessa flutninga gilda.“
Sameining fslandsbanka og FBA samþykkt af hluthöfum
Ekið á dreng
á reiðhjóli
DRENGUR á áttunda ári á reiðhjóli
varð fyrir bíl í Heiðargerði í Reykja-
vík laust fyrir klukkan sjö í gær-
kvöldi.
Talið er að drengurinn hafí við-
beinsbrotnað og hlotið heilahristing,
en hann var með hjálm á höfðinu. Að
sögn lögreglu voru tildrög slyssins
ekki ljós í gærkvöldi.
Kristján Ragnarsson með
flest atkvæði í bankaráð
kjöri en hann hlaut 7,1% atkvæða.
Fyrir fundinn höfðu níu boðið sig
fram í sjö manna varastjóm bank-
ans. A fundinum kom fram að
Bjarni Finnsson og Sigurður Bessa-
son hefðu dregið framboð sín til
baka og var því sjálfkjörið í vara-
stjórn.
Hluthafafundir fslandsbanka og
Fjárfestingai’banka atvinnulífsins
samþykktu í gær sameiningu bank-
anna og tekur hún formlega gildi 2.
júní nk.
Á fyrsta fundi bankaráðs íslands-
banka-FBA, sem haldinn var strax
að loknum hluthafafundi, var Krist-
ján Ragnarsson kjörinn stjórnarfor-
maður og Eyjólfur Sveinsson, sem
hlaut 13,3% atkvæða í kosningu til
bankaráðs, varaformaður.
Aðrir í bankaráðinu era Helgi
Magnússon, sem fékk 14,7% at-
kvæða, Guðmundur H. Garðarsson
með 13,7%, Jón Ásgeir Jóhannesson
með 13,1%, Einar Sveinsson með
11,2% atkvæða og Finnbogi Jóns-
son, sem hlaut 11,1% atkvæða í
kosningu til bankaráðs.
í varastjórn bankans era Friðrik
Jóhannsson, Guðmundur B. Ólafs-
son, Gunnar Felixson, Gunnar Þór
Ólafsson, Hjörleifur Þór Jakobsson,
Jón Ólafsson og Örn Friðriksson.
Umfram væntingar
Kristján Ragnarsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að stuðningur-
inn við hann hefði verið miklu meiri
en hann hefði gert sér grein fyrir
þegar hann féllst á óskir beggja
bankaráðanna um að taka að sér
formennsku í sameinuðum banka.
„Þá varð ég var við að menn töldu
að ég væri öruggur og ekki þyrfti að
koma til kosningar til bankaráðs."
Að sögn Kristjáns er fylgið langt
umfram það sem hann hafði sjálfur
gert sér grein fyrir og að hann viti í
sjálfu sér ekki hvaðan allur þessi
stuðningur kemur. „Hann er greini-
lega mjög almennur. Ég er afskap-
lega þakklátur og það er gott að
hefja starf í þessum nýja stóra
banka með þetta mikla traust á bak-
inu og mun ég leitast við að rísa
undir því.“
Orri Vigfússon, sem hlaut 7,1%
atkvæða í stjórnarkjöri en náði ekki
sæti, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að niðurstaðan hefði ekki
komið sér á óvart. „Það voru helst
einstaklingar sem stóðu á bak við
mig, þ.e. minni og meðalstórir hlut-
hafar. Það er Ijóst að ég fékk engan
stuðning frá lífeyrissjóðunum."
Hann segist hafa átt von á að Krist-
ján Ragnarsson fengi flest atkvæði
þrátt fyrir að talið hafí verið í síð-
ustu viku að baráttan stæði á milli
þeirra tveggja. „Málin þróuðust
þannig um helgina að stuðningur við
Kristján og Helga Magnússon jókst
veralega.“
Orri segist viss um að sátt skapist
um kjörna stjórn og engin sárindi
ríki meðal smærri hluthafa.
■ Sameining/18
Skipholti 21
Sími 5301800
Fax 530 1801
Áhmðferð
áNetið
meðiMac
Bláberja
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Helgi H. Helgason læknir ásamt fjölskyldu sinni í Enschede í gær, f.v.
Haukur Steinn, Helgi, Ásta Karen, Fjóla Grétarsdóttir og Lilja Dögg.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Bjarni Ketilsson og Arianne Bos með skjalakassann á milli sín, sem
geymir tryggingapappíra, en þau tóku fátt annað með sér.
I burtu frá verksmiðj-
unni í eldi og griótregni
Enschede. Morgunblaðið.
FIMMTÁN íslendingar búa í En-
schede í Hollandi og sluppu nokkrir
þeirra naumlega er flugeldaverk-
smiðja sprakk þar síðdegis á laugar-
dag. „Ég man að ég skreið inn í húsa-
sund og ég sá þakplötunum rigna allt
í kringum mig,“ sagði Bjarni Ketils-
son myndlistarmaður í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hann ók af
vettvangi ásamt konu sinni og særð-
um farþegum í eldi og grjótregni.
Heimili Bjama og Arianne Bos konu
hans er sem rjúkandi rúst. Arianne
er gengin á níunda mánuð með frum-
burð þeirra.
Birna Júlíusdóttir sat á efri hæð
húss síns um 30 metra frá verksmiðj-
unni og var að sinna ungum syni sín-
um er veggurinn á móti þeim sviptist
burtu. Hún braust með bamið út á
bílskúrsþakið og þaðan burt um bak-
garðinn. Bima og sonur hennar
sluppu ómeidd, en hún vildi í gær
ekki ræða atburðinn.
Eyðileggingin er mikil í Enschede eftir að flugeldaverksmiðja sprakk þar á laugardag.
Helgi H. Helgason er í sémámi við
sjúkrahúsið í Enschede og var kall-
aður út eftir sprenginguna. Hann
segir að þetta hafi verið erfiður dag-
ur. Inn á sjúkrahúsið hafi komið
holskefla af særðu fólki.
„Eftir á að hyggja var þetta eins
og í stríðsmynd," sagði Bjarni í sam-
tali við blaðamann Morgunblaðsins í
Enchede í gær.
„Þegar við komum út á götu var
þar allt í fári; gijót og gler út um allt
og blóðugt fólk. Rúðurnar í bílnum
voru brotnar og ég hreinsaði fram-
rúðuna úr. Einhver kom og sagði að
við hefðum bara mínútu til stefnu,
svo við ókum burtu, tókum eitthvað
af særðu fólki með okkur og forðuð-
um okkur í eldi og gijótregni. Svona
eftir á að hyggja var þetta eins og í
stríðsmynd."