Morgunblaðið - 01.03.1998, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 1. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. MARZ 1998 29
JMtogtmltfafrií
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
MIKIL umræða hefur farið
fram um menntamál í
þjóðfélaginu í kjölfar niðurstöðu
hinnar alþjóðlegu TIMSS-könn-
unar á stærðfræði- og raun-
greinaþekkingu framhaldsskóla-
nema í 21 landi. íslenskir nem-
endur urðu í þriðja sæti í könnun-
inni og hafa menn ýmist lýst
ánægju sinni með þá frammi-
stöðu eða bent á fyrirvara sem
verði að hafa á könnuninni. Þór-
ólfur Þórlindsson, prófessor við
Háskóla íslands, benti á í viðtali
við Morgunblaðið í gær að erfitt
sé að bera saman námsárangur
milli landa í framhaldsskólum
vegna þess hvað skólakerfin eru
ólík. Gögn könnunarinnar leyfi
því ekki að draga skýrar ályktan-
ir um það hvort íslensku nemend-
urnir eru í þriðja, fjórða eða
fimmta sæti. Þórólfur segir að
TIMSS-könnunin sem gerð var í
grunnskólum fyrir nokkru sé
mun traustari og því sé heldur
ekki hægt að bera nákvæmlega
saman stöðu íslenskra fram-
haldsskóla- og grunnskólanema.
Ennfremur bendir Þórólfur á það
mikilvæga atriði að framhalds-
skólakönnunin taki ekki tillit til
þess að ungmennin séu ekki í
öllum tilvikum á sama aldri; ís-
lensku ungmennin séu eldri en
gengur og gerist annarsstaðar
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
og því sé samanburðurinn
óraunhæfur.
Auk þessa hefur verið bent á
að niðurstaðan kynni að vera
skökk vegna þess að margar af
þeim þjóðum sem urðu efstar í
sambærilegri könnun sem gerð
var á grunnskólastiginu tóku
ekki þátt nú. Einnig hefur verið
bent á hið mikla brottfall úr ís-
lenskum framhaldsskólum sem
hafi áhrif til bætingar á heildar-
frammistöðu hérlendra nem-
enda og sömuleiðis hefur það
þótt rýra gildi könnunarinnar
að þátttaka í henni var nemend-
um fijáls.
Þegar þessir fyrirvarar eru
skoðaðir virðist könnunin að
mörgu leyti hafa verið íslensku
nemendunum hagstæð, einkum
þó það að sterkar þjóðir taka
ekki þátt nú, brottfall nemenda
hér er meira en annarsstaðar
og að íslenskir framhaldsskóla-
nemendur eru eldri en gerist í
öðrum þátttökulöndum. Réttast
væri því að við héldum aftur af
okkur í fagnaðarlátunum og
hygðum frekar að úrbótum á
skólakerfinu. Niðurstaða könn-
unarinnar lýsir enda fyrst og
fremst „veikum skilyrðum í
skólastarfi hér á landi,“ eins og
dr. Einar Guðmundsson, for-
stöðumaður Rannsóknarstofn-
unar uppeldis- og menntamála,
bendir á í viðtali við Morgunblað-
ið í dag.
Einar segir að grunnskólinn
virðist sérstaklega illa staddur
samkvæmt könnununum tveim-
ur og vandinn tengist meðal ann-
ars aðalnámsskrá, námsefni og
þátttöku foreldra. Hann segist
binda miklar vonir við endur-
skoðun á aðalnámsskrá sem nú
fer fram en í meginatriðum þurfi
að gera meiri kröfur til nemenda
í yngstu bekkjum grunnskólans.
Einar gagnrýnir og miðstýringu
í námsgagnaútgáfu. Eðlilegt sé
að dreifa útgáfunni á fleiri hend-
ur, bæði af faglegum og fjár-
hagslegum ástæðum. Einnig
bendir hann á að virkja þurfi
foreldra betur í skólakerfinu og
á augljósa galla eins og að
kennsludagar séu mun færri hér
á landi en hjá flestum þjóðum.
Einar víkur svo að athyglis-
verðu og mikilvægu máli sem er
menntun kennara. Segir hann
að þar þurfi að „huga að áhersl-
um og forgangsröð, sérhæfingu
í námsgreinum, ekki síst með
raungreinar í huga.“ Benda má
á að kennaranemar við Kennara-
háskóla íslands sem hafa stærð-
fræði, náttúrufræði eða aðrar
bóknámsgreinar að aðalfagi taka
aðeins 12 V2 einingu í faginu en
kennaranámið er í heild 90 ein-
ingar. Allir sjá að I2V2 einingar
nám getur ekki verið nægilega
mikill undirbúningur fyrir
kennslustarf í nokkurri grein.
Hér hlýtur því einnig að vera
úrbóta þörf. Mætti til dæmis
ekki lengja námið við KHÍ í fjög-
ur ár, eins og rætt hefur verið
um? Eða breyta áherslum í
skólanum þannig að meiri þungi
yrði lagður á sérgreinarnar en
hið almenna kennaranám sem
felst einkum í uppeldis- og
kennslufræði. Er ekki mikilvæg-
ara að kennarar kunni almenni-
leg skil á sérgrein sinni, á þeim
hlut sem þeir eiga að kenna en
þeim vafasömu vísindum sem
uppeldis- og kennslufræðin eru?
ÚRBÓTA ÞÖRF í
SKÓLAKERFINU
Karlamagn-
• ús, eða Karl
keisari Pippinsson,
hafði þegar hann dó
stofnað ríki, sem náði
að mestu leyti yfir
Vestur- og Mið- Evr-
ópu, Das Abendland, einsog það er
nefnt í þýzkum sögubókum. Þar
segir ennfremur að hann hafi
grundvallað ríki sitt á kaþólskri
menningu og kristinni sannfæringu.
{ erindi, sem til er frá hendi
• keisarans, segir m.a.: „Það
á að byggja skóla í hveiju klaustri
og byskupssetri, þar eiga ungir
menn að lesa sálma, annála, kvæði,
rímfræði, læra tungumál og fagrar
kristilegar bókmenntir."
Höfuðborg Karls mikla var
•Aachen. Þar er gömul
kirkja og merkileg. Miðhluti henn-
ar, sem er elztur, er byggður fyrir
gotneskan tíma, og því er kirkju-
skipið ekki í kross. Gotneski stíllinn
tekur við, þar sem er háaltari og
skrínið með beinum Karlamagnús-
ar. Hann var grafinn í kirkjunni og
hvíldi þar fram til 1215, en þá voru
beinin sett í skrínið og hafa verið
þar síðan. Keisarastóllinn er úr
marmara, gamall að sjá. En þannig
skipti Karl mikli um legustað, um
það leyti sem Guðmundur byskup
góði er að flækjast um Island og
Snorri leggur hornstein að heims-
frægð sinni.
Karlamagnús mun hafa
•verið stór maður vexti,
hærðist með aldrinum, andlitið hlý-
legt og glaðlegt, og allur var hann
hinn virðulegasti. það var því ekki
í kot vísað að skíra konungsson
Noregs eftir honum.
Karlamagnús stöðvaði
• Serki í sunnanverðri Evr-
ópu og var það m.a. hans verk að
bænahús múslíma komu ekki í stað
kristinna kirkna í
Mið- 0g Vestur-Evr-
ópu. í austri ógnuðu
Húnar og var Bæ-
heimur jafnvel í hættu
af þeirra völdum, en
Karlamagnús stöðv-
aði þá 0g jók mjög yfirráðasvæði
sitt í austri, svo að það náði allt til
Ungveijalands.
Karlamagnús safnaði léns-
• herrum sínum, byskupum
og greifum, tvisvar á ári til höfuð-
borgarinnar, Aachen, og sögðu þeir
fréttir úr sýslum sínum. Hann vildi
að öll hin fjölmörgu þjóðabrot ríkis-
ins yrðu að einni heild með góðum
lögum og strangri stjórn. Hann vildi
sameina þau í eitt ríki. Keisarinn
hafði gætur á ríki sínu öllu, lét
leggja vegi, byggja brýr og bæta
húsakost bænda. Þannig voru þeir
hvattir til að reisa bæi sína með
gluggum og mörgum herbergjum.
Þjóðlíf allt gerbreytttist til hins
betra á valdadögu hans. Hann lærði
sjálfur að lesa og skrifa á efri árum
og Iagði stund á erlendar tungur.
Hann kallaði til sín lærða menn sem
kunnu skil á grískri og latneskri
menningu, svo og mesta fræðimann
engilsaxa, Alcuin, sem kom frá Lin-
kolni; því menntasetri, er síðar
fóstraði einn mesta og helgasta
lærdómsmann íslenzkrar forn-
menningar, Þorlák helga. Á tímum
Karlamagnúsar var latnesk menn-
ing alls ráðandi um allan hinn sið-
menntaða heim, sem var að vísu
ekki yfirtaksstór frekar en nú, þeg-
ar á allt var litið. En Kariamagnús
lagði áherzlu á, að tunga Franka
skipaði einnig veglegan sess í ríki
hans og breytti til að mynda nöfnum
vikudaganna og nefndi nóvember
nebelungen. Þannig vildi hann efla
þjóðlega menningu í ríki sínu, metn-
að þegna sinna og virðingu fyrir
arfi sínum á sama hátt og íslending-
ar til forna. Þeir hafa án efa lært
sitthvað af honum í þeim efnum,
þótt hann hafi verið látinn, þegar
landið byggðist. En þeim tókst það,
sem hinum mikla keisara mistókst:
að sigra latneska heimstungu með
eigin máli. Að því leyti var íslenzkt
bændasamfélag sterkara hinu
mikla ríki Karlamagnúsar.
Enginn vafi
• er á því, að stjórnmála- og
menningarstefna keisarans hafði
mikil áhrif á afstöðu íslendinga til
eigin tungu í upphafi ritaldar. Páf-
inn hafði leyft Karli mikla að nota
frankíska tungu í ríki sínu, svo að
eftirleikurinn var fyrir bragðið auð-
veldari á íslandi. Mér finnst einhver
mikill sagnfræðingur eigi að rann-
saka þetta rækilega og hef fært
það í tal við Hermann Pálsson, sem
er sammála um, hve verðugt slíkt
verkefni væri. Það er sem sagt
kominn tími til að setja nefnd í
málið.
í riti Roberts Folzums um
•þennan sérstæða keisara
Frankaríkis til forna segir, að norr-
ænir víkingar hafi upphaflega vanið
komur sínar þangað í því skyni að
falbjóða vaming sinn og farið með
friði 0g spekt. Það var sams konar
fólk og stofnaði sín frumstæðu
heimili í Jórvík um svipað leyti. Það
var reynsla út af fyrir sig að sjá
þennan merka uppgröft, láta forn-
minjar tala og segja sögu sína um
þá friðsömu kaupmenn og iðnaðar-
menn, sem þangað leituðu í góðum
tilgangi, þótt auðvitað hafi þeir
haft sverðið innan seilingar. Þetta
fólk var ekki einungis blóðþyrstir
villimenn, að minnsta kosti ekki
allir, heldur friðsamir farmenn, sem
sigldu milli landa í viðskiptaerind-
um, fluttu menningu sína til ann-
arra þjóða og sóttu sér framandi
andrúm til uppbyggingar.
M.
HELGI
spjall
REYKJAVIKURBRÉF
Laugardagur 28. febrúar
Fréttavefur morg-
unblaðsins hefur nú verið
starfræktur í einn mánuð.
Á þessum tíma hafa um
125 þúsund manns heim-
sótt vefínn og fylgzt með
nýjustu fréttum á honum.
Hér er um nýjan, sjálf-
stæðan fjölmiðil að ræða, sem Árvakur
hf., útgáfíifélag Morgunblaðsins, hefur haf-
ið starfrækslu á. Fréttavefnum er komið
fyrir á netinu, sem á skömmum tíma hefur
orðið alþjóðlegur samskiptamiðill, sem á
engan sinn líka. í einu vetfangi geta íslend-
ingar, hvar sem þeir eru staddir í heimin-
um, fýlgzt með nýjustu fréttum frá íslandi.
Fréttavefur Mprgunblaðsins hefur gjör-
breytt aðstöðu íslendinga, sem búa og
starfa erlendis, til jiess að fá þegar í stað
nýjustu fréttir frá Islandi. íslendingar, sem
starfa í sendiráðum íslands erlendis, hjá
íslenzkum fyrirtækjum í öðrum löndum,
sem stunda nám í öðrum löndum eða eru
búsettir í öðrum löndum, geta nú í fyrsta
sinn fengið nýjustu fréttir frá íslandi, þeg-
ar í stað. Að vísu hafa áskrifendur haft
aðgang að Morgunblaðinu öllu á netinu í
nokkur ár en þó er sá munur á, að allur
texti blaðsins hefur verið settur inn á netið
eftir miðnætti, þegar prentun blaðsins er
hafin. Fréttimar á fréttavefnum em hins
vegar skrifaðar samstundis og fréttir ber-
ast og íslendingar um allan heim hafa að-
gang að þeim á þeirri mínútu, sem þær em
sendar út. Óhætt er að fullyrða, að enginn
fjölmiðill á íslandi er samkeppnisfær við
fréttavef Morgunblaðsins, sem þjónustuað-
ila við íslendinga í útlöndum.
Jafnframt er ljóst, að fréttavefurinn hef-
ur nokkra augljósa yfirburði yfir þá ljósvak-
amiðla, sem hann er í samkeppni við. Bæði
útvarpsstöðvar og sjónvarpsstöðvar senda
fréttir sínar út á ákveðnum tímum sólar-
hringsins. Þeir sem ætla að fylgjast með
fréttum ljósvakamiðlanna verða því að
hlusta á þær og horfa á þær á þar til
greindum tímum. Þessir ókostir fylgja ekki
fréttavef Morgunblaðsins. Þeir sem fylgjast
með fréttum á honum geta gert það, þegar
þeim sjálfum hentar. Þeir em ekki bundnir
af neinum ákveðnum útsendingartíma.
Fréttimar em skrifaðar strax og þær ber-
ast og sendar út á netið umsvifalaust. Þeg-
ar mikilvægir atburðir em að gerast, hvort
sem um er að ræða opnun á tilboðum í
hlutabréf í íslandsbanka eins og gerðist sl.
fimmtudag eða örlagaríka íþróttaviðburði
hringja blaðamenn Morgunblaðsins í netút-
gáfu blaðsins úr farsímum á samri stundu
og fréttin er komin út á netið nokkmm
mínútum síðar. Eini fjölmiðillinn, sem hefur
möguleika á að keppa við fréttavef Morgun-
blaðsins að þessu leyti, ertextavarp Ríkisút-
varpsins.
Þann tíma, sem fréttavefurinn hefur ver-
ið starfræktur, hefur komið skýrt í Ijós, að
hann er mikið notaður á vinnustöðum, ekki
sízt í fyrirtækjum, þ.á m. á íjármálamark-
aðnum, þar sem máli skiptir að fylgjast vel
með því, sem er að gerast í atvinnu- og
viðskiptalífi, á vettvangi stjómmálanna og
í útlöndum. Það getur skipt sköpum á þess-
um markaði að fá þegar í stað upplýsingar
um mikilvæga fréttaviðburði.
Þá fer ekki á milli mála, að fréttavefur-
inn opnar nýja möguieika fyrir fólk á lands-
byggðinni og þá ekki sízt í dreifbýli til
þess að fylgjast með nýjustu fréttum og
fá þær hraðar og fyrr en tíðkazt hefur.
En jafnframt hefur komið skýrt í ljós,
að tæknin ein dugar ekki eða aðgangur
að netinu. Það sem sköpum hefur skipt
um mikla aðsókn að fréttavef Morgun-
blaðsins er sú staðreynd, að þung áherzla
hefur verið lögð á að sömu gæði einkenni
fréttaflutning á fréttavef Morgunblaðsins
og einkennt hafa fréttaflutning og aðra
umfjöllun í blaðinu sjálfu. Fólk á að geta
treyst því, að sami áreiðanleiki móti frétt-
ir á fréttavef Morgunblaðsins og skapað
hefur Morgunblaðinu sjálfu það traust,
sem raun ber vitni.
Dagblöð um allan heim hafa verið að
prófa sig áfram á þessu nýja sviði fjölmiðl-
unar. Styrkur þeirra margra, og það á
m.a. við um Morgunblaðið, er sá, að þau
hafa mikla reynslu í fréttaöflun og eiga
mikið upplýsingamagn í tölvubönkum.
Vandi þeirra hefur hins vegar verið sá,
að þeim hefur reynzt erfitt að finna leið
til þess að hafa tekjur af netútgáfum. Það
hefur þess vegna komið Morgunblaðinu
þægilega á óvart, að fyrstu vikur netútgáf-
unnar hefur eftirsókn eftir auglýsingum í
hinum nýja miðli verið mjög mikil og ekki
víðs fjarri að segja, að auglýsingapláss á
netinu hafi nánast verið uppselt.
Undirbúningur að þessari starfsemi í
þeim mæli, sem nú er orðið, hefur staðið
í u.þ.b. ár og að þeim undirbúningi hefur
unnið samvalinn hópur ungs fólks, sem
oft hefur lagt nótt við dag til þess að hleypa
þessari nýju fjölmiðlastarfsemi af stokkun-
um. Til liðs við þennan hóp ungs fólks
hafa komið aðrir starfsmenn Morgunblaðs-
ins, sem hafa áratuga reynslu að baki
bæði í tæknimálum og í blaðamennsku.
Niðurstaðan er sú, sem við blasir. Mik-
ill metnaður er lagður í þessa starfsemi
af hálfu Árvakurs hf. og verður lögð rík
áherzla á að festa í sessi þann árangur,
sem náðst hefur á þessum fyrstu vikum.
Þegar það hefur tekizt má búast við að
umsvifin í netútgáfu Morgunblaðsins muni
aukast smátt og smátt.
SKÖMMU EFTIR
að fréttavefur
Morgunblaðsins hóf
Vefur starfsemi var opn-
aður sérstakur
fasteignavefur á netinu á vegum blaðsins.
Undirbúningur að starfrækslu hans hefur
einnig tekið langan tíma og hefur m.a.
byggzt mjög á samvinnu við fasteigna-
sala, sem lengi hafa verið í hópi helztu
viðskiptavina Morgunblaðsins.
Fasteignavefurinn er hugsaður sem
aukin þjónusta við fasteignasala annars
vegar en fasteignakaupendur og seljendur
hins vegar. Fasteignablað Morgunblaðsins
er helzti vettvangur í landinu fyrir auglýs-
ingar og upplýsingar um fasteignavið-
skipti og hefur svo verið um langt skeið.
Fasteignavefurinn eykur enn möguleika
fólks á að afla upplýsinga um þær fasteign-
ir, sem eru til sölu hveiju sinni. Hann
gefur fólki t.d. færi á að kanna hvaða eign-
ir eru til sölu í ákveðnum hverfum eða við
ákveðnar götur. Tölvan leitar samkvæmt
þeim fyrirmælum, sem henni eru gefin,
hvort sem um víðtæka eða takmarkaða
leit er að ræða.
En jafnframt er að fínna á fasteigna-
vefnum hagnýtar upplýsingar um allt það,
sem gát þarf að hafa á í fasteignaviðskipt-
um. Þar er að finna upplýsingar um lána-
möguleika. Fólk getur reiknað út á fast-
eignavefnum greiðslubyrði lána og yfírleitt
á að vera hægt að nálgast á fasteignavefn-
um allar nauðsynlegar upplýsingar um
fasteignaviðskipti.
Óhætt er að fullyrða, að með fasteigna-
blaði Morgunblaðsins, sem kemur út á
hveijum þriðjudegi, öðrum fasteignaaug-
lýsingum í blaðinu og fasteignavefnum
hefur verið lagður grunnur að víðtækum
upplýsingabanka um fasteignamarkaðinn
og svo umfangsmiklar upplýsingar er
hvergi_ annars staðar að fínna á einum
stað. Á hálfum mánuði hafa yfir 12 þús-
und manns heimsótt fasteignavefinn.
Eins og búast má við hafa komið upp
vissir byijunarörðugleikar við rekstur fast-
eignavefjarins. Þannig eru ekki enn allar
eignir, sem á boðstólum eru komnar inn
á fasteignavefínn en ötullega er unnið að
því að svo verði. Þá hefur borið á því, að
einstaka eignir, sem þegar hafa verið seld-
ar hafa verið kynntar á fasteignavefnum
á þann veg, að þær séu enn til sölu. Mark-
visst er unnið að því að útiloka slík mistök.
Að nokkrum mánuðum liðnum má
ganga út frá því sem vísu, að yfirgnæf-
andi meirihluti þeirra eigna, sem til sölu
eru hafí verið skráðar á fasteignavef Morg-
unblaðsins. Jafnframt verður unnið að því
að auka og bæta þá þjónustu, sem er á
vefnum m.a. með því að fjölga myndum
af eignum, sem eru á boðstólum.
Fasteigna-
M||§ IITyl
A’l
' m
í ELLIÐAÁRDAL
Morgunblaðið/Kristinn
Aðrar
upplýsingar
AUK ÞESS AÐ
vera kjörinn vett-
vangur fyrir nýj-
ustu fréttir, sem
hefur jafnframt þá
yfírburði yfir útvarp og sjónvarp að hægt
er að fylgjast með fréttunum, þegar hveij-
um og einum hentar en ekki þegar út-
varpi og sjónvarpi hentar, er einn helzti
styrkur netútgáfunnar sem fjölmiðils sá,
að hann opnar tækifæri til að veita fólki
aðgang að nánast takmarkalausu upplýs-
ingastreymi.
Á fyrstu vikum fréttavefjar Morgun-
blaðsins hefur netútgáfan prófað sig áfram
á þessari leið. Glöggt dæmi um þetta er
það upplýsingamagn, sem nú þegar er að
finna á fréttavefnum um Halldór Laxness,
verk hans, ævi og störf. Á næstu mánuðum
verður unnið skipulega að því að auka við
þær upplýsingar, sem nú þegar er að fínna
á vefnum um Nóbelsskáldið. Ekki er ósenni-
legt, að á næstu árum verði búið að byggja
upp á netútgáfu Morgunblaðsins einn mesta
upplýsingabanka landsins um mesta rithöf-
und þessarar aldar og margra alda. Slíkar
upplýsingar í aðgengilegu formi eru ómet-
anlegar fyrir stóran hóp fólks, ekki sízt
fyrir ungt fólk, sem i námi sínu vinnur að
úrlausn margvíslegra verkefna, sem tengj-
ast Nóbelsskáldinu og verkum þess. Hátt
á fjórða þúsund manns hafa nú kynnt sér
þær upplýsingar, sem eru á fréttavef Morg-
unblaðsins um Halldór Laxness.
Fleiri dæmi má nefna um upplýsinga-
miðlun af þessu tagi. Daginp eftir að Is-
lenzka óperan frumsýndi Ástardrykkinn
eftir Donizetti var búið að opna á fréttavef
Morgunblaðsins sérstakan þátt um óper-
una, höfundinn, söngvarana og ýmsar aðr-
ar upplýsingar, sem að gagni máttu koma
fyrir óperuunnendur. Þetta er dæmi um
það, hvernig hægt er að sinna merkilegum
atburðum í menningarlífi þjóðarinnar á
netinu.
Vala Flosadóttir hefur vakið þjóðarat-
hygli síðustu vikur fyrir afrek sín í stangar-
stökki innanhúss. Á fréttavef Morgun-
blaðsins er nú að finna á einum stað ítar-
legar upplýsingar um feril hennar að und-
anfömu en jafnframt fréttir Morgunblaðs-
ins um íþróttaferil hennar frá því að hún
fór að vekja athygli fyrir nokkrum árum.
Þegar Samkeppnisráð kvað upp þann
úrskurð, að kaup Myllunnar-Brauðs hf. á
Samsölubakaríinu hf. skyldu teljast ógild
mátti finna á fréttavef Morgunblaðsins
nánast allan þann texta, sem fyrir hendi
var, með upplýsingum um þetta mál.
Þegar Kofi Ánnan hafði samið við íraks-
forseta mátti með aðstoð fréttavefjar
Morgunblaðsins lesa texta samkomulags-
ins í heild áður en hann var birtur form-
lega opinberlega en textanum var augljós-
lega lekið áður en til opinberrar birtingar
kom.
Þegar Færeyjaskýrslan var birt í Dan-
mörku síðdegis á föstudegi og nam a.m.k.
2.500 blaðsíðum var hægt að nálgast texta
skýrslunnar með milligöngu fréttavefjar
Morgunblaðsins u.þ.b. 15 mínútum eftir
að skýrslan var birt opinberlega í Dan-
mörku.
Margvíslegan texta af þessu tagi er
ekki hægt að birta í heild í dagblaði en
með því að gera slíkar upplýsingar að-
gengilegar á netinu vill Morgunblaðið
leggja áherzlu á að veita fjölmörgum les-
endum sínum og viðskiptavinum þá þjón-
ustu, að þeir geti á þess vegum fengið
greiðan aðgang að upplýsingum sem þess-
um.
ÞÓTT FRÉTTA-
vefur Morgunblaðs-
.j,.,. ins sé starfræktur
ijOlmiOlll í nánum tengslum
við ritstjórn Morg-
unblaðsins er hér þó um nýjan og sjálf-
stæðan fjölmiðil að ræða og við hann starf-
ar sérstök ritstjórn, blaðamenn, sem vinna
eingöngu fréttir á netútgáfuna. Þeim er
auðvitað kappsmál að vera á undan ljós-
vakamiðlunum með fréttir en ekki síður
að vera á undan Morgunblaðinu sjálfu með
fréttir og aðrar upplýsingar. Á milli rit-
stjórnar Morgunblaðsins og ritstjórnar
netútgáfunnar ríkir heilbrigð en vináttu-
samleg samkeppni.
í þessari sjálfstæðu stöðu ritstjómar
fréttavefjarins felst hins vegar, að blaða-
menn hans leita á sömu mið og blaðamenn
Morgunblaðsins um fréttir. Sumir af við-
mælendum blaðamanna hafa orðið undr-
andi á þessu og hafa talið að um skipulags-
leysi sé að ræða. Svo er ekki. Hér er um
tvo fjölmiðla að ræða, sem starfa sjálf-
stætt að fréttaöflun.
Viðfangsefni þeirra eru hin sömu á
margan hátt en efnistök gjörólík. Frétta-
vefurinn birtir tiltölulega stuttar fréttir en
hefur möguleika á að birta mikið ítarefni
í tengslum við fréttirnar. í Morgunblaðinu
sjálfu er daglega fjallað mun ítarlegar um
sömu mál en blaðið hefur hins vegar ekki
möguleika á að birta jafn mikið bakgrunns-
efni og fréttavefurinn getur gert.
Með hliðsjón af þessu gerir Morgunblað-
ið sér vonir um, að viðmælendur blaða-
manna taki því vel, þótt haft sé samband
við þá af tveimur aðilum á vegum tveggja
fy'ölmiðla, sem Árvakur hf. rekur nú. í
raun og veru er verið að stórauka þjón-
ustu við marga þeirra, sem haft er sam-
band við og hafa hagsmuni af því að koma
upplýsingum á framfæri, hvort sem um
er að ræða stjórnmálamenn, embættis-
menn, talsmenn fyrirtækja, hagsmuna-
samtaka eða aðra.
Fréttavefur Morgunblaðsins er að stíga
sín fyrstu skref. En þeir sem hafa orðið
þeirrar ánægju aðnjótandi að fylgjast með
þeim og sjá hver viðbrögðin hafa orðið eru
í engum vafa um, að hann á eftir að vaxa
og dafna á næstu árum og áratugum og
þjóna mikilvægu hlutverki í upplýsinga-
miðlun til íslendinga, hvar sem þá er að
fínna á heimsbyggðinni.
Undirbúningur að
þessari starfsemi
í þeim mæli, sem
nú er orðið, hefur
staðið í u.þ.b. ár
og að þeim undir-
búningi hefur
unnið samvalinn
hópur ungs fólks,
sem oft hefur lagt
nótt við dag til
þess að hleypa
þessari nýju
fjölmiðlastarf-
semi af stokkun-
um. Til liðs við
þennan hóp ungs
fólks hafa komið
aðrir starfsmenn
Morgunblaðsins,
sem hafa áratuga
reynslu að baki
bæði í tæknimál-
um og í blaða-
mennsku.