Morgunblaðið - 01.07.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.07.1997, Blaðsíða 1
104 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 145. TBL. 85. ÁRG. ÞRIÐ JUDAGUR 1. JÚLÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Kínverjar taka við völdum f Hong Kong eftir 156 ára nýlendustjórn Breta Ibúar Hong Kong boðnir vel- komnir í „faðm föðurlandsins“ Hong Kong. Reuter. KÍNVERJAR tóku við völdum í Hong Kong á miðnætti í nótt, kl. 16 að ís- lenskum tíma, og lauk þar með 156 ára yfirráðum Breta í borginni. Karl Bretaprins sagði Hong Kong-búum að Bretar myndu aldrei gleyma þeim, áður en hann lét völdin í borginni í hendur Jiang Zemin, forseta Kína, sem bauð borgarbúa „velkomna í faðm föðurlandsins". Tung Chee-hwa sór að því búnu embættiseið sem héraðsstjóri Hong Kong en síðasti landstjóri Breta þar, Chris Patten, hélt þegar í stað heim á leið ásamt Karli prinsi í Britanniu, skipi Bretadrottningar. Var Patten voteygur er hann lét af emb- ætti og himnarnir létu ekki sitt eftir liggja því ausandi rigning var í Hong Kong við valdaskiptin. Er sex klukkustundir voru liðnar af valdatíma Kín- verja í Hong Kong hélt öflugt herlið þeirra inn í borgina. Á miðnætti 1. júlí var fáni breska heimsveldisins dreginn niður og fáni kínverska alþýðulýðveldisins og hinn nýi fáni Hong Kong dregnir að húni. í ræðu sem Karl prins flutti fyrir hönd Bretadrottningar sagði hann Breta ekki myndu gleyma íbúum Hong Kong. „Kín- verjar taka í kvöld yfir ábyrgðina á stað og fólki sem er okkur mikils virði. Við munum ekki gleyma ykk- ur og við munum fylgjast gi’annt með þegar þið haldið inn í nýtt tímabil í hinni merku sögu ykkar,“ sagði Karl. Jiang Zemin, forseti Kína, sagði valdaskiptin vera sigur fyrir kín- versku þjóðina og lofaði íbúum Hong Kong að þeir myndu halda frelsi sínu. „1. júlí verður minnst í sögunni sem dags er verðskuldar eilífa minningu," sagði forsetinn. Hunsuðu hátíðahöld Kínverja Er Bretar höfðu látið Hong Kong af hendi héldu Karl prins, Tony Blair forsætisráðherra og Patten til skips og sigldu heim á leið. Þeir hunsuðu innsetningarathöfn Tungs og löggjafarsamkundu Hong Kong í mótmælaskyni við skipun hennar. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, var í mót- mælaskyni heldur ekki viðstödd há- tíðahöld Kínverja. Hátíðargestir voru um 10.000 auk þess sem talið er að um 100 milljónir manna hafi fylgst með beinni sjónvarpsútsendingu frá Hong Kong, en íburðarmikil tón- listar- og dansatriði tóku við af ræðuhöldunum. Þá var mikið um að vera víða í Kína en hápunktur há- tíðahaldanna utan Hong Kong var á Tiananmen-torgi í Peking, þar sem um 100.000 manns fögnuðu endur- heimt borgarinnar. Þegar upp úr miðnætti héldu um 500 léttvopnaðir kínverskir her- CHRIS Patten, síðasti landstjóri í Hong Kong, var niðurdreginn við kveðjuathöfn Breta í gær. Reuter HERMENN kínverska alþýðuhersins draga fána lands síns að húni í Hong Kong á miðnætti í gær. Þá fóru fram valdaskipti f borginni er Kínverjar tóku við stjórntaumum úr höndum Breta. Reuter TUNG Chee-hwa tók á miðnætti við embætti hér- aðsstjóra í Hong Kong. Hann var brosleitur er æðstu embættismenn borgariimar sóru embættiseiða. menn inn í borgina og að búðum breska hersins, þar sem þeir drógu kínverska fánann að húni. Um 4.000 hermenn biðu hins vegar við landa- mærin og héldu inn í borgina sex stundum eftir að valdaskiptin höfðu farið fram. Hafði hermönnunum verið uppálagt að sýna íbúum Hong Kong kærleik, áður en þeir héldu inn í hana. Fjölmenni fagnaði hermönn- unum við komuna til borgarinnar. Nýskipað þing Hong Kong kom þegar saman og samþykkti formlega lög, sem sett voru fyrir valdaskiptin en þau takmarka rétt íbúa til mótmæla og setja skorður við stofnun og starf- semi stjórnmálaflokka. Fella þau jafnframt úr gildi lýðræðisumbætur þær sem Patten stóð fyrir og gerðu Kínverjum svo gramt í geði. Hins vegar hefur Tung héraðsstjóri heit- ið því að kosningar til þingsins verði haldnar í maí nk. Lýðræðissinnar stóðu við hótanir sínar ,um að efna til mótmæla. For- dæmdi Martin Lee, einn forystu- manna þeirra, hið nýskipaða þing af svölum þinghússins og hét harðri baráttu í'yrir lýðræði í Hong Kong. Blair þáði heimboð Jiangs Blair átti stuttan fund með Jiang Zemin, forseta Kína, áður en valda- skiptin fóru fram. Var ekki annað að sjá en að vel færi á með þeim og bauð Jiang Blair í heimsókn til Kína, sem forsætisráðherrann þáði. Báðir lögðu áherslu á nauðsyn þess að fyrra ósætti þjóðanna væri nú að baki. Óskaði Blair þess að Hong Kong yrði „brú en ekki hindrun á milli Bretlands og Kína“. ■ Sjá umfjöllun á miðopnu. Mike Tyson biðst afsökunar Las Vegas. Rcuter. MIKE Tyson baðst í gærkvöldi afsökunar á því að hafa bitið Evander Holyfield í bæði eyrun í bardaga þeirra um heimsmeist- aratitilinn í þungavigt hnefaleika í Las Vegas á laugardagskvöldið. Tyson var dæmdur úr leik og Holyfield úrskurðaður sigurvegari eftir þriðju lotu, eftir að sá fyrr- nefndi hafði bitið í bæði eyru heimsmeistarans. Tyson hélt blaðamannafund í gærkvöldi í Las Vegas, þar sem hann baðst afsök- unar á framferði sínu. Hann sagði m.a.: „Evander, fyrirgefðu mér. Þú ert meistari og ég tek því.“ Tyson las afsökunarbeiðni sína af blaði og yfirgaf síðan fundarsal- inn án þess að svara spurningum fréttamanna. íþróttanefnd Nevada-ríkis kemur saman í dag en hún ákveður hvernig refsa skuli Ty- son fyrir athæfið á laugardag. Hann sagðist í gær eiga von á harðri refsingu, hann myndi una úrskurði nefndarinnar en bað þess að verða ekki dæmdur í lífs- tíðarbann frá hnefaleikum. Tyson átti að fá 2,1 milljarð króna fyrir bardagann, en ekki liggur ljóst fyrir hve mikið kemur í hans hlut. Skv. lögum Nevadaiíkis er ekki hægt að sekta íþróttamenn nema sem nemur 10% verðlaunafjár, þannig að hann ætti að fá a.m.k. 1,9 milljarða. ■ Fyrirgefðu/Bl Stjórn Yilmaz tekur við í Tyrklandi Ankara. Reuter. MESUT Yilmaz tók við emb- ætti forsætisráðherra Tyrk- lands í gær og lauk þar með hálfs mánaðar óvissutíð í stjórnmálum landsins. Yilmaz, sem er hægrimaður, sagði í gær að stjórn sín myndi binda enda á deilur um hlutverk íslams í opinberu lífí og þar með myndi hverfa hættan á að herinn tæki að hlutast til um stjórn lands- mála. Markmiðið með mynd- un stjórnarinnar er að koma í veg fyrir að múslimar úr flokki Neemettins Erbakans, fráfarandi forsætisráðherra, geti verið áfram við völd. „Þetta verður stjóm sem leggur áherslu á borgaraleg, lýðræðisleg og frelsishvetj- andi gildi,“ sagði Yilmaz á fréttamannafundi eftir að Su- leyman Demirel, forseti landsins, útnefndi hann til embættis forsætisráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.