Morgunblaðið - 01.03.1998, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. MARZ 1998 47
FÓLK í FRÉTTUM
í
(
(
i
<
(
<
!
ERLENDAH
Berglind Ágústsdóttir
listastelpa
fjallar um nýjustu geislaplötu
Madonnu, „Ray of Light“
sem kemur út
á morgun.
Poppæla með
snilldarslettum
| NÚ ER Madonna komin með nýja
plötu og mér skilst að þetta sé
' íyrsta stúdíóplatan í fjögur ár. Auð-
( vitað er fáránlegt að ég, einhver lít-
il listatíta á Islandi, sé að gagnrýna
drottninguna en ég læt mig hafa
það. Mér líst nú ekkert á þetta
fyrst konan lítur út eins og Cheryl
Crow, hipparokkleg með krullur.
Ég elskaði auðvitað sexý-sterku-
tíkina-tímabilið en hér fer lítið fyrir
því.
Hún er auðvitað orðin mamma
, sem mýkir mann upp og færir
manni nýja sýn á lífið enda er plat-
( an full af boðskap og þroska
j (Ja . . .). Það var ekki fyrren við
þriðju hlustun að sum lögin fóru að
virka. Þá hlustaði ég líka á hana í
vasadiskói sem hljómar miklu bet-
ur. Öll litlu hljóðin eru nær manni
og maður heyrir meira hvað platan
er mikið unnin.
Platan byrjar á laginu „Substit-
( ute for Love“ sem segir okkur hvað
I frægðin sé innantóm og er Ma-
. donna búin að komast að því, - gott
' hjá henni. Bara svoldið flott þar til
hún byrjar að rokka, já nei, og svo
er endinn hræðilegur.
Lag tvö er ekta svona lag sem ég
mundi fíla að dansa við með tilheyr-
andi látbragði á „gay“-diskóteki á
fimmtudegi á 22. Annars þoli ég
það alls ekki en maður fær textann,
sem er hræðilegur, algjörlega á
heilann og stendur sjálfan sig að
því að syngja með í tíma og ótíma.
Rokklag númer þrjú fínnst mér
algjör æla og Sælgætisilmvatns-
stelpa númer fjögur virkar ekki.
Lag númer fimm, „Skin“, er aft-
ur á móti ekta tryllt dansgólfs-
drama. Fíla þetta. Sveitt í plastkjól
með fullt af diskóljósum. Fullt af
yndislegum poppklisjum, en líka
smá snilld. Go-go Madonna.
Lag sex er annað svona „gay“-
diskólag, betra en hitt. Einhvern
veginn virkar sumt hvergi nema á
„gay“-diskótekum en þá líka virkar
það í tætlur (Þórir skelltu því á!).
Mér fannst lag númer sjö ekkert
spes og lag númer átta var algjört
helvíti þrátt fyrir jákvæða jógapæl-
ingu.
Stökktu til
Kanarí
24. mars
frá kr.
29.932
Heimsferðir bjóða nú einstakt
tilboð þann 24. mars til
Kanaríeyja. Þú tryggir þér sæti
í sólina í 1 eða 2 vikur og 5 dögum fyrir
brottför hringjum við í þig og látum þig vita á hvaða
hóteli þú gistir. Kanaríeyjar eru vinsælasti áfangastaður
Evrópubúa og þar er yndislegt veður í marsmánuði og þú
nýtur rómaðrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan
tímann.
Verð kr.
29.932
M.v. hjón með 2 böm í viku, 24. mars.
Verð kr.
49.960
M.v. 2 í íbúð/smáhýsi, 24. mars í 2 vikur
Verð kr.
39.960
M.v. 2 í íbúð/smáhýsi, 24. mars í viku.
Austurstræti 17, 2. hæð
• sími 562 4600
En lag númer níu, Frozen, er al-
veg yndislegt lag til að hlusta á í
ástarsorg liggjandi uppi í rúmi með
bangsa í fanginu. Æi, ég bara verð
að segja það: Ég er ýkt veik fyrir
svona dramaklisjum. Yndisleg byrj-
un; strengir og sniðug hljóð;
dramahápunktur í miðjunni; - og
yndislegur klisjuástartexti. „Þú ert
frosin þegar hjarta þitt er ekki op-
ið.“ Ekta Madonna.
Ég hef enga spes skoðun á lagi
tíu. Svona sætt popplag með boð-
skap. Svipað er með lag ellefu sem
er svona suðrænt. Keyra í blæjubíl
á malbikuðum fjallavegi, alvarleg,
horfa beint fram og inn á milli
skjótast draumsýnir af íðilfógrum
suðrænum karlmönnum. Æi, ég
veit ekki.
„Little star“, lag númer tólf, er
óður til litlu stjömunnar hennar
Madonnu. Æi, það er svo yndislegt
að vera mamma (held ég).
Ég ætla að sleppa því að tala um
síðasta lagið.
í heildina finnst mér þetta ósköp
vel unnin seif poppplata með öllum
nýjustu tískuhljóðunum. Mér finnst
að gellan hefði bara átt að kýla
þetta alla leið. Söngurinn hjá henni
er oft flottur en stundum dálítið
mikið af honum. Og ég fíla alls ekki
þegar hún er að rokka. Sem sé al-
gjörlega seif poppæla með smáfrá-
bæram snilldarslettum inn á milli
sem venst vel og kemur hvorki á
óvart né veldur vonbrigðum.
Tékkið á drottningunni.
k
% c r 1
OKIPAGE 4m er tilbúinn til notkunar fyrir
bæði MacOS og Windows samhæfðar tölvur.
Peningunum
og kostar aðeins ... ~[
Reiknaðu með OKI.
Það er mun ódýrara
að reka OKIPAGE
4m geislaprentara
en bleksprautuprent-
ara í sama verð-
flokki. Reiknaðu
dæmið sjálf(ur),
með fyrstu 50 prenturunum
fylgir OKI reiknivél.
* gódur á alla kanta
Söluaðilar:__________________, ___________
Tœknlval \EjS3
Skeifan 17 - 550 4000 Apple-Umboðið ' ^
Reykjavíkv. Haf • 550 4020 skipholt 21 • 511 5111 Grensásvegur 10 • 563 3000
29.9007-