Morgunblaðið - 14.06.1998, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
Grease var kvikmyndaður árið
1978. Söngleikurinn var óður til
sjötta áratugarins og árdaga rokks-
ins. Gervöll heimsbyggðin fylktist
að til að sjá þessa mynd og æsku-
menn skörtuðu „John Travolta
klippingu".
Fæstir leikstjórar nú á dögum
hafa mikla reynslu af því að festa
söng og dans á fílmu. Akillesarhæll
söngvamyndinna er sá að þær falla
illa að þeim tæknibreytingum sem
orðið hafa á sviði kvikmynda undan-
farna áratugi. Kvikmyndin hefur
breyst í raunsæisform. Menn nota
nú ljósnæmari filmu og geta nýtt
sér dagsljósið mun betur en áður.
Pessi breyting hefur litað mjög leik
og leikmyndagerð. Hver bíómynd
er ekki lengur heimur sem smíða
þarf frá grunni í kvikmyndaveri.
Söngvamyndir þrifust best við þess-
ar aðstæður. Eftir því sem kvik-
myndir líkjast hversdagsleikanum
meir og meir verður erfiðara að láta
sögupersónur syngja og dansa á
torgum úti við minnsta tilefni.
Allir segja ég elska þig
Söngvamyndir eru lífseigt list-
form. Leikstjórinn Woody Allen
reyndi á dögunum að glæða þetta
listform að nýju í myndinni Allir
segja ég elska þig (Everyone Says I
Love You). Myndin var lítið annað
en daufur endurómur af gömlu
myndunum. Menn hafa greinilega
glutrað niður því handbragði sem
setti svip á frægustu söngvamynd-
irnar.
Ef til vill er þess ekki langt að
bíða að söngvamyndir ná vinsæld-
um á nýjan leik. Tónlistarmynd-
bönd eru eins konar arftaki þessara
mynda. Vinsælasta íslenska kvik-
myndin er söngva- og gamanmynd-
in Með allt á hreinu. Þess ber að
geta að afkastamestu kvikmynda-
gerðarmenn í heimi eru Indverjar.
Þar lifir söngvamyndin góðu lífi svo
að ekki er öll nótt úti enn.
SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1998 47
Morgunverð arfundur
Þriðjudaginn 16. júní 1998, kl. 8:00 - 9:30 í Sunnusal Hótel Sögu
ER GOÐÆRIÐ FARIÐ
ÚR BÖNDUNUM?
• Vinnur hagstjórnin gegn þenslunni?
• Hvað getur góðærið varað lengi?
• Þolir vinnumarkaðurinn uppganginn?
• Er góðærið bundið við höfuðborgarsvæðið?
Á morgunveröarfundinum veröur leitað svara við ýmsum áleitnum spumingum
um uppganginn í efnahagslífinu sem skipta miklu máli fyrir atvinnulífiö.
FRAMSÖGUMAÐUR: ______________________________________________________
Geir H. Haarde, íjármálaráðherra
V
ÁLIT: Víglundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri BM Vallá
Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri íslandsbanka
Jón Sigurösson, framkvæmdastjóri Vinnumálasambandsins
Fundargjald (morgunverður innifalinn) kr. 1.500,-
Fundurinn er opinn en æskilegt er
aö tilkynna þátttöku íyrirftam í síma 510 7100
VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS
www.mbl.is
ANNEUECHl
990 PUNKTA
FBR9U í BÍÓ
Sýndkl
9