Morgunblaðið - 14.06.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1998 21
LISTIR
Berg’ljót í hlut-
verki drottningar
LEIKKONAN Bergljót Arnalds
leikur aðalhlutverkið í leikritinu
„Dóttir sjávarkonungsins" (The
Sea-King’s Daughter) eftir
orkneyska skáldið George Mackay
Brown en verkið hefur verið gefið
út á snældu og geisladisk af
skoska fyrirtækinu Saltire Society.
Höfundur verksins, ljóðskáldið
George Mackay Brown, lést fyrir
tveimur árum og er verkið gefið út
til minningar um þetta höfuðskáld
Orkneyja. Félagið Saltire Society
stendur vörð um skoska menningu
og gefur m.a. annars út skáldsögur
á snældum en þetta er í fyrsta sinn
sem ráðist hefur verið í að gefa út
leikrit.
Verkið fjallar um þriggja ára
stúlku, dóttur Eiríks 2. konungs
yfir Noregi, sem varð drottning yf-
ir Skotlandi á 13. öld. Þegar hún
var sjö ára var ákveðið að sameina
Skotland og England með því að
gifta hana Englandsprinsi. A leið-
inni frá Noregi til Englands fékk
hún lungnabólgu og dó. Verkið
gerist á ferð drottningar til Eng-
lands. Um borð í skipinu upplifir
drottningin unga frelsið í fyrsta
sinn og lætur sig dreyma um að
losna undan skyldum sínum við
hirðina og lifa fábrotnu lífi.
Ograndi hlutverk
Bergljót segir hlutverk drottn-
ingarinnar ungu erfiðasta hlutverk
sem hún hefur tekið sér fyrir
hendur fyrir framan hljóðnema og
lýsir það sér einkum í tjáningu
veiks barns með röddinni einni.
„Eg þarf að halda mínum íslenska
hreim, sem má þó ekki vera of
sterkur, og í lokaatriðinu þar sem
barnið er með óráði og deyr að
lokum, kemm- stærsta ögrunin
fram í hlutverkinu því ég hef ekki
líkamann til að tjá líðan þess eða
ungan aldur, heldur eingöngu
röddina," segir Bergljót. „Þá verð-
ur maður að passa að allt komi
fram, en þó má ekki gera of mikið,
ekki hósta of mikið, ekki gráta of
mikið og þess háttar.“
Dóttir sjávarkonungsins var áð-
ur flutt á Edinborgarhátíðinni
1993 og fór Bergljót þá einnig með
hlutverk drottningarinnar. Sýn-
ingin hlaut mjög góða dóma og því
var meðal annars ákveðið að ráð-
ast í þetta tilraunaverkefni. Þegar
Bergljót lék hlutverkið á Edin-
borgarhátíðinni var hún á öðru ári
í leiklistarnámi sínu. „Verkið er
ljóðrænt og ég vann hlutverkið
mjög vel á sínum tíma. Til gamans
má geta þess að eftir eina æfing-
una lét strætisvagnabílstjóri mig
borga barnafargjald og er það
lýsandi fyrir það hversu sokkin ég
var ofan í hlutverkið,“ segir
Bergljót.
Upptökur á leikritinu fóru fram
í Edinborg í nóvember síðastliðn-
um og má geta þess að andlit
Bergljótar prýðir kápuna á geisla-
plötunni. Þá hefur Signý Onnars-
dóttir fatahönnuður hannað kjól úr
hreindýraskinni sem leikkonan
klæddist á útgáfudeginum.
Leikstjóri verksins er Marillyn
Gray en hún leikstýrði einnig sýn-
ingunni þegar hún var sett upp á
sínum tíma á Edinborgarhátíðinni.
RAFVÖRUR
ÁRMÚLI 5 • RVK • SÍMI 568 6411
Ragnar Lár sýnir í Gall
eríi Sölva Helgasonar
BERGLJÓT Araalds leikkona.
RAGNAR Lár heldur myndlistar-
sýningu í Galleríi Sölva Helgason-
ar í Lónkoti í Skagafirði. Sýningin
stendur til 19. júlí.
Ragnar er fæddur 1935. Hann
nam við Handíða- og myndlista-
skólann í Reykjavík að gagnfræða-
prófi loknu. Fyrstu einkasýningu
sína hélt hann í Reykjavík 1956, en
síðan hefur hann haldið margar
sýningar heima og erlendis. Ragn-
ar hefur myndskreytt margar
bækur, einkum barnabækur, gert
hreyfimyndir iyrir sjónvarp,
stundað blaðamennsku og auglýs-
ingateikningar.
Ragnar hefur samið og teiknað
sjö barnabækur, m.a. „Moli litli
flugustrákur".
Ragnar gaf út Spegilinn um ára-
bil ásamt Asa í Bæ og þekkt er
blaðafígúra hans „Boggi blaða-
maður“, sem birtist í Vísi, Dag-
blaðinu og síðar í Tímanum, sam-
tals um tíu ára skeið.
Sú sýning á verkum Ragnars
Lár, sem sjá má í Galleríi Sölva
Helgasonar, sýnir þversnið af
verkum hans í gegnum tíðina.
líkja eftir okkur
Nám við
Viðskipta- og tölvuskólann
leiðir til starfs
Við byggjum á
23 ára reynslu og hefð
og erum í takt við
þarfir atvinnulífsins
Vl OSKlPTA- 0G
TÖLVOSKÓLJMM
Faxafeni 10 • Framtíðin • 108 Reykjavík
Sími: 588 5810 • Bréfasími 588 5822
Skólinn býður upp á
bestu aðstöðu fyrir nemendur
sem þekkist á landinu.
Komið í heimsókn og
sannfærist
'Hú er keítiö Á AÍÍA
lp.nfsin.enn að A-ulov
Vetjiemcl tstens'k.p.fdncs.ns
tneö fví cu> sttjöjn-
fÁ’WK-Ve.rkje.fni shdtcs-
ftretjf’incjfl.rinncvr sevn ber
keitiö „lslensk.cs-
fdnp.nn í pnc(yep-i.“
Miði er Ýnöcjvsle-i'k.ií
OflM.sile.cjir VinnincjíX-r
-'Va,
íslenska
fánann
í öndvegi
Drcsið 11- Í“n‘
5'ktítci'fire.tjjfinjin