Morgunblaðið - 04.03.1998, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
52. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Flokkur hindúa náði ekki meirihluta á þingi Indlands
Valdabarátta og
óvissa framundan
Njrju Delhí. Reuters, The Daily Telegraph.
Reuters
Pýramídi Heteferesar
LJOST var í gær að engin stjórn-
málafylkinganna á Indlandi fékk
meirihluta á þingi landsins í kosn-
ingunum, sem hófust 16. febrúar.
Stærstu flokkarnir reyndu því að
afla sér nýrra bandamanna til að
geta myndað nýja stjórn, þá
fimmtu á tæpum tveimur árum.
Um 330 milljónir manna tóku
þátt í kosningunum og þegar taln-
ing atkvæða hafði staðið í 40
klukkustundir benti flest til þess
að Bharatiya Janata (BJP), flokk-
ur þjóðernissinnaðra hindúa, fengi
251 þingsæti af 545 í neðri deild-
inni. Hann skorti hins vegar 22
sæti til að geta myndað meiri-
hlutastjórn.
Kongressflokkurinn og banda-
menn hans fengu mun færri þing-
sæti, eða 166. Líklegt var að Sam-
fylkingin, bandalag fimmtán
flokka, fengi 97 þingmenn.
Hugsanlegt er að Kongress-
flokkurinn geti myndað meirihluta-
MIKE McCurry, talsmaður Banda-
ríkjaforseta, sagði í gær að Banda-
ríkjamenn gætu gert loftárásir á
írak ef þarlendir ráðamenn reyndu
að hindra vopnaleit Sameinuðu
þjóðanna þar sem í nýrri ályktun
öryggisráðsins væru írakar varaðir
við því að brot á samkomulaginu um
vopnaeftirlitið myndi hafa „hinar al-
varlegustu afleiðingar".
„Bandaríkjastjórn hefur tekið
skýrt fram, og forsetinn einnig, að
standi írakar ekki við þær skuld-
bindingar sem þeir hafa gengist
undir hafi það hinar alvarlegustu af-
leiðingar, sem þýðir augljóslega
hernaðaraðgerðir," sagði Mike
McCurry.
Breska stjórnin tók í sama streng
stjórn með Samfylkingunni en til
þess þarf hann að afla sér stuðn-
ings að minnsta kosti átta þing-
manna til viðbótar. Kongressflokk-
urinn studdi minnihlutastjórn
Samfylkingarinnar á síðasta kjör-
tímabili en hætti stuðningnum í
nóvember og það varð til þess að
boðað var til nýrra kosninga.
Reyna að kljúfa
Samfylkinguna
Forystumenn Bharatiya Janata
sögðust vongóðir um að geta
myndað stjórn með nýjum banda-
mönnum. Fylkingamar tvær reyna
nú að afla sér stuðnings óflokks-
bundinna frambjóðenda og smá-
flokká, sem fengu allt að 21 þing-
sæti. Líklegt er að BJP reyni
einnig að kljúfa Samfylkinguna til
að geta myndað meirihlutastjórn.
Forystumenn Kongressflokksins
og Samfylkingarinnar sögðust vilja
freista þess að mynda nýja stjórn
og sagði ályktun öryggisráðsins
vera „nákvæmlega það sem Bretar
beittu sér fyrir“ og styrkja það
sjónarmið að Bandaríkjamenn og
Bretar gætu beitt íraka hervaldi.
Öryggisráðið samþykkti ályktun-
ina í fyrrinótt og Irakar voru þar
varaðir við því að brot á samkomu-
lagi þeirra við Kofi Annan, fram-
til að koma í veg fyrir að Bharatiya
Janata kæmist til valda. Ymis öfl
innan Kongressflokksins eru þó
sögð andvíg slíku stjómarsam-
starfi en haft var eftir einum af for-
ystumönnum flokksins að Sonia
Gandhi, ekkja Rajivs Gandhis,
fyrrverandi forsætisráðherra, væri
hlynnt því að flokkurinn reyndi til
þrautar að mynda stjóm.
Atal Behari Vajpayee, forsætis-
ráðherraefni hindúaflokksins,
kvaðst sannfærður um að forseti
landsins veitti honum umboð til að
mynda næstu stjórn. Sérfræðingar
í stjórnmálum Indlands sögðu að
forsetinn gæti falið stærsta flokkn-
um að mynda stjóm en hann kynni
einnig að veita öðram flokki um-
boðið ef sýnt yrði fram á að hann
gæti myndað meirihlutastjóm.
Ennfremur kæmi til greina að for-
setinn ráðfærði sig við flokka og
þingmenn sem gætu ráðið úrslitum
um myndun meirihlutastjómar.
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, myndi hafa „hinar alvarleg-
ustu afieiðingar" fyrir þá.
Talsmaður rússneska utanríkis-
ráðuneytisins sagði að Rússar litu
svo á að Bandaríkjamenn hefðu
ekki fengið heimild til að beita her-
valdi ef Irakar stæðu ekki við sam-
komulagið. Meirihluti aðildarríkja
EGYPSKIR leiðsögumenn ræða
málin fyrir utan hinn forna
pýramída Heteferesar drottning-
ar, móður Keops faraós, í Giza.
Þessi pýramídi og tveir aðrir
voru opnaðir ferðamönnum í gær
í fyrsta sinn að Ioknum umfangs-
miklum endurbótum. Egyptar
öryggisráðsins er sömu skoðunai'.
Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráð-
herra Iraks, sagði í gær að Irakar
myndu virða samkomulagið um leit
að gereyðingarvopnum í átta
svokölluðum „forsetabústöðum" sem
Irakar höfðu meinað eftirlitsnefnd
Sameinuðu þjóðanna að rannsaka.
Sendiherra íraks hjá Sameinuðu
þjóðunum sagði að samkomulagið
kynni að skerða völd Richards
Butlers, formanns eftirlitsnefndar-
innai'. Kofi Annan og Jayantha
Dhanapala, stjórnarerindreki frá
Sri Lanka sem á að fylgjast með
vopnaleitinni, myndu ráða því
hvernig leitinni yrði háttað. Butler
hafnaði þessari túlkun og sagði að
enginn vafi léki á því að hann ætti
að stjórna leitinni.
opnuðu einnig tíu grafír faraóa í
fyrsta sinn frá því þær fundust
fyrir rúmri hálfri öld.
Með þessu vonast Egyptar til
að laða fleiri ferðamenn til Giza,
en þeim fækkaði mjög eftir að
herskáir múslimar myrtu 58
ferðamenn í Luxor í nóvember.
Bretland
Konung-
leg spar-
semi
London. The Daily Telegi*aph.
ANNA prinsessa bauð nýlega
fjóram vinum sínum til máls-
verðar á veitingahúsi í
Gloucestershire og kostaði
það fimm sterlingspund á
mann. Prinsessan greiddi
með afsláttai’miðum úr dag-
blaði. Þetta kemur fram í
breska dagblaðinu The Daily
Telegi'aph sem greinir frá því
nýjasta um sparsemi bresku
konungsfjölskyldunnar.
í síðasta mánuði sást til
Játvarðar prins á öðra far-
rými í hálftíu-lestinni frá Dar-
lington.
Þegar sir William Hes-
eltine starfaði í Buckingham-
höll sem aðstoðarfjölmiðla-
fulltrúi var ekki gert ráð fyrir
því að hann þyrfti að hringja.
Einungis var hægt að hringja
í símann á skrifstofu hans,
ekki úr honum.
Klæðist notuðum fötum
af drottningu
Margi'ét prinsessa klæðist
oft notuðum fötum af drottn-
ingunni. Við hátíðlega athöfn
árið 1995 var hún í kjól sem
drottningin hafði sést í við há-
tíðlegt tækifæri árið 1977.
Hertoginn af Windsor
vænti þess að jakkafötin sín
entust sér ævina á enda, og
þar sem stærð hertogans
breyttist ekki varð sú raunin.
ESB varar
Serba við
Brussel, Pristina. Reuters.
HANS van den Broek, sem fer með
utanríkismál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins (ESB), varaði
stjórnvöld í Belgrad við í gær og
sagði þau ekki geta vænst betra við-
skiptasambands við ESB ef þau
gerðu ekkert til þess að leysa vanda
albanska meirihlutans í Kosovo-hér-
aði. Sagði hann að þau mættu búast
við hörðum refsiaðgerðum ef vopn-
uð átök blossuðu þar upp.
Van den Broek sagði þetta á
blaðamannafundi með viðskiptaráð-
herra Serbíu, er fór fyrir 40 manna
hópi serbneskra embættis- og kaup-
sýslumanna sem vonast til að koma
á auknu viðskiptasambandi við
ESB. Heimsóknin gat tæpast komið
á óheppilegri tíma vegna uppþota í
Kosovo um helgina sem kostuðu 24
albanska íbúa héraðsins lífið.
Reuters
IBUAR tveggja þorpa í Kosovo-héraði greftruðu í gær lík 24 manna af albönskum uppruna sem biðu bana
í átökum við serbneska lögreglumenn um helgina. Fjórir lögreglumenn létu einnig lífíð.
Ágreiningur um túlkun nýrrar ályktunar Sameinuðu þjóðanna um Irak
Washington, London. Reuters. ■'■—■w i ■■ ■
Deilt um hvort
árásir hafí verið
heimilaðar