Morgunblaðið - 01.07.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 1997 23
t-
gildi á ný, sem aftur kallaði yfir
hann gagnrýni erlendis frá.
Á síðustu árum hefur gagnrýnin
magnast ekki síst af hálfu rithöfunda
og menntamanna sem kosið hafa að
yfirgefa fósturjörðina. Skáldmennið
Mario Vargas Llosa lýsti þannig ný-
verið yfir því að Perú væri ekki lýð-
ræðisríki heidur væri þar við völd
einræðisherra, sem safnað hefði um
sig hópi glæpamanna. Undir þessi
orð tekur Henry Pease, þingmaður
flokksins UPP (Unión Por el Perú)
en leiðtogi þessara samtaka er Javier
Pérez de Cuellar, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Pease telur að „mafía“ hafi tekið
völdin í Perú og segir þjóðfélagið
allt nötra og skjálfa af þeim sökum.
Fjölmiðlum ógriað
Fjölmiðlamenn í Perú segja að
Fujimori og menn hans hiki ekki við
að hafa í hótunum við þá sem dirfist
að andmæla stefnu og stjórnarhátt-
um forsetans. „Sýndarlýðræði" ríki
í landinu ekki ósvipað því sem við
eigi í Króatíu þar sem Franjo Tudj-
man forseti hefur hundsað flest
grundvallarviðmið lýðræðislegra
stjórnarhátta. Stjórnarandstaðan
segir að blásið hafi verið til herferð-
ar gegn dagblöðum þeim sem ekki
séu Fujimori undirgefin og öllum
þeim sem á einhvern hátt geti ógnað
einræðisstjórn hans. Fyrrum starfs-
maður leyniþjónustunnar í Perú
(SIE) fullyrðir að stjórnvöld hafi
áformað að láta myrða sjónvarps-
fréttamanninn César Hildebrandt
sem gengið hefur einna lengst í
gagniýni sinni á Fujimori. Rannsókn-
ar hefur verið krafist en þá kröfu
virðast stjórnvöld ætla að virða að
vettugi.
„Þjóðin þarfnast mín“
Á undanförnum tveimur mánuðum
hefur mesta athygli vakið tilraun
Fujimori til að túlka stjórnarskrána
með þeim hætti að honum sé heimilt
að bjóða sig fram á ný þegar kjör-
timabili hans lýkur árið 2000.
Skömmu eftir árásina á sendiherra-
bústaðinn, þegar vinsældir forsetans
voru mestar, lýsti Fujimori yfir því
að hann hygðist fara fram á ný þar
sem við blasti að honum væri það
heimilt og þjóðin þyrfti enn á kröftum
hans að halda, líkt og nýverið hefði
sannast.
Ólíkt því sem við á um flest ríki
Suður-Ameríku kveður stjórnarskrá
Perú skýrt á um að forseti megi
aðeins sitja tvö kjörtímabil en Fuji-
mori segir það ákvæði ekki eiga við
þar eð hann hafi verið kjörinn árið
1995 samkvæmt nýrri stjórnarskrá,
sem samþykkt var naumlega í þjóð-
aratkvæðgreiðslu árið 1993. Fuji-
mori var fyrst kjörinn forseti Perú
árið 1990 og aftur tveimur árum síð-
ar eftir að hann hafði numið stjórnar-
skrána úr gildi. Nú heldur hann því
fram að hann hafi í raun aldrei ver-
ið endurkjörinn.
Þessi túlkun forsetans vakti strax
hörð viðrögð. Þrír dómarar í stjórn-
arskrárdómstóli Perú lýstu yfir því
að þessi ákvörðun forsetans væri
ólögleg og skýiaust stjórnarskrár-
brot. Fujimori brást hinn versti við
og rak dómarana úr embætti með
aðstoð undirsáta sinna á þingi.
Dómararnir neita að gefast upp
og hafa vænt forsetann um valda-
rán. Þeir segja að um pólitíska aðför
sé að ræða til að tryggja einræð-
isstjórn Fujimori lengri lifdaga.
Fólkið gegn forsetanum
Vera kann að forsetinn hafi nú
gengið of langt þó svo hann sýni
engin merki iðrunar og reynslan
kenni að hann sé tilbúinn til að sýna
algjört miskunnarleysi í átökum við
andstæðinga sína. Almenningur í
Perú virðist að sönnu litla virðingu
bera fyrir valdastéttinni sem ræður
þar ríkjum en öðru máli gegnir um
stjórnarskrárdómstólinn, sem settur
var á laggirnar sem óháð dómsvald
til að unnt reyndist að bregðast við
sérhverri tilraun ráðamanna til að
hundsa lögin í landinu. Skoðanak-
annanirnar eru til marks um að al-
þýða manna styðji dómarana og vilji
að ráðamenn starfi í samræmi við
reglur lýðræðisins. Framtíð lýðræðis-
ins í Perú kann því að ráðast af við-
brögðum forsetans.
Reuter
Hefðin rofin
KONUR frá bænum Irun í
Baskalandi á Norður-Spáni í ár-
legri skrúðgöngu á hátíð í bæn-
um í gær. Lögregla varð að taka
í taumana og beita valdi til þess
að karlmenn réðust ekki á kon-
urnar, en venjan hefur verið sú
að einungis karlar fari í skrúð-
göngu I bænum. Það var ekki
fyrr en á síðasta ári sem konur
fengu að efna til sinnar eigin
göngu, og hafa sumir karlmenn
ekki verið sáttir við þetta rof á
hefðinni.
Tímamót í íslenskri flugsögu
Á sama ári og sérleyfi á flugleiðum innanlands er afnumið - hefur nýtt og sterkt félag
sig til flugs - Flugfélag íslands.
Með gæðin að leiðarljósi
Flugfélag íslands er einkar vel búið til að mæta peirri samkeppni sem
framundan er. Félagið hefur á að skipa glæsilegum og tæknilega vel búnum
flugvélakosti sem tryggir farþegum áhyggjulausa ferð á öllum leiðum.
Við munum leggja okkur fram við að veita farþegum okkar góða og þægilega
I þjónustu - en stundvísi og fjölda ferða lítum við á sem sjálfsagðan hluta
þeirrar þjónustu.
Við fögnum frelsi í innanlandsflugi
með sérstökum Sumarglaðningi sem gildir um þriðjung allra
sæta á öllum áætlunarleiðum Flugfélags íslands í júlímánuði.
iimtir
l$L í
fs
CJ
miwin f Verð* Fjöhli ferða á viku
Akureyri 7.330 kr. 50
Egilsstaðir 7.730 kr. 22
Hornafjörður 7.530 kr. 14
Húsavík 7.430 kr. 13
ísafjörður 7.130 kr. 19
Sauðárkrókur 7.030 kr. 9
Vestmannaeyj ar 6.030 kr. 27
*Báðar leiðir með flugvallarskatti.
FLUGFELAG ISLANDS
Velkomin um borð!