Morgunblaðið - 14.06.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1998 11
kvæmdir um nokkra mánuði. Það var líklega tilgangurinn, en
skilyrði fyrir starfsleyfí okkar urðu strangari en hjá ISAL, þótt
að sjálfsögðu eigi að gilda sömu reglur fyrir aUa. Þessir mót-
mælendur voru hins vegar aðeins hávær minnihluti, eins og kom
í ljós í skoðanakönnun, þar sem landsmenn lýstu sig fylgjandi
því að orkufí'ekur iðnaður yrði mikilvægur þáttur í atvinnuupp-
byggingu hér á landi, eins og ríkisstjórnir höfðu lagt áherslu á
hver fram af annarri. Og af íbúum Hvalfjarðarsvæðisins reynd-
ust 88% fylgjandi nýju álveri á Grundartanga. Þessi niðurstaða
gaf okkur byr undir báða vængi. Við vildum að sjálfsögðu ekki
vera þar sem við vorum óvelkomnir."
Marsl 997
Umhverfisráðherra gaf út starfsleyfi fyrir álver
Norðuráls hf., fyrirtækis Columbia Ventures miðvikudagskvöld-
ið 26. mars. Norðurálsmenn biðu ekki boðanna. Laugardaginn
29. mars hófust framkvæmdimar á Grundartanga formlega.
„Stjórnendur okkar frá Bandaríkjunum eru mjög ánægðir með
hvemig íslenskir verktakar hafa staðið að uppbyggingunni,"
segir Peterson. „Við hefðum ekki getað byggt álverið á jafn-
skömmum tíma og raun ber vitni ef við hefðum ekki notið af-
bragðsgóðrar verkkunnáttu íslendinga."
Júlí 1997
11 byrjun mánaðarins var vinna við grann álversins
langt komin, byrjað að steypa undirstöður fyrir kerskála og
forsteypa súlur, sem fluttar vora á byggingarsvæðið. Skrif-
stofuhús og aðstaða fyrir starfsmenn reis og hafinn var undir-
búningur að gerð stálgrindar og klæðningar fyrir kerskála.
Bygging álversins var eitt stærsta verkefni íslenskra verkfræð-
inga af þessu tagi.
rsMSE Norðurál gerði fjármögnunarsamning við bank-
ana Paribas í París og ING í Amsterdam. Fulltrúar bankanna
sögðu vitneskju um eindreginn stuðning íslensku ríkisstjórnar-
innar við verkefnið og viðleitni stjómvalda til að laða orkufrek-
an iðnað tii landsins hafa haft lykilþýðingu fyrir bankana. Samn-
ingurinn var upp á yfir 100 milljónir dala, a.m.k. 7,3 milljarða
króna, en fjárfestingin öll er um 13 milljarðar. „Verkefnafjár-
mögnun af þessu tagi er ef til vill óvenjuleg á íslenskan mæli-
kvarða, en þó er gerð Hvalfjarðarganganna fjármögnuð að hluta
á sama hátt. Þessi leið er alkunn á meginlandi Evrópu og ís-
lendingar eiga eflaust eftir að kynnast henni nánar,“ segir Pet-
erson.
Október 1997
Öllum samningum um orku, fjármögnun, að-
drætti og sölu á afurðum var lokið í október og búið að ráða í
helstu yfirmannastöður.
I i l'l’Þl 111 :íTm ll lI Deilt var um hvort veita ætti iðnaðarmönn-
um frá Rúmeníu atvinnuleyfi til að setja upp reykhreinsivirki ál-
versins á vegum undirverktaka, en íslenskir iðnaðarmenn lögð-
ust gegn því og sögðu nægan mannskap að fá hér á landi. Það
gekk eftir.
skautum og öllu hráefni til álversins, að súráli undanskildu og
um flutninga á áli frá verksmiðjunni á erlenda markaði. „Við
leituðum eftir samningum við skipafélög og þau samskápti vora
mjög fagleg,“ segir Peterson. „íslensku skipafélögin lögðu sig
fram um að átta sig á þörfum okkar og kynntu okkur svo hug-
myndir sínar til lausnar. Niðurstaðan var sú að semja við Sam-
skip. Við gátum ekki samið nema til átján mánaða, þar sem við
vitum ekki nákvæmlega hvenær við getum aukið ft-amleiðsluna,
en ég held að báðir aðilar geti vel við unað.“
Byggingin var enn á áætlun og sem fyrr stefnt að því að
framleiðsla hæfist í júní. Gene Caudill, forstjóri Norðuráls,
sagði fyrirtækið vilja fá orku til síðari áfanga fyrr en samning-
ur við Landsvirkjun kveður á um, svo hægt væri að taka öll 120
kerin, sem tryggja 60 þúsund tonna ársframleiðslu, í notkun
hvert á fætur öðra, en ekki 60 ker nú og byrja að taka síðari 60
í notkun síðla árs. Ekki hafi verið hægt að verða við þeirri bón.
Landsvirkjun sagði að ekki væri hægt að spenna bogann það
hátt að stefnt væri í hættu afhendingu fyrirtækisins á for-
gangsorku. „Ef við myndum leyfa okkur að afhenda Norðuráli
orku síðari hluta sumars gæti það orðið til þess að við yrðum að
takmarka afhendingu á afgangsorku og ótryggðu rafmagni
meira en ella,“ sagði Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar, í viðtali við Morgunblaðið 23. maí.
„Miðað við samninga við Landsvirkjun um orkuafhendingu
verða kerin öll ekki komin í fulla notkun fyrr en í byrjun næsta
árs,“ segir Kenneth Peterson. „Norðurál getur byrjað að taka
síðari hluta keranna í notkun í ágúst og það viljum við að sjálf-
sögðu gera. Landsvirkjun býður hins vegar ekki upp á það.“
Peterson telur að Landsvirkjun gæti orðið við beiðni Norður-
áls um afhendingu orku fyrr en ella, ef vilji væri fyrir hendi.
„Undanfarna átján mánuði höfum við þróað lausn á þessum
vanda, sem við teljum báðum aðilum til hagsbóta. Við viljum í
raun fá „lánað“ vatn í uppistöðulónum virkjana og skuldbinda
okkur um leið til að endurgreiða það ef vatnsbúskapur er léleg-
ur. Við fengjum þá orku sem við þyrftum, en ef Landsvirkjun
lenti í vanda myndum við annað hvort draga úr framleiðslu eða
bera kostnað af rekstri gufuaflsvirkjana, sem eru dýrari í
rekstri en vatnsfallsvirkjanir. Ábyrgðin og kostnaðurinn væri
okkar, ekki Landsvirkjunar."
Peterson segir að Norðurál hafi fengið ráðgjafa frá Banda-
ríkjunum, sem unnu að þessu máli. „Við fengum þessa ráðgjafa
nokkrum sinnum til landsins og gerðum áætlun um hvemig
þetta gæti gengið upp, báðum til hagsbóta. Þetta var gert í
fullu samráði og samstarfi við Landsvirkjun. Niðurstaðan varð
samt sú, að Landsvirkjun kaus að reyna þetta ekki, vegna þess
að þetta hefur ekki verið gert hér áður. Eftirspum eftir orku
hefur aukást mjög, bæði með byggingu okkar álvers og stækk-
un ÍSAL, en þrátt fyrir það vill Landsvirkjun ekki fara þessa
leið. Það hafa þó önnur orkufyrirtæki gert í áratugi. Þessi að-
Janúar 1998
I Einstaklega mild tíð auðveldaði vinnu við bygg-
ingu álversins og í janúar var hafist handa við byggingu hreinsi-
vh’kis. í sama mánuði tilkynnti Norðurál að gengið hefði verið
frá tæplega átta milljarða króna láni tólf banka til byggingar-
innar. Peterson sagði að þegar gengið hefði verið frá fjármögn-
unarsamningnum við Paribas og ING hefði hann átt von á að
sex eða átta bankar tækju þátt í fjármögnuninni, en þeir hefðu
orðið tólf og enginn getað lagt fram jafnmikið fé og viíji stóð til.
Fjárfestingarbanki Islands lánaði um 510 milljónir króna.
„Flestir þessara banka hafa enga reynslu af verkefnum hér á
landi og sannarlega ekki einkaframkvæmdum af þessu tagi, svo
þeir þurftu að kynna sér íslenskt viðskiptaumhverfi vel. Þeim
mun ánægðari er ég með þessa niðurstöðu,“ segir Peterson.
Janúar 1998
Norðurál og verkalýðsfélög gengu frá kjara-
samningi vegna starfsmanna álversins. Ýmis nýmæli era í
samningnum. Hann er til sjö ára og samið var um 5% viðbótar-
framlag í séreignasjóð til viðbótar skylduiðgjaldi í lífeyrissjóð.
Þá tókst samkomulag um svokallaða liðsvinnu. Starfsmenn
vinna í sérstökum liðsheildum, sem fara hver fyrir sig með
stjómunar- og ákvörðunarrétt um framkvæmd verkefna á af-
mörkuðum svæðum í álverinu. Hluti launa verður tengdur ár-
angri starfsmanna og liðs þeirra og getur sá hluti numið frá 5%
til 15% ofan á laun viðkomandi starfsmanna. Uppbyggingu ár-
angurstengds launakerfis á að vera lokið í síðasta lagi í júní ár-
ið 2000, en fram að þeim tíma verður greiddur 7,5% fastur bón-
us ofan á laun.
„Við ætlum að starfa hér í áratugi og því lögðum við áherslu
á góð samskipti við verkalýðsfélögin," segir Peterson. „Ég held
að okkur hafi tekist að leggja góðan grann, sem við getum
byggt á í framtíðinni, báðum aðilum til hagsbóta. Þessar við-
ræður voru hvorki erfiðar né auðveldar, en okkur tókst að ljúka
samningum á eðlilegum tíma, enda lögðu báðir aðilar sig fram.
Við verðum svo að sjá hvað setur, en 7 ára samningstímabil gef-
ur okkur tækifæri til að þróa starfið hér.“
Mars 1998
Framkvæmdum við skautsmiðju lauk að mestu í
mánuðinum.
zmsm 10 Lokið var við að klæða kerskála og klæðning
annarra bygginga var komin vel á veg. Framkvæmdir við
steypuskála hófust og stefnt að því að klára hann á 2-3 mánuð-
um. Norðurál samdi við Olíufélagið hf., Esso, um kaup á olíu-
vöram.
Mai 1998
Samið við Samskip um flutninga skipafélagsins á
ferð er alþekkt þar sem vatnsafl er virkjað, til dæmis í norð-
vestur hluta Bandaríkjanna, þar sem álver fá allt að fjórðung
orkunnar með þessum hætti. Það á til dæmis við um álver Col-
umbia í Washington-fylki. Við eram aðeins að tala um mjög
skamman tíma, september til desember, en frá næstu áramót-
um á Landsvirkjun, samkvæmt samningum, að leggja okkur til
orku til fullra afkasta."
Peterson segist mjög vonsvikinn með afstöðu Landsvirkjun-
ar. „Landsvirkjun ber að sjálfsögðu engin skylda til að gera
þetta, því fyrirtækið hefur staðið að fullu við alla samninga við
okkur. Við reiknuðum aldrei með að ná 60 þúsund tonna afköst-
um fyrr en í ársbyrjun 1999, að öðra óbreyttu. Hins vegar er ég
sannfærður um að þessi lausn hefði komið öllum til góða.
Landsvirkjun hefði selt meiri orku, við hefðum framleitt meira
og getað fullmannað álverið fyrr.“
Peterson hefur ekki gefið upp alla von um að fá orku afhenta
fyrr en áætlað var. „Það er eiifitt að spá fyrir um vatnsbúskap-
inn, enda ræður enginn veðri og vindum. Kannski verður útlitið
betra næsta haust.“
Juni 1998
Fyrstu tvö kerin í álverinu gangsett og næstu
verða tekin í notkun koll af kolli. Norðurál fékk súrál hjá ÍSAL
tO að byrja, en fyrsta skipið sem flytur hráefni til Grandar-
tanga lá við festar þar í lok síðustu viku. „Ég er bjartsýnn á
álmarkaðinn og hlut okkar þar, þrátt fyrir að ég hafi ekki
reiknað með að álverð yrði jafnlágt nú og raun ber vitni. En
þessi markaður sveiflast til og þeir sem geta haldið framleiðslu-
kostnaði í lágmarki munu standa áföll af sér. Það er auðvelt að
græða þegar verðið er hátt, það geta allir gert, en Norðurál
verður sterkur framleiðandi, sem þolir líka mögra árin.“
Áætlanir gera ráð fyrir að afkastageta álversins verði orðin
90 þúsund tonn í lok næsta árs. Til þess að það verði þarf að
lengja kerskálana tvo, sem nú era rúmir 400 metrar hvor, upp í
um 600 metra. Á nýrri öld verður afkastagetan að líkindum 180
þúsund tonn og verða þá byggðir tveir 600 metra kerskálar til
viðbótar. Áætlanir um stækkun era ekki aðeins háðar orku-
framboði, heldur einnig þróun á álmarkaði.
Kenneth Peterson hefur komið margoft til íslands á undan-
fórnum tæpum þremur árum, en hann hefur ekki í hyggju að
flytja hingað. „Norðurál á vissulega hug minn allan núna, á
meðan við erum að koma rekstrinum í fullan gang. Hins vegar
er starfsemi Columbia Ventures miklu meiri í Bandaríkjunum
en hér og ég held áfram að starfa á aðalskrifstofunni úti. Álver-
ið á Grandartanga verður í góðum höndum.“