Morgunblaðið - 14.06.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1998 25
Skrambiim....
Hvert var ég
aftur ad fara?
Öl|
ai
fll m
a L ' "74 1
i ná
^ Jt 0
ENGINN er óhultur. Jafnvel „súpermann“ hlýtur að eldast!
geðlækningum við Rochester-há-
skóla árið 1989. Að því loknu tók ég
undirsérgrein í öldrunargeðlækn-
ingum og hef starfað við rannsóknir
á því sviði undanfarin þrjú ár.
Rannsóknimar fara fram innan
alzheimer-miðstöðvar við Rochest-
er-háskólann. Alls taka á bilinu 30
til 40 miðstöðvar við helstu háskóla í
Bandaríkjunum þátt í rannsóknun-
um. Okkar miðstöð er mjög virk
enda höfum við verið með í flestum
rannsóknum á sjúkdómnum undan-
farin ár. Ég er aðstoðarprófssor við
háskólann og meðstjómandi í rann-
sóknarverkefni í tengslum við með-
ferð vegna vitsmuna- og hegðunar-
truflana hjá öldmðum. Við metum
áhrif nýrra lyfja á alzheimer-sjúk-
linga og höfum komið nærri þróun
meira og minna allra nýrra lyfja á
markaðnum í dag.“
Anton minnir á að aukinn skiln-
ingur á sjálfum sjúkdómsferlinum
gefi ákveðnar vísbendingar um
hvaða leiðir sé hægt að fara í þróun
meðferðarinnar. „Við þróun á með-
ferðinni var byrjað á því að h'ta til
Parkinsons-sjúkdómsins. Aðalein-
kenni Parkinsons-sjúkdómsins er
gífurlegur skortur á dópamíni í
ákveðnum hlutum heilans. Meðferð-
in felst meðal annars í því að gefa
dópamínforvera til að minnka ein-
kennin. Hið sama var reynt að gera
í tengslum við alzheimer-sjúkdóm-
inn. Mestur skaðinn verður á
acetýlkólín boðefnakerfinu og var
gerð tilraun til að gefa forverana
lecithin eða kólín. Því miður voru
áhrifin engin svo leitin hélt áfram.
Við reyndum því næst að nota beina
hvata fyrir kólinerga-kerfið. Auka-
verkanimar urðu of miklar og því
var enn reynt að finna nýja leið. Nú
var litið á hvað gerðist þegar kóhnið
losnaði út í bilið á milli taugafrum-
anna. Niðurbrotspróteinið
kólínesterasi brýtur kólínið mjög
hratt niður. Efni fannst til að hamla
því og fyrsta lyfið með því efni var
sett á markaðinn undir heitinu
tacrine árið 1992. Vandinn fólst í því
að lyfinu fylgdu miklar aukaverkan-
ir, t.d. lifrareitrun. Þar fyrir utan
var erfitt að fá sjúklingana til að
taka lyfið fjórum sinnum á dag.
Þrátt fyrir þokkalega virkni fyrir
ákveðinn hóp náði lyfið því aldrei al-
mennum vinsældum."
Uppúr stóð að lyfið hafði áhrif og
í framhaldi af því fór fjöldinn allur
af lyfjafyrirtækjum að þróa svokall-
að annarrar kynslóðar lyf. „Fyrsta
annarrar kynslóðar lyfið hefur verið
selt undir heitinu aricept í Banda-
ríkjunum frá því í janúar á síðasta
ári. Lyfið hefur fengið ágætar við-
tökur enda þola flestir lyfið ágæt-
lega og aðeins þarf að taka lyfið inn
einu sinni á dag. Ef tekið er mið af
samanburðarhópi samsvarar lyfið
að meðaltali um 6 mánaða bata á
Tíðni alzheimer
eftir aldri
65- 75- eldri en
74 ára 84 ára 85 ára
sex mánaða tímabili. Um 25% ein-
staklinga hafa mun betri svörun og
nemur batinn oft vel yfir eins árs
sjúkdómsgangi. Eftir batann heldur
sjúkdómurinn áfram að versna.
Okkur sýnist engu að síður að lyfin
hafi ákveðin langtímaáhrif, þ.e.
hægi á sjúkdóminum. Ekki verður
heldur fram hjá því litið að þriðji
hluti sjúklinganna virðist fá mjög
htið skammtímasvar.“
Sérfræðingar bjartsýnir
Nokkrir íslenskir öldrunarlæknar
hafa notað lyfið á undanþágu frá því
síðasta haust. „Nú hefur lyfið verið
samþykkt og verður því væntanlega
komið á markað hér á landi seinni-
hluta sumars eða í haustbyrjun. Tvö
önnur lyf með svipaða virkun hafa
verið lögð fyrir lyfjanefnd í Banda-
ríkjunum og munu sennilega vera
komin á markað þar í haust eða
byrjun næsta árs,“ segir Anton og
tekur fram að fjöldinn allur af svip-
uðum lyfjum sé í þróun. Enn sé von
á mun áhrifaríkari lyfjum. „Nú er
ég að tala um allt aðra tegund af
lyfjum. Ég er að tala um að lyfin
hafi áhrif á sjálfan sjúkdómsgang-
inn, hamli tæringu, minnki bólgu-
svar og hvetji boðefni til að koma í
veg fyrir röskun á sjálfum prótein-
búskapnum. Ef okkur tekst að
framleiða shkt lyf gætum við trú-
lega hjálpað flestum með alzheimer-
einkenni í framtíðinni og minnkað
áhættuna hjá öðrum. Við sérfræð-
ingamir erum almennt mjög bjart-
sýnir á að okkur takist á næstu 15
áram að ná settu marki, enda er
ekki svo langt í land. Enn um sinn
munum við hins vegar styðjast við
lyfin á markaðinum og algengt er að
sjúklingum sé ráðlagt að taka inn
E- og C-vítamín til að hægja á tær-
ingu. Fyrir konur hefur svo verið
mælt með estrógen-notkun eftir
tíðahvörf. Stundum hefur verið
ávísað á bólgueyðandi lyf og seyði
af laufum ginko-trésins. Frakkar
hafa jafnvel komist að því að rauð-
vín hafi jákvæð áhrif,“ segir Anton.
Anton leggur áherslu á að breyta
þurfi neikvæðu viðhorfi lækna og
heilbrigðisstarfsmanna til sjúk-
dómsins. „Ég hef áður minnst á
hvers konar grundvallaratriði er í
því fólgið að greina sjúkdómins eins
fljótt og hægt er. Greiningin er
heldur alls ekki flókin ef leitað er að
höfuðeinkennum. Ég vil hvetja fólk
til að leita til læknis hafi það
áhyggjur af minnis- eða vits-
munatapi hjá sjálfum sér eða að-
standendum til að hægt sé að hefja
meðferð snemma ef ástæða er til.
Þar fyrir utan skiptir verulegu máli
að styðja sjúklingana og fjölskyld-
una, tala um sjúkdóminn, veita
stuðning í gegnum ferlið og huga að
því að þjóðfélagið búi vel að sjúk-
íingunum. Þá er ég að tala um
heimahjúkrun, hvfldarvistun og elli-
heimilispláss. Síðast en ekki síst
þarf að tryggja að sjúklingurinn
hafi tækifæri til að hitta aðra. Oft
fara ættingjar sjúklinga að skamm-
ast sín fyrir traflaða hegðun sjúk-
lingsins og hætt er að gera ráð fyrir
sjúklingnum í fjölskylduboðum. Þar
með hættir sjúklingurinn að fá þann
stuðning og hvata sem felst í því að
sýna sig og sjá aðra.
Ég hef sjálfur reynslu af því að
eiga náið skyldmenni með alzheimer
á háu stigi. Sú reynsla hefur fært
mig hinum megin við borðið og
hjálpað mér til að skilja betur hlið
aðstandenda. Læknar verða að gefa
sér góðan tíma til að sinna aðstand-
endum af natni enda era aðstand-
endumir oft grundvöllur þess að
sjúklingunum líði vel. Um leið og illa
fer að ganga hjá nánasta aðstand-
anda eða aðstandendum fer sjúk-
lingurinn í langtímavistun. Oftast er
raunin svo auðvitað sú að sjúkling-
amir fara í langtímavistun þegar
sjúkdómurinn ágerist enda er ekki
eðlilegt að sjúkdómurinn komi í veg
fyrir að aðrir geti lifað nokkum veg-
inn eðlilegu lífi. Annars verður
aldrei of oft lögð áherslu á fræðslu.
Að nánustu skyldmenni viti hvað er í
gangi og séu undirbúinir undir það
hvernig súkdómurinn eigi eftir að
hegða sér. Fram þarf að fara undir-
búningur á ýmsum sviðum, tilfinn-
ingalega, fjárhagslega, lagalega og
huga verður að því hvað eigi að gera
í framtíðinni, t.d. varðandi viðhorf til
líknarmeðferðar. Ef afi þinn er orð-
inn karlægur og veit hvorki í þennan
heim né annan og fær lungnabólgu.
A að gefa honum sýklalyf eða ekki, á
að láta náttúruna fá sínu fram-
gengt? Mér hefur heyrst að þessi
umræða sé ekki enn farin af stað
hér nema á meðal þröngs hóps,“
segir Anton Pjetur en hann hélt fyr-
irlestur um nýjungar í meðferð á
alzheimer-sjúkdómnum á lyflækna-
þingi á Akureyri í gær.
Ársfundir
Lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins
verða haldnir mánudaginn
15. júní 1998 á Grand Hótel
Reykjavík, Sigtúni 38.
Fundur fyrir sjóðfélaga hefst kl.
16.30.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til
fundarsetu á ársfundi.
Fundur fyrir forsvarsmenn
launagreiðenda hefst kl. 13.30.
Á fundinum verður fjallað um skýrslu
stjórnar, ársreikninga,
tryggingafræðilega úttekt,
fjárfestingarstefnu, aðild
launagreiðenda að LSR, réttindamál
sjóðfélaga o.fl.
LSR
NMT
TS-400
SPECTROIMIC
----^------
- Handsími / Bílasfmi
- Sæti f mælaborð með
innbyggðum handfrjálsum
búnaði (hendur á stýri)
-120 klst. rafhlaða
- 250 númera minni m/nafni
- Vatns- og höggvarinn
- Klukka/dagatal/minnisbók
- Vekjari
- Gott valmyndakerfi
- (slenskar leiðbeiningar
í sveit...
Innifalið: Festing f bfl með 12V hleðslutæki, handfrjálsri ^ notkun og tengingu f. loftnet og ioftnetskapli. ,1 „ Hraðhleðslutæki fyrir 230V. X 120 klstyi200 mAh NiMH rafhlaða. j
• - Einfalt valmyndakerfi ..
£ 0 - Klukka, dagsetning og vekjari -100 númera minni m/nafni - Þyngd 200 gr. - Titrari í stað nringingar « 5 l
■U - Tölvutengjanlegur 1 1
- SMS skilaboð .90 »0
Innifalið: Hraðhleðsiutæki og 30 klst NiMH rafhlaða.
innifalið: Boðtækl. beltisfeitlng
rafhlaða og keðja f belti.
rn niPocKET
I uLLJosel-l.
Símbodinn
PB-2219
- Geymir 15 númer
- Klukka, vekjari og dags.
- Titrari
- 20 mismunandi tónar
- 2 mismunandi númer
- Aðeins 55 gr. m/rafhlöðu
cr
0)
Qx
0)
n
ffl ístel
Síðumúla 37
108 Reykjavík
$.588*2800
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vsttvangur fólks i fasteignaleit
.mbl.is/fasteignir