Morgunblaðið - 30.12.1998, Síða 74
74 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Áramótagetraun Morgunblaðsins birtist í blaðinu
31. desember nk. og verður hún þrískipt;
barnagetraun, unglingagetraun og fullorðinsgetraun.
Veitt verða þrenn verðlaun fyrir hvern flokk.
*
ætluð öllum 5-12 ára
Vöruúttekt að eigin vali frá INTERSPORT
að andvirði 20.000 kr.
Vöruúttekt að eigin vali frá Skífunni
að andvirði 10.000 kr.
Bækur að eigin vali frá Máli og menningu
að andvirði 5.000 kr.
Unglingagetraun
ætluð öllum 13-17 ára
Vöruúttekt að eigin vali frá versluninni
Sautján að andvirði 20.000 kr.
*
Vöruúttekt að eigin vali frá Skífunni
að andvirði 10.000 kr.
Bækur að eigin vali frá Máli og menningu
að andvirði 5.000 kr.
Fullordinsgetraun
i
9
9
ætluð öllum 18 ára og eldri
Vöruúttekt að eigin vali frá ELKO
að andvirði 20.000 kr.
Bækur að eigin vali frá Máli og
menningu að andvirði 10.000 kr.
Vöruúttekt að eigin vali frá Skífunni
að andvirði 5.000 kr.
Auk þess fá allir vinningshafar tösku merkta Morgunblaðinu
Úrlausnir þurfa að berast Morgunblaðinu fyrir
kl. 16.00 mánudaginn 18. janúar 1999-
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Kristinn
Vönduð
barnaplata
TONLIST
Geisladiskur
FLIKK-FLAKK
Flikk-flakk. Sigríður Beinteinsdóttir
syngur barnalög. Lögin eru flest er-
lend eða eftir óþekkta höfunda. Text-
ar eru eftir Ómar Ragnarsson, Guð-
mund Daníelsson, Stefán Hilmarsson,
Þórhall Sigurðsson, Ásgeir Beinteins-
son og Örnu Sif Ásgeirsdóttur og
Friðrik Erlingsson. Gestasöngvari í
laginu „Varði“ er Diljá Mist. Upp-
tökustjómiGrétar Örvarsson og Máni
Svavarsson. Utsetningar em eftir
Grétar Örvarsson nema „í larí lei“ og
„Varði“ sem eru eftir Grétar og
Mána. Þeir piltarnir sáu einnig um
hljóðhlöndun og forritun. Til aðstoð-
ar vora:Kristján Grétarsson sem lék
á gítara en þeir Vilhjálmur Guðjóns-
son (í einu lagi) og Jón E. Hafsteins-
son (í tveimur) komu einnig við sögu.
Davíð Þór Jónsson lék á saxófóna,
Bjarni Arason á trompet í einu lagi.
Sigfús Óttarsson aðstoðaði við
trommuforritun. Sigríður söng bak-
raddir en um bakraddir barna sáu
þau Diljá Mist, Hermann, Láms,
Lena og Ásgeir Valur (föðurnöfn
vantar). SB gefur út, Skifan dreifir.
ÞAÐ er vandaverk að gera bama-
plötu. I gegnum tíðina hefur þroska
og dómgreind bama oft verið mis-
boðið á þeim vettvangi því margir
hafa freistast til að kasta til höndun-
um. Textar við barnalög þurfa að
vera skemmtilegir og aðgengilegir
og lögin grípandi. Böm em kröfu-
harðir en jafnframt sanngjamir og
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
þakklátir áheyrendur, athyglisgáfa
þeirra er hrein og óspjölluð af há-
vaða nútímans, sem allt fletur út að
endingu.
Textamir á þessari bamaplötu
Sigríðar Beinteinsdóttur standast
flestir hverjir fyllilega þær kröfur
sem gera ber. Ómar Ragnarsson
hefur í gegnum tíðina samið fjöldann
allan af slíkum textum og nú hefur
nýr höfundur, Stefán Hilmarsson,
bæst í hópinn. Textar hans em
prýðilegir, einfaldir og auðskiljan-
legir og lausir við rembing. „Ykjuvís-
ur“ Stefáns em til íyrirmyndar sem
og „Stafalagið" og þó einkum
„Talnalagið" eftir Ómar Ragnarsson.
Kunnugleg eldri lög á borð við „Aga-
dú“ (texti eftir Þórhall Sigurðsson)
og „Hókí Pókí“ (höf. ókunnur) ná
vísast alltaf til yngstu kynslóðarinn-
ar enda lögin bæði bráðskemmtileg.
Sigríði Beinteinsdóttur hefur tek-
ist vel upp við lagavalið. Platan hefst
á „I larí lei“ sem er grípandi mjög og
skemmtilega útsett með bakröddum
barna. „Pálína með prikið" vinnur á
við hlustun. Ung söngkona, Diljá
Mist (foðumafn vantar) syngur lagið
„Varði“ og gerir það með prýði, er
lagvís vel og efnileg. „Ævintýralest-
in“ er bráðgott lag, útsetningin
vönduð og texti Stefáns Hilmarsson-
ar prýðilegur. Hið sama er að segja
um „Ykjuvísur" en þar fellur textinn
mjög vel að laginu. „Talnalagið" er
fagmannlega útsett, þai' sem áhersl-
an er eins og vera ber öll lögð á texta
Ómars Ragnarssonar. ,Agadú“ er
hér í lítt breyttri útsetningu og hefði
ef til vill mátt vinna frekar í henni. I
„Stafalaginu" er baki-öddum bama
beitt af smekkvísi og fagmennsku og
„Hókí Pókí“ er hér í ágætii útsetn-
ingu. „Fyrstu sporin“ er ef til vill í
þyngra lagi fyiir yngstu hlustend-
urna en lagið syngur Sigríður sér-
lega vel. „Sofðu“ er hugþekkur texti
eftir Friðrik Erlingsson við þekkt
lag og gildir það sama um það og
lagið á undan að það er ef til vill í •
þyngra lagi en söngur Sigríðar er
sérlega vandaður.
Sigríður Beinteinsdóttir er reynd
söngkona og hefur fengist við flestar
tegundir dæguitónlistar. Söngur
hennar á þessar plötu er fagmann-
legur, öldungis laus við átök, smekk-
legur og vandaður. Raddsetningar
em sömuleiðis allar fagmannlegar
og smekklegar. A stundum freistast
menn til að ofnota bamaraddir á
slíkum plötum en Sigríður og aðstoð-
armenn hennar falla ekki í þá gryfju.
Hljóðfæraleikur er almennt held-
ur tilþrifalítill enda á annað að vera í
fyrirrúmi á slíkum plötum. A köflum
er hann úr hófi fram vélvæddur en
það kemur ekki svo mjög að sök.
Áhersla er lögð á að textamir skili
sér vel og hefur það tekist prýðilega.
Þetta er ágætlega skemmtileg plata
sem er unnin af fagmennsku og
skilningi á þörfum þeirra sem hún er
ætluð. Hún er hins vegar í styttra
lagi, um 33 mínútur.
Ásgeir Sverrisson