Morgunblaðið - 04.03.1998, Page 36
-<36 MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ÞORARINN B.
ÓLAFSSON
+ Þórarinn Böðvar
Ólafsson fæddist
í Reykjavík 20. mars
1935. Hann lést á
Landspítalanum að
kvöldi 23. febrúar
síðastliðins. Foreldr-
ar hans voru Erla
Þórarinsdóttir Egil-
son, f. 24.1. 1912, d.
3.6. 1997, og Ólafur
Geirsson, aðstoðar-
yfirlæknir á Vífils-
stöðum, f. 27.5.
1909, d. 22.7. 1965.
Systkini Þórarins
eru: 1) Skúli, f. 12.4.
1940, framkvæmdastjóri í
Reykjavík, kona hans er Sigrún
Margrét Ragnarsdóttir, f. 22.7.
1942. 2) Elísabet Erla, f. 7.12.
1942, gift Olaf Bjarne Paulsen, f.
22.7. 1942, prófessor og yfir-
lækni í Kaupmannahöfn.
Þórarinn kvæntist 5.1. 1974
Björgu Ólafsson, f. 25.1. 1946 í
Noregi. hjúkrunarframkvæmda-
sljóra í Blóðbankanum. Þórarinn
og Björg eignuðust tvö börn:
Oddrúnu Kristínu, f. 20.2. 1974,
nema í hjúkrunarfræði við HI,
og Geir Þórarin, f. 6.5. 1978,
nema í MR. Áður átti Þórarinn
fjögur börn: Erlu, f. 22.9. 1955,
myndlistarmann, og Þóru, f. 6.7.
1960, kennara, gifta Oddi Þ.
Hermannssyni, f. 27.6. 1960,
móðir: Guðrún K. Þorbergsdótt-
ir. Þórodd, f. 7.8. 1959, þroska-
þjálfa, og Guðmund Helga, f. 7.8.
1959, vélstjóra, kvæntan Lauf-
eyju Sveinbjörnsdóttur, f. 2.7.
1959, móðir: Ragnheiður Ó. Guð-
mundsdóttir. Þórarinn átti fjög-
ur barnabörn.
Þórarinn ólst upp
í Hafnarfirði, Kaup-
mannahöfn og á Víf-
ilsstöðum. Hann út-
skrifaðist úr MR
1954 og varð
cand.med.chir. frá
HÍ 1961 og tók
ECFMG (Ed-
ucational Council
for Foreign Medical
Graduates) í Banda-
ríkjunum 1961.
Hann hlaut lækn-
ingaleyfi á Islandi
1963, í Danmörku
1966, Svíþjóð 1969 og Noregi
1972. Hann stundaði nám við
Nordiska Hálsovárdsskolan í
Gautaborg 1971 og 1972 í
sjúkrahússljórnun. Árið 1973
hlaut hann sérfræðiviðurkenn-
ingu í svæfinga- og gjörgæslu-
læknisfræði í Svíþjóð og á fs-
Iandi. Hann hlaut Evrópu-
diplóma European Academy of
Anaesthesiologists 1977 og var
gerður heiðursfélagi í Svæfinga-
læknafélagi Islands í október
1997.
Hann starfaði á Islandi, í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð. 1. jan.
1975 var hann skipaður yfir-
læknir við svæfinga- og gjör-
gæsludeild Landspítalans, þeirri
stöðu gegndi hann til dauðadags.
Þórarinn sat í fjölmörgum
nefndum og stjórnum fyrir hin
ýmsu félagasamtök hérlendis og
erlendis.
Útfór Þórarins fer fram frá
Hallgrímskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Elsku pabbi okkar. Okkur langar
að kveðja þig með ljóði:
Hér við skiljumst,
og hittast munum
á feginsdegi fira.
Drottinn minn
gefi dauðum ró,
en hinum líkn er lifa.
(Úr Sólarljóðum)
Það er erfitt að koma orðum að
því hvað þú hefur verið okkur mikils
virði. Þú varst gull af manni, besti
pabbi sem nokkur getur hugsað sér
að eiga. Þú gafst okkur svo ómetan-
lega mikið. Fyrir það verðum við
ævinlega þakklát.
- Þú fékkst að „sofna inn“ eins og
*þú kallaðir það en við vitum í hjört-
um okkar að þú verður alltaf með
okkur í huganum og að einhvern
daginn munum við hittast á ný.
Þannig leist þú á það og það gerum
við líka.
Kristín og Geir.
Skjótt hefur guð brugðið gleði góð-
vina þinna. Svo orti Jónas Hall-
grímsson þegar skáldbróðir hans fór
af þessum heimi fyrir aldur fram.
Og þannig getum við sagt nú, vinir
Þórarins B. Ólafssonar, þegar hann
ér fallinn í valinn.
Þórarinn var vandaður maður,
greindur og ósérhlífinn, enda hlóð-
'~*ust vandasöm störf á hendur hans.
Hann var síðast yfirlæknir á svæf-
inga- og gjörgæzludeild Landspítal-
ans og gegndi því starfi af kost-
gæfni. Auk þess kenndi hann stúd-
entum fræði sín, þæði hér heima og
erlendis. Hann var einnig í forsvari
fyrir stétt sína, bæði hér heima og í
samstarfi utan lands. Að slíkum
manni gengnum er sjónarsviptir, en
þó er missir þeirra mestur sem
stóðu honum næst, bama og eigin-
konu.
Ég kynntist Þórarni bezt á bökk-
um Laxár í Aðaldal. Við vorum þar í
veiðiferð, en Þórarinn tók þar við
merki fóður síns, Ólafs Geirssonar,
yfiriæknis á Vífilsstöðum. Hann
ásamt öðrum ágætum mönnum átti
drjúgan þátt í að móta Laxárfélagið.
Þeir sem einu sinni byrja að veiða
í Laxá halda því áfram meðan þrek
leyfir. Við vorum saman í veiðihóp,
og ár hvert fórum við norður, dvöld-
umst þar við ána, þessa nátt-
úruperlu, hvernig sem viðraði og
köstuðum flugu fyrir lax. Auðvitað
var oftast sólskin, að minnsta kosti
hið innra. Við veiðifélagar nutum
þess að eiga hver annan að. I þess-
um hópi bundust menn trúnaðar-
böndum sem ávallt hafa haldið og ég
hef búið að. Þórarinn var hógvær
maður, en hann var fastur fyrir og
studdi félaga sína í bh'ðu og stríðu.
Hann gegndi trúnaðarstörfum fyrir
Laxárfélagið og lét sér einkar annt
um ána og umhverfi hennar. Mér er
ekki grunlaust um að bændur í Að-
aldal hafi átt hauk í homi þar sem
Þórarinn var.
Hópurinn okkar hefur smám sam-
an breytzt og er sífellt að breytast,
böm fylgja föður og taka við. Maður
kemur í manns stað. Svo hefur það
löngum verið. Þórarinn kemur ekki
með okkur í sumar. Þar er skarð
fyrir skildi. En allar ferðir taka
enda. Við kvöddumst með virktum í
lok hverrar veiðiferðar. Nú kveð ég
traustan vin síðasta sinni og þakka
honum að leiðarlokum hjartahlýju
og efthTninnilega og lærdómsríka
samfylgd. Fljúgðu á vængjum
morgunroðans meira að starfa guðs
um geim, sagði Jónas um vin sinn
látinn. Ég geri þau orð að mínum
um leið og ég sendi Björgu og börn-
um þeirra innilegar samúðarkveðjur
fyrir mína hönd og okkar allra í
veiðiflokknum og Laxárfélaginu.
Orri Vigfússon.
Góður drengur er genginn. Þórar-
inn Ólafsson gekk til liðs við okkur í
Lionsklúbbnum Ægi á árinu 1983.
Hann hreifst fjótt af aðalverkefni
Ægis, sem er umhyggja fyrir heim-
ilisfólkinu á Sólheimum í Grímsnesi;
og lagði þar drjúga hönd á plóginn. I
þjónustuklúbbum fer ekki hjá því að
félagar standi í ýmiskonar fjáröflun-
um, gangi í hús, selji smámuni svo
eitthvað sé nefnt. Þórarinn tók þátt í
starfi okkar af áhuga og hvatti fé-
lagana til dáða með ljúfmennsku
sinni og hógværð. Hann var formað-
ur klúbbsins starfsárið 1993-94 og
sat einnig í mörgum nefndum hans.
Á vegum Lionshreyfingarinnar á Is-
landi sat Þórarinn í læknanefnd um
Medic-Alert-kerfið, sem er öryggis-
kerfi fyrir sjúklinga stutt af Alþjóða
Lionshreyfingunni. Þórarinn sinnti
öllum störfum fyrir Lions af alúð og
framsýni.
Þegar félagar úr klúbbnum voru
lagðir inn á Landspítalann þar sem
Þórarinn starfaði heimsótti hann fé-
laga sína, fylgdist vel með þeim og
færði okkur fréttir af líðan þeirra.
Umhyggja hans og hjálpsemi í okk-
ar garð var einstök. Margir félagar
okkar eiga Ijúfar og góðar minning-
ar úr hópferðum sem farnar voru til
útlanda með þeim hjónum Þórarni
og Björgu.
Við í Lionsklúbbnum Ægi fylgjum
traustum félaga síðasta spölinn með
fána okkar, honum til heiðurs.
Við sendum eiginkonu hans, börn-
um og fjölskyldu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Þórarins Ólafs-
sonar.
Viðar Waage, formaður Ægis,
Tómas Grétar Ólason.
Eg kynntist Þórarni B. Ólafssyni
fyrst á námskeiði í skurðlækningum
á Landspítalanum. Hinn hávaxni og
myndarlegi læknissonur frá Vífils-
stöðum hafði markað framtíðar-
stefnuna og vissi glöggt hvað hann
vildi.
Hann var þá þegar vel að sér í
fræðunum og sýndi óvenjulegan
þroska og samviskusemi í þeim
störfum sem honum voru falin.
Tillitssemi hans og alúð við sjúk-
linga var við brugðið. Dugnaður og
harðfylgi við námið skilaði góðum
námsárangri. Eftir lokapróf, 1961,
starfaði hann nokkur ár hér heima,
en hélt síðan til Norðurlandanna í
sérfræðinám í svæfingum og gjör-
gæslu.
Að námi loknu starfaði hann um
tíma í Svíþjóð sem yfirlæknir á
svæfinga- og gjörgæsludeildum.
Hann fluttist heim 1975 og var þá
skipaður yfirlæknir á svæfinga- og
gjörgæsludeild Landspítalans og
gegndi því starfi til dauðadags. Það
var mikill happadagur fyrir Land-
spítalann þegar Þórarinn ákvað að
helga honum krafta sína.
Þá voi-u fáir svæfingalæknar
starfandi á Islandi, en þörfin fyrir
góða svæfingalækna varð æ brýnni
samfara miklum og örum nýjungum
í skurðlækningum.
Það kom brátt í ljós að Þórarinn
var mjög fær svæfinga- og gjör-
gæslulæknir.
Hann kunni sína sérgrein til hlítar
og hafði þá þegar öðlast mikla
reynslu.
Þau góðu kynni sem skapast
höfðu milli okkar þegar hann var í
námi áttu eftir að breytast í ævi-
langa vináttu, sem aldrei bar skugga
á. Þórarinn hóf strax að bæta að-
stöðuna fyrir svæfingar og gjör-
gæslu og barðist fyrir áframhald-
andi þróun þessara greina alla sína
starfsævi. Þetta skilaði góðum ár-
angri og eru nú báðar þessar grein-
ar vel skipulagðar, hafa á að skipa
úrvals starfsfólki og hafa skilað góð-
um árangri.
Ekkert sjúkrahús getur talist há-
tæknivætt, ef þessar greinar verða
útundan.
Hann hlýtur að teljast einn af
brautryðjendunum á þessu sviði hér
á landi. Þórarinn fylgdist vel með
öllum nýjungum. Hann sat fjölmörg
læknaþing erlendis og var ólatur að
fara í námsferðir. Félag svæfinga-
lækna mat þessi störf hans að verð-
leikum og gerði hann að heiðursfé-
laga á síðasta ári. Hann var um
skeið formaður þess félags var auk
þess forseti Félags norrænna svæf-
ingalækna og í stjórn evrópskra
svæfingalækna. Hann naut því mik-
ils álits meðal starfsbræðra sinna.
Þórarinn kenndi við Háskóla Is-
lands og heilbrigðisstéttum við aðra
skóla. Hann ritaði fjölda fræðigreina
í innlend og erlend fræðirit og
stundaði vísindarannsóknir. Á ní-
unda áratugnum voru deildir Þórar-
ins sameinaðar öllum handlækn-
ingadeildunum í svokallað Hand-
lækningasvið. Stjórnuðum við Þór-
arinn þessu stóra sviði til skiptis
næstu árin. Samvinna okkar varð
því meiri en áður.
I sameiningu reyndum við að
þoka áleiðis málefnum deilda okkar
og börðumst gegn skertri þjónustu
við sjúklinga og lokun deilda. I
þessu starfi sýndi hann samn-
ingalipurð, traust og festu. Árið
1983 gerðist Þórarinn félagi í Lions-
hreyfingunni. Hann varð strax mjög
virkur félagi og axlaði fljótt ábyrgð-
arstörf, m.a. formennsku í klúbbn-
um.
I þessum félagsskap naut sín vel
hans létta lund og kímni. Þórarinn
var dagfarspniður maður, mjög vel
gefinn, virtur og vel metinn af sam-
starfsfólkinu.
I langvinnum og erfiðum veikind-
um sýndi hann ótrúlegt þrek og
karlmennsku.
Þórarinn hafði þegar skilað miklu
og heillaríku ævistarfi. Hann brást
aldrei skyldu sinni og vildi ekki
vamm sitt vita í neinu.
Að leiðarlokum þakka ég áratuga
samstarf og fölskvalausa vináttu.
Við hjónin vottum frú Björgu, börn-
um þeirra og aðstandendum öllum
innilega samúð og biðjum þeim Guðs
blessunar í þeirra miídu sorg. Minn-
ingin lifir um mætan mann, góðan
dreng og tryggan félaga.
Hjalti Þórarinsson.
Þórarinn Ólafsson, forstöðulæknir
á svæfinga- og gjörgæsludeild
Landspítalans, er látinn.
Ég kynntist Þórami þegar ég var
nýútskrifaður, ómótaður læknir og
byrjaði að vinna undir handleiðslu
hans. Jafnvel þótt margir ætluðu
sér eingöngu að vinna hjá honum í
skamman tíma til þess að fylla upp í
námstímann, hafði það oft þær ör-
lagaríku afleiðingar að þeir enduðu
sem svæfinga- og gjörgæslulæknar.
Þórarinn hafði þá sérstöku eigin-
leika að láta okkur yngri læknunum
líða vel við vinnuna, vekja áhuga
okkar á henni og finnast við vera
mikilvægir starfsmenn strax frá
byrjun. Þórarinn var alltaf tilbúinn
að ræða málin, hjálpa til ef eitthvað
bjátaði á og aldrei var neitt hik á
honum þegar kom að því að ákvarða
framhaldsnám og þá í hvaða landi.
Þórarinn þekkti alls staðar ein-
hvern og áður en við vissum af var
hann búinn að ná símasambandi og
ganga frá málunum. Þórarinn hafði
víðtæk sambönd erlendis og miðlaði
gjarnan af reynslu sinni. Hann var
fulltrúi Islands í mörgum alþjóðleg-
um félögum tengdum svæfingum og
gjörgæslu. Þar vil ég sérstaklega
nefna Evrópufélag barnasvæfinga-
lækna. Þórarinn ásamt fleiri vís-
indamönnum vann mikið starf við
greiningu hérlendis á svokölluðum
illkynja háhita. Hann tók virkan
þátt í alþjóðlegu samstarfi við
greiningu og meðferð þessa sjúk-
dóms og skrifaði og flutti erindi um
rannsókir sínar bæði hérlendis og
erlendis.
Þórarinn var árum saman í for-
svari fyrir sérgrein sína, svæfinga-
og gjörgæslulækningar. Hann var í
stjórn Félags íslenskra svæfinga-
lækna 1975-77. í stjórn Norræna
svæfingalæknafélagsins var Þórar-
inn 1977-85, þar af varaformaður
1981-83 og formaður 1983-85. Þórar-
inn varð heiðursmeðlimur í Svaef-
inga- og gjörgæslulæknafélagi Is-
lands síðastliðið ár.
Ég vil fyrir hönd Svæfinga- og
gjörgæslulæknafélags íslands og
Norræna svæfingalæknafélagsins
þakka Þórarni fyrir störf hans.
Hans verður sárt saknað af öllum
sem þekktu hann. Við minnumst
hans sem frábærs félaga. Kímnis-
glampinn í augum hans og bros
ásamt öllum ánægjulegu stundun-
um munu lifa áfram í minningu okk-
ar.
Eftirlifandi eiginkonu hans,
Björgu, og börnunum hans vottum
við samúð okkar.
Aðalbjörn Þorsteinsson,
formaður Svæfinga- og
gjörgæslulæknafélags íslands.
í dag kveðjum við Þórarin Ólafs-
son forstöðulækni svæfinga- og
gjörgæsludeildar Landspítalans. Við
samstarfsmenn hans sjáum á eftir
yfirmanni okkar og vini á besta aldri
aðeins tæplega 63 ára gömlum. Eftir
nokkurra ára vanheilsu þar sem
hvert áfallið rak annað hafði hann
komist aftur til sæmilegrar heilsu og
átti um tíma ánægjulegar samveru-
stundir í faðmi fjölskyldu og vina.
Hafði hann margsinnis mátað
læknavísindin undanfarin ár með
baráttu sinni og jákvæðu hugarfari,
sem fleytti honum yfir hvert skerið
á fætur öðru. En enn eitt áfallið reið
þá yfir og eftir það varð ekki aftur
snúið. Bæði hann og umhverfi hans
höfðu á þessum erfiða tíma öðlast þá
ró og þann skilning sem þurfti til að
brottför hans úr þessum heimi varð
falleg stund í faðmi fjölskyldunnar.
Það varð mitt hlutskipti að beiðni
Þórarins að létta undir-með honum í
störfum hans síðustu misserin og
aðstoða hann þegar veikindin voru
farin að segja til sín. Starf hans
fylgdu oft erfðleikar, deilur og
samningar, sigrar og ósigrar. Það
tilheyrir nútímanum, ekki síst i heil-
brigðisgeiranum. Á milli okkar var
alltaf góður vinskapur og gagn-
kvæmur skilningur. Vil ég þakka
honum fyrir heiðarleika og traust í
minn garð.
Þórarinn lauk embættisprófi í
læknisfræði árið 1961. Sérfræðinám
í svæfingum og deyfingum stundaði
hann við háskólasjúkrahúsið í
Gautaborg og fékk réttindi í þeirri
grein árið 1971. Eftir að námi lauk
dvaldist Þórarinn áfram um tíma í
Svíþjóð og var m.a. yfirlæknir við
svæfinga- og gjörgæsludeild sjúkra-
hússins í Vánersborg-Trollháttan.
Árið 1975 var Þórarinn skipaður yf-
irlæknir svæfinga- og gjörgæslu-
deildar Landspítalans og síðar for-
stöðulæknir þeirrar deildar. Á
starfstíma sínum gegndi Þórarinn
einnig fjölda stjómunar- og trúnað-
arstarfa innan Landspítalans og var
m.a. í stjórn læknaráðs og vísinda-
sjóðs spítalans um tíma.
Ekki er hægt að fjalla um sögu
svæfinga á Islandi, án þess að
tengja hana Iífi og starf Þórarins.
Hann var einn af frumkvöðlum nú-
tímasvæfinga hér á landi og á hans
starfsferli urðu miklar framfarir og
breytingar innan þessarar sérgi-ein-
ar og átti hann stóran þátt í að hefja
hana til vegs og virðingar.
Félagsmálin voru Þórarni hug-
leikin og líklega munu fáir leika eftir
atorku hans á því sviði. Þórarinn var
sérfræðingur í mannlegum sam-
skiptum og kom það vel fram á þess-
um vettvangi. Hann sat í stjórn
fjölda fagsamtaka bæði hérlendis og
erlendis og var m.a. formaður í
Svæfingalæknafélagi íslands og
Norræna svæfingalæknafélaginu.
Hann var forseti á þingi norrænna
svæfingalækna í Reykjavík árið
1985. Þá sat hann í ýmsum stjórnum
innan læknasamtakanna og ýmissa
almannasamtaka. Þórarinn var heið-
ursfélagi í Svæfíngalæknafélagi Is-
lands.
Af rannsóknarstörfum hafði Þór-
arinn sérstakan áhuga á illkynja há-
hita en þessi sjaldgæfa illvíga sjúk-
dómsmynd, sem getur leyst úr læð-
ingi við svæfingar átti hug hans allan
síðustu árin. Var hann meðlimur í
Evrópusamtökum um þennan sjúk-
dóm og vann hann ásamt öðrum
brautryðjendastarf hér á landi í
skimun og rannsóknum á honum.
Þórarinn var óvenju greiðvikinn, vel-
viljaður og einstaklega vinsæll mað-
ur, enda hópaðist alls staðar fólk að
honum. Það var aldrei lognmolla þar
sem hann fór. Hann var ræðinn,
sagði oft skemmtilega frá og vildi
helst hafa mikið af fólki kringum sig.
Þannig leið honum best.
Á læknaþingum erlendis var
hann venjulega hrókur alls fagnað-
ar. Fjöldi manna úr öllum heims-
hornum var honum kunnugur.
Þannig var einstaklega gaman að
vera nálægt honum á mannamótum.
Þá var hann snjall tungumálamað-
ur. Oft töluðum við vinnufélagarnir
um þessa hæfileika hans. Ungum
læknum kom hann til náms gegnum
persónuleg sambönd bæði austan
hafs og vestan. Það var með ólíkind-
um hvað hann þekkti marga og hvað
hann var fljótur að koma málum
áfram. Við unga lækna, sem höfðu
starfað hjá honum og voru farnir til
náms erlendis, hélt hann alltaf góðu
sambandi, fylgdist með hvernig