Morgunblaðið - 14.06.1998, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ
^40 SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1998
Dýraglens
AUÐVITAO, ÞAE5 er betra
EN I*fi/CR f>BGAR HAWN VlLDl
eXKI STDPF3A
þUSEGIRþeTW BNSCöEGSE
ONI Körruíe/NN SBH GÆTI >4AR\
OKTAD VIÐ PRE/WSURNAfS A
T5Í1 M nAA Þ>1K1í M4
Tommi og Jenni
Ljóska
Ég gef þér snemma því að ég er að fara Ég er að vona að ég fái að ... og vissi ekki að þú kæmir með ...
á dansæfíngu í kvöld ... dansa við litlu rauðhærðu
stelpuna og ...
*
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Pólitíkin, kvótinn
og þjóðin
Frá Einari Sveini Erlingssyni:
ÞAÐ VAR í fjölmiðlum fyrir
skömmu að þýskur mektarmaður
lofaði íslenska gestrisni og hafði
uppi þau orð að íslendingar væru
heiðarleg og gestrisin þjóð og óhætt
væri að fjárfesta í íslenskum fyrir-
tækjum. Þessum manni var ekki
boðið upp á Bæjarins bestu, að þeim
ólöstuðum, heldur í vélsleðaferð á
jökul. Sagðist hann ekki gleyma
þeirri ferð. Mönnum hefur líka ver-
ið boðið í íslenska fallega laxveiðiá í
vináttuskyni, oft á undan viðskipt-
um, svona til að sýna velvilja og
gestrisni áður en sest er að samn-
ingaborði, og er alþekkt.
Núna eru uppi raddir um að þetta
sé hin mesta ósvinna og gestgjafinn
settur í gapastokk og sviptur
ærunni fyrir slíkt afbrot.
Islensk gestrisni hefur ekkert
breyst, heldur er verið að vega að
ákveðnum manni sem starfs síns
vegna þurfti að taka á móti gestum
og koma fram sem andlit þjóðarinn-
ar, oft þegar mikið var í húfi að vel
tækist til.
Maður að nafni Sverrir Har-
mannsson gekk ekki mótþróalaust í
gapastokkinn og fannst réttilega að
aðrir ættu þangað brýnna erindi, og
mun nú vera farinn að taka til hend-
inni að sinna mikilvægara hlutverki.
Eg óska honum góðs gengis í til-
tektinni í ruslakistu kvótakerfisins
og fleiri ræstingastörfum á sama
vettvangi.
Eg las grein eftir Hannes Hólm-
stein Gissurarson þar sem hann
skírir væntanlegan landsmálaflokk
Sverris - flokk sem margir binda
miklar vonir við - Blóðvaka, hvorki
meira né minna. Hefur hann hug-
boð um að þjóðareignin fáist
kannski látin af hendi án blóðsút-
hellinga? Hann mætti gjaman gera
nánari grein fyrir því. Reyndar held
ég að ráðlegra mundi fyrir hann að
velja sér annan gafl að standa und-
ir; sá gamli gæti hrunið ofan á hann
við næstu kosningar.
Það er ekki ónýtt fyrir sægreif-
ana að eiga slíka hauka í horni sem
þá sem nú stjórna landinu, og kom
rausnin og gjafmildin skýrt í Ijós nú
um sumarmálin er greifarnir fengu
á silfurfati verðmæti sem svarar að
hvert mannsbarn á landinu hefði
rétt þeim verðmæti upp á 90 þús-
und krónur. Rausnarleg sumargjöf
það. Sá sem þetta ritar sótti til sjáv-
arútvegsráðuneytisins um leyfi til
að stunda trillubátaútgerð en var
synjað, þótt hann hefði haft sjó-
mennsku að aðalstarfi að mestu frá
14 ára aldri og siglt öll stríðsárin.
Það þyifti því engum að koma á
óvart þótt margir sjómenn ungir og
gamlir beri ekki hlýjan hug til nú-
verandi stjómvalda. Mitt fag er sjó-
mennska, en mér er meinað að
stunda hana sem sjálfstæður ein-
staklingur. Mætti þá ekki eins
hugsa sér að þeir sem máttinn hafa
og valdið settu til að mynda kvóta á
húsasmíðar og afhentu hann stómm
byggingarfélögum til eignar og af-
nota og óbreyttir iðnaðarmenn
neyddust til að kaupa af þeim kvóta
ef þeir vildu starfa sjálfstætt, en
vinna sem óbreyttir launþegar hjá
þeim ella?
EINAR SVEINN ERLINGSSON,
Heiðarbrún 74, Hveragerði.
Yfírlýsing
Frá Haraldi Guðbergssyni:
í TILEFNI af frétt í DV miðviku-
daginn 10. júní sl. vil ég taka fram
eftirfarandi:
Eftir langt stríð við Hússjóð Ör-
yrkjabandalagsins var gerð dóms-
sátt í Héraðsdómi þess efnis að ég
skyldi yfirgefa íbúð mína 12. maí sl.
Þar sem ég var félaus og hafði ekki
í nein hús að venda kom málið til
kasta sýslumanns. Félagsmála-
stofnun hafði samþykkt fyrir mörg-
um mánuðum að hjálpa mér um
íbúð, en ekkert gerðist í málinu.
Sýslumaður varð að taka til greina
kröfu Hússjóðs Öi-yrkjabandalags-
ins um útburð og skyldi hann fara
fram föstudaginn 12. þ.m. Þegar
svona var komið sá ég enga út-
gönguleið og vissi ekkert hvað um
mig mundi verða. Ég er orðinn 68
ára gamall og búinn að vera öryrki
frá barnsaldri og ófær um að bjarga
mér sjálfur vegna aidurs og veik-
inda. Þá leitaði ég til Leigjendasam-
takanna sem brugðust strax við og
komu þau málinu inn á fund
Húmanistaflokksins þá um kvöldið.
Þaðan voru send skeyti til fjölmiðla
og fleiri aðila í þjóðfélaginu. Strax
daginn eftir komu DV og Stöð 2 til
skjalanna, þá brá svo við að varafor-
maður Öryrkjabandalagsins hringdi
til mín og kvaðst enga hugmynd
hafa haft um þetta mál og það hefði
komið yfir hann eins og þruma úr
heiðskíru lofti. Sagði hann að málið
hefði aldrei farið í þennan farveg
hefðu hann og aðrir stjórnarmenn
Öryrkjabandalagsins vitað af þessu.
Bauðst hann strax til að hafa sam-
band við sýslumann og biðja hann
um að stöðva málið. Gerði hann það
og frestaði sýslumaður útburðinum
um óákveðinn tíma og þannig
standa málin nú.
Ég vil þakka öllum þeim sem
studdu mig í þessu máli. Vil ég sér-
staklega nefna Leigjendasamtökin,
Húmanistaflokkinn, blaðamann DV
og Stöð 2, og einnig héraðsdómara
og fultrúa sýslumanns fyrir góða
framkomu í minn garð. Ég fann að
þeir vildu allt fyrir mig gera sem í
þeirra valdi stóð. Ég ráðlegg ein-
dregið öllum sem lenda i svipuðum
málum að vera óhræddir að leita
réttar síns og snúa sér til þeirra að-
ila sem ég þegar hef nefnt. Við
stöndum ekki ein i baráttunni, en
við verðum að standa saman.
Virðingariyllst,
HARALDUR GUÐBERGSSON,
Grettisgötu 12, Rvík.
Allt efni sem birtist 1 Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.