Morgunblaðið - 04.03.1998, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
Bréf til
Gunnars
Frá Jóni Kjartanssyni:
í 20 ÁRA sögu Leigjendasamtak-
anna hafa aldrei komið upp deilur
innan þeirra og stundum hef ég
brosað þegar upphlaup hafa orðið
annars staðar og félagar rifíst í
fjölmiðlum. Hér hefur heldur ekki
verið eftir miklu að slægjast öðru
en útgjöldum og ánægju með ár-
angur þegar lausnir fást á erfiðum
málum. Því var vissulega harms-
efni þegar Reynir Ingibjartsson
rauk í Morgunblaðið með fúkyrði
um félaga sína en til vamar R-
listakellingunum fyrir sölu á íbúð-
um fátækasta fólksins í borginni til
hlutafélags sem lýst hefur yfir tvö-
fóldun leigunnar. I Morgunblaðinu
18.2. sl. kemur svo nýr skriffinnur
til sögunnar að verja Reyni.
Þannig kemur hver tuskudúkkan
eftir aðra til að verja illvirki R-list-
ans meðan borgarstjómin sjálf sit-
ur þegjandi.
„Kunnugleg stelling“
Eins og hér er siður byrjar
Gunnar Jónatansson á svívirðing-
um. Hann segir að Jón hafi farið í
„sína kunnuglegu stellingu“, þ.e.
„að hrópa hátt og slá fram fullyrð-
ingum án nokkurs rökstuðnings"
og að ég úthrópi leigusala sem
glæpamenn! Þetta em að mati
Gunnars einu vandræðin á leigu-
markaðnum og segir sitt um hann.
Eg ætla þó af þessu tilefni að leyfa
mér að minna Gunnar á að hefði ég
aldrei farið í hina „kunnuglegu
stellingu" væra hér engin Leigj-
endasamtök, enginn Búseti, engin
húsaleigulög, engar húsaleigubæt-
ur og enginn til að standa á rétti
leigjendanna, en Gunnari
Jónatanssyni er líklega sama um
það einsog annað sem varðar fólk.
Búseti er ekki
saklaus
Eins og orð Gunnars bera með
sér hefur Búseti, eins og fleiri,
löngu slitið tengslin við upprana
sinn og veit ekki lengur til hvers
hann var stofnaður. Búseti er held-
ur ekki eins saklaus af sölu leigu-
íbúðanna og hækkun leigunnar og
Gunnar segir. Fyrir þremur árum
var Búsetamaðurinn Þórarinn
Magnússon verkfræðingur í makki
við borgarstjóra um kaup á íbúðum
og hækkun leigu. Búseti hafði hug
á að kaupa íbúðimar og leiguíbúðir
Hafnarfjarðar líka. Húsnæðis-
stofnun mun hafa stöðvað kaupin.
Vegna þessa vora gerðir við fólkið
nýir leigusamningar sem renna út
mánuði eftir kosningar og vegna
þessa er nefndur Þórarinn í stjórn
Félagsbústaða hf. Borgarstjóm
hefur því haft rúm þrjú ár til að
setja sér reglur um aðstoð við
leigjendurna, hafi það verið ætlun-
in. En það var ekki ætlunin, enda
yfirlýst að losna ætti við óæskilegt
fólk sbr. orð borgarstjóra um
happdrættisvinninga! Það var fyrst
eftir viðbrögð Leigjendasamtak-
anna og leigjendanna sjálfra sem
byrjað var að tala um bætur, en
fregnir herma nú að reglur um þær
muni koma eftir u.þ.b. mánuð, þ.e.
hálfu ári eftir söluna!!!
Peningar móðins, fólk
gamaldags
Gunnar kemur upp um sig í
greinarlok. Hann segir „ákaflega
gamaldags" að líta á hús sem
samastað fyrir fólk. Þetta þýðir
víst að peningar séu móðins en
fólkið gamaldags og þarf ekki fleiri
orð um það. Hann segir líka að
húsnæði sé eins og hver önnur
markaðsvara og verði að ráðast
hvort fólk geti borgað, því það
„hefur ekkert með tekjur viðkom-
andi að gera“. Öll barátta mín sl. 20
ár hefur verið háð gegn þessu við-
horfi, líka stofnun Búseta. Það er
þessi stefna sem eyðilagt hefur al-
þýðuheimilin hér á landi og annars
staðar í stóram stíl og það er einn
versti glæpur sem ég þekki. Búseti
er enginn kostur fyrir fátækt fólk
og félagslegar eignaríbúðir enn
síður. Um aðra kosti er ekki að
ræða og því er enginn góður kostur
til fyrir þetta fólk. Það er eina af-
rek R-listakellinganna á liðnu kjör-
tímabili.
JÓN KJARTANSSON,
Formaður Leigjendasamtakanna.
■ Nýtt frá París ■
Hárgreining og ráögjöf
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Frábær leik-
sýning
ÞÓRA hafði samband við
Velvakanda og vildi koma
á framfæri aðdáun sinni á
flutningi leikritsins Feitú
menn í pilsum sem sýnt er
á litla sviði Borgarleik-
hússins. Frábær skemmt-
un, góður leikur og leikar-
ar. Hún vill færa aðstand-
endum þakkir sínar og
vonast til að sem flestir
sjái sýninguna.
Rétt skal
vera rétt
MEÐ grein Péturs Pét-
urssonar um Halldór Lax-
ness í Mbl. á útfarardegi
hans, hinn 14. febrúar sl.,
var birt mynd af Halldóri,
Þórbergi Þórðarsyni,
Eggerti Stefánssyni og
Sigurði Skagfield á hafn-
arbakkanum í Leith árið
1930. Þeir voru þá á heim-
leið, og Halldór og Þór-
bergur að koma af rithöf-
undaþingi í Ósló. í texta
undir myndinni stendur
„óþekktur ljósmyndari“.
Þetta er beinlínis rangt.
Hann er ekki óþekktari en
svo, ef menn hefðu kynnt
sér málið, að vitað er, að
myndina tók eiginkona
Halldórs, Ingibjörg Ein-
arsdóttir. Hún var í þess-
ari ferð með skáldinu, og
var þetta raunar brúð-
kaupsferð þeirra. Eru til
fleiri myndir úr ferðinni,
sem Ingibjörg tók, eða
teknai' voru á myndavél
hennar. Þetta má einnig
sjá í endurminningabók
hennar (Silja Aðalsteins-
dóttir: „I aðalhlutverki
Inga Laxness", Rv. 1987,
bls. 108). Eðlilegt hefði
verið að leita til kunnugra,
áður en rangfærslan var
prentuð. Rétt skal vera
rétt.
Einar Laxness.
Góugleði
SJÖFN í Hafnarfírði hafði
samband við Velvakanda
og vildi koma á framfæri
þakklæti til félagsmið-
stöðvarinnar Vitatorgs.
Föstudaginn 27. febrúar
voru samankomnar á Góu-
gleði 130 konur í boði fé-
lagsmiðstöðvarinnar Vita-
torgs. Þetta voru konur á
aldrinum 70-90 ára. Mjög
góður matur var og fal-
lega fram borinn. Þessu
var öllu stjórnað af kon-
um. Þarna kom leynigest-
ur sem sex konur voru
fengnar til að finna út
hver væri, ungur maður
um þrítugt. í ljós kom að
þetta var Helgi Seljan
sem hélt síðan ræðu til
kvennanna. Mörg fleiri
skemmtiatriði voru á
boðstólum t.d. tískusýn-
ing. Sjöfn segir að mikið
sé gert fyrir eldra fólk og
að yngra fólk geti hlakkað
til þess að eldast.
Tapað/fundið
Lyklakippa
fannst
Á HORNI Klapparstígs og
Grettisgötu fannst vegleg
lyklakippa í gær. Eigand-
inn getur vitjað hennar í
Listhúsinu Sneglu í s: 562
0426.
Kettlingur
STÁLPAÐUR kettlingur,
svartur með hvítan blett á
hálsi og smávegis hvítt á
kviði fannst i Garðabæ við
Vífilsstaðaveginn. Eigandi
vitji hans í s: 565 8035.
Síður jakki
FÖSTUDAGINN 20. febr-
úai' var svartur síður kven-
mannsjakki með loðki'aga
afhentur í misgripum í
fatahengi á Skuggabar,
peningar voru í vasa. Vin-
samlega hafið samb. á
Hótel Borg veitingadeild s:
551 1247.
Fatnaður í
óskilum
TÖLUVERT af fatnaði er
í óskilum á Hótel Borg, ef
einhver af okkar gestum
telur sig hafa tapað fatnaði
hér þá vinsamlega hringið
inn og athugið málið í s:
551 1247 milli kl 14-17
virka daga.
SKÁK
flmsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á stór-
mótinu í Linares á Spáni
sem nú stendur sem hæst.
Indverjinn Anand (2.770)
var með hvítt og átti leik
gegn Rússanum Peter
Svidler (2.690).
37. g4! - Rh4 (Eða 37. -
Hxd2 38. gxf5 - Rh4 39.
Bxd2 - Rxf3 +
40. Kf2 - Rxd2
41. Rxe6 og
hvítur vinnur)
38. gxf5 -
Rxf3+ 39. Khl
- Rxd2 40.
He2 - Rc4
(Einnig 40. -
Hxc5 41. 41.
Hxc5 - Rxb3
42. Hb5 -
Rxd4 43. Bxd4
- Bxd4 44.
Hxe6 - Bf6 45.
Hxd5 er tapað
á svart) 41.
Hxc2 - Rxe3
42. He2 og svart-
ur gafst upp því endataflið
er tapað.
Öllum skákunum þremur
í áttundu umferð á mánu-
dagskvöldið lauk með jafn-
tefli. Shirov var með svart
gegn Anand en var ekki í
neinum vandræðum með að
jafna taflið. Kasparov gat
ekki unnið Svidler með
hvítu og ekki fengust heldur
úrslit hjá þeim Ivantsjúk og
Kramnik þrátt fyrir 74
leikja barning. Shirov held-
ur því enn forystunni á mót-
inu.
HVÍTUR leikur og vinnur
HÖGNI HREKKVÍSI
Laurette Pieters, hársérfræðingur frá j.f. lazartlgue í
París, verður með hárgreiningu og ráðgjöf um notkun
hárefna frá j.f. lazartigue í Skipholts Apóteki
fimmtudaginn 5. mars frá kl. 13:00 - 18:00.
Með j.f. lazartigue efhum
má leysa ýmis hárvanda-
mál, s.s. þurrk- eða fitu-
vandamál í hári, kláða í
hársverði, minnka hárlos
og flösu.
Einnig verða kynntir nýjir
náttúrulegir háralitir frá
j.f. lazartigue sem
innihalda engin skaðleg
efni, eins og peroxíð og
ammóníak.
Verið velkomin
■
*
Skipholts Apótek
Skipholt 50C • Sími 55 1*7234
Víkveiji skrifar...
AÐ kemur Víkverja hvað eftir
annað á óvart hversu mikil
dómharka ákveðinna lesenda Morg-
unblaðsins getur verið, þegar Morg-
unblaðsfólki verður eitthvað á í
messunni, annaðhvort þegar prent-
villupúkinn ásækir starfsmenn, eða
þegar þeim verður það á að láta
rangt málfar eða málvillur frá sér
fara á prenti. Þeir eru ófáir sem
hringja á ritstjórn Morgunblaðsins
þegar slíkt ber við og sumir eiga
það þá til að úthúða blaðamönnum á
hreint ótrúlega fjölbreyttan hátt og
finna þeim bókstaflega allt til for-
áttu, jafnvel þótt á daginn komi, við
nánari eftirgrennslan, að ásakanir
þeirra eigi ekki við rök að styðjast.
x x x
YÍKVERJI tók á móti einni
slíkri hringingu fyrir nokkrum
dögum, þar sem eitt orð í fyrirsögn
varð kveikjan að upphringingunni -
það var sögnin að tálma, sem birtist
í þátíð, þriðju persónu eintölu og
var í þessu tilviki látin stjóma þol-
falli. Þannig var fyrirsögnin í þessu
tilviki svohljóðandi: „Veðurofsi
tálmaði sjúkraflutninga með smá-
barn.“ Eftir að hafa lesið viðkom-
andi fyrirsögn, sem að sögn viðmæl-
andans reyndist vera algjört reiðar-
slag, hringdi viðmælandinn í Vík-
verja og mátti vart mæla fyrir
bræði. Blaðamenn Morgunblaðsins
voru svo óupplýstir og illa að sér, að
augsýnilega höfðu þeir upp til hópa
hvorki lokið barnaskólaprófi né
gengið til prestsins! Víkverji var
spurður hvemig það gæti gerst að
einhver væri ráðinn að Morgunblað-
inu, sem vissi ekki að sögnin „að
tálma“ stjórnar þágufalli.
XXX
I^ÍSLENSKRI orðabók Menning-
arsjóðs segir: „tálma, -aði s, koma
í veg fyrir, hindra; tefja: t. e-u, t. e-
ð.“ Af þessu má glöggt sjá að ekki
lélegri heimild en Orðabók Menn-
ingarsjóðs gefur upp tvennskonar
fallstýringu af sögninni tálma, þ.e.
þágufall og þolfall. Blaðamaðurinn
sem skrifaði viðkomandi fyrirsögn,
kaus að nota þolfallsbeyginguna, en
hinn reiði lostni upphringjandi taldi
að einungis mætti nota þágufallið á
eftir sögninni. Báðir höfðu sem sagt
rétt fyrir sér. Nú má vel vera að
þágufall með sögninni tálma sé upp-
runalegra en þolfallið - í þeim efn-
um hyggst Víkverji alls ekki gerast
neinn dómari.
xxx
AUÐVITAÐ verður Morgun-
blaðsfólki á í messunni eins og
öðram, þegar um frágang á rituðu
máli er að ræða. Það er ósköp
mannlegt að skjöplast. Þegar mis-
tökin eru alvarleg eða sérlega hvim-
leið, er það starfsregla hjá Morgun-
blaðinu að leiðrétta mistökin í sér-
stökum leiðréttingadálki. Það er
metnaður þeirra sem starfa við
Morgunblaðið, að það komi út á
réttu og góðu máli og óskastaðan er
auðvitað sú, að gefið verði út villu-
laust Morgunblað. Slíkar óskir eru
þó vart raunhæfar, þegar haft er í
huga að Morgunblaðið er að jafnaði
90 blaðsíður á dag, eða 540 blaðsíð-
ur á viku.