Morgunblaðið - 01.07.1997, Blaðsíða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 1997
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖND SÍÐUSTU VIKU
Draugurinn Susie
(Susie Q)+'h
Jólin koma
(Jingle AII the VLayj* ★
Leyndarmál Roan Inish
(The Secret ofRoan Inish)★ ★ 'h
Eigi skal skaða
(First Do No Harrn) ★ ★ ★
Ótti
(Fear)* ★ 'h
Jack
(Jack)* ★
Vondir menn í vígahug
(Marshall Law)* 'h
Helgi í sveitinni
(A Weekend in the Country)★ ★ ★
Köid eru kvennaráð
(The First Wives Club)* ★ ★
Ofbeldishefð
(Violent Tradition)* ★ 'h
Flagð undir fögru
skinni
(Pretty Poison)* 'h
Eiginkona efnamanns
(The Rich Man’s Wife)+'h
Djöflaeyjan
(Djöflaeyjan}★ ★ ★ 'h
Plágan
(The Pest)★ ★ ★
Krákan: Borg englanna
(The Crow: City of
Angels)*
Allt fyrir aurana
(lfLooks Could Kill)'h
Nornaklíkan
(The Craft)+ ★
Óskastund
(Blue Rodeo)*
Gillian
(To Gillian on Her 37th
Birthday) ★ ★ 'h
Óvæntir fjölskyldumeðlimir Plato á flótta
(An Unexpected Family)★ ★ ★ (Platos Run)* 'h
Vinnið gegn fíla-
penslum og bólum
skin
Viöyr§c®8iDC§ 8aMSM mð húchfanradarraágysn
Endurteknar rannsóknir hafa staðfest árangur Silicol skin
í baráttunni gegn fílapenslum, bólum og feitri húð.
íslenskar leiðbeiningar fylgja. Fæst í flestum apótekum.
London 22.100 24.900
París 22.100 24.900
Berlín 22.100 24.900
Köln 22.100 24.900
Frankfurt 22.100 24.900
Munchen 22.100 24.900
Innifatið: Flugfar báðar leiðir og allur
flugvallaskattur.
E ) Farðu að heiman - en komdu við
pi á Ferðaskrifstofu stúdenta.
ÞAB DUGAR EKKIAÐ SITJA hEIMA OG LESAI
sfMi: 561 5656 fax: 551 9113 heimasIða: http://www.centrum.is/studtravel
FARÐU AÐ
H 3 I M A N
ÓDÝRT FLUG í SUMAR
Fyrir ISIC/G025 Fyrir aðra
MERKIS-MYND
Póstvagninn
Stagecoaeh — 1939
Leikstjóri: John Ford. Handrit:
Dudley Nichols. Kvikm.taka:
Bert Glennon. Leikarar: John Wa-
yne, Tim Holt, Thomas Mitchell og
Claire Trevor.
PÓSTVAGNINN má kalla
klassík allra vestramynda, og
undir hana skrifar John nokkur
Ford. Auk þess að skjóta John
Wayne upp á stjörnuhimininn,
lyfti myndin „vestranum" upp úr
B-mynda flokknum sem hann
hafði áður tilheyrt, og öðlaðist
hann þar með virðingu. Enda
átti myndin eftir að hafa mikil
áhrif á komandi kúrekamyndir
hvað varðar stíl, efnistök og per-
sónusköpun.
Myndin fjallar um hóp fólks í
póstvagni á leið til Arizona, sem
lenda í bardagaglöðum indíánum.
Þessi hópur þykir smækkuð mynd
af samfélagi þess tíma. Persónu-
sköpun myndarinnar er marg-
brotin og átök eiga sér stað milli
þegna misjafnlega hátt settra í
þjóðfélagsstiganum og gilda
þeirra. Samstaða fólksins á
raunastundu á eftir að eyða for-
dómum þeirra á milli. John Ford
dáði þetta umfjöllunarefni: Hópur
fólks samankominn og hvernig
hver og einn bregst við andspæn-
is dauðanum.
John Ford kvikmyndar í uppá-
halds landslaginu sínu. Atriðið þar
sem indíáni ræðst á John Wayne,
sem er að reyna að gera að festing-
um póstvagnsins á fullri ferð, þyk-
ir enn mjög merkilegt. Staðgeng-
ill Jóns Væna lék líka indíánann
sem réðst á hann! Þetta atriði er
mjög einkennandi fyrir John Ford,
þar sem einhver fórnar sér fyrir
samfélagið.
Þótt Póstvagninn hafi verið ný-
stárleg mynd að mörgu leyti, er
hún iíka íhaldssöm á neikvæða
vísu. Indíánarnir eru vondu karl-
arnir eins og oft, og Mexíkóarnir
aðhlátursefnið.
Til gamans má geta þess að
Orson sjálfur Welles segist hafa
lært að ídippa kvikmyndir með því
að horfa á Póstvagninn 45 sinnum!
Kvikmyndafréttir
Pierce Brosnan ætlar að feta
í fótspor Steve McQueen og leika
í endurgerð á „The Thomas Crown
Affair". Cameron Diaz verður ein
af föngulegu konunum í lífi aðal-
persónunnar, ríks ræningja sem
hefur gaman af skák.
Jeff Daniels hefur tekið að sér
hlutverk í Disney-myndinni „My
Favorite Martian“. Myndin er
byggð á sjónvarpsþáttum sem
nutu nokkura vinsælda í Banda-
ríkjunum á sínum tíma.
Dustin Hoffman, Robert De-
Niro, Woody Harrelson, Anne
Heche og Denis Leary ætla öll
að leika í pólitísku satírunni „Wag
the Dog“. Barry Levinson sér um
leikstjórnina.
Joe Dante ætlar að leikstýra
„Small Soldiers“ fyrir Dream-
Works. Myndin segir frá ævintýr-
um drengs þegar tindátarnir hans
lifna við.
Roger Moore hefur sam-
þykkt að leika í væntan-
legri kvikmynd Spice Girls
„Five“. Gamli Bondarinn
fer með hlutverk ríkisbubba
í tónlistariðnaðinum í
myndinni.
Kvikmyndaleikstjórinn
Penny Marshall hefur skrif- |
að undir að leikstýra tveimur
myndum, „Saving Grace“ og
„Wild Oats“. Fyrri myndin segir
frá lausgirtum plötuframleiðanda
sem uppgötvar að hann hefur
eignast afkomendur fyrir tuttugu
árum. Síðarnefnda myndin fjallar
um samband tveggja rokksöngv-
ara í gegnum
þykkt og
þunnt.
Tommy
Lee Jones vill
prófa leikstjórn.
Hann ætlar bæði að
stýra og leika aðalhiut-
verkið í „Dixie City Jam“.
Myndin er byggð á bók James Lee
Burke um fyrrverandi löggu sem
rekur verslun fyrir veiðimenn.
Anjelica Huston ætlar líka að
setjast í leikstjórastólinn. Hún
DUSTIN Hoffman fer með hlutverk
pólitísku satírunni „Wag the Dog“.
ætlar að stjórna og leika á móti
Sharon Stone og Kristin Scott
Thomas í „A Cup of Tea“. Mynd-
in fjallar um ólík kjör ríkra og
fátækra kvenna í New York á tím-
um fyrri heimsstyijaldarinnar.
Marisa Tomei og Alan Arkin
verða fátæklingar í „The Slums
of Beverly Hills“. Myndin á að
gefa aðra mynd af lífinu á hæðun-
um en sjónvarpsþættirnir „Beverly
Hills 90210“.
Steve Martin og Eddie Murp-
hy leika saman í „Bofinger", gam-
anmynd sem Martin skrifaði.
Martin fer með hlutverk framleið-
anda sem hefur skrifað kvik-
myndahandrit og finnst aðeins ein
stjarna (Murphy) koma til greina
í aðalhlutverkið.
Martin Landau leikur á móti
David Duchovny og Gillian And-
erson í „X-Files“ kvikmyndinni sem
verið er að taka upp í Vancouver.
Melanie Griffith hefur boðið
Howard Stern að leika stórlax í
tónlistariðnaðinum sem er haldinn
ofsóknaræði í „Jane“. Griffith
ætlar að fara með aðalhlut-
, verkið í myndinni á móti
ÚJte David Spade
MARISA Tomei verður fá-
tæklingur í kvikmyndaborg-
inni í sinni næstu mynd.
Yfirmenn Warner Bros. hafa boð-
ið Michael Douglas að leika í
„Perfect Murder". Myndin er laus-
lega byggð á trylli Alfred Hitch-
cock, „Dial M for Murder", frá
árinu 1954.
Martin Scorsese er með mörg
járn í eldinum að vanda. Hann er
að ræða við ítalska framleiðandann
Vittorio Cecchi Gori um að gera
heimildarmynd um ítalska kvik-
myndagerð. Einnig langar Scorsese
að gera heimildarmynd um Giorgio
Armani, og kvikmynd byggða á
ævi foreldra sinna.