Morgunblaðið - 30.12.1998, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998 39
bormanna, hefui’ sjálfsagt haft um
þetta milligöngu. Hann er frönsku-
mælandi og feliur ágætlega í hóp
þennan, en vera má að hann hugsi
með sér stundum að skreppa í heim-
sókn til landa sinna á Vostok. En að
því yrði nú ekki auðhlaupið, því hér
er nokkuð langt á milli bæja. Þó höf-
um við fengið eina heimsókn; 10. des-
ember komu hér 10 manns á 7
geysiöflugum beltatækjum með alls
75 tonn af útbúnaði í eftirdragi. Þeir
höfðu farið 1.200 km leið á 2 vikum
frá frönsku strandstöðinni Dumont
D’Umlle og stóðu hér við einn dag.
Þótti okkur Norðurlandabúunum í
búðunum skemmtilegt að hitta fyrir í
þessum hópi ágætan Ástralíumann af
sænskum og skoskum ættum, Gor-
don Hellsten að nafni. Hann sagði fór
þeirra hafa gengið vel á allan hátt, en
að vísu hefði landslagið verið nokkuð
einhæft á þessari löngu leið.
Concordia-búðir eru í 3.230 m hæð
yfir sjávarmáli og meðalhiti ársins er
nálægt -t-50°C. En nú er hér komið
sumar og er því heldur hlýrra, 25-30
stiga frost á daginn en 35-45 stig á
nóttunni. Loftþiýstingur er um 650
Frá Suðurskautslandinu, Antarktíku. Myndin sýnir ástralskan leiðangur, sem lagði upp á suðurpólinn hinn 6. nóvember síðastliðinn frá Scott-stöð-
inni. Einn Ástralanna í hópnum er sonur Sir Edmunds Hillary, sem kleif Everest fyrstur manna ásamt Serpanum Tensing.
millibör og veðrabrigði nánast engin;
síðan um miðjan nóvember hafa verið
hér stöðugar stillur og sól skín í heiði
dag hvern. Snjókoman er á fonni
smágerðra ískristalla sem naumast
verður vart við og árleg ákoma nem-
ur aðeins um 5-10 cm snævar.
Hér á bungunni hafa stopult verið
sumarstöðvar sl. 40 ár, en ekki sést
tangur né tetur af þeim lengur. Arið
1996 var tekið til við að byggja upp
búðir þær, sem nú eru orðnar að dá-
litlu þorpi. Gámum hefur hér verið
raðað upp hlið við hlið og skilrúm
fjarlægð og þannig innréttaðar vist-
arverur, eldhús, matsalur og vinnu-
salir vísindamanna. Stór braggatjöld
hafa verið reist yfir borinn, verkstæði
og vélageymslur. Svefnskálar eru
einnig í braggatjöldum sem svo vel
eru upphituð að svefnpokar eru með
öllu óþarfir. Frá stórri rafstöð liggja
rafkaplar í hvert hús og tjald og má
segja að flest þægindi séu fyrir hendi.
I búðunum starfa nú um 35 manns og
má skipta þeim í þrjá flokka. Fyrst er
að telja iðnaðar-, véla- og verkmenn
margs konai', sem byggt hafa upp
búðimar og sjá um að halda þeim við
á allan hátt. Foringi þeiira er Italinn
Marco Stefanoni, sem jafnframt er
yfirmaður búðanna. Hann er vinsæll
maður og vel liðinn og leggur sig
fram um að leysa hvers manns vanda.
Þá eru bormennirnir; tæknimenn og
verkfræðingar sem axlað hafa þá
ábyrgð að bora hér meir en 3 km
langan ískjarna niður á botn jökuls-
ins. Slíkt er ekki áhlaupaverk, en for-
ingi bormanna, Frakkinn Laurent
Augustin, er vongóður um að þetta
takist á 3 árum. Hann er stillilegur
maður og lætur ekki mikið yfír sér,
en er hinn traustasti á allan hátt. For-
maður okkar vísindamanna er Dan-
inn Jörgen Peder Steffensen, sem
margreyndur er í svipuðum verkefn-
um á Grænlandsjökli. Hann er mála-
maður góður, vel mæltur á ensku,
þýsku og frönsku og hefur einnig lagt
dálitla stund á íslenska tungu. Kemur
málakunnáttan sér vel í þessum fjöl-
þjóðahópi. Jörgen er einnig orðamað-
ur mikill og heldur stöðugt uppi mikl-
um samræðum um allt milli himins og
jarðar. Vel hefur gengið að skipu-
leggja hér visindastarfið undii- hans
stjóm og má segja að hann sé vel til
þessarar forystu fallinn. Þegar þetta
er ritað, um miðjan desember, er góð-
ur skriður kominn á kjamaborun og
vísindastörf og verður nánar sagt af
því starfí í næsta bréfí.
Nú líður að jólum og sól fer hér
hækkandi á lofti, þótt hún lækki dag
frá degi hjá ykkur sem þessar línur
lesið heima á Fróni. Líklega er óhætt
að spá því að jólin verði hér hvít, en
þvi miður hefur hinn frábæri franski
kokkur okkar ekki hangikjöt í sínu
búri. En honum verður áreiðanlega
ekki skotaskuld úr þvi að elda góðar
máltíðir nú á næstunni. Undirritaður
sendir landsmönnum öllum bestu
jólakveðjur frá Suðurskautslandinu.
Höfundur er jöklafi-æðingur, sem
starfar á Suðurskautslandinu á veg-
um Alfred Wegener-stofnunarinnar
í Bremerhaven.
Þar sem meðalhiti árs-
ins er nálægft 4-50°C
FRÁ CONCORDIA BÚÐUM
Ekki þurfti lengi að sitja á rökstól-
um þegar hinni nýju kjarnaborun
var valinn staður á hásléttu Suður-
skautsjökulsins.
Bungukollurinn Dome C er tiltölu-
lega nálægur strandstöðvum Frakka
og Itala, sem í sameiningu hafa for-
ustu á hendi í verkefni þessu og er
því auðvelt um aðflutninga hingað.
Og það var vel við hæfi að breyta
nafni staðarins í Dome Concordia -
vísar sú nafngift til samlyndis sem
ríkt hefur varðandi staðarvalið og
verkefnið í heild. Og fleira er á döf-
inni en bomn ískjamans; verið er að
hefja hér byggingu allstórrar stöðv-
ar, sem mönnuð verður allan ársins
hring í framtíðinni. Er stefnt að því
að stunda hér margvíslegar rann-
sóknir á jöklinum og andrúmsloftinu
yfir honum, auk jarðeðlisfræðilegrar
könnunar og stjarnfræðilegra athug-
ana.
Eins og kunnugt er hefui- Suður-
skautslandið verið friðað fyrir náma-
greftri og hvers kyns skipulagðri nýt-
ingu. Stórþjóðimar hafa því lagt hér
metnað sinn í vísindarannsóknir og
hafa allar af nokkra að státa. Bretar
minnast fomra frægðarferða, sem að
nokkm voru nefndar í síðasta pistli
og hafa haldið uppi öflugri starfsemi
á strandstöðvum þeim, sem kenndar
em við vísindamennina Faraday og
Halley - þar uppgötvaðist hin árlega
þynning ósonlagsins sem mjög hefur
verið fjallað um á undanfómum ár-
um. Frakkai- byggja á mikilli reynslu,
sem rekja má til fjölda leiðangra und-
ir stjóm Pauls Emils Victor á ámnum
eftii- stn'ð, bæði hér, á Grænlandsjökli
og víðar. Var fransk-íslenski Vatna-
jökulsleiðangurinn árið 1950 einn
þáttur í því umfangsmikla starfi.
Einnig er rétt að minnast hér hins
merka vísindamanns Jean-Baptiste
Charcot, sem sigldi skipinu Pourquoi
Pas? meðfram vesturströnd Antark-
tíku-skagans árið 1909 og gerði þar
merkar rannsóknir. Sama skip fórst í
ofsaroki undan Mýram árið 1936 og
lét Charcot þar lífið ásamt 44 skip-
verjum sínum.
Um starf Þjóðverja hefur áður ver-
ið getið að nokkm; stolt þeirra er ís-
brjóturinn Polarstern, eitt fullkomn-
asta rannsóknaskip veraldai-, sem
stöðugt er í fömm milli heimskauta.
Víða hefur því verið siglt hér með-
fram ströndum og nokkrum sinnum á
Norðurpólinn að auki. Japanar minn-
ast Nobu Shiraze, sem fáum Vestur-
landabúum er kunnugur; hann gerði
tilraun til að ná Suðurpólnum um
svipað leyti og Amundsen og Scott,
Einnig er rétt að minnast hér hins merka vísinda-
manns Jean-Baptiste Charcot, sem sigldi skipinu
Pourquoi Pas? meðfram vesturströnd Antarktíku-
skagans árið 1909, segir Þorsteinn Þorsteinsson í
íréttapistli sínum frá Suðurskautsjöklinum, og
gerði þar merkar rannsóknir. Sama skip fórst í
ofsaroki undan Mýrum árið 1936 og lét Charcot
þar lífið ásamt 44 skipverjum sínum.
en hafði ekki erindi sem
erfiði. Nú reka Japanir
stöðina Syowa og hafa
verið við boranir á
bungu þeirri, er þeir
nefna Dome Fuji. Og
ekki vilja Kínveijar
lengur láta sitt eftir
liggja, hafa sett á stofn
stöðvar er nefnast
Zongshan og Mikli Múr
og tilkynntu nýlega
áform um djúpbomn á
bungunni Dome Argus, í
4.000 m hæð yfir sjávar-
máli.
Bandaríkjamenn hafa
hér mjög mikil umsvif.
Þeir ráða einir yfu’
Herkules-flugvélum með skíðabúnaði
og eiga því auðvelt með alla flutninga
á jökulinn. Frá stöð þeirra á Suður-
pólnum er það einna helst að frétta,
að hópur eðlisfræðinga tók nýlega
upp á því að leita þar lausnar á fræði-
legu vandamáli varðandi kjamahvörf
i sólinni - svo undarlega sem það
kann að hljóma. Bræddar voru holur
niður á 2 km dýpi í jöklinum og komið
þar fyrii’ mælitækjum, sem ætlað er
að greina ummerki um svokallaðar
fiseindii’, sem myndast við kjarna-
sammna í iðmm sólar og geisast fi’á
henni út í geim. Ekki er þeim er þetta
ritar kunnugt um árangur þessai’ar
merku tilraunar. Það vekur annai’s
furðu að þetta öfluga stórveldi, sem
hér eyðir mun meira fé til rannsókna
en nokkur önnur þjóð, skuli ekki hafa
ráðist í boran djúpkjarna á Suður-
skautslandinu sl. 30 ár, því rannsókn
slíkra kjarna er nú mjög ofarlega á
baugi í visindaheiminum. Ræður þar
líklega mestu mikil samkeppni um
rannsóknafé; fer þá stundum þannig
að nokkrir rannsóknahópar bítast af
mikilli hörku um fé til svipaðra verk-
efna með þeim afleiðingum að enginn
fær neitt. Hefur víst fátt breyst í
Washington síðan kynnt vom áform
um fyrsta bandaríska
Suðurskautsleiðangur-
inn árið 1836 - urðu þá
svo miklar deilur uppi
að við lá að allt færi út
um þúfur. En þó sigldu
þrjú skip af stað 1838
undir stjóm Charles
Wilkes og er sá leiðang-
ur nú talinn allmerkur;
m.a. vai’ hluti strand-
lengju Austur-Antark-
tíku kortlagður. Wilkes
notaði fyrstur manna
heitið „Antarctic
Continent" á ensku
máli.
Af Rússum er það að
segja að engir standa
þeim hér á sporði í seiglu og úthaldi.
Það er býsna viðeigandi að þessi
þrautseiga þjóð, sem vel þekkh-
frosthörkur og erfiðleika margs kon-
ar, skuli nú um áratugi hafa rekið
rannsóknastöð á kaldasta stað jarð-
arinnar, Vostok. Þai’ hafa þeir borað
frægan ískjai-na, 3.600 m langan,
sem nær langleiðina niður á botn og
segir að nokkru sögu veðurfars á
jörðinni sl. 400.000 ár. Og einn
merkasti þáttur í rannsóknasögu
Suðurskautslandsins er rússneskur
- Thaddeus Bellingshausen stjórnaði
siglingu skipanna Vostok og Mfrnyi
umhvei’fis álfuna árin 1819-1821 og
hefur að líkindum verið fyi-sti mað-
urinn er leit land þetta augum.
Um alla jörð má greina ummerki
um endalok kalda stríðsins og Suður-
skautslandið er þai’ engin undan-
tekning. Vostok stöðin, sem opnuð
var á ný í fyrra, er nú að talsverðu
leyti rekin fyrir bandarískt fé og
smám saman eykst hér samvinna
Rússa og Vesturlandamanna. Og hér
í búðum okkar stendur olíutankur
nokkur með áletmðum einkennis-
stöfum Sovetn'kjanna sálugu; CCCP,
eins og ekkert sé sjálfsagðara. Rúss-
inn Krassiliev, sem starfar hér i hópi
Þorsteinn
Þorsteinsson
Meðlagsgreiðendur
Meðlagsgreiðendur, vinsamlegast
gerið skil hið fyrsta og
forðist vexti og kostnað.
Skrifstofan verður opin 31. desember
kl. 8.30—12.00.
Innheimtustofnun sveitarfélaga,
Lágmúla 9, 108 Reykjavík,
sími 568 6099, fax 568 6299.
MFA
SÍMI 533 1818 • FAX 533 1819
Tveggja vikna skóli
fyrir trúnaðarmenn stéttarfélaga
MENNTUN FYRIR ALLA