Morgunblaðið - 14.06.1998, Page 2
2 SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Borgar-
stjóri í
landsliðs-
hópi
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
knattspyrnu mætir því spænska
á Kópavogsvelli klukkan 14 í
dag, sunnudag, en leikurinn er
liður í undankeppni heims-
meistaramótsins. Þetta er síðari
viðureign þjóðanna í keppninni,
en fyrri leiknum ytra lauk með
markalausu jafntefli.
Takist íslenska liðinu að
sigra eða ná jafntefli aukast
möguleikar þess verulega á að
komast í lokakeppnina í Banda-
ríkjunum á næsta ári. Þetta er
eini landsleikur íslenska
kvennaliðsins á heimavelli á
þessu ári.
í gær bauð Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarsljóri í
Reykjavík, landsliðinu, með
Auði Skúladóttur fyrirliða í
broddi fylkingar, til móttöku í
Höfða og þökkuðu stúlkurnar
fyrir sig með því að gefa borg-
arstjóranum landsliðsbúning.
FRETTIR
Morgunblaðið/Jim Smart
AUÐUR Skúladóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri með sérmerkta landsliðspeysu númer 8.
Árangur af endurlífgun utan sjúkrahúsa
Reykjavík í hópi fimm
bestu borga Evrópu
REYKJAVÍK er ein af þeim fimm
borgum Evrópu þar sem árangur af
endurlífgun utan sjúkrahúsa er
bestur. Þetta kom fram í fyrirlestri
dr. Johans Herlitz, læknis á Sahl-
grenska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi,
á fundi Evrópska endurlífgunar-
ráðsins, sem haldinn var í Kaup-
mannahöfn dagana 4.-6. júní, en
fundinn sátu hjarta- og svæfinga-
Iæknar og aðrir læknar sem vinna
við neyðarþjónustu.
Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir á
bráðamóttöku og gæsludeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur, sem sat
fundinn í Kaupmannahöfn, segir að
Herlitz hafi sent út spumingalista
til fjölmargra borga í Evrópu og
safnað upplýsingum um árangur af
endurlífgunum utan sjúkrahúsa. I
ljós hafi komið að árangurinn hafi
verið bestur í Reykjavík, Helsing-
fors, Stavanger, Bonn og Göttingen.
„Árangurinn er mjög svipaður á
þessum fimm stöðum og er nálægt
því sem menn telja að yfirleitt sé
hægt að komast utan sjúkrahús-
anna,“ segir Gestur.
Stuttur viðbragðstími
neyðarbílsins
Skýringuna á þessu góða gengi
telur hann m.a. vera þá að við-
bragðstími neyðarbflsins sé mjög
stuttur, að meðaltali u.þ.b. fimm
mínútur, og því sé hægt að veita sér-
hæfða endurlífgun án mikillar tafar,
auk þess sem skjót viðbrögð nær-
staddra þegar bráðatilvik ber að
höndum séu afar mikilvæg. Auk
þessara þátta nefnir Gestur vel þjálf-
að starfslið, gott skipulag og góða
samvinnu milli allmargra aðila, ekld
síst sjúkrahúsanna og slökkviliðsins í
Reykjavík og Rauða krossins.
„Hér höfum við verið með neyðar-
bfl frá árinu 1982, og á honum er
reyndur aðstoðarlæknir og tveir
sérþjálfaðir sjúkraflutningamenn.
Þessi bíll er sendur í öll neyðartilvik
hér á svæðinu, sem eru á bilinu
3.000-3.500 á ári. Frá 1989 hefúr
bfllinn verið til taks allan sólarhring-
inn, alla daga ársins. A síðasta ári
komu svo tilmæli frá heilbrigðis-
ráðuneytinu um að svæðið yrði
stækkað þannig að Hafnarfjörður
og Álftanes bættust við. Þá tókum
við þá ákvörðun, til þess að lenda
ekki í vandræðum með viðbragðs-
tímann, að útbúa þrjá varaneyðar-
bfla á svæðinu. Einn er í Hafnar-
firði, annar í Árbæ og sá þriðji á
slökkvistöðinni við Skógarhlíð eða á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Með þessu
móti er tryggt að vel útbúinn neyð-
arbfll með sérþjálfuðum sjúkraflutn-
ingamönnum sem geta gefið rafstuð
geti verið fyrstur á staðinn og spar-
að nokkrar mínútur, en síðan komi
neyðarbfllinn sjálfur með lækni til
móts við hann,“ segir Gestur.
Afsláttur af lyfjaverði til ríkisins 1990
Apótekarafélagið
samþykkti ekki
afsláttinn
Forseta-
hjónin í
Litháen
Vilnius. Morgunblaðið.
ÍSLENSKU forsetahjónin komu í
gærmorgun til Litháens eftir að
hafa kvatt Lettland. Opinber heim-
sókn þeirra hófst formlega við for-
setahöllina í höfuðborginni Vilnius,
þar sem forsetamir Ólafur Ragnar
Grímsson og Valdas Adamkus
skoðuðu heiðursvörð.
Að því loknu var fundur þeirrra
og utanríkisráðherranna Halldórs
Ásgrímssonar og Algirdas Saugar-
das. Þá undirrituðu utanríkisráð-
herramir tvísköttunarsamninga
milli ríkisstjóma landanna. Síðar
um daginn lögðu forsetamir blóm-
sveig að minnisvarða um frelsis-
baráttu Litháens og gengu um
gamla hluta miðborgar Vilnius, þar
sem skoða átti merkar kirkjur.
í dag verður haldið til Kaunas,
annarrar stærstu borgar Litháens,
en heimsókninni lýkur á mánudag.
JÓN Bjömsson, varaformaður Apó-
tekarafélags Islands, segir það
rangt sem haft hefur verið eftir
Karli Steinari Guðnasyni, forstjóra
Tryggingastofnunar ríkisins, að
stjóm Apótekarafélags Islands hafi
samþykkt þá ákvörðun lyfjaverð-
lagsnefndar árið 1990 að veita rík-
inu afslátt af lyfjaverði.
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði á fóstudag að ákvörðunin
um afsláttinn hefði verið ólögleg og
var Tryggingastofnun dæmd til að
endurgreiða 28 apótekumm hann,
samtals 227 milljónir króna, auk
dráttarvaxta.
Jón segir að engin stjómarsam-
þykkt sé fyrir afslættinum í fundar-
gerðarbókum Apótekarafélagsins,
enda hafi apótekarar verið á móti
honum og látið vita af því. Wemer
Rasmusson var fulltrúi Apótekara-
félags Islands í lyfjaverðlagsnefnd
þegar ákvörðun um afsláttinn var
tekin. Hann er jafnframt einn af
þeim sem sóttu mál á hendur
Tryggingastofnun til endurgreiðslu
hans.
í samtali við Morgunblaðið í gær
benti Werner á að ríkið hefði átt
þrjá fulltrúa af fimm í lyfjaverðlags-
nefnd. Hann vildi einnig minna á
það að af þeim 227 milljónum króna
sem apótekumnum hefðu verið
dæmdar frá Tryggingastofnun
rynni meirihlutinn í virðisauka- og
tekjuskatt, þannig að í raun væru
það um 100 milljónir sem þeir
fengju í hendurnar. Að öðm leyti
vildi hann ekki tjá sig um málið.
*
Formaður bankaráðs BI
Eins og
hver önnur
mistök
FORMAÐUR bankaráðs Búnaðar-
banka Islands segist hafa skýringar á
því að upplýsingar hafi vantað í svar
bankans til Rfldsendurskoðunar um
kostnað við laxveiðiferðir. Hann muni
hins vegar ekki ræða það við fjölmiðla
fyrr en eftir að skýrsla Rfldsendur-
skoðunar hafi borist bankanum.
,Á þessu era auðvitað skýringar,
þetta em eins og hver önnur mistök
en ég vil ekki ræða málið frekar,"
sagði Pálmi Jónsson, formaður
bankaráðsins. Hann segir að öflum
upplýsingum hafi verið komið til
Rfldsendurskoðunar og kvaðst vilja
bíða eftir að sjá skýrslu hennar áður
en hann ræddi máflð frekar. Bjóst
hann við að það yrði á næstu vikum
og þá yrði fjallað um málið í banka-
ráðinu.
---------------
Ferðamenn
fyrr á ferð-
inni á há-
lendinu
Á HVERAVÖLLUM er ferðaþjón-
ustan komin á fullan skrið og í nótt
gistu þar franskir ferðamenn. Að
sögn Áldísar E. Alfreðsdóttur skála-
varðar kemur svæðið vel undan
vetrí.
„Gróðurinn hefur tekið sérlega
veí við sér síðustu daga þótt víða sé
svæðið blautt. Tjaldstæðið er til
dæmis ekki allt tiibúið þótt ekki
vanti gistipláss. Fyrstu erlendu
gestirnir em þegar farnir að láta sjá
sig. Þá er Vegagerðin nýbúin að
laga veginn og a.m.k. norðurleiðin er
vel fólksbílafær. Sunnanmegin er
ein spræna á leiðinni sem og 50
metra sandfláki, en annars er hann
líka mjög greiðfær."
Hjónin Jómnn Eggertsdóttir og
Sveinn Tyrfingsson sjá um rekstur á
Versölum sem og gisti- og veitinga-
aðstöðuna í Hrauneyjum.
„Við fómm í vikunni upp að Ver-
sölum og er svæðið orðið alautt
nema hvað skaflar era í dýpstu laut-
um. Það virðist allt vera um hálfum
mánuði fyrr en venjulega og á það
bæði við um gróður sem og ferða-
menn sem hafa komið við hjá okkur
í Hrauneyjum," sagði Sveinn.
Frá upphafl til álvers
►Bræðsla var hafin í vikunni í
álveri Norðuráls á Grundartanga.
Rætt er við upphafsmanninn, Ken-
neth Peterson. /10
Eyjarskeggjar verða
meglnlandsbúar
►t dag verður nýja Stórabeltis-
brúin formlega opnuð fyrir bflaum-
ferð. /14
Ljós stef na -
úthugsað nám
► Guðfinna Bjamadóttur, nýr
rektor Viðskiptaháskólans í við-
tali. /22
Mikil gróska
►í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við hjónin Sig-
rúnu Guðmundsdóttir og Rodolphe
Giess sem reka verslanirnar Du
Pareil au meme. /26
1________________________
► l-20
Friður og kyrrð
►Tíminn stendur í stað hjá Veigu
í Syðri-Neslöndum í Mývatnssveit.
/í&io-n
Þá fóru stúlkur
f stærðf ræði
►Fyrir rúmum þrjátíu árum var
heill stúlknabekkur úr stærðfræði-
deild MR útskrifaður. Hvað varð
um þær þegar út í lífið var komið?
/6
iúragarður
kvikmyndanna
►Frá kvikmyndahátíðinni í Can-
nes — hvernig ganga hlutirnir fyr-
ir sig í stærsta kvikmyndaþorpi
heims sem rís í tíu daga ár hvert?
/14
FERÐALÖG
► 1-4
Indland
►Fábrotið mannlíf í mikilfenglegu
umhverfi /2
Gisting í aldargömlu
veiðihúsi
►Heimsókn í elsta veiðihús lands-
ins við Langá á Mýrum, hefur nú
fengið nýtt hlutverk. /3
D BÍLAR
► 1-4
Hægar breytingar í
hálfaöld
►Gamli góði Land Roverinn er
enn í fullu gildi en heitir nú Def-
ender. /2
Reynsluakstur
►BMW 318i — fágaður gæðingur
sem gleður hjartað /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► 1-24
Tölvuvandamál
árið 2000
►Rafverktakar vara við andvara-
leysi. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak ídag 44
Leiðari 28 Brids 44
Helgispjall 28 Stjömuspá 44
Reykjavtkurbréf 28 Skák 44
Skoðun 31 Fólk [ fréttum 46
Minningar 32 Útv./sjónv. 42,54
Myndasögur 40 Dagbók/veður 55
Bréf til blaðsins 40 Mannl.str. 12b
Hugvekja 44 Dægurtónl. 17b
INNLENDAR FH ÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6