Morgunblaðið - 01.03.1998, Page 40
40 SUNNUDAGUR 1. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
/V/T/, S7Á/B WFÐ
ÚSFJHfJJ (
g.4
&HEFALP&5/ \
KE/asrft F4/Q47B
toN/NU Fy&e J J
Grettir
Smáfólk
Hæ, Kalli... iíkaði Já, þakka ykkur fyrir ... Hann sagði að það væri „snot-
þér Valentínusarkort- það var snoturt. Snoturt? urt“ Spyrðu hann hvort við
ið frá okkur? geturm fengið það til baka ...
Dagurinn er ekki liðinn .
.. Við getum enn þá
gefið það einhveijum
öðrum ...
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavik • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hnotskurn
Frá Sigurgeiri Orra Sigurgeirssyni:
HAFI einhver haldið að hin af-
spyrnu fákæna hugmyndafræði sem
sósíalisminn er reistur á væri liðin,
skjátlast honum hrapallega. Eins og
þorrabakki sýnir í hnotskurn hvað
forfeður íslendinga lögðu sér til
munns, kjarnar fyrirbæri nokkurt í
borginni sósíalískar firrur stjórnar
hennar.
Flestir vita að þeir sem aðhyllast
sósíalísk (vinstri) sjónarmið eru
leynt og ljóst á móti verslunum nema
þær séu í eigu hins opinbera, þeir
eru á móti öllum bflum nema stórum
appelsínugulum, þeir vilja hag og
forgang opinberra samgöngufyrir-
tækja sem mestan og að borgarbúar
ferðist eingöngu með þeim. Þeir vilja
að aliar ákvarðanir og skipulagning
séu á einni eða fáum höndum því
þeir vita hvað öðrum er fyrir bestu
og telja enga ástæðu til að taka tillit
tii annaiTa sjónarmiða. Lögmál til-
viljunarinnar virðist einnig ráðandi
þáttur í stjómkænsku þeirra.
Sýnishorn sem varpar skýru ljósi á
þetta er að finna í Hafnarstræti í
Reykjavík í formi þriggja trékassa.
Kassarnir þrír loka götunni og lýsa
því vel þeirri hugmynd að opinber
samgöngufyrirtæki hafi forgang yfir
einkabflinn, þar kjarnast líka and-
staða þeirra við einkareknar verslan-
ir og fyrirtæki, því um leið og umferð
um götuna leggst af missa verslan-
irnar af þeirri athygli sem af henni
hlýst. Búðargluggamir standa því
líkt og sumar stjórnmáiakenningai’
og áhangendur þeima eins og hver
önnur viðundur á skökkum stað á
skökkum tíma. Það einkenni að vald-
inu sé best fyrirkomið á einni hendi
eða fáum sést best af því að ekkert
samráð var haft við eigendur fyrir-
tækjanna í götunni þegar ákveðið var
að setja þar trékassana. Endurtekin
mótmæli hafa verið virt að vettugi
því sósíalistar telja sig best færa um
að ákveða hvað sé öðrum fyrir bestu.
Lögmál tilviljunarinnar kemur skýrt
fram í því að trékassarnir vom fjar-
lægðir um tíma (á mesta annatíma).
Það kippir vitaskuld fótunum undan
tflgangi þeirra. Ef það er hægt hvert
er þá markmiðið? Þörfin fyrir þá get-
ur tæplega hafa verið knýjandi. Hafi
tilgangurinn með trékössunum verið
sá að greiða fyrir umferð strætis-
vagna og farþega þehTa ber það vott
um skipulagshæfni valdhafanna.
Mannvirkin sem byggð vora utan um
biðstöðina era svo ný að steypan í
þeim er vart hörðnuð. Svæðið í kring
er tiltölulega rúmgott og hægur
vandi hefði verið að skipuleggja það
þannig að strætisvagnamir kæmust
leiðar sinnar án þess að hefta þyrfti
aðra umferð.
Eins og allir vita eru sósíalistar á
móti einkabílum - einkabflisma eins
og þeir kalla það - og aðgerðin í
Hafnarstrætinu er hluti af stærri
herferð gegn þeim „ósóma“. Til
dæmis á ekki að auka umferðarrými
vestan Elliðaánna fram til ársins
2016 (og eflaust víðar), þrátt fyrir
fyrirséða fjölgun íbúa borgarinnar.
Þetta hljómar eins og óráðsþvaður
og væri afgreitt sem slíkt ef stað-
reyndin væri ekki sú að þetta eru
áform nefndar sem fer með skipu-
lagsmálin. Benjamín H.J. Eiríksson,
einn mesti hagfræðingur Islendinga
fyrr og síðar, kallaði þetta „það alvit-
lausasta“ af öllu vitlausu og hefur
hann þó kynnst ýmsu í stormum
sinna tíða. I köldu og illviðrasömu
landi sem Island er, er einkabfll
nauðsynlegri en víðast hvar annars
staðar og er ekki vafi á að hugmynd-
ir borgarfulltrúanna myndu breytast
um leið og þeir festu tunguna við
frosið biðskýlið einhvern vetrar-
morguninn (gera verður ráð fyrir að
skipulagsnefndin hagi sér í samræmi
við hugmyndirnar, þótt reynslan
sýni reyndai' annað). Tímasóunin í
umferðaröngþveitinu mun valda
miklum óþægindum og kosta þjóðfé-
lagið andvirði fjölda barnaheimfla og
reksturs þeirra. Að greiða ekki fyrir
bflaumferð um borgina er álíka
skynsamlegt og ef sautjándu aldar
menn hefðu tekið þá ákvörðun að
gelda hrossastofn landsins.
Kassamir í Hafnarstrætinu lýsa í
hnotskm-n hugsunarhætti þeÚTa sem
treyst hefur verið fyrir stjóm borgar-
innar. Engin þörf er fyrir fleiri sýnis-
hom og því engin þörf fyrir fleiri ár
þessarar sauðahjarðar við stjórnvöl-
inn. Fari svo fá borgarbúar nægan
tíma til að naga sig í handarbökin í
umferðarteppum framtíðarinnar.
SIGURGEIR ORRI
SIGURGEIRSSON,
Kirkjutorgi 6, Reykjavík.
Um tónlist í útvarpi
Frá Kristni Björnssyni:
MIG LANGAR til að taka undir og
vekja athygli á grein Halldórs Har-
aldssonar skólastjóra í Morgunblað-
inu 12. febrúar sl. um mikilvægi þess
að Klassík Fm 106,8 starfi áfram. Ég
hlusta mikið á tónlist í útvarpi og oft
á þessa ágætu stöð.
Oft undrast ég hve lítið er um sí-
gilda tónlist hjá öðrum útvarpsstöðv-
um. Aðeins Ríkisútvarpið, Rás 1,
sendir út fjölbreytta, góða tónlist og
vinnur þannig ágætt starf við kynn-
ingu hennar og veitir mörgum
ánægju. Tónlistarflutningur Rásar 1
er þó nokkuð takmarkaður vegna
þess að mikið er af öðra ágætu efni
sem flytja þarf.
Annars virðast flestar útvarps-
stöðvar útskúfa sígildri tónlist, en
flytja frekar einhæfa, „popp“tónlist
alla daga og nætur. Slík tónlist er að
sjálfsögðu athyglisverð og rétt að
kynna ásamt öðra, en þó er þetta
furðuleg einhæfni og ég spyr, hvað
veldur?
Sjálfur er ég alæta hvað tónlist
vai'ðar, og vil heyra hana sem fjöl-
breyttasta, þótt klassísk tónlist sé
ánægjulegust.
Ríkisútvarpið, Rás 2, ætti að hafa
ágæta aðstöðu til að senda út mikið
af fjölbreyttri tónlist þar sem gott
væri jafnvægið í tegundum hennar.
Með því mundi Rás 2 vinna mikið
fræðandi starf en einnig verða
skemmtileg fyrir flesta.
Því er nú oft haldið fram að ungt
fólk vilji aðeins heyi'a nýjustu
„popp“tónlistina. Þetta virðist mér
fjarri réttu og þekki margt ungt fólk
sem velur fjölbreytta tónlist og ekki
síst þá sígildu.
Því vil ég beina þeim tilmælum til
útvarpsstöðva að endurskoða afstöðu
sína og gera hinum ýmsu tegundum
tónlistar nokkurn veginn jafn hátt
undir höfði.
Vona ég að tónlistarunnendur taki
undir þetta og vinni að því að svo
verði.
KRISTINN BJÖRNSSON,
sálfræðingur og fyrrverandi forstöðu-
maður Sálfræðiþjónustu skóla.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.