Morgunblaðið - 06.10.1992, Side 56
MORGUNBLADW, AÐALSTRÆTI 6, 101 RICYKJA VlK
Slm 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Flóðlýstír landsliðsmenn í Laugardal
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Islendingar mæta Grikkjum í undanriðli heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu á Laugardalsvelli annað kvöld, og er þetta fyrsti heima-
leikur Islands í keppninni að þessu sinni. Landslið Islands æfði í gær-
kvöldi í fyrsta skipti við flóðljós í Laugardalnum, en ljósin verða form-
lega tekin í notkun annað kvöld. Á myndinni eru Sigurður Grétars-
son, fyrirliði landsliðsins, Guðni Bergsson og Arnór Guðrjohnsen.
Fyrstu íbúðakaup
Lánshlut-
fall hækkí
úr 65 í 75%
JÓHANNA Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra segist leggja
ríka áherslu á að lánshlutfal' til
þeirra sem kaupa íbúð fyrsta
sinni verði hækkað. Lánshlutfall-
ið nú er 65% af kaupverði íbúðar
en félagsmálaráðherra segir að
það gæti kostað um einn milljarð
kr. að hækka lánshlutfall úr 65%
í 75% til þeirra sem kaupa í fyrsta
sinn.
„Þetta er hugmynd sem hefur
verið lengi á borði mínu og verður
hrint í framkvæmd um leið og
markaðurinn leyfir. Ég hef haft
heimild í lögum til þess að gera
þetta í tvö ár, ráðherra getur hækk-
að þetta hlutfall með reglugerðar-
breytingu. Ég hef hins vegar ekki
talið tímabært að gera það vegna
markaðsaðstæðna og mikils fram-
boðs af húsbréfum samfara tvenns
konar lánakerfum. En þetta er hug-
mynd sem ég mun við fyrstu hent-
ugleika hrinda í framkvæmd og þá
ekki eingöngu vegna kaupa á ný-
byggingum, heldur fyrir þá er
kaupa í fyrsta sinn, hvort sem það
er notað eða nýtt,“ sagði félags-
málaráðherra.
Félagsmálaráðherra sagði að á
árinu 1991 hefðu 13% þeirra sem
sóttu um í húsnæðiskerfínu haft of
háar tekjur til að teljast hæfir en
um leið of lágar tekjur til þess að
geta staðið undir lágmarksíbúðar-
verði í húsbréfakerfínu. Þetta hefði
snert um 200 manns. „Það að fara
með lánshlutfallið upp í 75% myndi
veita stórum hluta þessa hóps tæki-
færi til þess að kaupa ódýrustu
íbúðirnar," sagði félagsmálaráð-
herra.
Bláðamannafélagið
Níu kærur til
siðanefndar
Óvepjumargar kærur, eða níu,
hafa borist siðanefnd Blaða-
mannafélags Islands á þessu ári.
Þegar hafa þrjár af kærunum
verið afgreiddar en sex kærur eru
til umijöllunar hjá nefndinni. Hafa
aldrei fyrr verið jafnmargar kærur
hjá siðanefndinni og nú.
Jarðfræðirannsókn-
ir hafnar á Keilisnesi
Kaupum Skandia á Verðbréfamarkaði Fjárfestingarfélagsins rift og viðskipti stöðvuð
Gripið til aðgerða að til-
mælum bankaeftirlitsins
- segir Gísli Örn Lárusson forstjóri Skandia ísland
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ
Skandia hf. stöðvaði í gær sölu
og innlausn hlutdeildarskírteina í
verðbréfasjóðum í vörslu fyrir-
tækisins vegna tilmæla bankaeft-
irlits Seðlabanka íslands sam-
kvæmt upplýsingum Gísla Arnar
Lárussonar forstjóra Skandia.
Hefur móðurfyrirtækið Skandia
tilkynnt Fjárfestingarfélaginu um
riftun kaupanna á Verðbréfa-
markaðnum. Komið hefur í Ijós
að loknu hálfsársuppgjöri sjóða í
vörslu verðbréfafyrirtækisins að
munur á mati á eignum sjóðanna
og skráðu gengi þeirra er um 160
milljónir króna. Af hálfu Fjárfest-
ingarfélagsins er á það bent að
kaupin hafi farið fram að undan-
gengnum ítarlegum athugunum
endurskoðenda og annarra sér-
fræðinga beggja aðila á stöðu fé-
lagsins og sjóðanna. Félaginu sé
ekki kunnugt um neinar vanefndir
af þess hálfu í sambandi við um-
rædd kaup og þaðan af siður nein-
ar þær ástæður sem réttlætt gætu
riftun kaupanna.
Að sögn Gísla Arnar var bankaeft-
irliti Seðlabankans tilkynnt um að
vantaði í sjóðina um miðjan mánuð-
inn eins og kveðið er á um í lögum
um starfsemi verðbréfafyrirtækja.
Eftir tilmæli frá Seðlabankanum
hafí síðan verið ákveðið að grípa til
þessara aðgerða.
í byijun september voru tæplega
3 milljarðar í verðbréfasjóðunum en
þeir hafa dregist mikið saman síð-
ustu misseri. Lauslega áætlað eru
eigendur þessara fjármuna kringum
4 þúsund talsins. Samkvæmt niður-
stöðu endurskoðenda verðbréfasjóð-
anna er ljóst að verulega vantar í
Verðbréfasjóðinn hf. sem gefur út
Kjarabréf eða sem nemur allt að 120
milljónum. Minna vantar í aðra sjóði
en samtals vantar 163 milljónir til
að æskilegri niðurstöðu sé náð. Þó
ekki liggi fyrir nákvæm greining á
því hvenær þessi vöntun hafí komið
til er talið ljóst að upplýsingar um
verulegan hluta hennar hefðu átt að
liggja fyrir á fyrri helmingi ársins.
I fréttatilkynningu frá Fjárfest-
ingarfélaginu er bent á að samkvæmt
samningi Skandia og Fjárfestingar-
félagsins beri að leggja hugsanlegan
ágreining fyrir gerðardóm. Riftun
kaupanna gangi þannig þvert á for-
skrift samningsins um meðferð álita-
efna varðandi kaupin.
Aðstoðarforstöðumaður bankaeft-
irlits Seðlabankans segir að hags-
munir allra eigenda séu best tryggð-
ir með þessu móti eða með gengis-
lækkun bréfanna til samræmis við
nýtt mat á eignum.
Ekki varð vart við óróa á verð-
bréfamarkaðnum í gær vegna þess-
ara atburða. Talsmenn nokkurra
verðbréfafyrirtækja, sem Morgun-
blaðið ræddi við, sögðu að ekki væri
ástæða fyrir viðskiptavini þeirra að
hafa áhyggjur og of snemmt væri
að meta hvort og þá hvaða áhrif
þetta hefði á íslenskan verðbréfa-
markað til lengri tíma litið.
Sjá ennfremur fréttir á
miðopnu.
Skylduspamaðar-
kerfið lagt niður
SKYLDUSPARNAÐARKERFIÐ
verður lagt niður i núverandi
mynd og hugmyndir eru uppi um
að koma því fyrir iiman banka-
kerfisins, að sögn Jóhönnu Sigurð-
ardóttur félagsmálaráðherra.
„Það eru hugmyndir um það í fíár-
lagafrumvarpinu að draga úr rekstr-
arkostnaði Húsnæðisstofnunar og
inni í þeim sparnaði er að breyta
núverandi mynd á skylduspamaðin-
um,“ sagði Jóhanna.
Hún sagði að eftir væri að skoða
allar útfærslur á því hvernig skyldu-
spamaðarkerfinu yrði breytt, hvort
það yrði fært inn í bankakerfið, en
það eitt væri víst að það yrði lagt
niður í núverandi mynd.
Vogum.
Viðamiklar jarðfræðirann-
sóknir eru hafnar á Keilisnesi
vegna fyrirhugaðs álvers Atl-
antsálsfyrirtækjanna.
Við rannsóknimar eru meðal
annars boraðar um 80 borholur,
þar á meðal um 20 holur með
kjamabor, tuttugu og fímm metra
djúpar, og ein 60 metra djúp, þar
sem em tekin sýni til frekari rann-
sóknar á berglögunum.
Bergið er einnig rannsakað með
jarðsjá sem gefur mynd af berg-
lögunum niður á 20 metra dýpi.
Að rannsóknunum standa
Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða, Jarðfræðistofan Stapi,
Línuhönnun hf. og Hönnun hf.
— EG
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Jarðbor við eina af 80 borhol-
um, sem boraðar verða á Keilis-
nesi.