Morgunblaðið - 14.06.1998, Qupperneq 41
-
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1998 4^
i
:
I
1
1
<
j
4
I
j
4
4
<1
4
4
j
4
4
j
I
4
:
=1
4
j
1
I
4
1
4
BRÉF TIL BLAÐSINS
Munum aldrei vega að
annarri kvennastétt
Frá Ástu Möller:
FÉLAG íslenskra læknaritara ger-
ir í Morgunblaðinu 10. júní athuga-
semdir vegna fréttar Morgun-
blaðsins sem birtist nýverið um
launakjör hjúkrunarfræðinga og
nokkurra annan-a stétta. Fréttin
byggðist á samantekt Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga á
samningum ýmissa starfshópa í
starfí hjá ríki og Reykjavíkurborg,
sem birtast mun í næsta tölublaði
Tímarits hjúkrunarfræðinga og
kemur þar margt athyglisvert í
Ijós. I samantektinni eru tekin
dæmi af samningum ýmissa há-
skólamanna sem margir eru með
sambærilega lengd menntunar og
hjúkrunarfræðingar s.s. verkfræð-
ingar, tæknifræðingar, náttúru-
fræðingar, arkitektar og lögfræð-
ingar. Þá eru tekin dæmi úr samn-
ingi aðlögunarnefndar Starfs-
mannafélags ríkisstofnana og
Heilsugæslunnar í Reykjavík, þar
sem lágmarkslaun heilsugæslurit-
ara 2, launafulltrúa og matráðs-
manns á Heilsuvemdarstöð m.v. 6
ára starfsreynslu eru tíunduð. I
samantektinni eru heilsugæslurit-
arar þeir einu sem telja má til
kvennastétta.
Hjúkrunarfræðingar eru
kvennastétt og hefur haldið uppi
harðri baráttu fyrir jafnrétti kynja
í launum. Félag íslenskra hjúkrun-
arfræðinga hefur margbent á það
misrétti sem konur eru beittar í
launamálum. Félagið fagnar því
þegar stéttarfélög ná viðundandi
samningum við vinnuveitendur
sína. Sérstaklega fagnar félagið
þegar kvennastétt, eins og lækna-
ritarar, ná kjarasamningum við
vinnuveitendur sína sem þeir eru
sáttir við. Félag íslenskra hjúkrun-
arfræðinga hefur aldrei og mun
aldrei vísvitandi vega að annarri
kvennastétt sér til framdráttar í
baráttu hjúkrunarfræðinga fyrir
bættum kjörum og jafnrétti kynj-
anna í launamálum. Hins vegar
áskilur félagið sér rétt til að skoða
og skilgreina þá samninga sem
gerðir hafa verið í nýju launakerfi,
enda byggir nýtt launakerfi á hug-
myndafræði um gagnsæi í launa-
myndun og opið upplýsingaflæði,
sem er sérstaldega mikilvægt með-
an verið er að ná jafnvægi í kerf-
inu.
Samanburður á launum ýmissa
starfsstétta hjá sama vinnuveit-
anda er oft athyglisverður. Þar
sem samningur Starfsmannafélags
ríkisstofnana er hér til umfjöllunar
er rétt að benda á eftirfarandi
dæmi: Læknaritari með nokkurra
ára starfsreynslu ákvað að fara í
nám í hjúkrunarfræði og útskrifast
í vor eftir fjögurra ára nám í há-
skóla. Hann er 35 ára. Hjúkrunar-
fræðingurinn hefur hug á að ráða
sig til starfa við Heilsugæsluna í
Reykjavík. Þar sem ekki hafa
náðst samningar í aðlögunarnefnd
Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga og Heilsugæslunnar í Reykja-
vík fær hann laun skv. eldri kjara-
samningi sem er kr. 93.034,-. Ef
hann hins vegar kysi að ráða sig í
sitt gamla starf sem heilsugæslu-
ritari (læknaritari), væru grunn-
laun hans að lágmarki 114.242, og
fái hann metnar 200 kennslustund-
ir til viðbótar t.d. í tölvunámi, eru
grunnlaun hans 124.916,-. Með
þessum samanburði eru hjúkrun-
arfræðingar ekki að vega að
læknariturum, þeir fagna árangri
þeirra í launamálum. Hins vegar
eru hjúkrunarfræðingar að benda
á það misræmi sem skapaðist í
eldra launakerfi og er að koma upp
á yfirborðið í nýju launakerfi.
Stjórnvöld geta ekki lofsungið gildi
menntunar í orði en síðan gjaldfellt
hana bókstaflega á borði.
ÁSTA MÖLLER
forroaður Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga
OROBLU
öllum OROBLU
sokkabuxum mánudag
og þriðjudag í Lyfju
Lágmúla og Setbergi.
Ráðgjafi verður í Lyfju
Setbergi mánudaginn
15. júníkl. 14.00-18.00
fyrir OROBLU og Anita
meðgönguundirföt
OROBLU
leggur línurnar
LYFJA
Lágmúla 5
Sfmi 533 2300
Staðarbergi 2-4
Hafnarfirði
s. 555 2306
www.mbl.is
* e^a/ór>
innanlands
á stéttarfélagsfargjaldi!
í sumar bjóðast einstök tilboð til félagsmanna í
stéttarfélögum. Tilboðin eru samkvæmt samningum
sem Ferðanefnd stéttarfélaganna hefur gert við
eftirfarandi aðila:
-Flugfélag íslands .
lægsta verð á'flugi sem völ er á !
-Hótel Esja, Hótel Loftleiðir, Fosshótelin,
Lykilhótelin og Hótel Edda um allt land .
herbergi fyrir tvo á verði fyrir einn
-Europcar/Bílaleiga Akureyrar .
einstakt verð á bílaleigubílum !
-Norræna
afsláttur í nokkrar brottfarir ferjunnar
I
I
-Langferðabifreiðar BSI
hálendishátíð fjölskyldunnar !
Stéttarfélagsverð í áætlunarflugi hjá
Flugfélagi íslands:
► Frá Reykjavík -4
Áfangastaður
Fullorðnir
verö m. skatti
Börn
verb m. skatti
Akureyri
Egilsstaðir
Hornafjörður
Húsavfk
ísafjörður
vestmannaeyjar
6.730
6.730
6.730
6.730
6.730
5.730
4.866
4.866
4.866
4.866
4.866
3.866
Einnig er veittur afsláttur á flugi frá Akureyri og frá Reykjavík um Akureyri.
Barnaafsláttur miðast við börn 2 -11 Sra. Fargjöldin skal greiða aö fullu viö bókun.
Breytingargjald er kr. 900 fyrir hverja bókun.
O Farmiðarnir eru seldir á öllum sölustöðum Flugfélags íslands og hjá umboðsmönnum
þess um allt land. Einnig er hægt að kaupa miða í gegnum síma með greiðslukorti. f*
O Lágmarksdvöl er þrjár nætur og hámarksdvöl er einn mánuður. Ferðina þarf að þóka
þremur sólarhringum fyrir brottför.
O Fargjaldið gildir fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra (þ.e. þá sem halda heimili saman).
Aðildarfélög: Alþýðusamband íslands, Bandalag háskólamanna, Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja, Bændasamtök íslands, Farmanna- og fiskimannasamband íslands, Samband ísl. banka-
manna, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Biaðamannafélag íslands, Kennarasamband íslands,
Vélstjórafélag íslands, Kjarafélag Tæknifræðingafélags íslands, Stéttarfélag verkfræðinga, Félag
bókagerðamanna, Verkstjórasamband íslands, Prestafélag íslands, Félag íslenskra lyfjafræðinga,
Félag aðstoðarfólks tannlækna og Landssamband aldraðra.
flusturstrætl 12: 569 1010 Hótel Saga
Akranes: 431 3386 Akurayrl: 462 7200
Einnig umboðsmenn um fand aitt.
www.samvinn.is
í-