Morgunblaðið - 30.12.1998, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998 29
____________LISTIR_________
Vestfirsk gamansemi
MFA
SÍMI 533 1818 • FAX 533 1819
Tveggja vikna skóli
BÆKUR
Gamanmál
HUNDRAÐ OG EIN NÝ
VESTFIRSK ÞJÓÐSAGA
Eftir Gísla Hjartarson.
Utg.: Vestfirska forlagið,
Hrafnseyri, 1998, 112 bls.
VESTFIRÐINGA þekki ég ekki
marga, og því var mér ekki kunnugt
um, að þeir væru miklir húmoristar.
Og þó! Mig grunaði það. Þessi litla
bók, sem hefur á milli spjalda hund-
rað og eina gamansögu, færir heim
sanninn um að Vestfirðingar hleypa
ógjarnan fram hjá sér því, sem
skringilegt er og hafa sjálfsagt
gaman af að færa það í snjallt sögu-
form með viðeigandi tilþrifum í stíl,
eins og góðra húmorista er siður.
Isfirðingurinn Gísli Hjartarson er
bersýnilega næmur á þess háttar
gamanmál og hefur safnað þeim
saman um langt skeið. Margt af því
hefur áður birst í vestfirsku blöðun-
um, Vestfirska fréttablaðinu og
________Bækur_____________
Skáldsögur
Líffærameistarinn
Eftir Federico Andahazi. I þýðingu
Kolbrúnar Sveinsdóttur. 222 bls. Mál
og menning 1998.
„FERLI kynferðislegrar örvunar
hjá konunni hefst ekki í skynfærun-
um er hún sér karlmann heldur
sprettur það upp af sjátfu sér og á
náttúrlegan hátt innvortis í líkama
konunnar, nánai- tiltekið í líffærinu
sem ég hef þegar líst fyrir yður.“
Þannig mælir líffærameistarinn
Mattheus Kólumbus er hann flytur
dómurum rannsóknarréttar í Padúu
vörn sína, ákærður fyrir að ganga
erinda djöfulsins vegna uppgötvunar
sinnar á nýju líffæri kvenlíkamans,
Amor Veneris. Þótt hann fullyrði að
rannsóknir sínar hafi leitt í ljós að
líffærið „ríki yfir vilja, ást og unaði
kvenna,“ þá sé hann ekki handbendi
djöfulsins og hafi ekki haft djöfulleg
markmið að leiðarljósi með rann-
sóknum sínum og uppgötvun. Skilj-
anlega er kirkjunnar mönnum
brugðið því þeii- sjá fyrir sér hvert
uppnám yrði meðal kvenpeningsins
ef þeim yrði skýrt frá tilgangi og
staðsetningu hins munúðarfulla líf-
færis, Amor Veneris. Hvert hið dul-
arfulla líffæri er, skal lesendum látið
eftir að uppgötva sjálfum af lestri
bókarinnar enda ástæðulaust að hafa
af þeim nautnina.
Líffærameistarinn er ástarsaga,
sagan eilífa af manninum sem leitar
aðferðarinnar til að vekja ást kon-
unnar sem hann elskar. Matteus
Kólumbus verður ástfanginn af
Monu Sofiu, fremstu vændiskonu
Feneyja, og uppgötvun hans á Amor
Veneris er ekki byggð á hreinni þrá
eftir vísindalegri þekkingu heldur
verður líffærið fyrir honum í leit
hans að aðferð til að vekja ástarhug
Monu Sofiu á sér. Leitin útheimtir
að sjálfsögðu talsverðar tilraunir og
þær verða til þess að nokkur fjöldi
annarra kvenna fellir til hans ástar-
hug og þannig komast kirkjunnar
menn á snoðir um að ekki muni allt
með felldu um vísindastörf Matteus-
ar Kólumbusar.
Sagan er samin af kunnáttu og að-
alpersónur og atburðarás sett í sann-
færandi samhengi við sögusviðið
sem er Ítalía endurreisnartímans.
Þetta er söguleg skáldsaga sem beit-
ir frásagnaraðferð þeirra tíma, lærð-
ur stíll ræðnanna við réttarhöldin er
jafnkunnáttusamlega saminn og
hann er þyngslalegur aflestrar. Aðr-
ir kaflar sögunnar sem ekki eru jafn-
þjakaðir af sögulega kón-éttum stíl
eru bráðvel skrifaðir og njóta sín vel
í þýðingu, þó ekki verði hér lagt mat
á nákvæmni þýðingarinnar, vegna
ókunnugleika við frumtextann. Otti
Rómarklerka við afleiðingar kyn-
ferðislegrar frelsunar kvenna og tví-
skinningur í siðferðishugsun þar að
lútandi eru eitt viðfangsefna sögunn-
ar og eru gerð allnákvæm skil.
Vestra, við allmiklar
vinsældir. Gísli segir,
að aldrei, utan einu
sinni, hafi orðið leiðindi
vegna birtingar þess-
ara sagna. Hann tekur
fram, að ekki megi
„taka þessum sögum
sem sagnfræði á
nokkurn hátt. Sumar
eru sannar, aðrar logn-
ar, en flestar hafa þær
gengið manna á milli
hér vestra Engin
dulnefni eru hér við-
höfð, heldur eru per-
sónur sagnanna ávallt
nefndar réttum nöfn-
um.
Það er nú skemmst
frá að segja, að fiestar eru þessar
sögur góðar, sumar bráðfyndnar,
svo að maður skellir upp úr við lest-
minn. Sjaldnast eru sögumar svo
bundnar við stað eða tíma, að maður
geti ekki haft gaman af þeim, án
þess að þekkja til aðstæðna eða per-
sóna. Þó bregður því að sjálfsögðu
fyrir. Og ég býst raunar
við, að margar þeirra
veki meiri kátínu hjá
heimamönnum og þá
rifjist líka sitthvað upp,
sem hér er ekki birt.
Þetta litla kver er
snyrtilega útgefið.
Fremst í bók kynnir út-
gefandinn safnandann
með nokkrum orðum.
Þá kemur inngangur
safnandans, þar sem
hann segir frá tildrög-
um söfnunar sinnar og
viðbrögðum við fyrri
birtingu sagnanna. Síð-
an eru sögumar sjálfar,
tölumerktar og vel upp
settar. Og að lokum er
nafnaskrá, sem líklega er fremur
óvenjulegt um bók af þessu tagi, en
engu að síður vel til fundið.
Þetta er bók, sem gaman er að
grípa til í svartasta skammdeginu.
Hún kemur manni í létt og gott skap.
Sigurjón Björnsson
Hjartarson
Vilji,
ást og
unaður
Hvernig kvenþjóðin, í líki hinnar sið-
prúðu Inezar Torremolinos, bregst
við kemur róti á söguna og snýr túlk-
un klerkanna við; í stað þess að
Amor Veneris fylgi frelsun er ekki
síður hætt við að líffærinu dularfulla
fylgi meiri ánauð en nokkru sinni
fyrr.
Lýsingar á líkamlegum athöfnum
eru afskaplega myndrænar, nokkuð
berorðar, stundum ógeðfelldar en
tæpast erótískar þrátt fyrir söguefn-
ið. Upp er dregin sterk og lifandi
mynd af kynferðislegri spillingu
meðal aðalsins og kii'kjunnar manna;
lengst er gengið þegar Mona Sofia á
barnsaldri er sett til að þjónusta af-
gamlan kardínála með skelfilegum
afleiðingum. Hvort höfundur setur
fram siðferðisboðskap á þennan hátt
með öfugum fonnerkjum í þeim til-
gangi að ganga fram af lesanda er
óvíst, hugsanlega sér hann sig bara í
því hlutverki að lýsa atburðum, segja
sögu; okkar er að leggja siðferðilegt
mat á efnið og ákvarða hvar við
stöndum gagnvart svo hlutlægri frá-
sögn.
Hávar Sigurjónsson
fyrir trúnaðarmenn stéttarfélaga
MENNTUN FYRIR ALLA
BRAND-
WUNDENSPRAY
SPBAY
Wn-BRULURES
* Kælifroðan kælir brennda svæðið og
heidur því í ákjósanlegu hitastigi í
allt að 20 mínútur
Notkun:
* Beinið brúsanum að brennda
svæðinu
* Haldið brúsanum í io sentimetra
fjarlægð og spreyið þar til froðan er
um 1/2 sentimeter á þykkt
* Endurtakið eftir þörfum
Varúð:
* Aðeins á minni brunasár
(i. stigs bruna)
* Forðist snertingu við augu, slímhúð
eða opin sár
allir ættu að
KYNNA SÉR MEÐ-
FERÐ BRUNASÁRA!
Pj
Nícorette innsogslyf samanstenaur af mtinnstykki sem i er sett rúr sem inniheldur nikotin. Nicorette innsogslyf er ætla> til a- au'velda fólki a hætta a-
reykja. Algengur skammtur er a.m.k. 6 rör á dag en tló ekki fleirl en 12 á dag í a.in.k. 3 mánun og venjulega ekki lengur en 6 mánu'i. Nicoretfe innsogsl’
getur valdr aukaverkunum eins og stingandi/svi'andi tilfinning í höt*i. Höfu-verkur. Brjóstsvi'i og óglé'i Hósti og erting i munni og hálsi. Aukin flvaglát.
Vi' samtimis inntöku á gestagenöstrógen lyfjum getur. eins og vi* reykingar. veri' aukin hætta á bló tappa Nikótin getur valdi> brá-urn eitrunum hjá bórnum
og er efni- flví alls ekki ætla' bómum yngrt en 15 ára nema i samrá i vi- lækm. Gæta skal varu'ar hja fleim sem hala hjarta- og æ'asjukrJóma. tiunga-ar
konur og konur me- bam á brjósti ættu ekki a' nota lyfi> nema í samrá'i vi lækni.
Lesi' vándlega lei'beinlngar sem fylgja hverri pakkningu lyfsins.
IMarka'Sleyfishafi: Pharmacia & Upjohn AS. Danmörk. Innflytjandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2. Gar abær.