Morgunblaðið - 04.03.1998, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1998 47
FÓLK í FRÉTTUM
Beitt
kímni
TðNLIST
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
FRÁ lokatónleikum Á túr en hana skipa Fríða Rós Valdimarsdóttir,
hljómborðsleikari, Kristbjörg Kristjánsdóttir sellóleikari, Elísabet
Ólafsdóttir, söngkona, og Birgir Örn Thoroddsen slagverksleikari.
Geisladiskur
PÍKA
Píka, hljómplata hljómsveitarinnar Á
túr. Á túr skipuðu Elísabet Olafsdótt-
ir söngkona, Kristbjörg Kristjáns-
dóttir sellóleikari, Fríða Rós Valdi-
marsdóttir hljómborðsleikari og
Birgir Orn Thoroddsen slagverks-
leikari. Þeim til aðstoðar voru Ólafía
Erla Svansdóttir flautuleikari og
Drífa Kristjánsdóttir sem syngur í
einu lagi. Hljómsveitin semur saman
öll lög en Elísabet semur texta.
Smekkleysa sm/ehf. gefur diskinn út.
24,20 mín.
HLJÓMSVEITIN Á túr vakti
mikla athygli þegar hana bar fyrst
fyrir augu og eyru á Músíktih-aunum
fyi-ir tveimur árum fyrir óvenjulega
hljóðfæraskipan, einkar kraftmikinn
söng og tilfínningai-íkan og texta
sem voru ögrandi uppskurður á við-
teknum gildum og venjum. Skammt
er síðan sveitin sleit svo samstarfínu,
ekki síst vegna þess að liðsstúlkur
voru á förum til langdvalar erlendis,
en áður en af því varð sendi hún frá
sér stuttskífuna Píku sem hér er
gerð að umtalsefni.
Eins og getið er var hljóðfæra-
skipan Á túr óhefðbundin, selló, rödd
og hljómborð, þó stundum hafi slag-
verk fylgt með. Það mæddi því mikið
á söngnum á tónleikum og á skífunni
og Elísabet stendur sig þar með
mikilli prýði; syngur ævinlega af inn-
lifun og beitir röddinni skemmtilega
til að undirsti'ika inntak textanna,
sem eru efth- hana.
Eins og fram kemur á textablaði
er Píka „stelpudiskur með stelpu-
textum og einskonar lokakafli á
þroskaskeiðinu stelpa-kona“. Þannig
er lögunum skipað niður á disknum
að þau segja frá því er stúlka verður
kynþroska og síðan frá þroskaferli
hennar fram til þess að hún gengur
með barn, en í lokin eru tvær merki-
legai- yfírlýsingar; Menn verða ein-
faldlega að bera virðingu fyini' mér
og Kastrat.
Textar plötunnar ei-u sumir
hranalega fram settir, ekki síst til að
vekja áheyranda til umhugsunar, en
tónlistin er líka vel til þess fallin að
ýta við þeim sem á hlýðir, til að
mynda á köflum skerandi falskur
sellóleikur, mínimalískt píanóspil og
hrátt slagverk. Elísabet sveiflar
röddinni frá kontralt upp í sópran
eftir því sem við á, öskrar, stynur og
emjar. Hún syngur til að mynda
skemmtilega neðarlega í Feit og fal-
leg, en sveiflar sér svo upp í hæstu
hæðir í næsta lagi, Nekt, og spilar
þar á raddskalann sem mest hún má.
Einnig er vert að nefna afbragðs-
söng í rokkkeyrslunni Kastrat.
Lögin á Píku eru misjöfn að gæð-
um og gerð, en hafa öll nokkuð til
síns ágætis. Best eru lögin Nekt,
Menn verða einfaldlega að bera virð-
ingu fyrir mér, sem tekið hefur
stakkaskiptum frá því sem var á
fyrstu tónleikum sveitarinnar, og
Kastrat, afbragðs rokklag með
magnaðri keyrslu og taktskipting-
um, sem eru vel í samræmi við öfga-
kenndan textann. Besta lag plötunn-
ar er þó Móðir, með frábærlega gríp-
andi klifandi og undirstrikar að Á
túr var fráleitt búin að syngja sitt
síðasta þegar hún hætti.
Vert er að geta umslags plötunnar
sem er skemmtileg hugmynd og
gengui- vel upp.
Beitt kímnin sem einkennir plöt-
una alla gerir sitt til að skipa henni á
sess með merkilegustu skífurn síð-
asta árs og væntanlega (vonandi)
eiga Á túr-stúlkurnar efth' að láta
frekar að sér kveða í íslensku rokki á
næstu árum.
Árni Matthíasson
► FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Músík og Mótor samein-
uðu fyrir skömmu starfsemi Hraunsins, sem var
æfingahúsnæði fyrir hafnfírskar unglingahljóm-
sveitir, og Mótorhússins undir einn hatt. í boði
voru veitingar af tilefninu auk þess sem hljómsveit-
in Stolía lék nokkur lög og hljómsveitin Hraunarar
stóð fyrir spunaspili. Skemmtileg stemmning var á
svæðinu og var bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Ingvar
Viktorsson, meðal annarra viðstaddur.
KRíSTJÁN Magnússoi, Böðvar Oddsson, Hörð-
Stefa«sson og Alexander tílfsson.
2"SHS2E£JS3S£Kí
nokkra tóna hljoma.
Sameining
í Hafnarfirði
HLJOMS VEITIN Hraunarar lék „okkur lög,
samemingardaginn.
MYNPBOND______
Systrauppgj ör
Herbergið hans Marvins
(Mandn/s Room)__________________
I) r a in a
★ ★Ví2
Framleiðandi: Scott Rubin/Tibeca.
Leikstjóri: Jerry Zaks. Handritshöf-
undur: Scott McPherson eftir eigin
leikriti. Kvikmyndataka: Piotr Sob-
ocinski. Tónlist: Rachel Portman. Að-
alhlutverk: Leonardo DiCaprio,
Mei-yl Streep, Diane Keaton og Rob-
ert De Niro. 94 mín. Bandaríkin.
Miramax/Skífan. títgáfud: 11. febrú-
ar. Myndin er öllum leyfð.
ÞAÐ kjósa ekki allir að fara
sömu leið í lífinu, og annað verður
ekki sagt um systurnar sem þessi
mynd fjallar um. Bessie er ánægð
þar sem hún sér um föður sinn sem
er legusjúklingur og Ruth frænku
sem er orðin gömul og brothætt.
Þegar Bessie kemst að því að hún
er með krabbamein í beinmerg
hringir hún í systur sína í fyrsta
sinn í 20 ár. Óþæga systirin Lee
kemur með drengina sína tvo til
Bessiar, en annar þeirra hefur ver-
ið á geðdeild og hinn er gáfnaljós.
Nú fá allir að kynnast.
Mannleg mynd um venjulegt
fólk og erfiðu hliðarnar á lífinu.
Fjölskylduuppgjör með öllu til-
heyrandi, sem sýnir hvað fólk get-
ur verið viðkvæmt fyrir fjölskyld-
unni og útilokar aðra einstaklinga
án þess að reyna
að skilja hvað
þeir eru að
hugsa. Þetta
hljómar ekki sér-
staklega skemm-
tilega eða upp-
lífgandi og mynd-
in er það heldur
ekki alltaf, en
samt heldur hún
manni við skjáinn
allt til enda. Inn á milli er hún létt
væmin eins og geta má en það virk-
ar alveg.
Fríðui' flokkur leikara sér um að-
alhlutverkin og leika Meryl Streep
og brosandi konan Diane Keaton
systm-nar tvær. Streep er uppreisn-
arseggurinn og leikur töffara og
frekar „vúlgar“ konu og það er
gaman að sjá henni takast það bara
ansi vel. Diane leikm- Bessie hina
góðu og er frábær eins og alltaf.
Toppstjaman í dag Leonardo DiCa-
prio leikur geðsjúklinginn Hank
sem er nú reyndar bai-a viðkvæmur
drengur. Hann stendur sig vel, en
hlutverkið býður ekki upp á sérlega
mikið. Það er helst að hann sé í
fýlu allan tímann. Robert De Niro
er í frekar litlu hlutverki sem
læknir.
Frekar alvarleg mynd um mann-
legan misskilning og misjafnar lífs-
leiðir.
Hildur Loftsdóttir
fDatargcrð ©ríkkja ber með
kcím ftlíðjarðarþafö-matrciðslu
og cr vírt víða um þcím sökum
nákvarmrar notkunar krydda og
kryddjurta. Crarnmctí cr ómíss-
andí þáttur í matrcíðslunní og cr
þráefníð afar fjölbrcytt. Café
Ópcra býður gestum stnum upp
á sannkallaða vcíslu, þar scm
grískír rcttír og grísk stemmníng
cr í þávcgum þöfð.
Lustaufci
Attirgestirfá grískar ótijur og
CivítCaul^sósu ásamt nýÉöfeiðu
ótifuÉrauði
'Forréttir
Síið Heimslqinnafiríslja satat
framreitt með staupi af ouzo
eða
Terríne úrfiriííuðu firtznmeti
framreitt með rauðvíns-vinaigrette
5\ðaCréttir
Qufusoðinn jjorsfur „TCafrí
eða
jurtamarinerað Cam6 á teini með
Coriander-jófiúrtsósu
eða
brasseraður sítrónulgútfinfiur með
ótifum ofifytitri papriliu.
‘Eftirréttur
‘EftirCceti Qrikfjans Zor6a,
cCöðCubaéa með rjóma
‘Verð íq. 3.200pr. mann
Jfafið sanéand
í síma 552 9499
Við komum manneskjum tilþroska - faglega ogpersónulega &
Fáið nánari upplýsingar:
wunv. horsens. ih. dk
- eða hringið í síma 00 45 75 62 88 11
Byggingatœknifrœðingur
Véltœknifrœðingur
Utflutningstœknifrœðingur
INGENI0RH0JSKOLEN I HORSENS
Chr. M. 0stergaards Vej 4 . DK 8700 Horsens . Sími 00 45 75 62 88 11 . Fax 00 45 75 62 64 56 . www.horsens.ih.dk