Morgunblaðið - 16.05.2000, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Þekkingardagur
haldinn í fyrsta sinn
AÐALFUNDUR Félags viðskipta-
fræðinga og hagfræðinga (FVH)
var haldinn síðastliðinn föstudag og
að loknum hefðbundnum aðalfund-
arstörfum flutti Tryggvi Pálsson,
stjórnarformaður Verðbréfaþings
íslands hf. (VÞÍ), erindi um nýjar
áherslur í starfsemi Verðbréfa-
þings. Sagði hann stjórn VÞÍ leggja
áherslu á að fyrirtækið væri þjón-
ustufyrirtæki og að breytingin í
hlutafélagaform skipti máli í því
sambandi.
Tryggvi ræddi einnig um aðild
VÞÍ að NOREX, en það er sam-
starf sjö kauphalla á Norðurlöndum
og í Eystrasaltslöndunum. Upplýs-
ingaskylda fyrirtækja á VÞI var
einnig til umræðu og kom fram að
stefnt er að skýrari skilgreiningu á
innherjum og tíðari uppgjörum fyr-
irtækja á VÞÍ. Kristján Jóhanns-
son, formaður FVH, kjmnti áform
félagsins um að halda árlegan þekk-
ingardag í fyrsta skipti næstkom-
andi október. Valið verður þekking-
arfyrirtæki ársins og verður valinu
þannig háttað að fyrirtæki og stofn-
anir geta sent inn tillögur sínar og
svo munu dómnefnd og félagsmenn
í FVH skera úr um hvaða fyrirtæki
hefur skarað fram úr á þessu sviði.
Dr. Runólfur Smári Steinþórsson
verður formaður dómnefndar.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Tryggvi Pálsson, stjórnarformaður Verðbréfaþings íslands hf., á aðalfundi
Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga.
Raöstefna 18. inaí á vegum VUR og World Bank:
Hverníg á að ná samningum um verkefni
sem Alþjóðabankinn fjármagnar?
Alþjóðabankinn (World Bank) og Viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins (VUR) bjóða til ráðstefiiu
18. maí. Viðfangsefhi ráðstefhunnar er hvemig best er fyrir íslensk fyrirtæki að bera sig að við
ffamkvæmd útboða, öflun fjármagns og þátttöku í verkefnum á vegum Alþjóðabankans.
Ráðstefnan verður haldin í Borgartúni 6, frá kl. 13:00 - 17:00.
Utanríkisráðuneytið vinnur að því að efla starfsemi íslenskra fyrirtækja í þróunarlöndum og
fjölga viðskiptatækifærum, m.a. með auknu samstarfi við Alþjóðabankann. í því skyni koma
nú hingað til lands þrír sérffæðingar á veginn Alþjóðabankans til að kynna starfsemi bankans
og sérstakt átaksverkefni ætlað litlum og meðalstórum fyrirtækjum í Evrópu.
Titill ráðstefnunnar er: „Hvernig á að ná samningum um verkefni sem Alþjóðabankinn fjármagnar“
Dagskrá
13:00-13:15
13:15-13:45
13:45 -14:30
14:30 -14:45
14:45-15:15
15:15 -15:45
15:45-16:15
Setning ráðstefnunnar
Almenn kynning á World Bank Group:
Gilles Garcia, framkvæmdastjóri European Entreprise Outreach
„Hvernig á að ná árangri í útboðum á birgðum “
Preben Jensen, svœðisráðgjafi
Kaffihlé
„Hvernig á að ná árangri í útboðum á birgðum“ (framhald)
Kynning á IFC:
Gilles Garcia
Kynning á MIGA:
Gilles Garcia
Ennfremur tekur Malcom Ehrenpreis, ráðgjafi fyrir Norðurlönd, þátt í ráðstefnunni.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki og þá aðila aðra, sem hyggja á starfsemi í
þróunarlöndum eða hafa áhuga á að taka þátt í hinum margvíslegu verkefnum á vegum
Alþjóðabankans víða um heim.
Nánari upplýsingar veita Auðbjörg Halldórsdóttir og Benedikt Höskuldsson hjá VUR í síma
560 9900 eða með tölvupósti: audbjorg.halldorsdottir@utn.stjr.is. Þátttaka tilkynnist vinsamlega
sem fyrst íframangreindan síma eða tölvupóst. Þátttaka er ókeypis.
VUR • Rauðarárstíg 25 • 150 Reykjavlk • Sími 560 9930 • Bréfsimi 562 4878 • vur@utn.stjr.is • www.utn.stjr.is/vur
Bristish Airways í sam-
starfí með tíu flugfélögum
Stefnt að
stofnun
eins stórs
ferðavefs
fyrir
Evrópu
London, AFP
BRESKA flugfélagið British Airways
hefur tilkynnt að það muni hefja sam-
vinnu við tíu önnur flugfélög í Evrópu
um stofnun fyrstu Intemet-ferða-
þjónustunnar í Evrópu sem mörg
flugfélag standa að. Þetta er gert í því
skyni að nýta sér þá miklu uppsveiflu
sem hefur verið í bókunum á ferðum á
Netinu. Flugfélögin sem ætla að
vinna að Netferðaþjónustunni með
Britsh Airways eru Air France, Luft-
hansa, Alitalia, KLM, Iberia, SAS,
Aer Lingus, Austrian Airlines Group,
British Midland og Finnair.
Alhliða þjónusta á netinu
í fréttatilkynningu frá British
Airways segir að netferðaskrifstofan
verði einstök í sinni röð í Evrópu, þar
bjóðist neytendum ferðir til og frá og
innan gervallrar Evrópu við mjög
hagstæðu verði auk þess sem þeir
muni geta pantað hótelrými, bíla-
leigubfla, tryggingar og aðra ferða-
þjónustu á hinum nýja ferðavef. Talið
er líklegt að ferðavefurinn, sem enn
hefur ekki hlotið nafn, muni ná
sterkri markaðsstöðu á Netferða-
markaðinum í Evrópu. British
Airways hyggst verja um 100 milljón-
um punda eða tæplega 11,5 milljörð-
um íslenskra króna á næstu tveimur
árum í uppbyggingu og þróun á sölu
ferða á netinu.
Rod Eddington, framkvæmda-
stjóri British Airways, segir að ferða-
veíúrinn muni gerbylta ferðamögu-
leikum Evrópubúa, þeir muni nú
öðlast að aðgang að alþjóðlegum
ferðavef, hver á sínu tungumáli, þar
sem þeir geti skipulagt og keypt allar
ferðir á mjög hagstæðu verði, hvert
svo sem leið þeirra liggi. Sala á ferða-
þjónustu er sú grein sem veltir mestu
á Netinu eða alls átta milljörðum dala
í fyrra og í spám er gert ráð fyrir að
veltan verði orðin hátt í þrjátíu millj-
arða dala árið 2003.
------------------
Hagnadur
SBK hf. 13
milljónir króna
• Fólksflutningafyrirtækið S.B.K. hf.
skilaöi 13 milljóna króna hagnaði á
síöasta ári. Er þetta umtalsvert betri
afkoma af rekstri fyrirtækisins, en
það var á árunum 1997 og 1998 rek-
ið viö núlliö.
f fréttatilkynningu segir að um-
skipti í rekstri S.B.K. megi þakka
endurskipulagningu í rekstrinum og
góðum starfsmönnum.
S.B.K. hf var stofnaö áriö 1930 og
er því elsta rútufyrirtæki í landinu.
Lengst af hefur það verið í eigu
Keflavíkurbæjar en var breytt í hluta-
félagum áramótin 1996-1997. Eign-
arhaldið á fyrirtækinu er þannig í dag
að Reykjanesbær á 60%, Kynnisferð-
ir 34,5% og sveitarfélögin á Suður-
nesjum, ásamt nokkrum einstakling-
um ogfýrirtækjum eiga 5,5%. Hjá
S.B.K. starfa aöjafnaði 17 fast-
ráönirstarfsmenn ogu.þ.b. 25yfir
sumartímann.
Fyrirtækið er með rekstur áætlun-
arbíla frá Reykjanesbæ til Reykjavík-
urásamttil allra byggðarlaga á Suó-
urnesjum. Þá annastfyrirtækið
strætisvagnaakstur í Reykjanesbæ,
akstur nemenda frá nágrannabyggö-
arlögum ásamt hópferðum um land
allt.
Endurnýjun bílaflotans stenduryfir
hjá S.B.K. Á þessu ári er fyrirtækið
búið aö fá 1 strætisvagn fyrir 22 far-
þega, 2 hópferöabíla fyrir 15 farþega
og 3 hópferöabíla fyrir 40 farþega.