Morgunblaðið - 14.06.1998, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Arnaldur
,ÖGUN og harka verður í náminu og nemendum hjálpað að verða að hæfari einstaklingum," segir Guðfinna með Viðskiptaháskólann í bakgrunni.
Hugsun í hólfum og veggir milli manna falla ekki
vel að hugmyndum Guðfínnu Bjarnadóttur, nýs
rektors Viðskiptaháskólans, um árangur í starfí,
og ekki heldur einangraðar fræðigreinar. Hún vill
skipulag sem hvílir á mörgum forsendum.
Gunnar Hersveinn naut útsýnis hennar og sá
mynd af nemendum sem eiga að nýta tíma sinn
vel til að læra eitthvað gagnlegt en um leið að
þéna nógu mikið til að lifa mannsæmandi lífí.
VÍÐSÝNI og virðing fyrir
þekkingu annarra eru meðal
lq'örorða Guðfinnu Bjama-
dóttur, rektors Viðskiptahá-
skólans í Reylgavík, sem byrj-
ar fyrsta háskólaárið 3. september
næstkomandi. Hún vill brjóta niður
veggi milli námsgreina og skapa
víðsýnt fagfólk. „Við þurfum að
bera virðingu fyrir öðrum því við
getum lært af hverjum einasta
manni sem við mætum. Hlutverk
okkar er að uppgötva hvað það er.“
Bera á virðingu fyrir þverfaglegri
þekkingu í Viðskiptaháskólanum.
„Kennarar þurfa að vinna saman,
og skoða heildarsamhengið. I hag-
nýtri stærðfræði munu nemendur
til dæmis taka dæmi úr námskeið-
um úr hagfræði og fjármálum. Sam-
þættingin verður milli fræðigreina
innan hvers sviðs, og einnig verður
aðgangur milli deilda góður. Töivu-
fræðingar þurfa t.a.m. að vita hvað
viðskiptafræðingamir eru að gera
og öfugt.“ í Viðskiptaháskólanum
verður námið hagnýtt og miðar að
þörfum atvinnulífsins og einnig
völdum alþjóðlegum viðmiðum. „Við
erum að velja viðmiðunarskóla í
Bandaríkjunum og í Evrópu og ætl-
um að búa nemendur undir að geta
komist inn í hvaða skóla sem er og
staðið sig.“
Skrifstofa Guðfinnu verður á
fímmtu hæð í nýrri byggingu í Of-
anleiti 2 og er útsýnið feikigott.
„Það skiptir máli að augun fái að
ferðast," segir hún. Húsið rúmar
500 manns en fyrsta skólaárið verða
á þriðja hundrað nemendur í tveim-
ur deildum: Tölvufræðideild og Við-
skiptadeild, en um leið leggst Tölvu-
háskóli Verzlunarskóla Islands nið-
ur.
Þorvarður Elíasson var frum-
kvöðull TVÍ og hafa 302 kerfísfræð-
ingar verið útskrifaðir síðan árið
1988 eftir tveggja ára nám. Skólinn
hefur aflað sér velvildar og í könn-
un, sem Guðfinna lét gera fímm
mínútum fyrir lokaútskrift þar í maí
síðastliðnum, kom í ljós að allir
nema einn höfðu ráðið sig í vinnu
eða fengið atvinnutilboð og launin
að meðaltali rúmlega tvö hundruð
þúsund krónur. „Eg vil mennta
nemendur í störf sem gefa góð
laun,“ segir Guðfinna, en hver er
menntun hennar og fyrri störf?
Lífið er ekki deildaskipt
„Eg er stúdent úr stærðfræði-
deild gamla Kennaraskólans og var
að spá í að fara í réttindanám í
Kennaraháskóla íslands en fór í sál-
fræði við Háskóla íslands og út-
skrifaðist árið 1986.“ Þar segist hún
hafa lært öguð vinnubrögð sem hún
beitti í West Virginia University í
Bandaríkjunum í master- og síðar
doktorsnámi. Guðfínna er mikil
áhugamanneskja um hagnýtingu
náms og fannst háskólinn í Virginia
ekki standa nógu vel undir því
merki. „Þeir voru ekki nógu harðir
svo ég fékk að semja dagskrána
mína í skólanum sjálf og var ég því
allan tímann með annan fótinn í
verkfræðideildinni.“
í sálfræðideildinni stundaði hún
stjómunarsálfræði og var á hörðu
línunni með aðgerðabindingu og
hlutlægni í íyrirrúmi. Á námstíman-
um í Bandaríkjunum vann hún
einnig fyrir þekkt fyrirtæki eins og
General Electric, Honeywell og
Union Carbide. Doktor varð hún ár-
ið 1991 og stofnaði strax eigið fyrir-
tæki: LEAD Consulting. Hún batt
saman sálfræði og verkfræði og
tamdi sér þverfaglega hugsun eins
og tíðkast í lífinu sjálfu. „Lífínu er
ekki skipt upp í deildir," segir hún.
Kennir stjómendum að vera
með fyrirtæki í fararbroddi
Guðfinna náði fljótlega góðum ár-
angri með fyrirtækið sitt, LEAD
Consulting, en hugsun hennar um
skólastefnu er af sama toga og birt-
ist í hugmyndinni á bak við það.
„LEAD hefur fjögur meginsvið
og tákna stafimir hvert þeirra. „L“
(leadership) er forysta og er áhersl-
an á heildarsýnina. Forysta er í
fyrsta lagi um fólk eins og nemend-
ur, starfsfólk, fólk í viðskiptalífinu
og þjóðina. Hún er í öðra lagi um
fjármuni, í þriðja lagi um framtíðina
en við hana ber ævinlega að miða.
Hún er í fjórða lagi um fram-
kvæmdir og fímmta lagi um ferla
eins og nám.“
„E“ (empowerment) er um þátt-
töku og valddreifingu. „Það merkir
að allir hafi eitthvað merkilegt fram
að færa. Fyrirtækið er opið og fólk-
ið fær að vita hvað er að gerast.
Upplýsingarnar streyma í báðar
áttir. Það er merki um ranga stjóm-
un þegar starfsmaður sem gerir það
gott utan vinnutímans er nánast
beðinn að vera heilalaus í vinnunni.
Þessi starfsmaður er ef til vill for-
maður í áhugamannafélögum og
valinn til forystu af nágrönnum sín-
um,“ segir hún.
„A“ (accountability) er hvatakerfi
og um að starfsmenn getið notið
velgengni sinnar hjá fyrirtækjum.
„D“ (development) táknar þróun
og sífellt nám starfsmanna sem
markvisst auka þekkingu sína og
fæmi í síbreytilegu umhverfí.
Eiginmaður Guðfinnu, Vilhjálmur
Kristjánsson stjórnsýslufræðingur,
er með henni í fyrirtækinu og hafa
þau ferðast mikið um Bandaríkin
vegna vinnu sinnar. „Það kom fjrrir
að maður vaknaði á einhverju hóteli
og þurfti að rifja upp í hvaða borg
það væri. En eftir að Hólmfríður
dóttir okkar ákvað að verða íslend-
„Hvaða vinnu-
möguleika eigum
við að bjóða unga
fólkinu? Ég vil
búa nemendur
undir störf í hærri
launakantinum.
Mér er nefnilega
minnisstæð könn-
un í lowa-fylki
sem sýndi að
unga fólkið þar
kom ekki aftur
heim eftir nám.
Það má ekki
henda okkur - og
þess vegna vil ég
mæla árangur
námsins og spyrja
eins og ég gerði á
útskriftinni hvort
þau hafi nú þegar
fengið vinnu og
hver launin verði.
Og það er góður
mælikvarði á
gæði skólans.“
ingur og byrjaði í sálfræði við Há-
skóla Islands síðastliðið haust
ákváðum við að gera hið sama og
stjóma fyrirtækinu héðan,“ segir
Guðfínna. Hólmfríður er eina barn
þeirra og Island varð meira heill-
andi eftir að hún flutti heim. „Við
gerðum upp hug okkar til landanna
og íslenski kúltúrinn hafði vinning-
inn, þótt markaðurinn sé vissulega
meira spennandi í Bandaríkjunum.
Ég vildi líka miðla af eigin reynslu
hér heirna."
Hvernig fær formaðurinn alla
til að róa í takt?
LEAD Consulting hefur hins
vegar gengið ákaflega vel og keypti
til dæmis One Valley Bank of Cl-
arksburg í Vestur-Virginíu heildar-
ráðgjöf Guðfinnu og hefur náð góð-
um árangri og unnið nokkur verð-
laun, t.d. frá USA TODAY, og náð
þjóðarathygli fyrir gæðastjómun.
„Þetta gengur vel og allir róa í takt
í fyrirtækmu, starfsmenn vita
hverju þarf að ná fram og ef það fer
að ganga illa munu raddir allra fá
að heyrast,“ segir Guðfinna, en
hennar ráð var að koma þeirri hugs-
un til skila að bankinn væri í fyrsta
lagi fyrir viðskiptavinina, í öðru lagi
fyrir starfsfólkið og í þriðja lagi fyr-
ir eigenduma. „Röðin þarf að vera
þannig ef árangur á að nást.“
Guðfinna er líka aðalstjórnunar-
ráðgjafi Regions-bankans, sem velt-
ir árlega 33 milljónum Bandaríkja-
dollara og er 25. stærsti bankinn
þar. Bankamenn settu sér stefnuna
VISION 2000 og þegar Guðfinna
var kölluð til starfa var stefnuna að
fínna í þykkum doðranti. Fyrsta
verk hennar var að skýi’a hana á
einni blaðsíðu og að fá alla í fyrir-
tældnu til að vera með í að ná krefj-
andi markmiðum. „Framkvæmdin
gengur vel en þetta er fimm ára
stefnumörkun. Eg ætlaði að fylgja
henni til enda en mun ekki, sökum
nýja starfsins, endurnýja samning-
inn við Regions, sem rennur út í
janúar á næsta ári.“
Starfsfólk bankans þekkir stefn-
una og fær mánaðarlega upplýsing-
ar um gang mála. Guðfínna hefur
brotið niður óþarfa múra innan
bankans og lagt áherslu á heildar-
vinnuferla í staðinn. „Lykilatriðið er
að starfsfólkið sé með á nótunum,
viti og skilji um hvað málið snýst,“
segir hún.
Guðfinna hefur líka unnið nokkur
verkefni hér heima, til dæmis með
æðstu embættismönnum Reykja-