Morgunblaðið - 04.03.1998, Síða 13
MORGUNB LAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1998 13
AKUREYRI
Tillögu um byggingu tveggja stórra íþróttamannvirkja vísað í bæjarráð
Yfirbygging
skautasvells á undan
knattspyrnuhúsi
TILLÖGU fjögurra fulltrúa í bæj-
arstjórn Akureyrar um að hafin
verði bygging tveggja stórra
íþróttamannvirkja, knattspyrnu-
húss og skautahallar, sem stefnt
var að að yrðu tilbúin síðar á þessu
ári var eftir Iíflegar umræður á
fundi bæjarstjórnar í gær vísað til
frekari skoðunar í bæjarráði.
Meirihluti bæjarstjórnar var ekki
samstiga varðandi þetta mál.
Þórarinn E. Sveinsson, forseti
bæjarstjórnar og fyrsti flutnings-
maður tillögunnar, gerði grein
fyrir hugmyndum um framkvæmd
og fjármögnun vegna bygging-
anna, en gert er ráð fyrir að heild-
arkostnaður verði um 250 til 300
milljónir króna. Samkvæmt tillög-
unni er gert ráð fyrir að húsin
verði keypt á kaupleigu sem
greidd yrði á næstu tíu árum.
Nefndi Þórarinn að það yrði mikil
Iyftistöng fyrir bæinn yrðu þessi
hús að veruleika og myndu þau
virka sem segull innan íþrótta-
hreyflngarinnar, draga að sér
fjölda fólks en auk þess að nýtast
íþróttafólki gætu þau einnig orðið
ferðaþjónustu að liði.
Vík milli vina
„Nú er vík milli vina,“ sagði Jak-
ob Björnsson bæjarsfjóri, sem telur
ekki svigrúm til að ráðast í slíkar
stórframkvæmdir og sagði mörg
verkefni ofar á forgangslista.
I bókun bæjarfulltrúa Alþýðu-
bandalags kom fram sú skoðun að
það væri hlutverk nýrrar bæjar-
sfjórnar að taka ákvörðun um
byggingu íþróttamannvirkja sem
ekki væri veitt fé til á fjárhags-
áætlun ársins. Það yrði vissulega
mikii lyftistöng fyrir þessar
íþróttagreinar, en í áætlun sem
gildir til ársins 2001 lægju fyrir
óskir um ýmsar framkvæmdir á
sviði íþróttamála fyrir hundruð
milljóna. Þegar til framkvæmda í
anda tillögunnar komi sé skynsam-
legra að byggja annað mannvirkið
og er það skoðun fulltrúa flokksins
að þá sé yfirbygging skautasvells-
ins framar í forgangsröðinni.
Sigurður J. Sigurðsson og Val-
gerður Hrólfsdóttir, Sjálfstæðis-
flokki, lögðu fram tillögu um að
hefja þegar undirbúning að bygg-
ingu skautahúss og að því verði
lokið sem fyrst. Verði fjármögnun
framkvæmdarinnar miðuð við
óráðstafaða fjárveitingu vetrar-
íþróttamiðstöðvar á næstu árum.
Þá lögðu þau til að heimilaður yrði
undirbúningur og hönnun vegna
knattspyrnuhúss og að 10 milljón-
um yrði varið til þess nú en frestað
yrði að taka ákvörðun um hvenær
framkvæmdir hæfust.
Skuldlaust sveitarfélag
ekki kappsmál
Gísli Bragi Hjartarson, Alþýðu-
flokki, er einn flutningsmanna til-
lögunnar og situr í meirihluta með
Framsóknarflokki. Hann sagði að
oft hefði hann greint á við bæjar-
sfjóra um hlutverk og skyldur sveit-
arfélagsins. Kvað hann það ekki
endilega kappsmál að reka skuld-
laust sveitarfélag, það yrði að bjóða
upp á fjölbreytta möguleika svo að
fólk vildi búa í sveitarfélaginu.
Morgunblaðið/Kristján
FULLTRÚAR skautamanna, fulltrúi knattspyrnudeildar Þórs og
íþrótta- og tómstundafulltrúi Akureyrarbæjar, fylgjast með umræðum
á fundi bæjarsfjórnar í gær.
ÞÓRARINN E. Sveinsson, forseti bæjarstjórnar og formaður íþrótta-
og tómstundaráðs, ræðir við Gísla Braga Hjartarson og Valgerði Jóns-
dóttur á fundi bæjarstjórnar.
Stofnun Vilhjálms
Stefánssonar
Níels Einars-
son skipaður
forstöðumaður
GUÐMUNDUR Bjarnason, um-
hverfisráðherra hefur skipað Níels
Einarsson forstöðumann Stofnunar
Vilhjálms Stefánssonar, sem hefur
aðsetur á Akur-
eyri. Stjórn
stofnunarinnar
mælti einróma
með Níelsi í stöð-
una en sex um-
sækjendur voru
um hana.
Níels Einars-
son er fæddur ár-
ið 1962 og lauk
fil.lic. prófi í
mannfræði frá
Uppsalaháskóla árið 1993. Hann
hefúr stundað rannsóknir í fræði-
grein sinni, bæði sjálfstætt og í sam-
starfi við heimskautastofnanir í
Evrópu og Norður-Ameríku, þ.á m.
Heimskautastofnun Dartmouthhá-
skóla, Scott Polar Research Institu-
te í Cambridge, mannfræðideild Há-
skólans í Oxford og heimskauta-
stofnanir á Norðurlöndum. Auk
þess hefur Níels tekið virkan þátt í
að byggja upp norðurslóðarann-
sóknir við Háskóla íslands og Há-
skólann á Akureyri.
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
starfar samkvæmt lögum nr.
81/1997. Hún er sjálfstæð ríkisstofn-
un undir yfirstjórn umhverfisráð-
herra og samstarfsvettvangur
þeirra sem sinna málefnum norður-
slóða hér á landi. Henni er ætlað að
efla umhverfisrannsóknir á norður-
slóðum og stuðla að sjálfbærri þró-
un og efla þátttöku íslendinga í al-
þjóðasamstarfi á því sviði.
Bygging félagslegra íbúða við Snægil
Siðferðisleg skylda
að bjóða verkið út
ODDUR Helgi Halldórsson, bæj-
arfulltrúi Framsóknarflokks, sagði
á fundi bæjarstjórnar síðdegis í
gær það vera siðferðislega skyldu
Akureyrarbæjar að bjóða út verk-
efni við byggingu sextán íbúða fyrir
húsnæðisnefnd bæjarins. Bæjarráð
hafði heimilað að samið yrði við
byggingarfélagið Hyrnu ehf. um
byggingu íbúðanna, sem eru í
Snægili, en félagið hafði áður byggt
samskonar íbúðir fyrir nefndina og
lagði hún til við bæjarráð að samið
yrði án útboðs og voru rökin þau að
við það myndu sparast peningar.
Tillaga Odds um að vísa þessu
máli til nánari skoðunar í bæjarráði
var samþykkt með fjórum atkvæð-
um. Sagði Oddur það ekki rétt að
semja um verkefni upp á allt að 120
milljónir króna án útboðs, jafnvel
þótt Hyrna hefði áður skilað góðu
verki á góðu verði.
Fleiri bæjarfulltrúar tóku í
sama streng og nefndi Sigfríður
Þorsteinsdóttir, Framsóknar-
flokki, að það væri stefna bæjarins
að bjóða út öll verkefni og þjón-
ustu sem kostaði meira en 500 þús.
krónur.
Landsbankinn
Sigurður
ráðinn úti-
bússtjóri
SIGURÐUR Sigurgeirsson, sem
verið hefur forstöðumaður Lands-
bréfa á Norðurlandi, var í gær ráð-
inn útibússtjóri Landsbankans á
Akureyri og
svæðisstjóri á
Norðurlandi.
Sigurður tók við
stöðunni strax í
gær og var breyt-
ingin tilkynnt á
starfsmannafundi
Landsbankans.
Hann er ráðinn
tímabundið í stöð-
una, sem verður
auglýst laus til
umsóknar síðar.
Sigurður tekur við stöðunni af Ei-
ríki Jóhannssyni, sem ráðinn hefur
verið kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Eyfirðinga. Eiríkur tekur við stöðu
kaupfélagsstjóra eftir aðalfund fé-
lagsins í apríl, eins og fram hefur
komið.
Sigurður, sem er fæddur árið
1964, er viðskiptafræðingur og lög-
giltur endurskoðandi að mennt.
Hann er giftur Þórgunni Stefáns-
dóttur og eiga þau tvo syni.
------------------
Grunur um
hestaveiki
ÁRMANN Gunnarsson héraðsdýra-
læknir segir eitt tilfelli hafa komið
upp í Eyjafirði á síðustu dögum þar
sem hross hefur veikst, en enn sé
óljóst hvort um sé að ræða hesta-
veikina sem lagst hefur þungt á
hross á suðvesturhorni landsins.
„Það hefur eitt tilfelli komið upp
hér í Eyjafirði og kemur væntanlega
í ljós á næstu dögum hvað er á ferð-
inni, enn sem komið er getum við
ekki staðfest að þetta sé þessi hesta-
veiki, þetta er bara örlítill grunur
ennþá,“ sagði Armann.
Vitað er að sögn héraðsdýralæknis
að hestamenn að sunnan voru á ferð
norðan heiða fyrir rúmri viku. Vildi
hann koma því á framfæri að fólk
færi varlega og væri ekki á ferðinni
milli hesthúsa að óþörfu.
iK;i
lló
krakkar!
Núna getið þið séð ævintýri Húgós
í Háskólabíói laugardaginn 7. mars
kl. 13. Það eina sem þú þarft að
gera er að framvísa Þorra Þorsk
skafmiða f miðasölunni.
Sjáumst!
Athugiö aðeins þessi eina sýning er
á vegum Þorra Þorsks og Lýsis hf.
Fyrstir koma,
fyrstir fá.
Miðasalan
opnar kl. 12
sama dag.
6k
<uv X______r—_____1
7»m HÁSKÓLABÍÓ