Morgunblaðið - 01.07.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUD AGUR 1. JÚLÍ 1997 13
FRÉTTIR
Doktor í
læknavís-
indum
•ÁSGEIR R. Helgason sálfræð-
ingur varði 30. maí doktorsritgerð
í læknavísindum við Krabba-
meinslækninga-
deild Karolinska
sjúkrahússins í
Stokkhólmi. Rit-
gerðin er skrifuð
á ensku og heit-
ir: „Prostate
cancer treat-
ment and
quality of life -
a three level epidemiological
approach.“
Efnið byggt á sjö ritgerðum
Leitað er svara við þeirri spurn-
ingu hvort æskilegt sé að með-
höndla staðbundið krabbamein í
blöðruhálsi. Efni ritgerðarinnar er
tvíþætt og byggir á sjö aðskildum
greinum sem birtar hafa verið í
alþjóðlegum tímaritum um læknis-
fræði. Fyrri hlutinn fjallar um
kynlíf og mikilvægi þess fyrir eldri
menn og vandamál tengd þvag-
færum og endaþarmi. Þessir þætt-
ir eru rannsakaðir í úrtaki manna,
á aldrinum 50-80 ára, með
krabbamein í blöðruhálsi og niður-
stöðurnar bornar saman við jafn-
aldra þeirra sem ekki hafa sjúk-
dóminn. Leitað er svara við því
að hve miklu leyti þessi einkenni
tengjast sjálfum sjúkdómnum og
að hve miklu leyti rekja megi þau
til þeirra meðferðarúrræða sem í
boði eru.
Áhrif einkenna á lífsgæði
Í öðrum hluta ritgerðarinnar er
athugað hvaða áhrif einkennin
hafa á lífsgæði sjúklinganna og
eldri manna almennt. Leitað er
nýrra leiða til að meta lífsgæði
með það að leiðarljósi að niður-
stöðurnar hafi hagnýtt gildi við
ákvörðun meðferðar.
Meginniðurstöðurnar voru að
öll meðferðarúrræði við krabba-
meini í blöðruhálskirtli hafi í för
með sér aukaverkanir. Þær al-
gengustu eru „getuleysi" og
minnkuð nautn við kynlífsfullnæg-
ingu en einnig eru algeng ein-
kenni frá þvagfærum og enda-
þarmi m.a. þvagleki og hægða-
tregða. Þegar menn eru upplýstir
um að ekki hafi verið hægt að
sýna fram á að meðferð við stað-
bundnu blöðruhálskirtilskrabba-
meini auki lífslíkur sjúklinga en
að u.þ.b. 80% þeirra séu á lífi 10
árum eftir greiningu, með eða án
meðferðar, segjast u.þ.b. 1/5 hluti
aðspurðra reiðubúinn að hafna
meðferð til að komast hjá þessum
aukaverkunum á meðan 2/5 hlutar
mannanna voru ekki tilbúnir að
hafna meðferð þrátt fyrir ofan-
greindar aukaverkanir.
Aukaverkanir og bati vegast á
í lok ritgerðarinnar er komist
að þeirri niðurstöðu að heilbrigðis-
starfsfólki beri að upplýsa sjúkl-
inga um staðfestan árangur og
aukaverkanir meðferða. Ennfrem-
ur að ákvörðunin um hvort og þá
hvernig eigi að meðhöndla stað-
bundið krabbamein í blöðruhálsi
sé matsatriði þar sem vega verður
neikvæðar aukaverkanir á móti
hugsanlegum bata.
Faðir Asgeirs er Helgi Valdi-
marsson læknir, giftur Guðrúnu
Agnarsdóttur _ lækni og móðir
hans er Ólöf Ásgeirsdóttir hús-
móðir, gift Sigurði Þormar verk-
fræðingi. Eiginkona hans er Sig-
rún M. Proppé, við framhaldsnám
í sállækningum, og synir þeirra
eru Hugi og Muni.
Everest
Everest-tindur er hæstur allra tinda jarðar, 8.848 m, og rís upp
úr Himalaja-fjallganðinum á milli Nepal ogTíbet Hann var
Idiftnn í fyrsta sinn árið 1953 af Edmund Hillary og Tenzing
Norgay. Frá þeim tíma hafa tæplega 700 manns komist á
tindinn.
Þeir komu
íslandi
á toppinn!
„Ég verð því miður
að tilkynna að við
komumst ekki hærra!
Skipti!“
Þessi orð bárust Herði
Magnússyni gegnum talstöð
frá Birni Ólafssyni, sem var
staddur ásamt félögum
sínum þeim Einari Stefáns-
syni og Hallgrími Magnús-
syni á hæsta tindi Everest,
að morgni 21. maí 1997.
Árangur þeirra er einstakt
þrekvirki sem krefst
gífurlegrar þjálfunar og
undirbúnings, sem meðal
annars felst í því að prófa
og velja rétta útbúnaðinn.
Framúrskarandi búð
fyrir f jallamenn
50 ára afmælis Skátabúðar-
innar á þessu ári verður vart
minnst með eftirminnilegri
hætti því allur fatnaður og
búnaður sem þeir félagar
notuðu í leiðangrinum var
frá Skátabúðinni.
Skátabúðin hefur verið
leiðandi í innflutningi og sölu
á útivistarbúnaði í 50 ár.