Morgunblaðið - 01.03.1998, Side 16
16 SUNNUDAGUR 1. MARZ 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Verk Áskels Mássonar flutt á tónleikum víða í Evrópu og vestanhafs
Vaxandi áhugi
fyrir slag-
verkstónlist
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
TÓNLIST Áskels Mássonar verður víða leikin á tónleikum erlendis á
þessu ári. Áskell segir að greinilega megi merkja vaxandi áhuga fyrir
slagverkstónlist í heiminum.
VERK tónskáldsins Áskels Másson-
ar hafa verið leikin á tónleikum víða
erlendis að undanfórnu. Á tónlistar-
hátíð Juilliard-tónlistarskólans í
New York sem haldin var í lok síð-
asta mánaðai- var verk Áskels, Elja,
opnunarverk hátíðarinnar. Pá flutti
Sinfóníuhljómsveitin í Lohja í Finn-
landi Kammersinfóníu eftir Áskel í
lok síðasta mánaðar. I byrjun næsta
mánaðar verður frumflutt nýtt verk
eftir Áskel á slagverkstónlistarhátíð
Akron-háskólans í Ohio í Bandaríkj-
unum. Og í vor hefur skoski slag-
verksleikarinn Evelyn Glennie
hljómleikafor um Bretlandseyjar og
Irland þar sem hún frumflytur nýtt
verk Áskels, Frum - a Drum Song,
sem tónskáldið samdi sérstaklega
íyrir hana.
Slagverkstónlistarhátíð Akron-há-
skólans í Ohio verður haldin 1. og 2.
mars nk. Á hátíðinni verða frumflutt
tólf tónverk fyrir slagverk og verður
verk Áskels Mássonar, Rythm Strip,
þar á meðal. Samdægurs kemur
verkið út á prenti á vegum banda-
rísks útgáfufyrirtækis. Rythm Strip
er samið fyrir tvo slagverksleikara
sem leika á sneriltrommur. „Verkið
er byggt á rytmum sem við fínnum í
náttúnmni,“ segir Áskell. „Hljóðum í
sjálfum okkur, eins og t.d.
hjartslætti, og umhverfishljóðum á
borð við hljóð í járnbrautarlestum.“
Tónlistarhátíð Juilliard-tónlistar-
skólans í New York stóð yfir í
Lincoln Center dagana 23.-30. janú-
ar sl. Hátíðin nefnist Focus! og ber
undirtitilinn Scandinavia today. Á
sex tónleikum voru flutt verk eftir
ýmis norræn nútímatónskáld, þ.á m.
Áskel Másson, og var verki hans,
Elju, sýndur sá heiður að vera fyrsta
verkið á efnisskrá opnunartónleika
hátíðarinnar undir stjóm Joels
Sachs. Önnur íslensk tónskáld sem
verk áttu á hátíðinni voru þau Atli
Heimir Sveinsson, Atli Ingólfsson,
Karólína Eiríksdóttir, Hafliði Hall-
grímsson og Haukur Tómasson.
Verkið Elja er frá árinu 1994 og var
frumflutt af paput-tónlistarhópnum
hér á landi. I umsögn sem birtist í
New York Times hinn 27. janúar sl.
lýsir Anthony Tommasini verki
Áskels sem órólegu verki með
hvikulum tónum vindsins, „ásamt
gáskafullum þrástefjum og köflum
með einföldum kirkjutóntegundum
sem á glettilegan hátt Ijá verkinu
miðaldatónblæ".
I lok síðasta mánaðar var Áskell
staddur í Finnlandi þar sem Sinfón-
íuhljómsveitin í Lohja flutti kamm-
ersinfóníu hans á tónleikum undir
stjóm Petris Sakari. Kammersinfón-
ía, sinfónía nr. 2, er tileinkuð Caput-
hópnum og Petri Sakari og var fyrst
flutt af tónjistarhópnum hér á landi
fyrir ári. Áskell segir tónleikana í
Finnlandi hafa borið upp á sama dag
og hann lauk við verkið árinu fyrr.
Flutningur verksins hlaut mjög lof-
samlega dóma í skrifum Pirjo
Hannula í dagblaði staðarinns. „Það
er alveg ótrúlegt hvemig þetta sjálf-
menntaða tónskáld hefur getað
skapað slíkar töfrandi stemmningar
og fengið út úr ólíkum hljóðfærum
svo ótrúlega heima af tónum og
hljómum ... Það var meira að segja
stundum erfitt að trúa sínum eigin
eyrum,“ segir m.a. í greininni.
Kammersveitin í Örebro í Svíþjóð
mun flytja verkið á tónleikum undir
stjórn Petris Sakari í september-
mánuði.
Einn er sá tónlistarmaður sem átt
hefur stóran þátt í að kynna verk
Áskels Mássonar með flutningi sín-
um og er þar átt við skoska slag-
verksleikarann Evelyn Glennie.
Glennie kom hingað til lands fyrr í
vetur og lék á tónleikum með Sinfón-
íuhljómsveit íslands og flutti hún þá
verk Áskels, Prim, sem aukaverk á
tónleikunum. Glennie er mjög eftir-
sóttur einleikari og hefur hún unnið
að því hörðum höndum að skipa
ásláttarhljóðfærum fastan sess með-
al klassískra hljóðfæra. Tónverkið
Prim eftir Áskel hefur lengi verið á
efnisskrá Glennie og telst honum til
að það hafi verið flutt yfir 200 sinn-
um á tónleikum hennar víðs vegar
um heiminn, m.a. í Evrópu, Banda-
rikjunum, Kína, Kóreu, Ástralíu og
Singapore. Leiðir þeirra Áskels og
Evelyn Glennie lágu saman í gegn-
um sameiginlegan kennara þeirra,
James Blades, og er verkið Frum - a
Drum Song sem Áskell samdi fyrir
Glennie jafnframt tileinkað Blades.
Frumflutningur verksins verður á
tónleikafór Evelyn Glennie um Bret-
land, Skotland og Irland sem hefst
19. maí og lýkur 18. júní nk. Leikið
verður á sextán stöðum allt frá Bath
í Avon, þar sem tónleikarnir hefjast,
til Bridgewater Hall í Manchester
þar sem tónleikaförinni lýkur, með
viðkomu í Wigmore Hall í Lundún-
um 2. júní.
Verk Áskels Mássonar munu víðar
hljóma þetta árið, því í september
verður verk hans, Píanó tríó, flutt á
Norrænum tónlistardögum í Stokk-
hólmi. Þetta sama verk verður
einnig flutt á hátíð tileinkaðri fiðl-
unni, The Violin festival, í Bretlandi.
Áskell segir að greinilega megi
merkja vaxandi áhuga fyrir slag-
verkstónlist í heiminum. „Líkt og
þegar hljómborðshljóðfærin
blómstruðu á 18. og 19. öld þá eru
slagverkshljóðfæri hljóðfæri 21. ald-
arinnar.“
Sýning á
listaverk-
um grunn-
skólanema
í RÁÐHÚSI Reykjavíkur er
sýning á ljósmyndum, ljóðum
og öðrum listaverkum nem-
enda í 7. bekk grunnskóla
Reykjavíkur og 9. og 10. bekk
Hlíðarskóla. Sigrún Magnús-
dóttir, formaður fræðsluráðs,
opnaði sýninguna sl. föstudag
og ber sýningin yfirskriftina
Hvert liggur mín leið?
Notaðar sem kveikjur
að ljóðum
Nemendur í 7. bekk í
grunnskólum Reykjavíkur
áttu þess kost á haustdögum
að koma í Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur og vinna Ijás-
myndaverkefni í miðbænum.
Athyglinni var beint að nær-
myndum af hlutum og form-
um í umhverfínu og áhersla
lögð á að hægt er að taka ljós-
myndir í hvernig veðri sem er.
Ljósmyndirnar voru síðan
notaðar sem kveikjur að ljóð-
um. Nokkrir bekkir gerðu
myndskreyttar ljóðabækur en
aðrir sýndu verk sín á vegg.
Umsjón með verkefninu hafði
Marteinn Sigurgeirsson,
kennsluráðgjafi á Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur.
Nemendur í 9. og 10. bekk
Hlíðaskóla fengu nokkrar
Ijósmyndir frá nemendum í 7.
bekk til að nota sem kveikju
að myndrænni listsköpun.
Hverju verki fylgja upplýs-
ingar um hvernig listamaður-
inn túlkar tenginguna frá Ijós-
mynd að listaverki. Umsjón
með verkefninu hafði Anna
Flosadóttir, myndmennta-
kennari í Hlíðaskóla.
Sýningin er opin alla virka
daga frá kl. 8-19 og frá kl.
12-18 um helgar. Sýningunni
lýkur 10. mars.
finnast ór eftir ár hjá okkur á karlanámskeiðunum.
Karlapúl samanstendur af samhentum hópi karla, góðum
kennara, fjölbreyttu æfingaprógrammi og fræðslu.
Stöðvaþjálfun og þolþjálfun
3-5x I viku
Upplýsingar um fæðuval:
Bæklingurinn ,(formi til
framtíðar"
„Léttir réttir" uppskriftabók
með 150 léttum og girnilegum
uppskriftum
Fræðsla
Fitumæling og vigtun
Vinningar í hverri viku
Þrírheppnirog
samviskusamir fá fritt
framhaldsnámskeið
Nýttu þér reynslu okkar í þína þágu. Byggðu
upp voðvamassa og losnaðu við fitu og lærðu
að halda þér í góðu formi til framtíðar.
Hringdu og skráðu þig strax f síma 533-3355.
IH
SKEIFAN 7 108 REYKJAVIK S. 533-3355
^ökarlapúl
Gæðakrimmi í Kaffíleikhúsi
LEIKLIST
Kaffileikhúsið og
Reykjavfkurleikhúsið
SVIKAMYLLA
eftir Anthony Shaffer. íslensk þýð-
ing: Leikhópurinn. Leikstjdri: Sigríð-
ur Margrét Guðmundsddttir. Leikar-
ar: Arnar Jdnsson, Sigurþdr A. Heim-
isson, Albert Þórsson, Gísli Sigurðs-
son og Magnús Bjarnason. Leikmynd
og búningar: Þdrunn Elísabet Sveins-
ddttir. Lýsing: Ævar Gunnarsson.
Hljdðmynd: Margrét Örndlfsdóttir.
Leikgervi: Sigrfður Rdsa Bjarnaddtt-
ir. Brúður og trúðaskór: Katrín Þor-
valdsdóttir. Kaffileikhúsið, fimmtu-
dag 26. febrúar.
DANSSVEIFLU
Á TVEIM
DÖGUMi
námskeið
um helgina
Áhugahópur
umalmenna
dansþátttöku
i Íslandí
557 7700
hringdu núna
Netfang: KomidOgDansid@tolvuskDli.is
Heimasíða: www.tolvuskoli.is/KomidOgDansid/
SVIKAMYLLA (Sleuth) er tæp-
lega þrítugt leikrit eftir hinn
breska Anthony Shaffer (sem ku
vera tvíburabróðir hins fræga leik-
skálds Peters Shaffer (Equus,
Amadeus)) og má e.t.v. segja verkið
af þeirri grein bókmennta sem kall-
ast sakamálasögur. Þó er hér ekki
um hefðbundna slíka sögu að ræða,
heldur snýst plottið um leiki og gát-
ur, hugmyndaflug og útsjónarsemi
þeirra persóna sem við sögu koma
og er framvindan drifin áfram af
öllu því sem prýðir góða krimma:
ástríðum, afbrýði, niðurlægðu stolti
og hefndarþorsta, svo eitthvað sé
tínt til.
Öðrum þræði gerir verk þetta þó
grín að einmitt þeirri bókmennta-
grein sem það er kennt við; höfund-
ur leikur sér að klisjum sem flestir
aðdáendur sakamála- og morð-
sagna þekkja og varða bæði per-
sónusköpun og plott. En fyrst og
fremst er hér um afar vel saman
sett verk að ræða, þar sem fer sam-
an feiknagóð flétta og góður húmor.
Undirrituð var svo heppin að
hafa ekki séð fræga kvikmynd sem
gerð hefur verið eftir verki þessu
(með þeim Sir Laurence Olivier og
Michael Caine í aðalhlutverkum)
þannig að atburðarás verksins kom
stöðugt á óvart og spenna hélst til
leiksloka. Hitt má þó einnig taka
fram að borðnautar mínir, sem allir
höfðu séð téða kvikmynd, virtust
ekki skemmta sér neitt síður, enda
verkið vel saman sett og textinn
skemmtilegur. Leikhópurinn í heild
er skrifaður fyi-ir þýðingu verksins
og hlýtur sú samvinna að teljast af-
ar vel heppnuð því textinn virkaði
mjög heildstæður og rann vel.
Það sem auðvitað gerir útslagið
hér var feiknagóður leikur aðalleik-
aranna, Arnars Jónssonar og Sig-
urþórs A. Heimissonar. Arnar fer á
kostum í hlutverki Andrews
Wykes, eldri herramanns, sem boð-
ið hefur ungum elskhuga konu
sinnar, Milo Tindle (Sigurþór), í
heimsókn með vafasamar áætlanir í
huga. Hr. Wyke er höfundur saka-
málasagna og virðist eiga erfitt
með að greina hvar skáldskapur
hans endar og veruleikinn tekur
við. Arnar lék þennan herramann
af innsæi, reisn og góðri kímnigáfu.
Sigurþór smellpassaði inn í hlut-
verk hins unga ítalskættaða elsk-
huga frúarinnar og veitti Arnari
góðan samleik. Ekki verður heldur
kvartað yfir leikurum í aukahlut-
verkum - síður en svo. Öllum leik-
urum hefur Sigríður Margrét Guð-
mundsdóttir leikstýrt af öryggi og
fagmennsku.
Svikamylla er sönn leikhús-
skemmtun og verkið passar mjög
vel inn í hið takmarkaða rými Kaffi-
leikhússins. Leikmynd Þórunnar E.
Sveinsdóttur er mjög haganlega
fyrir komið í rýminu og búningar
hennar falla vel að verki og persón-
um. Margrét Örnólfsdóttir hefur
hannað hljóðmynd fyrir uppsetn-
inguna og jók hún verulega á heild-
aráhrif sýningarinnar. Lýsing
Ævars Gunnarssonar var einfóld
og þjónaði sínu hlutverki vel. Það
er óhætt að mæla með Svikamyll-
unni í Kaffileikhúsinu íyrir þá sem
hafa gaman af vel útfærðum ráð-
gátum, góðum húmor og góðum
leik.
Soffía Auður Birgisdóttir