Morgunblaðið - 30.12.1998, Síða 72
72 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
sfílií ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ simi 551 1200
Sýnt á Stóra sOiði kt. 20.00:
BRÚÐUHEIMILI — Henrik Ibsen
3. sýn. sun. 3/1 uppselt — 4. sýn. fim. 7/1 örfá sæti laus — 5. sýn. sun. 10/1
nokkur sæti laus — 6. sýn. mið. 13/1 — 7. sýn. sun. 17/1 — 8 sýn. fös. 22/1
' — 9. sýn. sun. 24/1.
TVEIR TVÖFALDIR — Ray Cooney
9. sýn. í kvöld, mið., uppselt — 10. sýn. lau. 2/1 nokkursæti laus — 11. sýn.
lau. 9/1 nokkursæti laus — 12. sýn. fim. 14/1 — lau. 16/1 — lau. 23/1.
SOLVEIG — Ragnar Arnalds
Fös. 8/1 - fös. 15/1.
BRÓÐIR MINN LJÓNSHJARTA — Astrid Lindgren
Sun. 3/1 kl. 14 - sun. 10/1 kl. 14 - sun. 17/1 kl. 14.00.
Sýnt á Litla sOiði:
ABEL SNORKO BÝR EINN — Eric Emmanuel-Schmitt
í kvöld, mið., uppselt — lau. 2/1 — fös. 8/1 — lau. 9/1 — fim. 14/1 — lau.
16/1. Ath. ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst
Sýnt á Smiðaóerkstœði kl. 20.30:
MAÐUR í MISLITUM SOKKUM
í kvöld, mið., uppselt — lau. 2/1 uppselt — sun. 3/1 — fim. 7/1 — fös. 8/1 —
sun. 10/1 — fim. 14/1 — fös. 15/1 — lau. 16/1 — sun. 17/1.
Miðasalan verður lokuð á gamlársdag og nýársdag.
Opið aftur lau. 2. jan. kl. 13.00. Síml 551 1200.
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
1897 1997
BORGARLEIKHÚSIÐ
A SIÐUSTU STUNDU:
Siðustu klukkustund fyrir sýningu
eru miðar seldir á háffvirði.
Stóra svið:
eftir Sir J.M. Barrie
lau. 2/1, kl. 13.00, örfá sæti laus
sun. 3/1, kl. 13.00, nokkur sæti
laus
lau. 9/1, kl. 13.00, nokkur laus
sæti
sun. 10/1, kl. 13.00, örfá sæti
laus.
mniimi
Gamanleikrit í leikstjórn
Siguröar Sigurjónssonar
mið. 30/12 kl. 20 uppselt
fös. 15/1 kl. 20 og 23.30 uppselt
lau. 16/1 kl. 20 og 23.30 uppselt
mið. 20/1 kl. 20 uppselt :
Miðaverð kr. 1100 fyrir karla
kr. 1300 fyrir konur
sun. 10/1 kl. 14
sun 17/1 kl. 14
Ath sýningum lýkur í febrúar
Georgfélagar fá 30% afslátt
Stóra svið kl. 20.00:
MAVAHLÁTUR
eftir Kristínu Marju Baldursdóttur
í leikgerð Jóns J. Hjartarsonar
Lau. 9/1.
Stóra svið kl. 20.00
n í svttt
eftir Marc Camoletti.
60. sýning mið. 30/12, uppselt,
fös. 8/1, nokkur sæti laus.
MÖGULEIKHÚSIÐ
VIÐ HLEMM
sími 562 5060
Möguleikhúsið óskar
landsmönnum
gleðilegs nýs árs og
þakkar frábœrar
móttökur á árinu
sem er að líða
SNUÐRA
OG TUÐRA
koma aftur í janúar!
Miðasala alla daga frá kl 15-19, s. 551 1475
Gjafakort á allar sýningar
Leikhópurinn Á senunni
d;
inn
omm
ingi
Frumsýn. 3. jan kl. 20
uppselt
2. sýn. 7. jan kl. 20
uppseit
3. sýn. 8. jan kl. 20
4. sýn. 9. jan kl. 20
5. sýn. 14. jan kl. 20
uppselt
6. sýn. 17. jan kl. 20
uppselt
Leikrit eftir Felix Bergsson
í leikstjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur
KL. 20.30
sun 3/1 (1999) nokkur sæti laus
ÞJONN
í, SÍ(»«IMÍ
lau 2/1 1999, kl. 20
NýÁRSÓANSLEiKUR
Uppselt - Ósóttar pantanir í sölu!
Tilboð til leikhúsgesta
20% afsláttur at mat fyrir
leikhúsgestl í Iðnó
Borðapöntun í síma 582 8700
HAFNARFJARÐAR-
LEIKHÚSIÐ
Wsturjiafa II. Harnarfinli.
VIÐ FEÐGARNIR,
eftir Þorvald Þorsteinsson,
Aukasýning
8. janúar — allra síðasta sýning
VÍRUS—Tölvuskopleikur
9. janúar
Miðapantanir í síma 555 0553. Miðasalan cr
opin milli kl. 16-19 alla daya nenia sun.
FÓLK í FRÉTTUM
Síðhærðasti maður heims
Andinn vildi lokkana síða
EINS og tæpt var á í
blaðinu í gær er Lu Seng
La síðhærðasti maður
heims. Hann er 77 ára
Taílendingur sem tilheyr-
ir fjallaþjóðflokki í Norð-
ur-Taflandi. Nýlega var
hann tilnefndur sem síð-
hærðasti maður heims af
bandarisku samtökunum
Ripley, en hár Lu Seng
La er 3,87 metrar að
lengd. Ekki er að spyrja
að því að túristar hafa
flykkst til litla þorpsins
Mon-Ngor í íjöllum Norð-
ur-Taflands að skoða
hadd karlsins. En af
hverju skyldi Lu ekki
hafa skorið hár sitt?
Arlegur hárþvottur
„Þegar ég var 18 ára
varð ég leiður á axlasíðu
hári minu og klippti það,“
sagði Lu í samtali við
Reuters-fréttastofuna.
„En þá varð ég alvarlega
veikur og var við dauðans
dyr. Það kom í mig andi
látins manns sem vildi hafa
samastað í likama mínum, en
hann fór fram á að ég myndi
ekki skera hár mitt framar."
Eftir kröfum andans hefur Lu
farið allar götur síðan og frá
þeim tíma hefur hann verið
jurtalæknir samfélagsins í litla
þorpinu og segist fá uppskriftir
að lyijum frá andauum. Galdra-
Iæknar eru í miklum metum á
þessum slóðum og eru taldir
geta rekið illa anda úr fólki sem
er veikt. „Eg hef líknað þúsund-
um manna,“ segir Lu um leið og
hann dregur að sér reykinn úr
bambuspipunni sinni, en Lu er
háður ópiumi eins og margir
eldri íbúar þessa samfélags.
Lu er ekki sá eini í íjölskyld-
unni sem skartar síðu hári því
eldri bróðir hans, Yi Tao, 82ja
ára, hefur ekki klippt sig í 35 ár.
Yngsti bróðirinn, Yoh Tao, sem
er 67 ára, segist ekki þola sítt
hár. „Það er óþægilegt," segir
LU með hárið vafið um höfuðið eins
og myndarlega lopahúfu.
hann og bætir við að
skallatíska sé honum
meira að skapi.
Lu þvær hár sitt aðeins
einu sinni á ári og segir
að það sé erfitt að láta
hárið þorna svo hann vilji
ekki vera í stöðugum hár-
þvotti. En hann rúllar
hárinu upp og hefur það
eins og húfu á höfðinu.
Dágóð tekjulind
Lu var boðin góð
greiðsla fyrir að koma
fram í japönsku sjónvarpi
fyrir nokkrum árum og
sýna haddinn. Einnig
greiða túristar honum oft
ágætlega fyrir að fá að
taka af honum myndir.
Sonur Lu, Heu Saenglah,
sem er oddviti þorpsins,
segir að túristar greiði
oft föður sinum dágóða
fúlgu fyrir að leyfa
myndatöku sem komi sér
mjög vel og sé hin
ágætasta tekjulind, en
helsta tekjulind þorpsbúa
er sala á appelsínum. „Við í fjöll-
unum erum mjög ánægð þegar
láglendisfólkið heimsækir okk-
ur,“ segir hann. „I siðustu viku
hlaust okkur sá heiður að for-
sætisráðherrann Chuan Leekpai
og sonur hans heimsóttu okk-
ur,“ segir hann stoltur.
Lu segir að hann hefði aldrei
trúað því að síða hárið hans
myndi afla honum slíkra vin-
sælda og verða sú tekjulind sem
það er. Núna hafa ættingjar sem
búa í Bandaríkjunum boðið Lu
að koma í heimsókn, en sonur
hans vill ekki að hann fari. Lík-
lega er sonurinn hræddur um að
ópiumfíkn föðurins gæti orðið
honum Þrándur í Götu í ókunnu
landi. „Ég óttast að vandræði
gætu skapast vegna þess að ópí-
um er ólöglegt í Bandaríkjun-
um,“ segir sonurinn og heldur
fast við sinn keip að halda
gamla manninum á heimaslóð-
um.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
NOKKRIR af þeim tónlistarmönnum sem verða á
tónleikunum í kvöld í Háskólabíói.
Landslið
tónlistar-
manna og
skemmti-
krafta
I KVÖLD verður haldin áramóta-
veisla í Háskólabíói þar sem fjöldi
hljómlistarmanna og annarra
skemmtiki’afta kemur fram og eru
þetta stærstu tónleikar ársins. Allir
sem fram koma gefa vinnu sína,
bæði tónlistarfólk, rótarar, tækni-
menn og aðrir og rennur ágóðinn til
styrktar Félags krabbameinssjúkra
bama á Islandi. Einar Bárðarson,
skipuleggjandi tónleikanna, var
spurður um tilurð tónleikanna.
„Ég er að vinna í þessum tónleik-
um af hugsjón eins og allir aðrir
sem að þeim koma. En það sem
kveikti hugmyndina að því að
styrkja krabbameinssjúk börn eru
veikindi lítils frænda míns sem
veiktist fyrir tveimur árum. Þá
kynntist ég þessum vágesti og sá
hvaða áhrif þessi sjúkdómur hefur á
líf fjölskyldunnar. A þeim tíma var
ég ekki í neinni aðstöðu til að gera
neitt nema sýna samúð en núna get
ég lagt mitt af mörkum með hjálp
þessara frábæru listamanna og ég
er öllum sem standa að tónleikunum
afskaplega þakklátur."
Jóhannes í Bónus er kynnir
kvöldsins
F orsala á tónleikana hefur gengið
vel og strax fyrsta daginn seldust
390 miðar. Kynnir kvöldsins er
þekktur af öðrum vettvangi en tón-
leikahaldi, því hann er enginn annar
en Jóhannes Jónsson, verslunar-
maður í Bónus. „Hann verður í nýju
hlutverki í kvöld,“ segir Einar og
hlær og bætir við að eflaust muni
margir verða forvitnir að sjá Jó-
hannes á þessum nýja vettvangi.
Hljómsveitirnar sem fram koma í
kvöld eru Skítamórall, Sálin hans
Jóns míns, Helgi Björnsson, Land
og synir, Buttercup, Páll Oskar &
Casino auk skemmtikraftanna Rad-
íusbræðra, Tvíhöfða og Sveins
Waage. „Þetta eru stærstu tónleik-
arnir sem haldnir hafa verið hér-
lendis á þessu ári, því hvergi hefur
verið boðið upp á annað eins lands-
lið tónlistarfólks á einum stað og
saman verður komið í kvöld,“ segir
Einar. „Einnig er gaman að geta
þess að Sálin mun spila órafmagnað
í fyrsta skipti á ferlinum og ekki
víst að tækifæri gefíst á næstunni
að sjá meðlimi Sálarinnar endur-
taka það.“
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og
hægt er að kaupa miða í Háskóla-
bíói.