Morgunblaðið - 16.05.2000, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 16.05.2000, Qupperneq 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2000 MOBGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Flugvellir og öryggi 'i UNDANFARNAR vikur og mán- uði hefur mikið verið rætt um Reykjavíkurflugvöll, og hvað eigi eða eigi ekki að gera við hann. Leggja hann niður, halda honum við eða nú það nýjasta - að láta nægja að notast við eina flugbraut. Það er einkum þessi síðasta útgáfa sem mig langar að fjalla aðeins um hér. Engir vita betur en íslendingar hversu veður geta verið breytileg hér á landi. Á einum og sama degin- um getur vindur blásið úr öllum átt- um og að auki rignt, snjóað og frosið. Stundum gerist þetta allt á einum eftirmiðdegi. Þetta eru hlutir sem ís- lenzkir flugmenn eru alvanir að fást við og eru reyndar alltaf að spá í, eðli starfs síns vegna. Hvernig verður veðrið þegar ég kem til Keflavíkur eða Reykjavíkur eftir svo og svo langt flug? Þarf ég að hætta við og fara til Akureyrar eða Egilsstaða eða Glasgow? Þegar lagt er af stað er allt útlit fyrir að hann muni blása að austan, að það muni snjóa eða gera slyddu annað slagið, en stytta nógu oft upp til þess að unnt sé að bæta bremsuskilyrðin (með mokstri, úðun, sandburði) nægilega til þess að unnt sé að lenda og stöðva af öryggi. En svo, rétt þeg- ar t.d. verið er að hefja aðflug, þá breytist veðrið. Hann fer að kyngja niður með slyddu, bremsuskilyrðin versna og vindurinn snýst um leið. Nú er allt í einu mun hagstæðara að lenda á suðurbrautinni, jafnvel þótt bremsuskilyrðin hafi einnig versnað Flugöryggi Vilja alþingismenn styðja það, spyr Kjartan Norðdahl, að notuð verði flugbraut sem stundum skammtar manni hámarkstak- mörkun hliðarvinds _______og bremsu?________ á henni, því hún snýr betur við vindi eins og hann blæs nú. Vélinni er síð- an lent þar við öruggar aðstæður í stað þess að þurfa strax að taka ákvörðun um að yfirfljúga og halda til næsta varaflugvallar. Þessi lýsing hér að framan er ósköp hvers- dagsleg fyrir íslenzka flugmenn. Þeir eru allt- af annað slagið að lenda í þessum aðstæðum. Á vetuma er það alltaf þessi sama spurning - hvaða braut er örugg- ust til flugtaks og lend- ingar, miðað við vind og bremsuskilyrði? Það liggur í augum Kjartan uppi, að hér á landi felst Norðdahl mikið flugöryggi í því að hafa fleLri en eina flugbraut. Lágmark er að hafa braut sem snýr í t.d. suður/norður og aðra sem snýr í austur/vestur á aðalflugvöllum landsins. Nógu slæmt þótti flug- mönnum þegar norðaustur/suðvest- Stóra tækifærið tíl sjálfstæðs atvinntireksturs Bandarískt tengslamarkaðsfyrirtæki með öflugt MLM network marketing kerfi. Nýjar náttúrulegar heilsuvörur sem vinna gegn öldrun, auka heilbrigði og vellíðan. Netverslun með yfir milljón vörutegundir. Gríðarlegir tekjumöguleikar. Leitað er eftir hæfum einstakling eða fyrirtæki sem aðal umboðsmanni til að byggja upp net söluaðila hér á landi, koma á fót heimakynningum og hafa umsjón með reglulegum fundum og námskeiðum söluaðila. Fyrijtækið er reiðubúið að koma upp þjónustu- og lagerhúsi á íslandi ef réttur aðili finnst til að sjá um markaðsmálin. Sérfræðingar telja að með tilkomu Internetsins boði tengslamarkaðssetning byltingu í viðskiptum um allan heim og meiri tækifæri en nokkur annar viðskiptamáti fyrir framsækna einstaklinga og fyrirtæki. Fjöldi þekktra Bandarískra tæknifyrirtækja eru meðal styrktar- og samstarfsaðila Earthchild sem ráðstafar hluta af tekjum sínum til mannúðarmála. Earthchild er eitt mest tæknivædda fyrirtæki heims og býður umboðsmönnum sínum m.a. aðgang að “Virtual Office” kerfi og símakerfi sem veitir nýja möguleika til að þjónusta viðskiptavini hvar sem er í heiminum. Til að fá nánari upplýsingar fyllið út umsókn á slóðinni: www.earthchild.net/island ÆSKUBRUNNURINN Ný fæðubótaefni unnin úr ávöxtum, grænmeti og kínverskum lækningajurtum. Rannsóknir sýna mjög jákvæð áhrif á alla líkamsstarfsemina, heilastarfsemina og allt að 60% minni líkur á krabbameinsmyndun í síðasta mánuði fjallaði Bandaríska tímaritið Time um nýjar rannsóknir sem sýndu að fæðubótaefni eins og Earthchild Fountain of Life sem unnin eru úr ávöxtum og grænmeti eru ein áhrifamesta vörnin gegn krabbameini. Rannsóknir Bandarískra háskóla hafa komist að svipuðum niðurstöðum. í bókinni Your Miracle Brain sem var að koma út vestan hafs eftir metsöluhöfundinn Jean Carper, er skýrt frá rannsóknum sem sýndu að fæðubótaefni úr ávöxtum hafi endurnýjað heilafrumur og eru ein öflugasta vörnin sem fáanleg er gegn öldrun, til að bæta minnið og starfsemi heilans. ur brautinni í Keflavík var lokað (af spamað- arástæðum) því á henni var langöruggast að lenda í vissum veðr- um. Þetta þýðir að menn eru í mörgum til- vikum á ári að lenda eða taka af við há- markstakmörkun, vegna þess að sú braut sem veitti meira öryggi er lokuð. Að nota sem rök, að óhætt sé að loka flug- braut af því að hún sé miklu sjaldnar notuð en önnur, er svona álíka og að segja: við skulum fækka í slökkviliðinu, því það kviknar svo sjaldan í! Eða segja: Við skulum henda öllu þessu björgunardóti úr flugvélunum því það gerast svo sjaldan flugslys. Til hvers að vera að þyngja vélina með björgunarbátum, því hvað oft þarf flugvél að nauðlenda á sjó? - og hvað oft þurfa farþegar hér að grípa í þessar súrefnisgrímur sem hanga þarna í loftinu og flugfreyjurnar eru alltaf að tala um? Eigum við ekki bara að henda öllu þessu drasli í land og vísa í statistik? Vilja farþegar okkar taka undir það sjónarmið að leggja niður flug- brautir á kostnað öryggis, af því borgarstjórann í Reykjavík vantar pláss fyrir fleiri hús? Og svo ég endurtaki: Vilja alþing- ismenn taka undir það sjónarmið, að af því einhver tiltekin flugbraut sé sjaldnar notuð en önnur, þá sé í lagi að leggja hana niður, þótt það þýði, að í staðinn þurfí að notast við flug- braut sem stundum skammtar manni hámarkstakmörkun hliðar- vinds ogbremsul Við ykkur, sem ábyrgð berið á samgöngumálum, vil ég segja þetta: Með lokun brautarinnar í Keflavík, og ef af því verður að leggja niður braut í Reykjavík, eruð þið, með al- veg ótviræðum hætti, að draga úr flugöryggi hér á landi. Það er ykkar að axla þá ábyrgð. Við ykkur, góðir farþegar (- og kjósendur!), segi ég þetta: Takið nú vel eftir hverjir það eru sem vilja draga úr flugöryggi hér á landi á ykkar kostnað. Að lokum þetta: Hvers vegna er leitað álits danskra sérfræðinga (með fullri virðingu fyrir þeim ágætu mönnum) á vandamáli er lýtur að ís- lenzku veðri, íslenzkum flugvöllum og islenzku flugöryggi, þegar fyrir liggur löng reynsla og góð þekking á þessu sviði hjá íslenzkum flugmönn- um, sem glímt hafa við þessi vanda- mál svo áratugum skiptir? Upplýsingar um málið hefðu auð- veldlega fengist hjá þeim - og það ókeypis! Höfundur er flugstjóri. Nvbvlave
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.