Morgunblaðið - 04.03.1998, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Arásarmað-
ur kærir
farbanns-
úrskurð
TUTTUGU og sex ára Bandaríkja-
maður, sem játað hefur líkamsárás
á sofandi jafnaldra sinn að morgni
síðasta laugardags með þeim afleið-
ingum að sá sem fyrir árásinni varð
höfuðkúpubrotnaði meðal annars,
hefur kært farbannsúrskurð þann
sem Héraðsdómur Reykjaness kvað
upp eftir atburðinn.
Bandaríkjamaðurinn kærði far-
bannsúrskurðinn til Hæstaréttar í
gær. Ekki þótti ástæða til að krefj-
ast varðhalds yfir honum sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglu,
þar sem hann gekkst við árásinni og
málið er talið upplýst. Hæstiréttur
hefúr þriggja daga frest til að taka
afstöðu til málsins.
Talinn á batavegi
Maðurinn sem fyrir árásinni varð
er á batavegi samkvæmt upplýsing-
um lögreglu í Hafnarfirði. Árás-
armaðurinn hafði til skamms tíma
búið með íslenskri stúlku og þau
leigt saman húsnæði í Garðabæ.
Arásarmaðurinn kom að morgni
laugardags að stúlkunni og árásar-
þolanum í fyrmefndu húsnæði.
Afbrýðisemi er samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar talin hafa átt
hlut að máli, sem breyti þó litlu um
eðli árásarinnar og afleiðingar
hennar.
---------------
Þríðji áfangí Rimaskóla
Rúmlega
206,2 milljóna
tilboði tekið
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
taka 206.226.607 króna tilboði næst-
lægstbjóðanda, Framkvæmdar ehf., í
byggingu þriðja áfanga Rimaskóla.
Tilboðið er 87,27% af kostnaðaráætl-
un, sem er 236.313.000 krónur.
Tólf buðu í veririð og átti íbyggð
ehf. lægst boð, bauð 81,24% af kostn-
aðaráætlun. Aðrir sem buðu í verkið
voru Friðjón og Víðir ehf., Byggða-
verk ehf., Blámi ehf., Byrgi ehf., Olaf-
ur og Gunnar ehf., Fjarðarmót ehf.,
Eykt ehf., Öm Úlfar Andrésson,
Smiðsverk ehf., og ístak hf.
Forsetahjónin kynna sér forvarnir og meðferð
Vandinn djúpstæðari en
almennt er viðurkennt
FORSETI íslands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, og frú Guðrún
Katrín Þorbergsdóttir heim-
sóttu í gær samtök og stofnanir
sem annast meðferð og fást við
forvamir í baráttu við fíkni-
efnavandann og munu þau
halda áfram slíkum heimsókn-
um í dag.
Forsetinn sagði í samtali við
Morgunblaðið síðdegis í gær að
heimsókniraar hefðu verið mjög
fróðlegár. „Þær hafa því miður
fært okkur margvíslega vit-
neskju um að eiturlyijavandinn í
okkar litla samfélagi vex mjög
ört og hann er greinilega djúp-
stæðari en almennt hefur verið
viðurkennt í opinberri umræðu,"
sagði Ólafur Ragnar.
Forsetinn sagði ljóst að vand-
inn tæki til sífellt fleiri ung-
menna. Hann sagði það hafa
snert þau hjón illa að sjá tölur
um að nokkur hundmð ung-
menni, allt niður í fjórtán ára að
aldri, komi í meðferð á ári
hveiju og að sérstaklega virtist
aukningin meðal ungra stúlkna
mikil.
Víðtæk samstaða
nauðsynleg
„Jafnframt er greinilegt að
breytingamar em mjög hraðar
og eiturlyfjaveröld, sem áður
fyrr var svo framandi íslending-
um að við kynntumst henni fyrst
og fremst í frásögnum af erlend-
um samfélögum, hefur brotið sér
brautir inn í okkar land. Það má
nefna sem dæmi að fyrir um
fimmtán ámm var það nánast
óþekkt hér á landi að fólk sem
sprautaði sig með eiturlyfjum í
æð kæmi til meðferðar. Nú koma
nokkur hundmð slíkra sprautu-
fíkla árlega og á allra síðustu ár-
um hefur eiturlyfja- og áfengis-
neysla ungs fólks vaxið svo að af
árgangi 24 ára gamalla karl-
manna hafa um 7% komið í með-
ferð hjá SÁÁ.“
Ólafúr Ragnar segir nauðsyn-
legt að mjög víðtæk samstaða
myndist í þjóðfélaginu um að við-
urkenna hversu alvarlegur vand-
inn sé orðinn og hve nauðsynlegt
sé að á honum verði tekið. I gær-
kvöld hugðist hann ásamt Guð-
rúnu Katrínu ræða við fulltrúa
grasrótarinnar, sérstaklega ungt
fólk sem starfar að forvömunij á
viðræðufundi á Bessastöðum. í
dag heimsækja forsetahjónin
barna- og unglingageðdeild og
síðdegis verður athöfn í Laugar-
dal, þar sem ÍSÍ, UMFÍ og fleiri
hefja sérstakt forvamaátak. í
kvöld verða þau svo gestir Fé-
lags óvirkra fíkla á kaffihúsinu
Kjarki.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FORSETAHJÓNIN Ólafúr Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir heimsóttu í gær Rauðakross-
húsið við Tjarnargötu, þar sem veitt er neyðarathvarf og ráðgjöf. Til vinstri á myndinni er Ólöf Hejga Þór,
forstöðumaður Rauðakrosshússins, og til hægri Sigrún Ámadóttir, framkvæmdasljóri Rauða kross íslands.
Afrýjunarnefnd samkeppnismála staðfestir ákvörðun um greiðslukortaviðskipti
Gildistöku frestað til
1. október næstkomandi
MEIRIHLUTI áfrýjunamefndar samkeppnis-
mála hefur staðfest ákvörðun samkeppnisráðs
frá 12. janúar síðastliðnum um viðskiptahætti í
greiðslukortastarfsemi þar sem greiðslukorta-
fyrirtækjum var gert að nema úr gildi skilmála í
samstarfssamningum við greiðsluviðtakendur
um að þeim sé óheimilt að hækka verð til þeirra
sem greiða með greiðslukorti.
Ákvörðunin er staðfest með þeirri breytingu
að hún komi ekki til framkvæmda íyrr en 1.
október næstkomandi, en í ákvörðun samkeppn-
isráðs var miðað við að hún tæki gildi við birt-
ingu. Meirihluta áfrýjunamefndarinnar skipuðu
Páll Sigurðsson prófessor og Þórunn Guð-
mundsdóttir Iögmaður.
Greiðslumiðlun hf. - Visa ísland áfrýjaði
ákvörðun samkeppnisráðs til áfiýjunamefndar
samkeppnismála, og í úrskurði nefndarinnar eru
vinnubrögð Samkeppnisstofnunar og samkeppn-
isráðs í máli þessu átalin.
Fram kemur í úrskurðinum að málið hafi
fyrst komið til kasta Samkeppnisstofnunar í júní
1994 og niðurstaða verið tilkynnt málsaðilum í
maí 1995. Samkeppnisstofnun hafi síðan borist
nýtt erindi í september 1995 og hafi Greiðslu-
Vinnubrögð Samkeppnis-
stofnunar og samkeppnis-
ráðs átalin
miðlun hf. svarað því erindi með bréfi í nóvem-
ber sama ár. Málið hafi síðan verið til umfjöllun-
ar hjá Samkeppnisstofnun, en Greiðslumiðlun
hf. ekki verið tílkynnt með formlegum hætti að
svo væri fyrr en í júlí 1997 þegar frumniðurstöð-
ur lágu fyrir. Samkvæmt stjórnsýslulögum hefði
hins vegar átt að gera það, og hafi þetta orðið til
þess að Greiðslumiðlun hf. fékk ekki sem skyldi
notið þess andmælaréttar sem tiyggður sé í
stjómsýslulögum.
„Er óhjákvæmilegt að átelja þessi vinnubrögð
Samkeppnisstofnunar og samkeppnisráðs," seg-
ir í úrskurði áfrýjunameftidarinnar.
Hætta á að neytendur verði
látnir bera kostnaðinn
Inga Jóna Þórðardóttir, einn þriggja nefnd-
armanna í áfrýjunamefnd samkeppnismála,
skilaði séráliti um að sú ákvörðun samkeppnis-
ráðs að banna umrædda grein í samstarfssamn-
ingi Greiðslumiðlunar hf. við greiðsluviðtakend-
ur yrði felld úr gildi.
Telur hún m.a. að kostnaðurinn sem fylgir
notkun greiðslukorta sé þegar kominn út í
verðlagið og hann því í raun greiddur af neyt-
endum, og þeir sem ekki nota greiðslukort
ættu að njóta þess í staðgreiðsluafslætti í sam-
ræmi við þann hag sem greiðsluviðtakendur
telji sig hafa af slíkum viðskiptum. Verði grein-
in afnumin sé sú hætta fyrir hendi að neytend-
ur verði látnir bera kostnaðinn á nýjan leik í
hækkuðu verði og jafnframt gæti núverandi
staðgreiðsluafsláttur horfið. Segir Inga Jóna að
mikill vafí leiki á að hagsmunir neytenda hafi
verið hafðir nægilega að leiðarljósi í þessu máli
og ekki gerð skýr grein fyrir því með hvaða
hætti svo sé.
Einar S. Einarsson, forstjóri Greiðslumiðlun-
ar hf. - Visa ísland, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann gæti ekki að svo stöddu tjáð sig
um úrskurð áfrýjunamefndar samkeppnismála
þar sem hann hefði ekki getað kynnt sér hann
nægilega, en Einar er staddur erlendis og fékk
hann úrskurðinn í hendur síðdegis í gær.
BiÉCÍEESI
Yfirbyggð sund-
laug í Laugardal
Samkeppni
um hönnun
BORGARRÁÐ heíúr samþykkt
að heimila undirbúning að hönn-
un 50 metra yfirbyggðrar sund-
laugar í Laugardal. Áætlaður
kostnaður við undirbúninginn er
3,7 milljónir og er gert ráð fyrir
að dómneftid ljúki störíúm um
miðjan september nk.
í tillögu borgarverkfræðings
er gert ráð fyrir að samkeppni
um hönnun verði samkvæmt
skipulagsreglum Ariritektafé-
lags íslands og að dómnefndar-
menn verði fimm. Miðað er við
að haldin verði opin samkeppni,
þar sem leitað er eftir hug-
myndum um útlit og fyrirkomu-
lag og að tekið verði fram í
gögnum að hluti mannvirkisins
fari í alútboð. Að öðru leyti verði
forsögnin bindandi.
Jökulsá ógnar
þjóðveginum
Grímsstödum á Fjöllum. Morgunblaðið.
MIKIL klakastífla hefur mynd-
ast skammt neðan við brúna á
Jökulsá á Fjöllum, við Gríms-
staði. Ef áin nær sér ekki fram
fljótlega er hætta á að hún renni
yfir þjóðveginn vestan við brúna
og gæti þá vegurinn lokast.
Við aðstæður undanfarinna
daga, mikið frost og skafrenn-
ing, verður mikil krapamyndun
í ánni sem stundum nær að
hlaðast upp og stífla ána á þess-
um stað.
Afram kalt
í veðri
EKKI sér fyrir endann á kulda-
kastinu sem gengið hefur yfir
ísland undanfama daga. Áfram
verður kalt í veðri og Björn
Einarsson, veðurfi-æðingur á
Veðurstofunni, spáir frostí um
allt land fram á sunnudag. Á
fimmtudag tekur breytileg átt
við af norðanáttinni og má bú-
ast við allt að fimmtán gráða
frosti norðanlands.
Það er fyrst á sunnudag sem
gæti farið að hlýna. Þá breytir í
austanátt suðvestanlands og má
jafnvel búast við frostleysi í kjöl-
farið. Að sögn Bjöms gæti hita-
stigið síðan skriðið yfir frost-
mark á mánudag eða þriðjudag.
Hclgi Birgir
Ástmundsson
Nafn manns-
ins sem lést
MAÐURINN sem lést þegar
hann féll útbyrðis af Júpíter
ÞH á mánudag hét Helgi Birgir
Ástmundsson.
Helgi fæddist 12. apríl 1969
og hefði því orðið 29 ára á
þessu ári. Hann var til heimilis
að Suðurgötu í Keflavík. Helgi
var ógiftur og bamlaus.